Morgunblaðið - 31.08.1993, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993
félk ■
fréttum
RÆKT
Forsetinn
fölur og- f...
Það er haft fyrir satt, að starf for-
seta Bandaríkjanna sé vægast
sagt krefjandi og ekki sakaði að sólar-
hringurinn væri lengri heldur en 24
klukkustundir þegar mest er um að
vera. Tími til að hugsa um sjálfan sig
eða fjölskyldu sé afar lítill ef nokkur.
Þótt Biil Clinton hafí verið iðinn
við að fínna smugur þannig að ijöl-
skyldan geti sameinast reglulega voru
sannindi ofangreindra orða ljós er það
birtust myndir af forsetanum á sundi
í brimgarðinum í Honolulu fyrir
skömmu. Þar kom hann við í einn
sólarhring á heimleið frá Suður
Kóreu. Þótt forsetinn væri hress og
kátur að sjá, sló það margan Banda-
ríkjamanninn hversu fölur Bill er á
húðina , að ekki sé minnst á væna
summu aukakílógramma á miðbiki
líkama hans. Sýnist vera lítill tími til
líkamsræktar og útiveru þótt forset-
inn sé allur af vilja gerður í þeim
efnum.
Hljómsveitin Jet Black Joe var gestasveit kvöldsins.
Lipstick Lovers slógu botninn í
kvöldið...
TÓNLIST
Rokkað á
Skaganum
Mikil rokkhátíð var haldin í Bíó-
höllinni á Akranesi eigi alls
fyrir löngu og komu þar fram fimm
hljómsveitir, fyrstar „Stripshow",
„Regn“ og „Dos Pilas“, síðan „Jet
Black Joe“ sem voru sérstakir gest-
ir kvöldsins og loks aðalsveit
kvöldsins, „Lipstick Lovers“. Um
180 manns voru viðstaddir tónleik-
ana sem auk þess var útvarpað
beint á Rás 2.
Eric Cantona
SVIÐSUÓS
Eric Cantona
sýnir föt
Það hefur verið sagt um franska
knattspymulandsliðsmanninn
Eric Cantona, að hann sé talsvert sérvit-
ur. Hann aðhyllist nýaldarfræði, sé
grænmetisæta og verulega bókhneigð-
ur, sem ekki hefur hingað til verið tal-
in dæmigerð lýsing á atvinnumanni í
knattspyrnu. Auk þess sé hann agalít-
ill, enda hefur hann oft komið sér út
úr húsi í gegn um tíðina hjá þjálfurum
sem reynt hafa að temja hann í stað
þess að leyfa honum að njóta sín á
knattspyrnuvellinum.
Hermt er að Cantona hafí nokkuð
gaman að því að vekja eftirtekt á hina
ýmsu vegu, ekki síst ef eftirtektin er
frá ungum fallegum stúlkum, en í of-
análag þykir hinn einhleypi Cantona
vera mikið kvennagull. Það var því eins
og við manninn mælt, er honum bauðst
að sýna föt á tískusýningum var hann
fús til þess. Þar með hefur hann enn
eitt uppátækið sem mun varpa sviðsljós-
inu á hann og gera hann meiri í augum
kvenna, sem eru auk knattspymunnar,
ær hans og kýr.
VÁKORTALISTÍ
Dags.31.8.1993.NR. 137-
5414 8300 2760 9204
5414 8300 1028 3108
5414 8300 0310 5102
5414 8300 1130 4218
5414 8300 1326 6118
5414 8300 2814 8103
5414 8300 3052 9100
5422 4129 7979 7650
R??1 nnm 911R u?a
Ofangreind kort eru vákort,
sem takaberúrumferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrirþann,sem nærkorti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4100 0004 0072
4543 3718 0006 3233
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4506 43** 4507 46**
4543 17** 4560 08**
4560 09** 4920 07**
4938 06** 4988 31**
4506 21**
Afgreiðslulólk vinsamlegast takið ofangreind
kort úr umferð og sendiö VISA íslandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og visa á vágest.
|-S-IVD»U*J.'f.ll
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavfk
Slmi 91-671700
Julie Andrews.
SÖNGUR
Mary
Poppins
snýr aftur
Hinn þekkta söng- og leikkona
frá árunum áður, Julie
Andrews hyggur nú á endurkomu
á sviði í söngleiknum „Victoria,
Victoria!" Andrews hefur víða
skotið upp kollinum, en er þó án
nokkurs vafa þekktust fyrir hlut-
verk sitt sem Mary Poppins.
Julie þekkir vel til þessa söng-
ieiks, þ.e.a.s. söguþráðarins, því
hún lék á sínum tíma aðalhlutverk-
ið í kvikmyndinni sem gerð var
eftir sömu sögu. Söngleikurinn
verður settur upp í West End í
Lundúnum og það er Blake Edw-
ards sem stendur við stjórnvölin.
Og hann leitaði ekki langt yfir
skammt með aðalhlutverkið, því
Julie er eiginkona hans. Þótt Julie
sé einkum þekkt sem leikkona, er
haft fyrir satt að hún sé enn betri
söngvari og því megi búast við
góðri frammistöðu.
LEIKARAR
Faðir Arsins
Anthony Quinn hefur verið út-
nefndur faðir ársins af er-
lendum tímaritum og ekki að
ástæðulausu, því leikarinn sem
orðinn er 78 ára gamall eignaðist
dóttur fyrir skömmu. Eiginkona
hans Iolanda, sem hann hefur ver-
ið giftur í þrjá áratugi, hefur þó
ekki fagnað atburðinum því hún
mun víst ekki hafa talað við kapp-
ann síðan dóttirin kom í heiminn.
Hún var í leyfi án eiginmannsins
þegar hún frétti að hann hefði
gengist við faðerni Patriciu, eins
og hin mánaðargamia dóttir er
nefnd. Móðirin er um þrítugt og
var áður ritari leikarans.
Anthony Quinn er hins vegar
stoltur og ánægður faðir og segir
að dóttirin sé lifandi eftirmynd sín.
Anthony Quinn hefur nýlega eignast dóttur, en þó ekki með konu
sinni Iolanda, sem með honum er á myndinni.