Morgunblaðið - 31.08.1993, Page 52

Morgunblaðið - 31.08.1993, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993 mm „ tíerit ekJc) ftfrir. Hann heidur aó hann 6é- firvs kur." TM Reg. U.S Pat Off.—all rights reserved ° 1993 Los Angeles Tlmes Syndicate Vi £& Ég sakna Inga. Synd að for- stjórinn skyldi ráða vél í staðinn fyrir hann. HÖGNI HREKKVÍ SI BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Að blekkja almenning Frá Þresti Ólafssyni: MEÐAL lýðræðisþjóða er það höf- uðnauðsyn að fjölmiðlar gegni skyldum sínum við að upplýsa al- menning um meginmál, geri grein fyrir mismunandi skoðunum og leggi þau síðan fram til skoðunar- myndunar meðal þjóðarinnar. Þessi skylda fjölmiðla er enn skýrari þegar um er að ræða með- ferð mikilvægra þjóðmála sem skiptar skoðanir eru um meðal þjóð- arinnar. Ef fjölmiðlar rangtúlka vísvitandi málflutning eða halla á annan hátt réttu máli er hætta á ferðum. Óháð- ir fjölmiðlar hafa því gegnt lykil- hlutverki við þróun nútíma lýðræð- issamfélags. Þeir hafa greint frá mismunandi skoðunum flokka eða einstaklinga og, á grundvelli þeirra upplýsinga, gert almenningi kleift að taka afstöðu til viðkomandi máls. Enn eimir eftir af því ástandi þegar fjölmiðlar voru pólitísk slags- málatæki fyrir stjómmálahreyfmg- ar, þótt verulega hafi dregið úr því á síðustu árum. Þá vom fréttir gjarnan afbakaðar og skoðanir rangtúlkaðar eftir þörfum stjóm- málaflokka. Þessi aðferð er nú blessunarlega á undanhaldi. Fimmtudaginn 18. ágúst sl. birt- ist leiðari í DV, sem var kostulegur. Fyrr á tímum áttum við ýmsa spaka menn sem töluðu og ortu gjarnan í öfugmælum. Þau em bráðskemmtileg sem skáldskapur en að sama skapi óbrúkleg sem mnlegg til útskýringar á pólitískum skoðunum, vilji menn láta taka mark á sér. Nú bregður svo undarlega við að Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, bregður sér í gervi öfugmælaskrif- ara þegar hann tekur fyrir eftirlæt- isviðfangsefni sitt — íslenskan land- búnað. I þetta sinn vill hann sannfæra lesendur sína um að vegna þess að Gunnlaugur Stefánsson sé þing- maður fyrir Alþýðuflokkinn, þá sé flokkurinn ófær um að beijast fyrir skynsamlegri landbúnaðarstefnu. Hér er mikill misskilningur á ferð. Þótt Gunnlaugur sé fullfær um að svara fyrir sjálfan sig full- yrði ég að hann telji það ekki sitt pólitíska hlutverk að viðhalda óbreyttri landbúnaðarstefnu á ís- landi. Jónas Kristjánsson veit það full- vel að Alþýðuflokkurinn er eini ís- lenski stjórnmálaflokkurinn sem áratugum saman hefur bent á skað- semi núverandi landbúnaðarkerfis og barist af öllum mætti fyrir breyt- ingum á því. Það gildir einu hvar Jónas ber niður í málflutningi for- ustumanna flokksins. Þegar land- búnaðarmál hafa verið annars veg- ar hefur stefnan verið skýr. Það er auðvelt að sýna fram á, að hefði stefna Alþýðuflokksins orðið ofaná fyrr, stæðu hvorki bændur né neyt- endur frammi fyrir þeim mikla vanda sem núverandi skipan land- búnaðarmála er. Jónasi má einnig vera fulljóst að allir aðrir stjórn- málaflokkar hafa ætíð sett tiltölu- lega óbreytta landbúnaðarstefnu sem forsendu fyrir öllu stjómarsam- starfi við Alþýðuflokkinn. Tilkoma Kvennalistans hefur litlu breytt í þessu tilliti. Lokaályktun ritstjórans í fyrr- nefndum leiðara er sú að eina leið- in til að fá stuðning Alþýðuflokks- ins við breytta landbúnaðarstefnu sé að halda honum sem minnstum, svo aðrir flokkar hafi yfirburða- Offjölgun í Frá Ólöfu Jóhannsdóttur: í KVÖLDFRÉTTUM sjónvarpsins hinn 20. ágúst kom fram að ís- lenskir læknar teldust alls 1.300. Þetta gæti okkur 260.000 íslend- ingunum þótt nokkuð há tala en þeirra á meðal eru að sjálfsögðu læknar með margs konar þarfa sérfræðimenntun. Ennfremur kom fram í fréttunum að offjölgun væri í læknastéttinni sem sjá má á þeirri staðreynd að um 20% ís- lenskra lækna eru starfandi í Sví- þjóð og 10% eru starfandi í Banda- ríkjunum. Margir þessara lækna hafa sóst eftir störfum hér á landi en vegna fyrmefndrar offjölgunar eiga þeir oft ekki afturkvæmt. Þetta þóttu mér sorgarfréttir, áð mikið af okkar vel menntuðu læknum og fjölskyldum þeirra eigi þess ekki kost að snúa heim vegna þess að störf liggi ekki á lausu. Höfum við efni á að missa þá menntun úr landi sem við kostum stöðu og þurfí ekki á honum að halda til stjómarsamstarfs. Þetta er mildilega sagt makalaus rökleysa og slík rangtúlkun á staðreyndum að með ólíkindum er. Þjóðviljinn sálugi hefði vissulega átt auðvelt með slíka fölsun. Hún hefði þjónað hagsmunum ákveðinna afla þar. Erfitt er að finna samsvömn með Jónasi og Þjóðviljanum sáluga, nema um sé að ræða illlæknandi sjálfsblekkingarhvöt. Hvað sem veldur þá er þessi villandi málflutn- ingur með öllu illskiljanlegur. Jónas er með þessum fullyrðing- um orðinn ötulasti talsmaður óbreyttrar landbúnaðarstefnu hér- lendis. Hann beitir öllu sínu afli til að koma í veg fyrir að eini íslenski stjórnmálaflokkurinn sem heilshug- ar vill breytta landbúnaðarstefnu fái brautargengi meðal þjóðarinnar. Landbúnaðarafturhaldið á víðar bandamenn en ég hugði. ÞRÖSTUR ÓLAFSSON aðstoðarmaður utanríkisráðherra utanríkisráðuneytinu, Hverfísgötu 115, Reykjavík læknastétt sjálf? Það er ansi hart að leggja Iangt og strangt starfsnám á ungt fólk ef engin störf eru í boði að því loknu. Því ekki að takmarka fjölda læknanema í Háskóla ís- lands enn frekar en nú er? T.d. væri hægt að fækka nemum úr 37 manns á ári í 27. Eins væri hægt að fjölga störfum í lækna- stéttinni ef eldri læknar hættu störfum um 67 ára aldur enda eiga margir þeirra langan starfsdag að baki. Sjúkrahúslæknar, og þá sér- staklega kandídatslæknar, hafa oft unnið langar vaktir. Ef yfir- vinna þeirra væri takmörkuð myndi skapast svigrúm fyrir fleiri störf öllum til hagsbóta; læknum, kandídötum og sjúklingum. Ég tel að okkur beri skylda til að taka á móti þeim íslensku lækn- um sem vilja starfa hér á landi í okkar þágu. ÓLÓF JÓHANNSDÓTTIR Hlíðarvegi 3, Kópavogi Víkveiji skrifar að getur verið vandasamt verk að merkja hús eða setja skilti á hús, ef það á að gerast af smekk- vísi. Glöggt dæmi um þetta er ljósa- skilti, sem sett hefur verið upp á Borgarleikhúsið til þess að auglýsa starfsemi leikhússins í vetur. Marg- ir hafa haft orð á skilti þessu við Víkverja og allir sammála um, að hér hafi illa tekizt til. Það sé alls ekki við hæfi að setja skilti af þess- ari gerð á Borgarleikhúsið og sé tvímælalaust til lýta. Fróðlegt væri að vita, hvort þetta hefur verið gert með vitund og vilja arkitekta hússins. Borgarleikhúsið er menningar- stofnun, sem væntanlega á eftir að hazla sér völl í menningarlífi höfuð- borgarinnar með sama hætti og Iðnó gerði á löngum tíma. Þess vegna eru gerðar meiri kröfur til þess hvernig merkingum er háttað á húsinu en t.d. skrifstofubyggingu, þar sem fyrirtæki telja sjálfsagt að nota húsgafl fyrir auglýsingar. Það er ekkert óeðlilegt við það, að Borgarleikhúsið vilji vekja at- hygli á þeirri starfsemi, sem fram fer innan dyra. En það verður að gera á smekklegan hátt. Auglýs- ingaskilti þetta á að taka niður og ef nauðsynlegt er að koma því fyrir í tengslum við húsið fer betur á því, að það standi með einhverjum hætti sjálfstætt. Þessu er hér með komið á framfæri við forráðamenn Leikfélags Reykjavíkur og Borgar- leikhússins. xxx Annars eru auglýsingaskilti af því tagi, sem settur hefur verið upp á Borgarleikhúsið að verða plága. Og spurning hvort þau eru ekki líka hættuleg fyrir umferð- ina. Skiltunum er augljóslega kom- ið fyrir þar, sem líklegt er að öku- menn taki eftir þeim. Má nefna sem dæmi auglýsingaskilti, sem blasir við þegar ekið er eftir Kringlumýr- arbraut til Reykjavíkur. Einnig má nefna skilti á Hagkaupshúsinu í Kringlunni, sem blasir við þegar ekið er eftir Miklubraut. Fleiri dæmi mætti nefna um þetta. Hafa um- ferðaryfirvöld hugleitt þetta vanda- mál? XXX IBandaríkjunum er mikil um- hverfismengun af völdum aug- lýsingaskilta, sem standa þétt í röð- um við þjóðvegi, þegar menn nálg- ast þéttbýli. Þetta er einnig að ger- ast hér. Ef svo heldur fram sem horfir verður komið mikið af slíkum skilti við þá þjóðvegi, sem liggja til Reykjavíkur. Það þarf að stoppa þetta áður en það fer úr böndum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.