Morgunblaðið - 31.08.1993, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 31.08.1993, Qupperneq 20
20______________MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993_ Tengiliður milli Islands og annarra Norðurlanda eftir Lars-Áke Engblom Norræna húsið var reist í Reykja- vík á sjöunda áratugnum af því að á hinum Norðurlöndunum höfðu menn áhyggjur af því að íslendingar væru að mjakast vestur á bóginn út úr norrænni einingu. Nú þegar Nor- ræna húsið verður 25 ára liggur beint við frá íslenskum sjónarhóli að hafa sama ugg um að á öðrum Norð- urlöndum sé stefnan nú austur og suður, burt frá Islandi (og öðrum löndum í útnorðri). Ef til vill er hvor tveggja hug- myndin tilefnislaus. Norræn sam- kennd var sennilega ríkari á Islandi 1968 en margir annars staðar á Norðurlöndum álitu. Og nýjar skoð- anakannanir sýna að samvinna nor- rænu landanna fimm er enn talin svo mikilvæg að meirihluti þegna alls staðar á Norðurlöndum vill styrkja hana og auka. Jafnvel, eða kannski einkum og sér í lagi, á þeim Evrópus- innuðu Norðurlöndum sem austast liggja. En jafnframt er norræn samhygð ekki eins sjálfsögð og þegar Norræna húsið var opnað 1968. Samtímis því sem norrænt samstarf hefur orðið áþreifanlegra hefur það orðið um- deildara. Stórbrotnar glæsihug- myndir á borð við Nordek og Nord- sat hafa siglt í strand undir fána sundurlyndisins. Það að norræn sam- hygð lifði af þessi vonbrigði sýnir hve lífseig hún er þegar öllu er á botninn hvolft. Hin mikla, almenna samstaða um norrænar hugmyndir og sameigin- lega norræna sameiningu er eini grundvöllur Norræna hússins í Reykjavík. Samkvæmt stofnskrá skal húsið vera tengiliður milli ís- lands og annarra Norðurlanda í „menningu, atvinnulífí og félagslífi", auk þess að „örva áhuga á norrænu samstarfi á íslandi og flytja íslenska menningarstrauma til annarra Norð- urlanda". Þannig eru í margháttuð- um skilningi engar markalínur um starf Norræna hússins; það er í senn menningarhús, upplýsingamiðstöð og almennur samkomustaður og það hefur veitt þessari stofnun einstæð sambönd um öll Norðurlönd. Jafnvel þeir sem eiga beinan hlut að máli hljóta að líta svo á að íslendingar og norrænir gestir hafi sýnt Norræna húsinu stórkostlegan áhuga allt frá upphafi 1968. Milli 100.000 og 150.000 gestir á ári vitna um það að húsið er ekki reist handa neinni fámennri klíku. Þannig standa málin nú. En hver verður hlutur Norræna hússins á næstu tuttugu og fimm árum. Það er sú spurningin sem mestu skiptir nú þegar haldið er upp á afmæli hússins. Hvernig getur Norræna húsið haldið hlut sínum og styrkt stöðu sína á íslandi - og í norrænu menningarsamstarfi? Framtíð Norræna hússins á ís- landi ræðst mjög a,f því hversu mikið starf hússins höfðar til íslenskrar æsku, hve vel því tekst að skapa eða bjóða kosti og uppfyllingu sem keppi við engilsaxneska fjölmiðlunarmenn- ingu. Eins og rannsókn sýnir, sem kynnt verður á námstefnu í tilefni afmælisársins, hefur áhugi á Norður- löndum minnkað á undanfömum árum meðal íslensks æskufólks. Ann- að væri undarlegt þegar litið er á hvemig enskumælandi kvikmyndir fá æ meira yfirhöndina, jafnt í kvik- myndahúsum sem á myndbandaleig- um og í sjónvarpi. En jafnframt er tiltölulega stór, gallharður hópur Is- lenskra æskumanna sem er hlynntur norrænu samstarfí, ungt fólk, sem margt hefur búið í norrænum grann- löndum, unnið þar um stundarsakir (nordjobb) eða stundað þar nám. Þetta fólk er mikilvægur og traustur hópur að útbúa dagskrár fyrir og starfa með. Þarfir og óskir unga fólksins ættu sem sé að fá enn stærri skerf í starfi hússins. Það er einnig eðlilegt verkefni Norræna hússins að fara í fylking- arbijósti til að styrkja stöðu nor- rænna tungumála á íslandi. Það er einstakt forskot fyrir allt norrænt starf á íslandi að danskan (norsk- an/sænskan) er ennþá fyrsta erlent tungumál í skólum. Það má hins vegar spyija hve lengi það helst - ef böm og kennarar fá enga uppörv- un eða ástæðu til að nota í reynd norrænu tungumálin. Þetta má gera á margan hátt; það má óska þess í afmælisgjöf að fá ærlegan skammt af norrænum kvikmyndum í hið ný- opnaða myndbandasafn. Það myndi gefa Norræna húsinu raunverulegan möguleika á því að bjóða upp á nor- rænt efni á móti framboði mynd- bandaleiganna sem er að yfírgnæf- andi hluta upp á amerísku. Það er líka nærtækt að Norræna húsið eigi ennþá oftar frumkvæði að því sem efla má kunnáttu í tungu- málum Norðurlanda. Það námskeiða- hald, sem hafið er á síðustu árum í íslensku (fyrir Skandinava og Finna) og í skandinavískum málum (fyrir íslendinga) má enn auka t.d. í sam- vinnu við norrænu sendikennarana og Norræna félagið. Hér er vettvang- ur fyrir margar góðar tillögur. Al- mennt séð held ég að það skipti miklu máli að húsið tileinki sér nýjustu tækni og vísindi á sviði menningar, fjölmiðlunar og fjarskipta. Nokkur dæmi: Þá hugmynd sem upp kom í sumar um samskipti norræns skóla- fólks um tölvur, um tenginet fyrir 2-3 milljónir norrænna skólanema, mætti sýna og þróa áfram af Islands hálfu í Norræna húsinu. Og ef eng- inn annar verður til þess þá á Nor- ræna húsið einnig að fylgjast með' norrænum hagsmunum í sjónvarps- málum og sjá til þess með öðrum velviljuðum aðiljum að norrænt efni verði að minnsta kosti á einhverri eða einhveijum af þeim tuttugu sjón- varpsrásum sem brátt eiga að standa til boða á íslandi. Á síðastliðnu ári varð algengt að taka á móti dönsk- um, sænskum og norskum sjónvarps- sendingum á íslandi, þær höfum við sýnt í Norræna húsinu til þess að árétta að tækniþróun í sjónvarps- sendingum er ekki einskorðuð við markaðssjónvarp um alheimsgervi- hnetti. I víðri merkingu getur Norræna Lars-Áke Engblom „Þannig eru í marg- háttuðum skilningi eng- ar markalínur um starf Norræna hússins; það er í senn menningar- hús, upplýsingamiðstöð og almennur samkomu- staður og það hefur veitt þessari stofnun einstæð sambönd um öll Norðurlönd.“ húsið tekið á sig veigamikið starf fyrir norræn tungumál á íslandi. Skipulagslega má hugsa sér að það verði bundið bókasafninu, þar sem sérstakur umsjónarmaður barna- og unglingabóka gæti fengið mikið og áhugavert verkefni. Jafnframt skiptir vitaskuld miklu máli að hefðbundnar dagskrár og sýningar haldi áfram að þróast. Það eru tónleikar, fyrirlestrar, námstefn- ur, listsýningar, kvikmyndasýningar o.fl. sem gefa húsinu menningaryfír- bragð sitt. Lykilorðin eru norrænt víðfeðmi og vandað efni og hér er rótgróin 25 ára hefð að byggja á. Á þeim tímum sem margar menningar- stofnanir fá æ rýrari framlög verður sífellt mikilvægara að standa saman um að vanda dagskrár og sýningar. Eðlilegir samstarfsaðiljar Norræna hússins eru í fyrsta lagi norrænar systurstofnanir á Grænlandi og Álandi, norræna listamiðstöðin í Sveaborg, norræna tónlistarnefndin Nomus, norræna mála- og upplýs- ingamiðstöðin, o.fl., en auðvitað einnig íslenskar menningarstofnanir, norrænu félögin og sendiráðin á ís- landi og - nærtækast af öllu - Nor- ræna félagið. í þessu sambandi er ég bjartsýnn fyrir hönd Norræna hússins. Margar bestu dagskrár hússins hafa einmitt verið samstarfs- verkefni: bókmenntahátíðir með ís- lenskum rithöfundum og útgefend- um, vísnahátíðir með Vísnavinum, norrænar kvikmyndavikur með nor- rænum sendiráðum og Háskólabíói o.s.frv. Auk þess á Norræna húsið marga stuðningsmenn meðal nor- rænna stjómmálamanna og embætt- ismanna sem hafa átt þess kost að fylgjast með starfseminni innanhúss. A ekki lengri tíma en ég hef verið við húsið hefur verið stofnað til tveggja nýrra starfa hér sem ég sé einnig sem viðurkenningu við hið trygga og dugmikla starfslið sem fylgir húsinu frá einum forstjóra til annars. Sjálfur kom ég í fyrsta sinn í Norræna húsið sem sjónvarpsfrétta- maður 1969 fyrir bráðum 25 árum. Sú jákvæða mynd, sem ég fékk þá af húsinu, hefur haldist ár mín á íslandi. Hugmyndin að láta norræna þræði hnýtast saman á einum og sama stað, eins og gert hefur verið á íslandi, er allt of góð til þess að koma henni ekki verk á fleiri stöðum en í Færeyjum. Næsta aldarfjórðung vildi ég sjá Norræna húsið í Reykja- vík sem fyrirmynd fyrir samnorræn menningarhús, upplýsingamiðstöðv- ar og samfundarstaði í stórborgum Evrópu að minnsta kosti. Áður en önnur Norðurlönd hafa komið upp sínu menningarhúsinu hvert, t.d. í Berlín - eða Brussel! - ætti að skoða hugmyndina að hafa samflot eins og í þeirri norrænni stofnun sem fjöl- sóttust er allra stofnana í norrænu samstarfí, þ.e.a.s. Norræna húsinu í Reykjavík. Bæði til að styrkja nor- ræna menningu og spara fé. Höfundur erforstjórí Norræna hússins. Þórir S. Gröndal skrifar frá Flórída Að yngja upp í desember í fyrra vorum við að spjalla um matarvenjur og megrunaraðferðir fólks hérna í henni Ameríku. Þar sagði svo frá meðal annars: „Sagt er, að ástin geti framkallað megrun. Ég þekki mann einn hér, sem kominn er vel yfír fímmtugt og var búinn að safna sér myndarlegri ístru. Hann fór í haust að hjaðna að framan hægt og sígandi og á tveimur mánuðum var ístran ekki orðin svipur hjá sjón og maðurinn leit miklu betur út en áður. Hvað hafði valdið þessu? Það kom í ljós, að hann hafði orðið ástfanginn af stúlku, sem auðveldlega hefði getað verið dóttir hans, því hún var 27 árum yngri en hann. Ekki veit ég um það, hvort eiginkona hans er búin að fínna út, hvaða megrunaraðferð maður hennar notar og ég veit ekki, hvemig þetta fer. Eg mun fylgjast með ístrunni og láta ykkur vita.“ Eins og lofað var, hefi ég fylgst grannt með þessu spennandi máli, og get nú gefið ykkur nákvæma skýrslu. Skömmu eftir að desem- bergreinin var rituð, fór allt upp í loft, því konan komst að eðli megrunaræfinga manns síns, þótt þær væru aðallega iðkaðar í skjóli myrkurs. Hún kunni lítið að meta hvarf ístrunnar og bætt útlit ekta- makans. Heimilið splundraðist og illska hljóp í allt saman eins og lög mæla fyrir. Sem betur fer áttu hjónin engin börn saman, en þó átti konan tvö uppkomin börn af fyrra hjónabandi. Það var skrítið að sjá ástina heltaka þennan fullorðna mann. Hann sagði, að sér liði alveg eins og unglingi, og hagaði hann sér eftir því, alveg eins og fífl. Kunn- ingjar og vinir vissu ekki, hvaðan á sig stóð veðrið. Sumir hneyksl- uðust og sögðu: Það er enginn eins mikið fífl og gamalt fífl (There is no fool like an old fo- ol). Aðrir öfunduðu kauða af því að verða aðnjótandi ástar fagurr- ar, ungrar konu þetta seint í líf- inu, þegar margur maðurinn má láta sér nægja að dreyma um slíka hluti. Sjálfur sagðist hann vera hamingjusamari en hann hefði áður verið í lífínu. Vinir hans samglöddust. Af því að fylgjast með þessum vini mínum hefí ég séð, að það er ekki auðhlaupið að því að yngja upp hjá sér. Þið miðaldra og eldri kallar, sem lesið þetta, ættuð að hugsa ykkur um tvisvar áður en þið leggið út í slíkt. Haldið heldur áfram að dreyma! ístrulausi mað- urinn er mjög vel gefinn og and- lega ungur í hugsun. Þess vegna hjá sér virðist honum ætla að takast þetta, þótt enginn viti auðvitað, hvað framtíðin ber í skauti sínu. Erfíðast var líklega fyrir hann að útskýra þetta fyrirbæri fyrir vinum og vandamönnum. Hann bar fyrir sig ólukku í hjónaband- inu og eyðslusemi konunnar ásamt ýmsu öðru. Bersýnilega var honum mikið í mun að fá blessun sem flestra. Eiginkonugarmurinn lét í minni pokann í þessu áróðurs- stríði, enda hafði maðurinn alltaf verið ráðríkari en hún. Flestir kunningjar og vinir voru fyrst og fremst hans kunningjar og tiltölu- lega fáir sýndu konunni tryggð og þá helzt á laun. Hjónaskilnaðir eru erfiðir fyrir vinina. Þegar mesta víman var gufuð upp, kvenmaðurinn fluttur til elskhuga síns og lögfræðingamir famir að smjatta á væntanlegu skilnaðarmáli, fór ýmislegt að gerast. Unga konan tók sér nú fyrir hendur að „yngja" upp fórn- arlambið. ístran var að vísu farin að mestu leyti, sem hafði reyndar gerst fyrir hliðarverkanir tilhuga- lífs og ástarleikja, og nú vildi sú stutta ganga af henni algerlega dauðri og bæta einnig almenna heilsu mannsins, herða vöðvana ■ og styrkja hjartað. Það síðasta er víst mjög áríðandi í svona til- felllum, því blessuð pumpan á það til að stoppa og taka feilslag, ef miðaldra eða eldri kroppur verður fyrir mikilli áreynslu eða pústri, þótt í rúmi sé. Hann, sem áður hafði haft mikla andúð á líkamsdýrkun yngri kynslóðanna og öllu, sem því fylgdi, venti nú kvæði sínu alger- lega í kross. Unga konan innrit- aði þau í svokallaðan heilsuklúbb, þar sem fólk ku hoppa og skoppa og takast á við vélar, til þess að ná ef sér aukakílóum og bæta styrk sinn. Líka vom keypt reið- hjól og teknar upp gönguferðir í ljörunni. En það var ekki allt, því þau fundu sér finnska nuddkonu til að nudda skrokkana vikulega. Til að yngja upp frekar útlit elsk- hugans, var breytt um hárklipp- ingu, greiðslu og gleraugu. Svo vom keypt unglegri föt. Þegar búið var að gera ráðstaf- anir til þess að hressa upp á útlit- ið og ytra byrðið, tók hnátan sér fyrir hendur að endurbæta það, sem innvortis var. í fyrsta lagi kom í ljós dálitið, sem maðurinn hafði ekki tekið eftir í hita og þunga þessa óvænta ástariífs: Elskan hans hafði haft sérkenni- legar matarvenjur. Hún snæddi m.a. aldrei kjötmeti, egg, flesta alifugla og margt annað, sem venjulegt fólk leggur sér til munns. Vinurinn nærist nú aðal- Iega mest á grænmeti og ávöxt- um, en fær þó af og til fisktutlu og kjúklingsbringu. Hún og hann reyktu bæði, en svo var ákveðið að hætta því, þótt hann hafi sést púa á laun. Kaffí hefír líka verið gert útlægt og er jurta-te komið í staðinn. Og nú er hún búin að draga garpinn til skottulæknis, sem fremur alls kyns kúnstir á sjúk- lingum sínum. Ekki bara stingur hann í þá nálum, heldur hleypir líka í þá vægum rafstraumi og mælir með því starfsemi allra líf- færa líkamans. Það tekur margar heimsóknir að láta hann mæla starfsemi allra líffæranna. Hann er víst hálfnaður með að mæla upp mannin, en kominn lengra með konuna. Síðan selur hann þeim alls kyns efni og vítamín, sem eiga að bæta afköst hinna ýmsu líffæra, sem læknirinn segir ekki virka að fullu. Það merkileg- asta við það, að maðurinn virðist hæst ánægður með þetta tilstand og segir heilsu sína betri, en hún hefir verið í mörg ár. Lang flest hefír breyzt í lífí þessa manns, sem einu sinni var lang-giftur og með ístru. Hann er kominn með ný áhugamál og nýtt útlit og eyðir miklum tíma með nýjum og yngri vinum. Eng- inn veit, hvað ókomnir tímar muni færa skötuhjúunum. Hann segir, að þau ætli að gifta sig, þegar skilnaðurinn nái fram að ganga. Víst er um það, að skilnaðurinn verður erfiður fjárhagsbaggi. í' næstu viku fara þau saman í sum- arfrí og ætla þá að hitta fjöl- skyldu hennar. Ekki virðist hann kvíða fyrir því, þótt væntanlegur tengdafaðir hans sé sex árum yngri en hann. Við skulum öll óska þeim alls hins bezta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.