Morgunblaðið - 04.11.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1993
7
Ríkisendurskoðun
Héraðsskól-
ar færa ekki
leigritekjur
í bókhaldi
LEIGUTEKJUR héraðsskóla
vegna leigu á skólahúsnæði til
hótelreksturs að sumarlagi hafa
ekki verið færðar í bókhaldi skól-
anna né heldur kemur þar fram
hvernig þeim hefur verið ráð-
stafað. Er þetta gagnrýnt í
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
endurskoðun ríkisreiknings fyrir
1992.
Menntamálaráðherra hefur fyrir
hönd allra héraðsskólanna, að skól-
anum að Núpi undanskildum, gert
samning við Ferðaskrifstofu íslands
hf. um leigu á húsnæði þeirra til
hótelreksturs á sumrin. Hafa tekjur
af leigu gengið óskiptar við viðhalds
og endurbóta á húsnæði og búnaði
skólanna í samræmi við samninga.
Námu leigutekjur héraðsskólanna
9.7 millj. kr. á seinasta ári en inn-
eign þeirra hjá Ferðaskrifstofu ís-
lands vegna óráðstafaðra tekna var
4.8 millj. í árslok. Þessar tekjur eru
ekki færðar í bókhaldi skólanna og
í fjárlögum er ekki reiknað með
neinum sértekjum vegna þessarar
starfsemi en fram kemur í skýrslu
Ríkisendurskoðunar að þær skýr-
ingar hafí verið gefnar á þessu að
aðstandendur skólanna skorti bók-
haldsþekkingu. Einnig hafi for-
svarsmenn skólanna óttast að fjár-
veitingar til þeirra yrðu skertar sem
nemur leigutekjunum ef þær væru
færðar í bókhaldi skólanna.
------» ♦ ♦----
Tilboð opn-
uð í vegagerð
í Andakíl
Hvanntúni í Andakíl.
NÝLEGA voru opnuð tilboð í
vegakafla frá Grjóteyri að
Hvanneyri, sem er 6,8 km lang-
ur. Lægsta tilboðið átti Ingileifur
Jónsson, Svínavatni, 31,9 milijón-
ir kr. eða 64,5% af kostnaðar-
áætlun vegagerðarinnar. Næst-
lægstur var Völur hf. í Reykja-
vík, með tæplega 32,5 millj. kr.
Verkinu skal hagað þannig að
búið sé að aka í sigkafla fyrir 15.
desember, klæðningu skal lokið 20.
júlí og verklok skulu vera 30. sept-
ember á næsta ári.
Þar með kemst Hvanneyri síðast
allra þéttbýlisstaða á Vesturlandi í
vegasamband með bundnu slitlagi.
Þessi kafli var ekki kynntur heima-
mönnum fyrir útboð og hreppsnefnd
fékk stuttan umsagnarfrest.
- D.J.
------»■••♦"»--
Neskaupstaður
Uppsagnir
hjá Kaupfé-
laginu Fram
Neskaupstað.
ÖLLU starfsfólki Kaupfélagsins
Fram á Neskaupstað hefur verið
sagt upp störfum frá og með 1.
nóvember, en um er að ræða 36
manns í 25 stöðugildum.
Tilgangurinn með uppsögnunum
er að endurskipuleggja rekstur fé-
lagsins. Félagið fór í nauðasamn-
inga 1989 en þrátt fyrir það hefur
reksturinn gengið erfiðlega undan-
farin ár. Stefnt er að því að endur-
skipulagningunni verði lokið fyrir
lok nóvember.
Kaupfélagið rekur í dag fjórar
verslanir, brauðgerð og skipaaf-
greiðslu. Reiknað er með að starfs-
fólki fækki eitthvað við þessar að-
gerðir.
- Ágúst.
FAXAFENI8 - SIMI91-685870
VOLVO 850
Sýriing um helgina
VOLVO
BIFREIÐ SEM ÞÚ GETUR TREYST!