Morgunblaðið - 06.11.1993, Side 1
56 SIÐUR LESBOK/C
253. tbl. 81. árg.
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rússar vara við slæmu ástandi kjarnavopna í Ukraínu
Hætta sögð á verra
slysi en í Tsjernobyl
Moskvu. Reuter.
ANDREJ Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í gær
að stjórn landsins hefði miklar áhyggjur af fréttum um slæmt
ástand kjarnavopna í Úkraínu og kvað hættu á kjarnorkuslysi
sem yrði „miklu verra en í Tsjernobyl".
Kozyrev sagði að samkvæmt
nýjustu upplýsingum sem rúss-
nesku stjórninni hefðu áskotnast
væri brýn nauðsyn á því að Ukra-
ínumenn stæðu við samning þeirra
yið Rússa um að láta kjarnavopnin
af hendi svo hægt yrði að eyði-
leggja þau. Úkraínumenn hafa
verið tregir til að flytja vopnin til
Rússlands og segjast vilja meiri
bætur fyrir afhendingu þeirra og
ákveðnar skuldbindingar í örygg-
ismálum.
„Síðustu klukkustundirnar höf-
um við fengið afar uggvekjandi
upplýsingar frá Úkraínumönnum
sjálfum um ástand nokkurra eld-
flauga,“ sagði Andrej Kozyrev.
„Ástand þeirra gæti leitt til harm-
leiks sem yrði miklu verri en í
Tsjernobyl.“
Oruggar í aðeins tvo mánuði
Utanríkisráðherrann lét þessi
orð falla áður en hann lagði af
stað til Úkraínu til viðræðna við
þarlenda ráðamenn um kjarna-
vopnin og fleiri mál. Hann sagði
að Rússar vildu að Úkraínumenn
hæfu flutning vopnanna 1. janúar
eins og gert var ráð fyrir í samn-
ingnum. „Kjarnaoddarnir í Úkra-
ínu geta aðeins talist öruggir í tvo
mánuði. Eftir það getum við ekki
verið öruggir,“ sagði Kozyrev.
Rússar hafa nokkrum sinnum
kvartað yfir 130 gömlum SS-19-
eldflaugum og 46 nýrri eldflaug-
um af gerðinni SS-24 í Úkraínu.
Úkraínumenn hafa viðurkennt að
margar SS-19-eldflauganna séu
að verða ónothæfar og 20 þeirra
'nafa verið fluttar frá skotpöllunum
af þeim sökum.
Reuter
Svín stöðva umferðina
UM 50 svín ollu usla í umferðinni í miðborg spænsku borgarinn-
ar Zaragoza í gær. Svínabændur slepptu svínunum lausum á
einni af aðalgötunum til að mótmæla því sem þeir kölluðu „van-
rækslu stjórnvalda á þessum framleiðslugeira". Á myndinni eru
lögreglumenn að smala svínunum, en þau stöðvuðu umferð um
götuna í nokkrar klukkustundir.
Rússnesk-
bandarísk
geimstöð?
Lundúnum. The Daily Telegraph.
BANDARÍSKIR og rússnesk-
ir embættismenn kynntu í
gær drög að áætlun um smíði
sameiginlegrar geimstöðvar
fyrir aldamót - en mörg
vandamál eru þó enn óleyst.
Helsta vandamálið er að
bandarískir iðnrekendur óttast
að Rússar noti þetta sameigin-
lega verkefni til að öðlast þekk-
ingu í rafeindatækni og beiti
henni í iðnframleiðslu sinni í
samkeppni við bandarísk fyrir-
tæki..
Áformin gætu ennfremur
kostað Bandaríkjamenn mörg
störf. Áætlun Bandaríkja-
stjórnar um smíði eigin geim-
stöðvar hefur staðist margar
atlögur á þinginu, einkum
vegna þess að hún myndi skapa
tugþúsundir starfa í 37 ríkjum
Bandaríkjanna. Þar sem Rússar
hafa miklu meiri reynslu á
þessu sviði - hafa sent átta
geimstöðvar í geiminn - er
talið líklegt að með samvinnu
við þá verði smíði nýju stöðvar-
innar ekki svo mannfrek.
Saljút-7 geimstöðin.
Reuter
Fyrstu fjölflokkakosningar Jórdana í tæp 40 ár
FYRSTU fjölflokkakosningarnar í Jórdaníu í tæpa fjóra áratugi fara fram á mánudag. 559 frambjóðendur
berjast þar um 80 þingsæti, þeirra á meðal þijár konur. Þær voru á meðal tólf kvenna sem buðu sig fram
árið 1989 án þess að ná kjöri en hinar konurnar níu eru ekki f framboði nú. Konurnar segja að heittrúað-
ir múslimar hafi margsinnis hótað þeim lífláti fyrir tJtrúvillu“. Konur fengu kosningarétt í Jórdaníu fyrir
19 árum en engin kona hefur náð kjöri til þingsins. Olíklegt þykir að einhver kvennanna þriggja nái kjöri
nú, einkum sökum reynsluleysis þeirra í stjórnmálum og fjárskorts. Myndin er af börnum á kosningafundi
eins af heittrúuðu karlframbjóðendunum í Amman.
Nýja Sjáland
Jöfnustu
kosning-
arí10 ár
Wellin^ton. Reuter.
NÝSJALENDINGAR ganga að
kjörborðinu í dag og Jim Bolger
forsætisráðherra spáði „hníf-
jöfnum“ kosningum en taldi þó
að stjórnarflokkurinn, Þjóðar-
flokkurinn, færi með sigur af
hólmi. Fréttaskýrendur telja að
þetta verði jöfnustu kosningarn-
ar í landinu í tíu ár.
Naum forysta
Síðustu skoðanakannanir benda
til þess Þjóðarflokkurinn haldi
naumum meirihluta þingsæta í
kosningunum. Mike Moore, leið-
togi Verkamannaflokksins, kvaðst
ekki taka mark á slíkum spádóm-
um. „Kannanirnar eru ekki mark-
tækar. Síðustu þijá dagana hefur
orðið fylgissveifla," sagði hann.
Samkvæmt skoðanakönnunum
heldur Þjóðarflokkurinn 6,8 pró-
sentustiga forystu, sem þýðir að
hann gæti fengið um 10 sæta
meirihluta.
Sjá frétt á bls. 18.
Japansstjóm bíður álitslmekki
Tókýó. Reuter.
ICHIRO Ozawa, einn af frammámönnum í núverandi samsteypu-
stjórn í Japan, viðurkenndi í gær að hafa þegið fé frá stóru bygging-
arfyrirtæki. Hann hélt því hins vegar fram, að um hefði verið að
ræða lögleg, pólitísk framlög. Þykir þetta mál vera áfall fyrir stjórn-
ina, sem telur sig hafna yfir spillinguna, sem einkenndi fyrri stjórn
Frjálslynda lýðræðisflokksins.
Dagblaðið Asahi Shimbun flutti
þá frétt í gær, að Ozawa, sem er
annar formanna Japanska endur-
reisnarflokksins, hefði reglulega
tekið við miklum fjárhæðum, sem
ekki hefðu verið gefnar upp, frá
byggingarfyrirtækinu Kajima en
það er miðpunkturinn í miklu og
vaxandi mútuhneyksli. Hefur blaðið
eftir Shinji Kiyoyama, aðstoðarfor-
seta Kajima, að hann hafi látið
Ozawa fá rúmlega 3,2 milljónir kr.
á misserisfresti um nokkurra ára
skeið.
Ozawa sagði það eitt í gær um
fréttina, að sér þætti hún skrítin
því að hann hefði ekki vitað betur
en að um hefði verið að ræða lög-
leg, pólitísk framlög.
Ozawa var einn aðalmaðurinn á
bak við uppreisnina innan Fijáls-
lynda lýðræðisflokksins en hún
leiddi til klofnings hans og batt þar
með enda á áratugatök hans á
valdataumunum. Verði Ozawa
fundinn sekur um spillingu getur
það haft mikil áhrif á framtíð sam-
steypustjórnarinnar.