Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 56
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK
SIMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
íshúsfélag ísfirðinga
skráð á opna tilboðsmarkaðnum
Stefnt að hlutafjár-
•aukningu um 50 millj.
STJÓRN íshúsfélags ísfirðinga hf. hefur fjallað um og samþykkt
kauptilboð það sem íshúsfélagið gerði í 50% hlut Fáfnis á Þingeyri
í Arnarnúpi, sem gert hefur Framnesið út á móti Ishúsfélaginu á
ísafirði. íshúsfélagið hefur því eignast Framnesið alfarið, ásamt 1.543
þorskígildistonnum sem skipinu fylgja, sem eru bæði rækjuveiðiheim-
ildir og bolfiskur. Að sögn Þorleifs Pálssonar, sljórnarformanns Is-
húsfélagsins, hefur íshúsfélagið þannig tryggt sér um 2.600 þorsk-
ígildistonn til frambúðar, með þeim veiðiheimildum sem Stefnir (áð-
ur Gyllir frá Flateyri) og Framnesið hafa yfir að ráða. Þorleifur
segir að nú næstu daga verði hlutabréf í íshúsfélaginu skráð á hin-
um opna tilboðsmarkaði, og Verðbréfamarkaði íslandsbanka hafi
þegar verið send gögn þar sem óskað er eftir að hann annist
slíka skráningu.
Að sögn Þorleifs þarf enn að
-"•'-J^.'úa talsvert bil til þess að hráefnis-
öflun verði næg, eftir að Guðbjörg-
in hættir að leggja upp hjá íshúsfé-
laginu, sem verður næsta haust,
þegar hinn nýi stóri frystitogari
Ásgeirs Guðbjartssonar og félaga
kemur til landsins og leysir Guð-
björgina af hólmi. Guðbjörgin lagði
upp um 3.600 tonn á sl. ári hjá
íshúsfélaginu og oft hefur hún lagt
upp meiri afla.
Stefnir veiðir bolfiskinn
„ _ Þorleifur sagði að meiningin
væri að Framnesið yrði einungis
gert út á rækju til að byija með,
en fyrirtækið ræður yfir um 300
tonnum í rækju, og áætlað væri að
Stefnir veiddi bolfiskinn.
„Við höfum þegar sent Verð-
bréfamarkaði íslandsbanka gögn
og óskað eftir að hann annist skrán-
ingu fyrir okkur á hlutabréfum á
hinum opna tilboðsmarkaði,“ sagði
Þorleifur í samtali við Morgunblaðið
í gær. Þorleifur kvaðst eiga von á
því að slík skráning hæfíst nú allra
næstu daga. „Við rennum blint í
sjóinn með það hveijar undirtektir
verða," sagði Þorleifur, „það verður
bara að koma í Ijós. Við höfum
rætt við nokkra aðila, en það hafa
ekki fengist endanleg svör ennþá.
Skráð hlutafé hjá félaginu er 70
milljónir króna, og síðan liggur fyr-
ir samþykki hluthafafundar um að
auka hlutaféð um 50 milljónir að
nafnverði, þannig að samtals verði
hlutaféð um 120 milljónir króna.“
iviorgunoiaoiu/ F'orKen
Landfestar treystar
MIKILL viðbúnaður var í höfnum sunnan- og vestanlands í gær en spáð var suðaustan og suðvestan stormi.
Ekkert tjón varð á flóðinu í gærmorgun, en á kvöldflóðinu barst trilla upp á bryggju í Grindavík og sjór
gekk víða á land, en óljóst um skemmdir í myrkrinu. Síðla kvölds var stormurinn ekki skollinn á, en að
sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings átti lægðin að koma inn yfir landið skömmu eftir miðnætti í
nótt og vera skammvinn.. Menn höfðu varann á og gengu tryggilega frá bátum sínum, eins og þessi mynd
sem tekin var í smábátahöfninni í Sandgerði í gærkvöldi sýnir. Önnur lægð er væntanleg í dag og sagði
Einar að lægðir sem koma í kjölfarið á öðrum djúpum lægðum væru oft illskeyttar og til alls vísar.
Togarar úr Smugunni á leið til lands með afla frá Svalbarðasvæðinu
Áttu að bíða úrslita um aðild
að Svalbarðasamkomulaginu
- segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
AFLI fenginn á yfirlýstu fiskverndarsvæði Norðmanna við Svalbarða
er í lestum nokkurra þeirra íslensku fiskiskipa sem nú eru á leið til
lands eftir veiðar í Smugunni, að því er útgerðarmaður eins þeirra
skipa sem fóru inn á svæðið fyrir helgi staðfesti í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. Skipin höfðu þar skamma viðdvöl, sum köstuðu en
önnur ekki. Allt að 7,5 tonn fengust í hali. Útgerðarmaðurinn sagði
að fyrir mönnum hefði vakað að kalla fram viðbrögð stjórnvalda á
íslandi og í Noregi. Norskt varðskip var skammt undan meðan á veið-
unum stóð en aðhafðist ekkert. Engin viðbrögð við þessum fréttum
fengust í norska stjórnkerfinu í gærkvöldi. Jón Baldvin Hannibalsson
sagði að utanríkisráðunéytið hefði beðið þá útgerðarmenn sem undan-
farið hefðu leitað stuðnings við veiðar á svæðinu að bíða niðurstöðu
um hvort íslendingar gerðust aðilar að Svalbarðasamkomulaginu. Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra vildi ekkert um málið segja. Hann
,íl»»egir afstöðu ríkissljórnarinnar til málsins óbreytta frá því í ágúst
þegar varað var við veiðum á svæðinu.
Útgerðarmaður sem rætt var við
sagði að ekki hefði verið um að ræða
neitt formlegt samráð milli útgerðar-
manna eða skipstjóra um að fara inn
á svæðið en eftir að lengi hefði verið
rætt um möguleika á veiðum þarna
og ekkert hefði gengið að fá skýr
svör stjómvalda hefðu margir ákveð-
ið að koma við á svæðinu til að kanna
hvort þar væri físk að fá. Menn hefðu
ekki látið sannfærast af yfirlýsingum
stjómvalda um óljósa réttarstöðu.
Eftir 10 daga geijun meðal skip-
stjóra og útgerða hefði niðurstaðan
orðið sú að líta á svæðið. Hver skip-
stjóri hefði haft sín fyrirmæli; sumir
Ellefu ára í A-
landsliði Islands
GUÐMUNDUR E. Stephensen, Víkingi, var í gærkvöldi valinn
í A-Iandslið íslands í borðtennis sem mætir Færeyingum í lands-
keppni í Laugardalshöll næst komandi mánudag. Guðmundur
er aðeins 11 ára og yngsti A-landsliðsmaður íslands í íþróttum
— og þó víðar væri leitað.
Guðmundur var stigahæstur í
borðtennis á síðustu leiktíð og
hefur haldið uppteknum hætti í
vetur, er efstur eftir þrjú mót í
meistaraflokki með 33 punkta.
Fyrir tveimur árum keppti hann
fyrst með unglingalandsliði ís-
lands 14 ára og yngri og fyrr á
árinu var hann í landsliði 18 ára
og yngri. Guðmundur byrjaði að
æfa borðtennis fyrir um fjórum
árum.
Sjá bls. Bl.
Guðmundur E. Stephensen
hefðu mátt kasta jafnvel þótt það
kostaði aðvörun eða afskipti varð-
skipa, öðrum hefði verið upp á lagt
að forðast að láta norsk varðskip sjá
til ferða sinna og enn öðrum leyft
að sigla inn á svæðið en bannað að
kasta. Fýrir mönnum hefði vakað að
koma málinu á skrið og fá fram við-
brögð stjórnvalda.
Jón Baldvin Hannibalsson sagðist
í gær hafa frétt haft eftir LÍU að
einhver skip hefðu hrakist að Sval-
barða undan veðraham. „Ég hef ekki
fengið þetta staðfest. En margir út-
gerðaraðilar og skipstjórnarmenn
hafa haft sambandi við okkur á und-
anfömum dögum og spurt hvað við
ráðlegðum þeim. Við höfum svarað
mjög skýrt; haldið ykkur frá svæð-
inu. Áhættan sem þið takið er sú að
skip verði færð til hafnar, afli og
veiðarfæri verði gerð upptæk, það
verði dæmt samkvæmt norskum
landhelgislögum og ávinningurinn
af þessu er enginn. Bíðið með slíkar
aðgerðir þangað til stjórnvöld hafa
komist að niðurstöðu um það hvort
við ætlum að gerast aðilar að Sval-
barðasamningnum. Það munum við
ekki gera án undanfarandi viðræðna
við Norðmenn, vegna þess að hingað
til hafa Norðmenn ekki viljað efna
til málareksturs á grúndvelli slíkra
aðgerða gagnvart samningsríkjum,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra.
„Sérfræðingahópur í utanrikis-
ráðuneytinu hefur kannað réttar-
stöðu Svalbarðasamningsins og
stöðu okkar og skilað mér niðurstöðu
sinni í skýrslu. Ég hef ekki enn feng-
ið ráðrúm til að leggja hana fyrir
ríkisstjórnina," sagði Jón Baldvin.
j?'-'^; j ^7
Interpolis-skákmótið
Margeir og
Jóhann
báðir áfram
FYRSTU umferð Interpolis-skák-
mótsins í Hollandi lauk í gær.
Margeir Pétursson og Jóhann
Hjartarson eru báðir komnir í
aðra umferð.
Margeir gerði jafntefli við Pinter
í fyrri skákinni og vann þá síðari.
Andstæðingur hans í annarri umferð
verður Hollendingurinn Jan Timman.
Jóhann tefldi við Georgadze. Eftir
bráðabana hafði Jóhann betur og
heldur því áfram.
------♦ ♦ ♦
Vill ekki kæra
MAÐUR varð fyrir líkamsárás í
Öskjuhlið í gærkvöldi og var flutt-
ur á slysadeild Borgarspítalans
með töluverða áverka. Að sögn
lögreglu gaf maðurinn enga lýs-
ingu á árásarmanninum og í gær-
kvöldi var talið að hann vildi ekki
leggja fram kæru vegna málsins.
Maðurinn barði upp á í húsi í
grennd við Öskjuhlíð illa til reika og
óskaði eftir aðstoð til þess að kom-
ast á slysadeild. Hringt var í lög-
reglu sem kom á staðinn og flutti
manninn undir læknishendur. Ekki
er vitað hvaða ástæður liggja að
baki þess að maðurinn hyggst ekki
kæra árásina.