Morgunblaðið - 16.11.1993, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 16.11.1993, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 mmfttm NOTA&IR 8ILAR Y^vvWVVVVTWV^ o C/27 „ Jtanri' kostcái þúsunct gtstnýr. þaS er þao sent bg sel hann. " 111. i ' 1. , i i Þó svo ég viti að hann vissi ekki hvað æ sér gjöf til gjalda þýðir, hef ég ákveðið að fara í jarðarförina hans. að skokka með til að hann hafí félagsskap TM Reg. U.S Pat Ofl — all rights reserved © 1993 Los Angetes Times Syndicate BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reylqavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Geimverur í Biblíunni Frá Birnu Ó. Jónsdóttur: LAUGARDAGINN 23. október sl. ~ var grein í ?Bréf til blaðsins" sem fjallaði um geimverur í Biblíunni. Þar er meðal annars sagt frá stormvindi og miklu skýi sem hnykklast saman, og úr stormvindinum sáust myndir af fjórum verum, sem að mati grein- arhöfundar eiga að vera geimverur. Mig langar til að skoða þessa lýsingu aðeins nánar. í greininni segir meðal annars: ?Þegar Esekíel komst í náin kynni við geimverur segir svo frá í Gamla testamentinu: ?Stormvindur kom úr norðri og ský mikið, sem hnykklaðist saman og stóð af því bjarmi umhverf- is, og út úr honum sást eitthvað sem glóði eins og lýsigull. Ut úr honum sáust myndir af fjórum verum. Og þetta var útlit þeirra: Mannsmynd var á þeim.“ (Esekíel 1:4-5)“ Tilvitn- un lýkur. Ekki veit ég hvernig þessar verur ættu að líta út, enda hafa þær nú ekkert verið að sýna sig, blessaðar. Þær hafa að sögn nokkurra manna haft samband við þá gegnum huga þeirra, og einn hefur lýst þeim sem litlum grænum verum, annar að þær hafi gráan eðluskráp. Ekki kalla ég það mannsmynd, öllu heidur eðlu- mynd, dýraríkið er fjölbreytt og ef- ast ég ekki um að Iýsingu á þessum verum mætti heldur fínna þar. Þegar ég fletti upp þessari tilvitn- un sem vísað var í, gat ég ekki með nokkru móti séð að verið væri að lýsa geimverum eða geimfari. Þama var talað um ský og fjórar verur. Til er samskonar lýsing í 2. Mósebók af skýi sem fylgdi Israelsmönnum gegnum eyðimörkina, og segir um það: ?Drottinn gekk fyrir þeim á daginn í skýstólpa til að vísa þeim veg, en á nóttunni í eldstólpa til að lýsa þeim, svo að þeir gætu ferðast nótt §em dag.“ 2. Mós. 13.21. Eins er að finna lýsingu á samskonar ver- um, einnig fjórum, annars staðar í Biblíunni, það er í Opinberun Jóhann- esar. Þar segir um þær að þær væru fyrir miðju hásætinu og umhverfis það, og þær láta ekki af að gefa honum, sem í hásætinu situr, dýrð og heiður og þökk, dag og nótt. Ef haldið er áfram lestrinum í Esekíel kemur líka í ljós að fyrir ofan verumar fjórar var safírsteinn í lögun sem hásæti, og þar uppi var mynd nokkur í mannslíki. Síðan seg- ir Esekíel: ?...Þannig var ímynd dýrð- ar Drottins á að líta“. Það sem Esekí- el er að lýsa er þá Drottinn í allri sinni dýrð, og kringum hann eru verumar fjórar sem gefa honum dýrð, heiður og þökk. Þær verur virð- ast vera þær sömu og Jóhannes lýsir í sinni opinberun, verur sem eru kringum hásæti Drottins og fylgja honum. Þar með get ég ómögulega tengt saman lýsingu á Dýrð Drottins í sýnum spámanna Guðs og lýsingu á grænum verum eða hvernig sem þær nú eiga að líta út sem sýna sig þeim mönnum sem að því er virðist leita eftir sambandi við einhveija anda aðra en Heilagan Anda Guðs. En á einum stað í Biblíunni sá ég að verið var að tala um vemr í himin- geimnum. I bréfi sem Páll postuli skrifaði til Efesusmanna, segir: ?Klæðist alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðið vélabrögð djöfulsins. Því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi og blóði, heldur við tignimar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimn- um.“ Ef. 6.10-12; Þessar andaverur vonskunnar eru í himingeimnum, þessar verur eru þá ?himin-geim-ver- ur“, eða hvað? Og ekki gefur Páll þeim gott orð. Enda varar hann okk- ur við þeim og biður okkur um að klæðast alvæpni Guðs til þess að standast vélabrögð þeirra. Það virðist, að öll skilaboð um geimverur komi með hugsnaflutn- ingi, gegnum anda eða huga fólks. Skilaboðin koma frá svokölluðum ?æðri veram" frá ?þróaðri tilverastig- um“, þau eiga einnig að koma frá öndum framliðinna. Það er nokkuð athyglisvert að kenningar Nýaldarsinna, virðast all- ar eiga uppruna sinn á svipaðan hátt: frá framliðnum, frá ?æðri önd- um“, öndum sem finna sér farvegi meðal annars gegnum Indíána eða inverska ?Gúrúa“ og þess háttar. Ekki kæmi mér á óvart að þeirra táli fylgi fagurgali um mikinn þroska og visku þeirra sem þeir komast í samband við, að mínu mati gagngert til þess að veiða sálir í net forgengi- leikans. í 2. Tímóteusarbréfi 4. kafla segir: ?Því *að þann tíma mun að bera, er menn þola ekki hina heil- næmu kenning, heldur hópa þeir að sér kennurum eftir eigin fýsnum sín- um til þess að heyra það, sem kitlar eyrun. Þeir munu snúa eyram sínum burt frá sannleikanum og hverfa að ævintýrum. “ En hvemig er þá hægt að þekkja sannleikann? Jesús segir: ?Ef þér erað stöðugir í orði mínu, erað þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gjöra yður fijálsa... Hví skiljið þér ekki mál mitt? ... Sá sem er af Guði, heyrir Guðs orð. Þér heyrið ekki,. vegna þess að þér erað ekki af Guði... Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem varðveitir mitt otð, skal aldrei að eilífu deyja. “ Og ég vil enda á hinum sönnu orðum Jesú Krists sem eru enn og verða alltaf í fullu gildi: ?Ég er vegur- inn, sannleikurinn og lífíð. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig.“ Jóh. 14.6; BIRNA Ó. JÓNSDÓTTIR, Dúfnahólum 4, Reykjavík. Aðgerðir í vaxta- málum Frá Gunnari Tómassyni: FYRIR fjórum áram setti undirrit- aður fram tillögu við ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar um 2% hámarks raunvexti á innlendum lán- tökum ríkissjóðs ásamt erlendri íjár- mögnun á þeim hluta lánsfjárþarfar, sem ekki fengist á þeim kjöram inn- anlands. Þrátt fyrir góðan vilja þáverandi forsætisráðherra til raunhæfra að- gerða til lækkunar yaxta til hags- bóta fyrir heimili landsins og at- vinnulíf, náði tillagan ekki fram að ganga. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hef- ur nú, góðu heilli, gert hliðstæða hugmynd að sinni. Hins vegar virð- ast 5% hámarks vextir á innlendum lántökum ríkissjóðs vera allt of háir með hliðsjón af knýjandi nauðsyn stórlækkunar raunvaxtastigs. GUNNAR TÓMASSON, hagfræðingur. HOGNI HREKKVISI Vík\erji skrifar Ráðning Jóns Sigurðssonar, for- manns bankastjómar Seðla- banka íslands, til þess að verða aðal- bankastjóri Norræna fjárfestingar- bankans er mikil viðurkenning fyrir hann sjálfan svo og okkur Islend- inga. Hér er um lánastofnun að ræða, sem veltir miklum fjármunum og alveg augljóst, að til aðalstjórn- anda hennar era gerðar miklar kröf- ur. Þess vegna er það þeim mun ánægjulegra, að íslendingur skuli talinn uppfylla þær kröfur. Við eram smáþjóð, sem hefur ekki verið í alfaraleið, hvernig sem á það er litið. íslendingar hafa yfir- leitt ekki komið við sögu, þegar um er að ræða helztu embætti í alþjóð- legum eða fjölþjóðlegum stofnunum. Þetta er bersýnilega að breytast. Við eigum nú fólk, sem vegna menntunar og starfsreynslu stendur jafnfætis útlendingum og það kemur m.a. fram í því að fleiri og fleiri íslendingar ráðast til starfa hjá al- þjóðastofnunum. Er í þeim efnum skemmst að minnast þess, að Kjart- an Jóhannsson sendiherra tekur senn við starfi framkvæmdastjóra Fríverzlunarsamtaka Evrópu. Það traust, sem okkur er sýnt sem þjóð á þennan hátt, er fagnaðarefni um leið og við hljótum að meta þá einstaklinga að verðieikum, sem hér eiga hlut að máli. xxx Fyrstu vísbendingar um stöðu flokkanna í væntanlegum borgarstjórnarkosningum í Reykja- vík næsta vor komu fram í skoðana- könnun, sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir ríkissjónvarpið fyrir nokkram dögum. Það sýnir mikinn styrk Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík, að könnun þessi sýndi, að flokk- urinn mundi halda meirihluta sínum að óbreyttum framboðum vinstri flokkanna. Ríkisstjórn undir forystu Sjálf- stæðisflokksins hefur setið síðustu rúm tvö ár á einhveijum mestu krepputímum, sem yfir þjóðina hafa gengið á þessari öld. Fyrirfram hefði mátt ætla, að það hefði komið niður á Sjálfstæðisflokknum í þessari könnun og að við núverandi aðstæð- ur hefðu minnihlutaflokkamir um- talsverða möguleika á að ná meiri- hluta í borgarstjórn. Svo virðist ekki vera og ætti það að verða borgarfull- trúum Sjálfstæðisflokksins hvatning til þess að halda vel á málum og misstíga sig nú ekki. xxx Sjálfsagt hafa mörgum komið á óvart úrslit prófkjörsins meðal sjálfstæðismanna i Kópavogi. Aug- ljóst er, að þar verður umtalsverð endurnýjun, ekki sízt á þann veg, að nokkrar konur hafa náð góðum árangri og verða bersýnilega áhrifa- miklar í bæjarstjórnarflokki sjálf- stæðismanna næsta kjörtímabil. Sjálfstæðisflokkurinn hefur áreið- anlega töluverða möguleika á að ná meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs að þessu sinni, ef flokkurinn heldur rétt á málum. Niðurstaða prófkjörs- ins ætti fremur að stuðla að því að svo geti orðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.