Morgunblaðið - 16.11.1993, Side 2
J
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NOVEMBER 1993
Davíð Oddsson forsætisráðherra
GATT-tilboð íslands
líklega sent í dag
TILBOÐ íslendinga um innflutning landbúnaðarafurða verður að
öllum Hkindum sent til GATT í dag. Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að hann ætti
eftir að fá endanlega niðurstöðu því svar utanrikisráðherra myndi
ekki berast fyrr en um miðnætti en taldi líklegt að ágreiningur
væri úr sögunni. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði
í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að hann vonaði að tækist
að útkljá það sem út af stæði í dag.
Jón Baldvin sagði að ágreiningur gæti hugsanlega skaðað íslendinga
væri enn uppi. Hann og landbúnað-
arráðherra hefðu ætlað að ljúka
málinu í gær en ekki náð saman,
m.a. vegna þess að landbúnaðarráð-
herra var veðurtepptur á Akureyri
fram eftir degi. Um kvöldmatarleyt-
ið hefði forsætisráðherra átt fund
með landbúnaðarráðherra og að-
stoðarmanni hans. „Sjálfur hef ég
gert forsætisráðherra rækilega
grein fyrir því hvað í milli ber en
á þessari stundu er málið óútkljáð.
Ég leyfi mér hins vegar að lýsa
þeirri von minni að það takist að
útkljá það sem út af stendur á
morgun," sagði hann.
Jón Baldvin sagði einnig að
tíminn til að skila tilboðinu væri
löngu runninn út og hættan sem
af því stafaði gæti fyrst og fremst
orðið sú að tilboðið myndi mæta
afgangi og verða lítið skoðað sem
eitthvað.
Landbúnaðarráðherra og utan-
ríkisráðherra hefur einkum greint
á um þrjú efnisatriði. í fyrsta lagi
um takmarkanir á innflutningi,
mjólkur, mjólkurafurða og kindar-
kjöts, í öðru lagi um tollaígildi, og
í þriðja lagi um hversu háir tollar
skuli vera á þeim landbúnaðarvör-
um sem íslendingar skuldbindi sig
til að hleypa inn í landið.
Er haft var samband við Halldór
Blöndal vildi hann ekki veita neinar
upplýsingar um 'málið.
Davíð Oddsson sagðist í samtali
við Morgunblaðið hafa átt fund með
utanríkisráðherra annars vegar og
landbúnaðarráðherra hins vegar um
ágreiningsefni. Er hann var inntur
eftir því hvort liklegt væri að málið
yrði afgreitt í gærkvöldi og tilboðið
sent í dag sagði forsætisráðherra
þetta: „Ég tel það víst.“
Forsetinn á Akureyri
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands, var heiðursgestur og fyrsti
viðskiptavinur á kynningu á íslenskri framleiðslu sem hófst í gær
undir einkunnarorðunum: „íslenskt-já takk.“ Forsetinn fór víða um
Akureyri í gær og kynnti sér starfsemi flestra iðnaðarfyrirtækja í
bænum, þar á meðal Gúmmívinnslunnar, þar sem Þórarinn Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri leiddi forsetann í sannleikann um framleiðslu
fyrirtækisins, sem framleiðir m.a. hjólbarða og gúmmímottur úr endur-
unnu hráefni fyrir barnaleikvelli.
Húsbréfakerfið
Munur 5 og
6% vaxta
kannaður
JÓHANNA Sigurðardóttir hefur
beðið I»jóðhagsstofnun að kanna
hvað það myndi kosta að bæta
fólki með Iágar tekjur og meðal-
tekjur að fullu muninn á 5 og 6%
vöxtum í húsbréfakerfinu í gegn-
um vaxtabótakerfið. Sagðist hún
vilja sjá hvað út úr þessu kæmi
áður en ákvörðun yrði tekin, en
það væri fólk með lágar tekjur
og meðaltekjur sem hún vildi
veija. Þetta kom fram á Alþingi
í gær í umræðum um svar við
fyrirspurn frá Guðna Ágústssyni,
Framsóknarflokki, um húsbréfa-
kerfið.
í svari ráðherra kom fram að af-
föll í húsbréfakerfinu voru að meðal-
tali 7,5% á árinu 1989, 11% á árinu
1990, hækkuðu í 19,3% á árinu 1991,
voru 14% í fyrra og 11,7% að meðal-
tali fram til septembermánaðar í ár.
Guðni Ágústsson sagði að afföll á
þessu árabili næmu 7 milljörðum
króna og stimpilgjöld og lántökugjöld
til viðbótar næmu 1,1 milljarði. Þeir
hópar sem hefðu þurft að taka á sig
þessi afföll væru að komast I erfíð-
leika nú og leituðu eftir aðstoð.
Jóhanna sagði að þessar tölur
væru ekki marktækar þar sem þing-
maðurinn tæki ekki tillit til innri fjár-
mögnunar kerfisins og þeirra bréfa
sem ekki væru seld á markaði.
Marel hf.
Kosning um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
OrðaJag á atkvæðaseðlnm mis- 30% veitu-
munandi eftir sveitarfélögum
KJÓSENDUR á höfuðborgarsvæðinu sem greiða atkvæði nk.
laugardag um sameiningu Reykjavíkur, Seltjarnarness, Mosfells-
bæjar, Kjalarneshrepps og Kjósarhrepps fá mismunandi orðaða
atkvæðaseðla eftir því hvar þeir eru í sveit settir.
Umdæmanefnd höfuðborgar-
svæðisins samþykkti á fundi 26.
október sl. að leggja til að kjósend-
ur á norður- og vesturhluta höfuð-
borgarsvæðisins fengju atkvæða-
seðla með textanum: Ertu sam-
þykkur sameiningu Kjalames-
hrepps, Kjósarhrepps, Mosfells-
bæjar, Reykjavíkur og Seltjamar-
ness? Fyrir neðan skyldu kjósend-
ur krossa í reit merktan „já“ eða
„nei“. Yfirkjörstjóm í Reykjavík
taldi orðalagið óheppilegt og
ákvað að taka heldur til fyrir-
myndar atkvæðaseðil úr lýðveldis-
kosningunum 1944, atkvæðaseðill
Kjósverja verður með líku sniði.
Efst á Reykjavíkurseðlinum er
yfírskrift: Atkvæðagreiðsla í
Reykjavík 20. nóvember 1993. Þar
fyrir neðan stendur: Tillaga um-
dæmanefndar höfuðborgarsvæðis-
ins um að eftirtalin sveitarfélög
verði sameinuð: Reykjavík, Sel-
tjarnarnes, Mosfellsbær, Kjalar-
neshreppur, Kjósarhreppur. Fyrir
neðan em tveir reitir merktir, já
og nei, og fyrirmæli um að þeir
sem samþykki tillöguna setji kross
fyrir framan já, en hinir fyrir fram-
an nei.
Jón G. Tómasson, formaður
yfirkjörstjómar í Reykjavík, telur
að þetta orðalag sé ekki leiðandi,
öðm máli gegni um spurninguna
„Ertu samþykkur ...“ eins og til-
laga umdæmanefndarinnar að
kjörseðli hljóðar. Jón bendir á að
eins væri hægt að spyija: „Ertu
ósamþykkur ..." og hafa kostina
nei og já, því sé spumingin leið-
andi.
Á Reykjavíkurseðlinum er vikið
frá þeirri röð sveitarfélaga sem
umdæmanefnd leggur til að verði
notuð á kjörseðli. „Þetta er röðin
sem er í tillögu umdæmanefndar
frá 15. september, eins og hún
Atkvæöagreiðsla f Reykjavfk 20. nóvember 1993
Tillaga umdæmanefndar höfuðborgarsyæðlslhslum a
eftirtalin sveitarfélög veröi sameinuð: Reykjavík, 'Sel-
tjarnarr^s, Mosfellsbæu, Kjalameshreppur, Kjósar-
hreppur% I
Já
Nel
Þeir sem samþykkja tillöguna setja kross fyrir framan „já",
en hinir fyrir framan „nei".
aukning
VELTA Marels hf. hefur aukist
um 30% á þessu ári að sögn Geirs
A. Gunnlaugssonar framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins.
Framkvæmdastjóri Marels hf.
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að veltan í fyrra hefði verið 410
milljónir króna en væri 530 milljónir
á þessu ári, og aukningin því um
30%. Sagði hann aukna veltu afleið-
ingu sóknar fyrirtækisins inn á nýja
markaði. Marei hefði selt fram-
leiðslueftirlitskerfí í kjötiðnaði en
jafnframt haldið markaðshlutdeild
sinni í fiskiðnaði og hefði fyrirtækið
selt tæknibúnað til rúmlega 30 landa
til þessa.
♦ ♦ »
Atkvæðaseðill
FYRIRMYNDIN að atkvæðaseðlinum sem lagður verður fyrir kjós-
endur I Reykjavík er seðill sem notaður var við lýðveldiskosningarn-
ar 1944.
Meintir tölvuþjófar fundnir
RLR handtók í gærkvöldi tvo sí-
brotamenn á þrítugsaldri með tölv-
ur og töivubúnað í fórum sínum 4
Pepsi riftir samningi
Pepsi rifti auglýsingasamningi við
Michael Jackson þegar hann af-
lýsti tónleikaferð sinni 27
Prófkjör sjálfstæöismanna íþfÓttÍV
barst borgarstjórn Reykjavíkur.
Það er verið að kjósa um þá tillögu
og ég tel mér óheimilt að breyta
henni,“ sagði Jón G. Tómasson.
Yfirkjörstjórn í Mosfellsbæ taldi
heppilegra að kjósendur tækju af-
stöðu til ákveðinnar spurningar á
kjörseðlinum, að sögn Björns Ást-
mundssonar formanns yfirkjör-
stjórnar. Efst á seðlinum er yfir-
skrift: Atkvæðagreiðsla í Mos-
fellsbæ 20. nóvember 1993. Þar
fyrir neðan er spurningin: Ert þú
samþykk(ur) tillögu uiridæma-
nefndar höfuðborgarsvæðisins um
að eftirtalin sveitarfélög verði
sameinuð: Reykjavík, Seltjarnar-
nes, Mosfellsbær, Kjalarneshrepp-
ur, Kjósarhreppur. Þar fyrir neðan
eru tveir reitir, merktir ,já“ og
„nei“, kjósendur merkja síðan við
annan hvom reitinn.
Daui tekirni
með hass
á hóteli
DANI með 3,7 kg af hassi í fórum
sínum var handtekinn á hóteli í
Reylqavík á laugardag. Hann
hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 29. þessa mánaðar.
Maðurinn, sem er 24 ára gam-
all, hafði komið til landsins með
fiugi frá Amsterdam á fímmtudag
í síðustu viku. Að sögn fíkniefnalög-
reglu er rannsókn málsins nánast
lokið og verður það sent ríkissak-
sóknara til meðferðar á næstunni.
i j,Gaman, en hissa“
.| WB
Gunnar Birgisson og Róbert Agn-
arsson í efstu sætunum 28 og 29
Leiðari
Rannsóknir í sjávarútvegi 28
► Yngsti A-landsliðsmaður ís-
íands í íþróttum. Ormarr Örlygs-
son skiptir úr KA í Þór á AJkur-
eyri. KR sigraði Islands- og bikar-
meistara ÍBK í körfuknattleik.
Iðnláiia- og Iðnþróunarsjóðir buðu í eignir íslensks bergvatns hf.
Helmingimnn fór á 5 milljónir
ert annað en að greiðsla fyrir leig-
una rennur til þeirra en ekki til
íslensks bergvatns." Davíð sagði
að kanadísku meðeigendumir hafi
átt um helming fyrirtækisins og
jafnframt haft rétt á að flytja út
alla framleiðsluvöru þess til allra
landa nema íslands og Bretlands.
„Það hafa þeir ekki gert þannig að
nú opnast heimurinn á ný og við
erum frjálsir að því að flytja út
aftur,“ sagði Davíð.
JÐNLÁNASJÓÐUR og Iðnþróunarsjóður keyptu sameiginlega helm-
ing véla og tækja Islensks bergvatns hf., fyrir 5 milljónir króna á
nauðungaruppboði í gær. Enginn annar bauð í eignina. Glitnir hf.
er eigandi að hinum helmingi tækjanna. Breska fyrirtækið Seltzer
hefur leigt tækin til 10. febrúar nk. Fulltrúar þess eru væntalegir
til landsins til samninga við Iðnlánasjóð og Iðnþróunarsjóð um kaup
á þeirra hlut.
„Það er jákvætt að þetta skyldi
fara á þann veg sem við ætluðum
okkur, þ.e. forða því að verksmiðjan
stöðvaðist,“ sagði Davíð Sch. Thor-
steinsson, framkvæmdastjóri
Smjörlíkis hf. Verksmiðjan var leigð
Seltzer í sumar sem hefur rekið
hana síðan. „Nú þegar Iðnlánasjóð-
ur og Iðnþróunarsjóður eru búnir
að leysa til sín veð, þá gerist ekk-