Morgunblaðið - 16.11.1993, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 16.11.1993, Qupperneq 19
AUMA, Auglýsingar- MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 19 KALT BORÐ Glæsilegt kalt hlaðborð með 7 til 8 úrvalsréttum að eigin vali með sósum, salati og brauði. Þú getur líka valið einn af okkar vinsælu pottréttum sem er borinn fram heitur með hrís- grjónum, salati og brauði. Skoðaðu myndamöppuna okkar og fáðu góð ráð. HEITUR MATUR Veisluborðið okkar með heitum mat gerir alltaf lukku og þú færð matreiðslumeistarann á staðinn. Þú velur þína rétti með öllu tilheyrandi og veislan verður ein- falt mál. Gott verð. ÞORRAMATUR Allir þekkja okkar landsfræga þorramat sem síðast liðin 30 ár hefur staðið fyrir sínu. Nú er rétti tíminn til að panta í þorraveisluna. Hringdu og fáðu góð ráð. PINNABORÐ Stórglæsilegt hlaðið borð kræsingum fyrir móttökur, hanstél, brúðkaup, afmæli, fundi og aðra mannfagnaði. Borðið samanstendur af mörgum pinna- útfærslum, smábrauði, ferskum ávöxtum, ofnbökuðum réttum og mörgum öðrum spennandi kræsingum. Myndamappan segir meira en mörg orð. Fáðu tilboð og ráðleggingar um samsetningu veislunnar hjá okkur. KAFFIHLAÐBORÐ Heimalagaðar kræsingar fyrir hvert tilefni. Kökur, brauðtertur, rjóma- og marsípantertur, snittur, pinnar, flatkökur og margt fleira. Kynntu þér okkar hagstæða verð, sem kemur á óvart. MATARBAKKAR Múlakaffi er eitt stærsta mötu- neytið á sviði matarsendinga til fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu Þú velur um heitan mat, kaldan, kabarett og létt fæði. Gott verð. Við höfum í 30 ár boðið fullkomna veisluþjónustu sem byggir á úrvals hráefni og faglegri meðhöndlun. Þú færð veisluna hvert á land sem er án aukakostnaðar. Hafðu samband til að fá ráðleggingar og hagstætt tilboð í veisluna þína. MÚLAKAFFI VEISLURÉTTIR Múlakaffi við Hallarmúla í Reykjavík, rekur kaffiteríu, matarbakkamötuneyti, stóreldhús og smurbrauðstofu fyrir veisluþjónustu. Þjónustusimi matreiðslumeistara veislurétta er 36737 og 37737.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.