Morgunblaðið - 31.08.1993, Síða 16

Morgunblaðið - 31.08.1993, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993 ræða annast Rauði krossinn milli- göngu milli þeirra. Ef nauðsyn krefur tekur Rauði krossinn einnig að sér það hlutverk í átökum þar sem Sameinuðu þjóðirnar eiga hlut að máli. Alþjóðaráðstefnan um vernd fórnarlamba striðs sem haldin 1 verður 30. ágúst til 1. september verður að koma á framfæri við ríki heims þeim boðskap að þau I verði öll að vinna saman að því að Genfarsáttmálarnir og alþjóð- leg mannúðarlög yfirleitt séu al- | menn og alls staðar virt og öll ríki sem skuldbundin eru af ákvæðum þeirra standi við skuldbindingar sínar. Refsingar og skaðabætur fyrir brot á mannúðarlögum Öll ríki sem hafa undirritað Genfarsáttmálana eru skuldbund- in til að hindra allt sem er and- stætt ákvæðum þeirra og refsa fyrir öll gróf brot. Öll gróf brot eru álitin stríðsglæpur. Á ráðstefn- unni til verndar stríðshijáðum, verður fjallað um hvernig mögu- legt er að stöðva sífellt brot á Genfarsáttmálanum og hvernig hægt er að koma lögum yfir stríðs- glæpamenn. Þar verður að nást árangur í að finna leiðir sem hægt er að fara og þar verður til umfjöll- unar í þessu sambandi hlutverk alþjóðlegrar rannsóknarnefndar 1 og hugmyndir um alþjóðlega refsi- löggjöf. Viðauki 1 við Genfarsáttmálana frá 1949 kom á fót mikilvægu alþjóðlegu samstarfi um fjölþjóð- lega nefnd til að framfylgja mann- úðarlögum. 34 ríki af 125 sem hafa undirritað viðaukann, hafa skuldbundið sig til að hlíta umboði nefndarinnar til að leita eftir upp- lýsingum og ganga eftir því að Genfarsáttmálarnir séu virtir. Mikilvægt er að fleiri ríki fylgi í Alþjóðaráð Rauða krossins Mannúðarlögum verður að fram- fylgja hvað sem það kostar í styijöldum nútímans hefur reynst nær ókleift að framfylgja ákvæðum Genfarsáttmálanna. Sjálfar forsendur þeirra hafa verið véfengdar. Alþjóðleg mannúðarlög ganga út frá því, að þegar til stríðs kemur skuldbindi stríðsaðilar sig til að virða viss grundvallaratriði þeirra. Á þessu hefur orðið mikill misbrestur. Sú spuming er áleitin, hvernig ríki heims eigi að bregðast við, þegar stríðsaðilar neita áð virða reglur og grunnforsendur alþjóð- legra mannúðarlaga. Þessi þróun kallar á ákveðin viðbrögð. Réttur á aðstoð í fyrsta lagi er brýnt að við- halda tengslum og samskiptum við alla aðila stríðsins og reyna að hafa bein áhrif á þá, ekki aðeins til að fá þá til að fallst á að virða alþjóðleg mannúðarlög, heldur einnig að fá þá til samvinnu um lausn aðkallandi vandamála, svo sem starf alþjóðlegra hjálparstofn- ana við að aðstoða blásnauða og sveltandi óbreytta borgara eða annast varnarlausa stríðsfanga. í öðru lagi verður að grípa til aðgerða, þegar tengsl og sam- skipti stríðsaðila reynast ekki duga til að fá þá til að virða alþjóðleg mannúðarlög. I slíkum tilfellum verða ríki heims, sem skuldbundin eru af aðild sinni að Genfarsátt- málanum, að gera ráðstafanir í Genfarsáttmálamir eiga að tryggja rétt þess fólks, sem stríðsátök hrekja á flótta. samræmi við þær skyldur sem þær hafa undirgengist, til að tryggja að mannúðarlög séu virt. í þriðja lagi verður að beita þeim ákvæðum laganna sem kveða á um utanaðkomandi afskipti. Til- nefna má fyrir milligöngu Samein- uðu þjóðanna einstök eftirlitsríki til að fylgjast með framkvæmd á ákvæðum Genfarsáttmálanna. Al- þjóðlega rannsóknarnefndin getur fengið umboð til að rannsaka framferði stríðsaðila. Þessum að- ferðum verður að beita. Samband milli stríðandi fylkinga Þegar þau úrræði sem kveðið er á um í Genfarsáttmálanum reynast haldlítil eða gagnslaus með öllu og þegar alvarleg og vís- vitandi brot á Genfarsáttmálanum eru þess eðlis að þau eru í sjálfu sér undirrót átaka er það á valdi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að láta málið til sín taka og annað hvort bera fram tillögur um úrbæt- ur eða ákveða aðgerðir í samræmi við stofnskrá Sameinuðu þjóð- anna. Hlutlausar og óháðar stofnanir svo sem Alþjóðaráð Rauða kross- ins hafa það hlutverk að halda uppi sambandi milli aðila í stríði. Þegar um mannúðarmál er að Hagfræðideild Seðla- banka af sporinu eftirÞorgeir Eyjólfsson í ágústhefti Hagtalna mánaðar- ins, sem gefið er út af Hagfræði- deild Seðlabanka íslands, er gerður margvíslegur samanburður á vaxtastigi á íslandi og nokkrum nágrannalöndum. Samanburðurinn er gerður á grundvelli neysluvöru- verðs þegar raunvextir erlendis eru reiknaðir en á grundvelli nýju láns- kjaravísitölunnar þegar um ísland ræðir. Grein minni er ætlað að sýna fram á, með rökstuðningi úr Hag- tölum Seðlabankans, að lánskjara- vísitalan sé ónothæf til mælinga á verðlagsbreytingum frá einum tíma til annars og að raunvaxtatölurnar í samanburði Seðlabankans hefðu átt að reiknast á grundvelli fram- færsluvísitölunnar. Þessari grein er alls ekki ætlað að gera lítið úr þeim vanda sem stafar af of háum vöxt- um á íslandi og nauðsyn lækkunar þeirra heldur er henni ætlað að benda á nauðsyn vinnubragða þannig að almenningur sé rétt upp- lýstur um stöðu þessara mála á hveijum tíma. Tilvitnun í Hagtölur mánaðarins janúar 1990 bls. 2 „Seðlabankinn hefur síðustu ár notað lánskjaravístölu sem verð- mælikvarða við mat á raunvöxt- um enda var hún þannig gerð að ætla mátti að hún endurspe- glaði almennar verðlagsbreyt- ingar. Sem kunnugt er var grundvelli hennar breytt í upp- hafí árs 1989 þar sem launavísi- tala fékk jafna vog á við vístöl- ur byggingar- og framfærslu- kostnaðar hvora um sig í þeim tilgangi að draga úr misgengi lánskjara og launaþróunar. Lánskjaravístitalan er því ekki lengur almennur verðlagsmæli- kvarði á sama hátt og hún var. Því er hér í töflum og texta miðað við framfærsluvístölu frá og með árinu 1989 þegar fjallað er um raunvexti." Þorgeir Eyjólfsson „Lánskjaravísitalan er ekki nothæf til verð- bólgumælinga. “ Þessu til áréttingar má benda á línurit í Hagtölum mánaðarsins ágsúst ’93 „mynd 13 á bls. 30“ en þar er verðbólga sýnd í mismun- andi útgáfu en reiknað er þar á grundvelli framfærslukostnaðar. Lesandanum kanna að þykja for- vitnilegt að vita mismun þróunar á nýju og gömlu lánskjaravístölunni. Lánskjaravísitalan fyrir ágústmán- uð hefur gildið 3.330. Hefði gamla vístalan verið reiknuð hefði hún gildið 3.503 fyrir ágústmánuð. Þannig hefði gamla vísitalan verið 5,19% hærri í ágúst en sú nýja. Dæmi: Jón lánat Páli 10.000 kr. í ágúst 1988. Þeir semja um að Páll endur- greiði lánið með 7% vöxtum og verð- bótum að fímm árum liðnum eða í ágúst 1993. Vegna breytinga á lánskjaravístölunni greiddi Páll Jóni 21.067 kr. en hefði greitt Jóni 22.161 kr. ef engu hefði verið breytt. En hvaða raunvexti fékk Jón þá á lánsféð. Jú, þeir reiknast 5,9% en ekki 7% eins ogþeir höfðu ákveð- ið sín á milli. Þennan mismun má yfírfæra á stærri fjárhæðir í lánakerfinu. Ljóst er að breytingin náði tilætluðum árngri. Ekki er ólíklegt að fjárhæð af stærðinni 8 til 10 milljarðar hafi færst frá sparifjáreigendum til skuldara með þessari breytingu, en það er í mörgum tilfellum sömu aðilarnir, svo ekkert er einhlítt í þeim efnum og spurningar þar um gagnslausar. En hvaða tilgangi þjóna þá skrif af þessu tagi, kann einhver að spyija? Jú, þeim er ætlað að varpa birtu á þá staðreynd að lánskjara- vísitalan er ekki nothæf til verð- bólgumælinga þó hún sé nothæf í lánsviðskiptum, og þá sér í lagi þegar lánað er til langs tíma en þá sveiflujafnast áhrif launabreytinga í viðskiptum. Þegar gengi íslensku krónunnar hefur verið fellt í tvígang á stuttum tíma án þess að launþegum sé bætt kjaraskerðingin sem af verð- hækkunum í kjölfar gengisfelling- anna leiðir er þeim lítill greiði gerð- ur með því að telja þeim trú um að þeir séu að greiða hærri raun- vexti en veruleikinn segir til um. Næg er nú óánægjan fýrir. Það á jafnframt við um stjórnendur at- vinnufyrirtækja. Dæmi: Jón tekur aftur 10.000 kr. að láni hjá Páli í desember 1992. Lán- ið er til eins árs og ber 7% vexti ofan á lánskjaravístölu. Þegar Jón greiðir Páli lánið til baka í desem- ber n.k. verður greiðslan 11.047 kr. (notast við spá Seðlabanka um þróun lánskjaravísitölu). Hefðu þeir verðtryggt lánið miðað við fram- færsluvístölu hefði greiðslan orðið 11.271 kr. Þannig er Jón ekki að greiða 7% raunvexti til Páls heldur 4,8%. Ég hvet Seðlabanka í samstarfí við fjölmiðla að halda réttum upp- lýsingum um þróun verðlags og útreikningi raunvaxta að almenn- ingi í landinu. Það hefur ekki síst þýðingu á erfíðleikatímum. Raun- hæfasta leiðin til lækkunar vaxta liggur í gegnum fjárlagagerðina. Minni halli á ijárlögum endurspegl- ast mjög fljótt til í lægri vöxtum. Komdu aó dansa... .. .i Danssmiðjunni Innritun og upplýsingar alla daga milli kl. 12.00 og 19.00 í síma 689797 og á staðnum. • Samkvæmisdansar • Ballroom • Latin • Barnadansar • Gömlu dansarnir • Byrjendur og lengra komnir • Hóptímar • Einkatímar • Dansæfingar • Erlendir gestakennarar Kynnið ykkur ýmis afsláttartilboð Suðurnesjamenn, Danssmiðjan er líka í Keflavik c Opnunarhátíð laugardaginn 4. sept. J Starfsfólk skólans. CWld SMIÐJAN jÓHANN ÖRN ÓLAFSSON DANSKENNARI : 68 97 97

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.