Morgunblaðið - 31.08.1993, Page 55

Morgunblaðið - 31.08.1993, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993 55 UR DAGBOK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 27. - 30. ágúst 1993 Bókanir í dagbókina eru 405 talsins á tímabilinu. Þar má m.a. sjá fjögur bókuð umferðarslys, 28 önnur umferðaróhöpp, níu inn- brot, átta þjófnaði, sex líkams- meiðingar, sex skemmdarverk, sex rúðubrot og 63 tilvik vegna ölvunarástands einstaklinga. Um miðjan dag á föstudag var tilkynnt um að karlmaður væri að bera á sér kynfærin í undir- göngum undir Breiðholtsbrautina. Um var að ræða u.þ.b. þrítugan mann, klæddan í svartan leður- jakka og bláar gallabuxur. Hann fannst ekki þrátt fyrir leit. Aðfaranótt laugardags var til- kynnt um að pilti hefði verið veitt- ur áverki á höfði í Árbæjarhverfi. Pilturinn var fluttur á slysadeild þar sem hann var lagður höfuð- kúpubrotinn inn á gjörgæsludeild- ina. Vitað er hver gerandinn er. Á laugardagsmorgun voru tveir menn gómaðir er þeir hugðust bijótast inn í bifreið við Báru- götu. Þeir voru vistaðir í fanga- geymslunni. Skömmu fyrir hádegi á laugar- dag var tilkynnt um að tveir menn væru að bijótast inn í hús við Laugaveg. Náðist til þeirra þar sem þeir voru að skríða inn um glugga. Þeir fengu og að gista fangageymslurnar. Aðfaranótt sunnudags sást til manna vera að stela eldsneyti af bifreið við Austurberg. Þar voru handteknir fimm alþekktir mi- sindismenn og voru þeir vistaðir í fangageymslunum. Líklegt má telja að menn þessir hafi fleira á samviskunni þar sem í bifreið þeirra fundust hlutir er líklega má telja til þjófagóss. Fjölmenni var í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags. Veður var stillt og hlýtt. Talsverð ölvun var á meðal fólksins, sem margt var ungt að árum. Þeir síðustu voru að tínast af svæðinu undir morgun. Hand- taka þurfti nokkra vegna ölvuna- róláta og flytja varð a.m.k. þijá á slysadeildina vegna áverka, sem þeim var veitt af viðstöddum. í raun er um að ræða óskipu- lega útisamkomu í miðborginni hveija helgi. Og svo mun líklega verða allan næsta vetur ef ekkert verður að gert. Lögreglan hefur hingað til með miklum tilkostnaði gert það sem hún getur til þess að halda í við ástandið, en það hefur sýnt sig að hún ein getur ekki komið á viðunandi ástandi til frambúðar. Lögreglan hefur lagt fram hugmyndir að því hvað borgin og aðrir geta gert til þess að færa ástandið í átt til hins betra. Fyrri ábendingar lögregl- unnar að lausn hafa hingað til ekki fengið hljómgrunn hlutaðeig- andi aðila. Ef almenningur er sammála um að færa þurfi ástandið til betri vegar er hjálp hans við lausn málsins því veí þegin. Ver doktorsrit- gerð við verk- fræðideild HÍ ÚT ER komin bókin „Modelling of Geothermal District heating Systems" (Gerð reiknilínana af heitaveitukerfum), sem er doktors- ritgerð Páls Valdimarssonar, vélaverkfræðings. Verkfræðideild Háskóla íslands hefur samþykkt ritgerðina til doktorsvarna og hefst vörnin í sal 4 í Háskólabíói í dag, þriðjudaginn 31. ágúst, kl. 14.15. Páll er fyrsti verkfræðingurinn sem ver doktorsritgerð sína við verkfræðideild Háskóla Islands. Andmælendur af hálfu deildarinnar eru þeir dr. Oddur Björnsson yfirverkfræðingur dr. Carl-Johan Fogelholm, prófessor við tækniháskólann í Hels- inki. Forseti verkfræðideildar, dr. Þorsteinn Helgason, stjórnar athöfninni. Ollum er heimill aðgangur. Sól fær heimild til nauðasamninga Lánardrottnar gefi eftir 7 0% af kröfum HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur veitt forsvarsmönnum Sólar hf leyfi til að leita nauðasamninga við þá lánardrottna sína sem ekki hafa kröfur sínar tryggðar með veðum. Að sögn Davíðs Sch. Thorsteinssonar framkvæmdastjóra Sólar er þar um að ræða um 300 milljónir króna af 1.100-1.200 milljóna heildarskuldum fyrirtækisins og hyggst Sól leita eftir því að lánardrottnarnir gefi fyrirtækinu eftir 70% af þeirri fjárhæð. Að sögn Davíðs hefur þegar verið gengið frá samningum við veðkröfuhafa, sem eru helstu lán- ardrottnar fyrirtækisins. Afsalar sér 80% eftirlauna Að sögn Davíðs fólst í þeim samningum mikil niðurskrift en þeir eru bundnir þremur skilyrð- um: því að fyrrgreindur nauð- samningur við almenna kröfuhafa náist; að hlutafé verði aukið um 120 millj. kr. og að Davíð Schev- ing gefí eftir 80% af eftirlauna- samningi sínum við fyrirtækið, þannig að við starfslok fái hann 20% af launum sínum í eftirlaun en ekki 90% eins og samningurinn hafði gert ráð fyrir. Davíð kvaðst þegar hafa orðið við skilyrðinu um eftirlaunasamninginn, hlutafjár- söfnunin væri að hefjast og hefðu ýmsir sýnt henni áhuga og bundn- ar væru vonir við að nauðasamn- ingar fengjust samþykktir. Meðal almennra kröfuhafa eru að sögn Davíðs margir erlendir aðilar. Inn- köllun krafna er að heíjast en umsjón með nauðasamningunum hefur Sigurður G. Guðjónsson hrl. Davíð sagði að í samningi við veðkröfuhafa fælist að þeir væru reiðubúnir að afskrifa það af kröf- um sínum sem þeir teldu ótryggð- ar ef ekki tækist að bjarga fyrir- tækinu. Davíð segir að að þessari endurskipulagningu lokinni ættu skuldir fyrirtækisins að vera orðn- ar það litlar að það verði vel rekstr- arhæft. Hann vildi ekki nefna töl- ur í því sambandi. Ritgerðin fjallar um gerð reikni- líkana af vatnsrennsli í hitaveitu- kerfi, þannig að unnt er að líkja eftir hegðun og viðbrögðum þess við ytri áhrifum í tölvu. Hitaveitu- kerfi sem byggð eru á jarðhita eru viðfangsefni ritgerðarinnar. Áhrif veðurfars á vatnsnotkun hitaveitu- kerfa eru skoðuð og aðferð til reikninga á rennsli í dreifikerfi hitaveitu sett fram. í ritgerðinni eru hitaveitukerfi skoðuð frá tveimur sjónarhólum, annars vegar notandans og hins vegar sjónarhóli veitufyrirtækis- ins. Veitufyrirtækið hefur fyrst og fremst áhuga á að geta sagt fyrir um vatnsnotkun heilla bæjar- hverfa, eins og hún mælist í dælu- stöð. Reiknilíkan af vatnsnotkun hverfisins sem fall af veðri getur svarað þeirri spurningu. Slíkt líkan er sett fram með því að fella allt hverfið inn í eitt reiknilíkan. Það er byggt á þekkingu á varmafræði hitaveitukerfa, þróað með tölfræði- legum aðferðum og niðurstöður þess bornar saman við gögn frá Hitaveitu Reykjavíkur. Línulegt kvikt líkan, þar sem gert er fráð fyrir að rennsli til bygginga not- endanna sé stýrt eftir innihita með Pl-regli reynist gefa beztar niður- stöður. Notandinn hefur fyrst og fremst áhuga á að vita hvort hann fær alltaf nægjanlega mikið vatn og hvort það er nógu heitt. Reiknilík- an af rennsli og kælingu í dreifi- kerfinu getur svarað þeirri spurn- ingu. Slíkt líkan lýsir rennsli og kælingu í hverri lögn dreifikerfis- ins. Veitufyrirtækið mun vitaskuld einnig hafa áhuga á að tryggja ánægju viðskiptavina sinna, en engu að síður er hér frekar um kröfur hins einstaka notanda að ræða. Hitaveitur byggðar á jarð- hita hafa alla jafna fáar hringteng- ingar í dreifikerfinu, og því henfy- hefðbundnar reikniáðferðir tíT rennslisreikninga, svo sem aðferð Hardy-Cross, frekar illa. Graf- fræðileg greining reynist einfalda verulega bæði stöðuga og kvika lausn rennslis í pípukerfi hitaveit- unnar borið saman við fyrri aðferð- ir. Þá er gert ráð fyrir að vatnið í kerfinu sé ekki samþjappanlegt. Einnig kom í ljós að nægjanlegt er að finna stöðuga lausn orku- jöfnu pípukerfisins. Það stafar af því að varmafræðileg tregða byggt inganna í hitaveitukerfinu er mikil miðað við rennslistregðu pípunets- ins og rennslið nær jafnvægis- ástandi á undan byggingunum. Loks er einnig ijallað um neyzlu- vatnsnotkun hjá Hitaveitu Reykja- víkur og helztu áhrifaþættir veð- urfars á rekstur hitaveitu skoðaðir. Háskólaútgáfan gefur bókina út. (Fréttatilkynning) Útbob ríkisvíxla fer fram mibvikudaginn 1. september Níræður maður fyrir bíl 91 ÁRS gamall maður varð fyr- ir bíl á Brúnavegi móts við Laugarásveg um klukkan níu á sunnudagskvöld og hlaut höf- uðáverka. Hann var fluttur á sjúkrahús til rannsóknar og var lagður þar inn en var talinn óbrotinn, að sögn lögreglu. Maðurinn var enn á sjúkrahúsi . í gær en ekki í bráðri lífshættu samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar. Myndin var tekin á slysstað í þann mund er verið var að flytja manninn á brott en eins og sést á mýndinni er bíllinn sem ekið var á hann talsvert skemmdur. Melsölublað á hveijum degi! —efþú spilar til að vinna! 34. leikvika ,28.-29. ágúst 1993 | Nr. Leikur: Röðin: 1. Halmstad - Frölunda - - 2 2. Helsingborg - Norrk. - - 2 3. Hficken Brage 1 - - 4. Trelleb. Malmö 1 - - 5. Örebro Göteborg . - 2 6. Arscnal - Everton i -. 7. AstonV. - Tottenham i - - 8. Chdsea Sheff. Wed. - X - 9. Liverpool - Leeds 1 - - 10. Oldham - Wimbiedon - X - 11. Sheff. Utd. - Ipswidi - X - 12. SouthampL - Man. Utd. - - 2 13. WestHam-QPR - - 2 Hcildarvinningsupphæðin: 90 milljón krónur 13 ríttir: | 353.740 _J kr- 12 róttir: 3.720 J kr- 11 réttir: 310 ] hr. 10 réttir: 0 -J kr* Nýtt útbob á ríkisvíxlum fer fram á morgun. Um er að ræða 17. fl. 1993 í eftirfarandi verðgildum: Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000 Ríkisvíxlarnir eru til þriggja mánaða með gjalddaga 3. desember 1993. Þessi flokkur verður skráður á Verðbréfa- þingi íslands og er Seðlabanki íslands viöskiptavaki ríkisvíxlanna. Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi. Lágmarkstilboð samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu er 5 millj. kr. og lágmarkstilboð í meðalverð samþykktra tilboða er 1 millj. kr. Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum kostur á ab gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu. Abrir sem óska eftir aö gera tilboð í ríkisvíxla eru hvattir til að hafa samband við framangreinda aðila, sem munu annast tilboðsgerb fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim sjálfum heimilt ab bjóða í vegið meðalverð samþykktra tilboba (meðalávöxtun vegin með fjárhæð). Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14 á morgun, miðvikudaginn 1. september. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40. Athygli er vakin á því ab 3. september er gjalddagi á 11. fl. ríkisvíxla sem gefinn var út 4. júní 1993. LÁNASÝSLA RÍKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.