Morgunblaðið - 31.08.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993
21
Leynisamningur Islendinga
og Norðmanna árið 1932
eftir Pétur Pétursson
Hafa íslendingar gleymt
„Norsku samningunum“, sem
harðast var deilt um árið_ 1933?
Svo hart, að ríkisstjóm Ásgeirs
Ásgeirssonar gerði það að fráfar-
aratriði ef samningurinn næði ekki
samþykki á Alþingi. Hinn 13. mars
árið 1933 er haldinn fundur í neðri
deild Alþingis og útvarpað umræð-
um. Forsætisráðherra, Ásgeir Ás-
geirsson, er frummælandi og segir
að stjórnin hafi afráðið að leggja
viðskiptasamning þann, sem gerð-
ur var milli íslendinga og Norð-
manna í september síðstliðnum
fyrir Alþingi. „Samningi þessum
hefur verið haldið leyndum sam-
kvæmt ósk Norðmanna og með
samkomulagi samningsaðilja, þar
til hann er nú lagður fyrir þing
beggja þjóðanna. Upphaflega ætl-
aði stjómin ekki að leggja samn-
inginn fyrir þingið fyrr en lokið
væri samtölum þeim, sem til
standa milli íslendinga og Eng-
lendinga um þeirra viðskiptamál.“
Hvað veldur því, að algjör þögn
ríkir hér á landi um þennan samn-
ing, sem gerður var fyrir 60 árum?
Enginn lagaprófessor, enginn þjóð-
réttarfræðingur, ekki fjölmiðla-
menn, ráðherrar né ritstjórar hafa
vikið einu orði að þessum samningi
og skipti hann þó þjóðinni í harð-
snúnar fylkingar á sínum tíma.
Ég hefi leitað í bókum þeirra
Hannesar Hólmsteins og Matthías-
ar Johannessens um Jón Þorláks-
son og Ólaf Thors, en ekki fundið
stafkrók um deilur þessara flokks-
foringja, sem voru á öndverðum
meið í útvarpsumræðum um samn-
inginn.
Árið 1932 fóruþeir Ólafur Thors
og Jón Árnason sem þá var for-
stjóri SÍS til Osló í því skyni að
semja um niðurfærslu tolla á ís-
lensku saltkjöti, er selt var til Nor-
egs. Um þann toll stóðu miklar
deilur. Norðmenn höfðu keypt 24
þúsund tunnur af saltkjöti af ís-
lendingum, en höfðu dregið svo
saman kaupin að nú nam tunnu-
fjöldinn aðeins 6 þúsundum. Að
auki settu þeir svo refsitoll á ís-
lenska saltkjötið, að kröfu norskra
bænda. Til þess að fá refsitollinn
lækkaðan, eða afnuminn neyddust
íslendingar til þess að veita Norð-
mönnum fríðindi og fiskveiðirétt-
indi innan íslenskrar landhelgi.
Hér er ekki rúm til þess að gera
þessum málum tæmandi skil.
Heimildirnar er að finna í Alþing-
istíðindum ársins 1933, mörg
hundruð blaðsíðum, og einnig í
fundagerðum utanríkismálanefnd-
ar Alþingis. En til þess að lesendur
megi hafa af þessu nokkurt gaman
má birta mynd, sem hinn kunni
dráttlistarmaður Tryggvi Magnús-
son teiknaði í Spegilinn, gaman-
blað, sem fjallaði á sinn sérstæða
hátt um annálsverða atburði.
Sendiför Ólafs Thors og Jóns
Árnasonar verður skáldi Spegilsins
að yrkisefni. Spegilsmönnum er
hugleikin Höfuðlausn Egils Skalla-
grímssonar. Þess vegna heitir ljóð
Spegilsins „Saltketslausn".
íslensku sendimennimir Jón og
Ólafur munu hafa dvalist á Grand
Hotel. í útvarpsumræðunum vitnar
Héðinn Valdemarsson í veisluhöld
í Osló, en Spegillinn kallar húsráð-
andann á hótelinu Grandabóndann
og sést hann'draga íslensku sendi-
mennina og varpa þeim á dyr.
Þess má vænta að íslendingar
dragi lærdóma af þessum „leyni-
samningi“, sem gerður var við
Norðmenn 1933. Þeir ættu þrátt
fyrir annríki sitt vfð „bílaútflutn-
ing“ að finna einhverja „smugu“
til þess að hyggja að þessu efni.
Höfundur er þulur.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
Heimilisiðnaðarskólinn býður uppá
eftirfarandi námskeið í september:
Bútasaumur, fatasaumur, útskurður, ofnar tuskumottur,
hekl, körfUgerð, ullarvinnsla og snælduspuni.
Hvert námskeið kostar kr. 5.000. Kennsla fer fram á kvöld-
in í húsi Heimilisiðnaðarfélagsins, Laufásvegi 2.
Skráning og frekari upplýsingar í símum 17800 og 21913.
VI
. J
■ s É R H Æ F T
s KRIFSTOFUTÆKNINÁM
HNITMIÐAÐRA
ÓDÝRARA
VANDAÐRA
STYTTRI NÁMSTÍMI
KENN SLU GREINAR:
- Windows gluggakerfl
- Word ritvlnnsla fyrir Windows
- Excel töflureiknir
- Áætlanagerð
- Tölvufjarskipti
- Umbrotstækni
- Teikning og auglýsingar
- Bókfærsla - o.fl.
IVerð á námskeið
er 4.956,-krónur
á mánuði!*
Sérhæfð skrifstofutækni er markvisst
nám fyrir alla, þar sem sérstök áhersla
er lögð á notkun tölva í atvinnulífinu.
Nýjar veglegar bækur fylgja með náminu.
Engrar undirbúningsmenntunar er krafist.
Innritun fyrír haustönn er hafin.
Hríngdu og fáðu sendan bækling
eða kíktu til okkar í kaffi.
[ Tölvuskóli Reykiavíkur
m BORGARTÚNI 28. 105 REYKJAUÍK. sími 616699. fax 616696
•Skuldabréf í 20 mán. (19 afborganir), vextir eru ekki innifaldir.
Fjögur
frábær
faxtæki frá
It
Ricoh Fax
RF01
Síma/fax skiptir •
50 metra pappírsrúlla
• Fínstilling •
Grátónastilling fyrir
Ijósmyndir • 5 síðna
skjalamatari • Sfmi.
Staðgr.verð m.vsk. kr. 47.894
Staðgr.verð án vsk. kr. 38.469
« Ricoh Fax RF02
10 númera hraðvalsminni • 40 númera
skammvalsminni •
50 metra pappírsrúlla
• Síma/fax skiptir •
Möguleiki á
fjöldasendingum •
Mu blaðsíðna
viðtökuminni •
Grátónastilling fyrir Ijósmyndir • 5 síðna skjalamatari
• Fínstilling • Sími og skjár.
Staðgr.verð m.vsk. kr. 57.495
Staðgr.verð án vsk. kr. 46.181
• Ricoh Fax 240
10 númera hraðvalsminni
p-
Fínstilling ■
40 númera
skammvalsminni •
Sjálfvirkur pappírshnífur
• Pappfrssléttari •
50 metra pappírsrúlla •
Síma/fax skiptir •
5 sfðna skjalamatari •
Níu blaðsíðna viðtökuminni
• Möguleiki á
fjöldasendingum •
Grátónastilling fyrir Ijósmyndir •
Sími og skjár.
Staðgr.verð m.vsk. kr. 70.165
Staðgr.verð án vsk. kr. 56.358
J
Ricoh Fax
3000L
Geislaprentun • Notar
venjulegan pappír •
32 númera
hraðvalsminni •
100 númera
skammvalsminni •
50 síðna
skjalamatari •
256KB innbyggt
minni • Stækkanlegt
minni um 1MB eða 2MB •
64 tóna gráskali fyrir Ijósmyndir.
Staðgr.verð m.vsk. frá kr. 187.580
Staðgr.verð án vsk. frá kr. 150.667
fyrirmyna
a faxtæ"kja
Ricoh - fyrirmynd
annarra
PÓSTUROG SÍMI
Söludeild Ármúla 27, slmi 91-636680,
Söludeild Kringlunni, sfmi 91-636690
Söludeild I Kirkjustræti, sími 91-636670
og á póst- og símstöðvum um land allt.
Gottlólk/SÍA