Morgunblaðið - 31.08.1993, Síða 44

Morgunblaðið - 31.08.1993, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993 Lilý Guðrún Tryggva dóttir — Minning Fædd 24. september 1912 Dáin 23. ágúst 1993 í fáum orðum langar mig að minnast fyrrum nágrannakonu miniiar og fjölskyiduvinar. Alla sína tíð átti Lilý heima á Lauiásvegi 37 í Reykjavík í næsta húsi við æskuheimili mitt á Baldurs- götu 1. Svo langt aftur sem ég man er minning Lilýar 'tengd léttri lund, góðu viðmóti og mannskilningi sem hún sýndi öllum og ekki síst börn- um. Hún hafði frá miklu að segja og gaf sér nægan tíma til samræðna. Margar stundir átti hún með krökk- unum við að spila á spil, kenna okkur spilagaldra og segja skemmtilegar sögur. Þau börn sem alist hafa upp í næsta nágrenni við Lilý gegnum tíðina eignuðust í henni góðan vin og entist sá vinskapur yfírleitt alla tíð. Lengst af starfsævi sinnar vann hún á ljósmyndastofu Sigríðar Zoéga og Co. Þar starfaði hún ásamt móðursystur minni. Þær voru ekki aðeins vinnufélag- ar, heldur jafnframt vinkonur sem áttu margt sameiginlegt. Voru þær m.a. félagar í íþróttafélagi kvenna og rifjuðu iðulega upp góðar stund- ir í faðmi íslenskrar ijallafegurðar og víðáttu. Þannig varð til traust vinátta við okkur öll sem bjuggum á Baldurs- götu 1. Sú vinátta og tryggð entist ævilangt. Það er réttur mánuður síðan við lékum saman krikket við Hafravatn og nokkrir dagar síðan við horfðum á áhrif halastjömunnar á himin- hvolfíð á Hólmsheiði. Ekki hvarflaði að okkur þá að kallið kæmi svona fljótt. Á kveðjustundu vil ég fyrir hönd okkar systkinanna, fjölskyldna okk- ar og móður þakka henni af alhug tryggðina og kærleikann sem við nutum svo ríkulega og ekki hvað síst við fráfall móðursystur minnar fyrr á árinu. Maríu systur Lilýar og fjölskyldu vottum við einlæga samúð. Blessuð sé minning Lilýar. Guðmundur H. Einarsson. Ekki bauð mér það í grun þegar Lilý frænka kom í mat til okkar sunnudaginn 15. ágúst að það yrði í síðasta sinn sem ég sæi hana hérna megin móðunnar miklu. Tilefnið var að við vorum að kveðja Maríu dótt- ur okkar Sigrúnar sem var á leið til Bandaríkjanna í eitt ár. Lilý var að vanda með myndavélina á lofti en ljósmyndun var eitt af hennar aða! áhugamálum, enda vann hún við skylda grein hjá ljósprentunar- stofu Sigríðar Zoéga í um 40 ár. Ljósmyndaáhugi Lilýjar er það sem ég man einna best eftir frá æsku minni, og hræddur er ég um, að ekki væru til margar myndir frá uppvaxtarárum okkar bræðranna ef Lilýjar hefði ekki notið við því á árunum milli 1950 og 1960 voru myndavélar ekki orðnar almenn- ingseign og mun vandmeðfamari en í dag. Lilý var ekki mikið fyrir breyting- ar, hún bjó alla sína tíð á Laufás- vegi 37 og vann á sama vinnustað í 40 ár. Hún fór heldur ekki í sína fyrstu utanlandsferð fyrr en eftir að hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. íhaldssemin var henni einnig í blóð borin í pólitíkinni og hafði ég oft lúmskt gaman af því að kíta við hana um pólitík á árum áður, því að hennar- mati voru allar at- hafnir þeirra stjórnmálamanna, sem hún trúði á, réttar. Mig langar að lokum til að minn- ast á þann eiginleika hjá Lilý sem mér fannst hvað einstæðastur. Það var sama um hvem hún talaði, aldr- ei talaði hún öðmvísi en vel um annað fólk. Ef hún hafði aðrar skoð- anir um fólk, sem um var rætt, lét hún þær hreinlega ekki í ljós. Þetta er eiginleiki sem ég tel að fleiri mætttu temja sér. Þetta eru fátækleg kveðjuorð, sem ég hef fest hér á blað til Lilýj- ar frænku. Kveðja til konu sem aldrei mátti vamm sitt vita og var ætíð boðin og búin til að hjálpa þeim sem á þurftu að halda, konu sem ekki lét mikið yfír sér, en geisl- aði af kærleika og velvild til allra sem hún umgekkst. Megi hún hvfla í friði. Gunnar K. Gunnarsson. Lilý mín, Eg veit ekki beinlínis hvað ég get sagt. En þegar ég frétti að þú værir dáin fannst mér ég verða að koma við hjá þér, þó ekki væri nema til að skrifta fyrir skiptin sem ég lét það ógert vegna þess þjóðlega ósiðar sem við köllum „annir“. Og þar sem ég stóð þarna í garð- inum, niðurlútur með kökk í hálsi, þá tók ég eftir því hvernig þú hafð- ir skilið við allt þitt héma megin. Þótt sólskinið opinberaði hvern krók og kima mátti sjá að þú hafðir hvergi kastað til höndunum. Hvert tré og hver runni, hvert beð og hvert blóm bar þér svo fagurt vitni að það var engu líkara en allt segði: „Svona viljum við hafa það um ald- ur og ævi.“ Nú ætlaðist ég ekki til að þú yrðir að eilífu til reiðu þegar við þyrftum á þér halda. Það er bara svo að okkur vantar sárlega fleiri þína líka; garðyrkjumenn sem rækta allt og alla og skilja við lífíð syngjandi af samræmi. En eins og þú veist þá er flest í hönk í þessum heimi og þess vegna get ég ekki annað en saknað þín, og ég veit að þar er ég ekki einn á báti. Því segi ég fyrir hönd okkar allra: „Þakka þér fýrir alla ánægj- una, gleðina og gæskuna. Þær ljúfu minningar em vísastur vegur til að forða okkur frá óræktinni." Halldór Björn Runólfsson. Fjölskyldan syrgir nú látinn heimilisvin. Lilý er ekki lengur meðal okkar. Hún var heimagangur á heimili Nönnu frá bamæsku og er söknuður mikill. Minningar hrannast upp svo erfitt er að festa á blað. Lily var mikil ræktunar- manneskja, blóm og tijágróður áttu hug hennar sem sjá má í fallega garðinum hennar á Laufásvegi 37. Hann er nú í blóma og ber vitni um natni hennar og alúð við rækt- unina. Lilý hafði ung lært tannsmíði hjá Páli Ólafssyni, sem eldri borgarar muna sem einn af betri tannlæknum bæjarins. Ekki átti iðnin alls kostar við hana. Hún var orðin góður myndatökumaður og sneri sér í þá áttina. Réðst hún snemma á stríðs- ámnum til Sigríðar Zoéga, sem rak eina af stærri ljósmyndastofunum. Þar kunni hún vel við sig og starf- aði þar til reglur um aldur neyddu hana til að taka sér hvíld. Vand- virkni hennar og samviskusemi var óvenjuleg og muna hundmð við- skiptavina eflaust. hve henni var annt um að gera þeim til hæfís. Arkitektar, verkfræðingar og verk- takar áttu í henni tryggan og áreið- anlegan vin sem bjargaði ljósritun teikninga oft þegar mikið lá við. Á heimili okkar var hún sem ein af fjölskyldunni og notaði svo sann- anlega hvert skemmtilegt atvik til að festa það á fílmu því ávallt var myndavélin tiltæk. Afmæli og stór- hátíðir vom þó einkum festar á mynd og er safn hennar sem nær langt aftur fyrir seinni stríðsárin og geymir margan hálfgleymdan viðburðinn úr lífi þjóðarinnar orðið stórt og merkilegt. Lilý var óvenjulega hlý í viðmóti og eftir því tillitssöm. Var sama hver átti í hlut. Styggðaryrði heyrð- ust aldrei og ávallt sneri hún til betri vegar ef á einhvem var hall- að. Hún mátti ekkert aumt sjá og gjafmildi hennar átti sér naumast takmörk. Við höfum aldrei kynnst nokkurri manneskju sem átti jafn auðvelt með að gleðja böm, enda hændust þau að henni svo að lá við ósköpum á stundum. Drengjunum okkar þrem var hún líkt og hún ætti þá allt frá fæðingu. Vonandi hafa þeir kunnað að meta mann- kosti hennar, elskusemi og gæsku. Systurinni, Maríu og hennar fjöl- skyldu, sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Geymd er minning um góða konu sem allt sitt líf var þjóð sinni til sóma. Nanna og Runólfur. Mánudaginn 23. ágúst kvaddi Lilý Guðrún þennan heim eftir stutt veikindi. Lilý var fædd á Laufás- vegi 37 í Reykjavík hinn 24. sept- ember 1912. Hún var dóttir Helgu Jónsdóttur og Tryggva Gunnars- sonar. Hún ól allan sinn aldur á Laufásveginum og bjó enn í sama húsinu þegar hún lést. Lilý Guðrún var elst þriggja systra, yngri vora Áslaug, fædd 28. mars 1915, dáin 28. júní 1987, og María, fædd 17. nóvember 1917. Þær systurnar ólust upp í miklu ástríki hjá móður sinni og móð- urömmu. Lilý starfaði lengst af á Ljósprentstofu Sigríðar Zoéga, eða í um fjörutíu ár. Allt frá því að ég kynntist Lilý 1972 var hún óijúfanlegur hluti af tengdaíjölskyldu minni en hún var móðurstystir mannsins míns. Lilý var alveg einstakur persónuleiki. Svo einstök var hún að þegar við eignuðumst yngri dóttur okkar kom ekki til greina annað en að gefa henni nafn Lilýar og var hún skírð Inga Lilý. Lilý var mjög trúrækin kona og einstaklega barngóð. Þegar börnin okkar þijú voru að alast upp var helst ekki hægt að halda barna- afmæli eða aðrar fjölskylduuppá- komur án þess að Lilý frænka væri með. Hún rétt gaf sér tíma til að drekka kaffísopa með fullorðna fólkinu, en síðan undi hún sér allra best í leik með öllum krökkunum. Hún var óþijótandi að fínna upp nýja og nýja leiki. Lilý hafði mjög gaman af blóma- rækt og bar garðurinn hennar á Laufásveginum því ótvírætt vitni. Aldrei kom Lilý í heimsókn til okk- ar að sumri til án þess að hafa með sér blóm úr garðinum sínum eða þá gulrætur eða annað góðmeti er hún ræktaði þar. Sunnudaginn 15. ágúst sl. kom Lilý til kvöldverðar til okkar ásamt Maríu og Gunnari. Tilefnið var að kveðja elstu dóttur okkar, Maríu Kristínu, sem var að fara til ársdvalar í Bandaríkjunum. Lilý lék á als oddi að venju en fann síðan til verkjar, sem leiddi til þess að hún var flutt á sjúkrahús þaðan sem hún átti ekki afturkvæmt. Ég vil að lokum þakka Lilý frænku, fyrir mína hönd og barna minna, fyrir allt og allt og bið algóð- an Guð að geyma hana. Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir. Lily æskuvinkona móður minnar lést eftir stutta legu á Borgarspítal- anum að morgni mánudagsins 23. ágúst, tæplega 81 árs að aldri. Þrátt fyrir aldur sinn var hún jafn lífs- glöð, hress og ung og þegar ég hitti hana fyrst, er ég var bam að aldri. Lily giftist aldrei og átti engin böm, en hún reyndist bömum vin- kvenna sinna sem besta móðir. Allt- af tók hún okkur opnum örmum, heima jafnt sem á vinnustað. Hún vann í 40 ár á ljósmyndastofu Sig- ríðar Zoéga og ósjaldan lá leið mín þangað. Þrátt fyrir mikið annríki á vinnustað, hafði hún alltaf tíma fyrir litlu vinina, sem komu í heim- sókn í tíma og ótíma. Eldri systkini mín höfðu áður notið sömu velvildar og ófá vora þau eintök af Vísi sem hún keypti af bróður mínum og mun þó oftast hafa átt annað ein- tak fyrir. Lily tók ógrynni af ljósmyndum og þess vegna eigum við systkinin fjölda mynda frá uppvaxtarárum okkar. Alla ævi sína bjó hún að Laufás- vegi 37 og undi sér þar vel, enda aðstæður þar með eindæmum. Þrátt fyrir það lagðist hún á efri árum í ferðalög og nokkrar voru þær ferð- ir, sem þær fóra saman hún og móðir mín og ætla ég að báðar hafí notið þess. Síðustu ferðina fóra þær stöllur til Björgvinjar til þess að halda upp á 80 ára afmæli henn- ar og létu hvergi deigan síga, þótt aldurinn væri orðinn hár. Fyrir hönd móður minnar og systkina færi ég henni þakkir og óska henni velfamaðar á þeirri ferð, sem hún á nú fyrir höndum og þykist þess fullviss, að manngæska hennar og velvild muni verðá henni gott veganesti. Sigrún Aspelund. Ég fínn til löngunar til að skrifa nokkrar línur og með þeim þakka þér fyrir allt það góða og yndislega sem við höfum átt saman í nær 40 ár. Þrátt fyrir mikinn aldursmun vorum við svo góðar vinkonur. Þú varst dætram mínum og bamaböm- um hin bezta frænka og amma. Þegar þau komu í heimsókn hingað í sumar frá útlöndum var efst á t Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR ÞÓRDÍS VIGGÓSDÓTTIR, Krummahólum 8, lést í Borgarspítalanum 28. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún H. Ágústsdóttir. t Eiginmaður minn og bróðir okkar, HALLDÓR JÓSEPSSON, Vesturgötu 7, lést 20. ágúst. Útför hefur farið fram. Unnur Jakobsdóttir, Kristjana Jósepsdóttir, Skafti Jósepsson, Pétur Jósepsson, Ása Gunnarsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI JÓNSSON, lést í Danmörku þann 26. ágúst. Minningarathöfn auglýst síðar. Aðajbjörg M. Jóhannsdóttir, Bergþóra Árnadóttir, Bergur Sverrisson, Margrét Sverrisdóttir. tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg konan mín, móðir okkar, dóttir og systir, GUÐRÚN BIRNA FINNSDÓTTIR, andaðist í Landspítalanum 29. ágúst. Grétar Júníus Guðmundsson, Elvar Finnur Grétarsson, Heiðar Kristján Grétarsson, Hannar Sindri Grétarsson, Hanna Ármann, Finnur Björnsson, Valdis Ella Finnsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, KRISTJÁN GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON tryggingastærðfræðingur, Bjarmalandi 24, andaðist í Landspítalanum sunnudaginn 29. ágúst. Arndis Bjarnadóttir, Guðmuridur Guðmundsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Bjarni Guðmundsson, Hólmgeir Guðmundsson. t Móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÚN BALDVINSDÓTTIR, lést í Landspítalanum 28. ágúst. Sigurveig Erlíngsdóttir, Jónas Jónsson, Hulda Erlingsdóttir, Jónas Hallgrímsson, Kristfn Erlingsdóttir, Hrafn Magnússon, Baldvin J. Erlingsson, Guðrún H. Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.