Morgunblaðið - 16.11.1993, Side 34

Morgunblaðið - 16.11.1993, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 Skjótvirkur stíflueyóir stíflum Eyðir fljótt • Tuskur • Feiti • Lifræn efni • Hár • Dömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Shell- og Esso -stöðvar og helstu byggíngavöru- verslanir. Dreifing: Hringás hf., sími 677878-fax 677022 Tilbúinn stíflu eyðir ÖRYGGIS OG GÆSLUKERFI FRÁ ELBEX SPARIÐ TÍMA FÉ OG FYRIRHÖFN og skapið öruggari vinnu og rekstur með ELBEX sjónvarpskerfi. Svart hvítt eða í iit, úti og inni kerti. Engin lausn er of flókin fyrir ELBEX. Kynnið ykkur möguleikana. Einar Farestveit & co hf. Borgartúni 28, sími 91-622900 Hef opnað sjúkra- og íþróttanuddstofu á Grensásvegí 5, Reykjavík. Tímapantanir í síma 811590. löggiltur sjúkranuddari. Viðgerðarþiónusta fyrir flestar gerðir fólksbíla. INÆótorstillingax Pústkerfi Bremsuviðgerðir mazua sérfræðingar á staðnum! B FÓLKS- ÍLALAND HF. Bíldshöfða 18 Q* 6739 90 ■ REYKJA VÍKURDEILD RKÍ gengst fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp sem hefst miðvikudag- inn 17. nóvember. Kennt verður fjögur kvöld. Kennsludagar verða 17., 18., 22. og 24. nóv. og verður kennt frá kl. 20-23. Námskeiðið verður haldið í Fákafeni 11, 2. hæð. Námskeiðið telst verða 16 kennslustundir. Þátttaka er heimil öllum 15 ára og eldri. Þeir sem hafa áhuga á þessu námskeiði geta skráð sig hjá Reykjavíkurdeild RKÍ. Námskeiðsgjald er 4.000 kr., skuld- lausir félagar í RKÍ frá 50% af- slátt. Hægt verður að ganga í félag- ið á staðnum. Einnig fá nemendur í framhaldsskólum 50% afslátt, þetta gildir einnig um háskólanema gegn framvísun skólaskírteinis. Meðal þess sem kennt verður á námskeiðinu er blásturaðferðin, endurlífgun með hjartahnoði, hjálp við bruna og blæðingu úr sárum og mörgu öðru. Einnig verður fjall- að um það hvemig koma megi í veg fyrir helstu slys. Að námskeiðinu loknu fá nemendur skírteini sem hægt er að fá metið í ýmsum skól- um. Tekið skal fram að Reykjavík- urdeild RKÍ útvegar leiðbeinendur til að halda námskeið í fyrirtækjum og hjá öðrum sem þess óska. HINIR nýju eigendur tískuversl- unarinnar Guðrúnar, f.v. Ester Jóhannsdóttir og Margrét Pét- ursdóttir. ■ NÝLEGA urðu eigendaskipti á Tískuversluninni Guðrúnu við Rauðarárstíg. Verslunin er þekkt fyrir vandaðan þýskan tískufatnað eins og t.d. frá Tru, Michéle, Esmo- delle og Yvette. Hinir nýju eigend- ur, Ester Jóhannsdóttir og Mar- grét Pétursdóttir, munu áfram vera með fatnað frá þessum fyrir- tækjum í versluninni. í tilefni af þessum tímamótum verður efnt til tískusýningar kl. 15 á Hótel Loft- leiðum á morgun, sunnudaginn 7. nóvember, þar sem sýndur verður fatnaður frá þessum fyrirtækjum og skartgripir og hattar frá Flex. J ó l. I N ) 9 y 3 A K f R I V R I Jólamerki Framtíðarinnar. ■ KVENFÉLAGIÐ Framtíðin á Akureyri hefur gefið út hið árlega jólamerki sitt. Merkið gerði mynd- listarkonan Halla Haraldsdóttir og er það prentað í Akoplast & Pop. Jólamerkin eru tii sölu í Frí- merkjahúsinu og Frímerkjamið- stöðinni í Reykjavík og á Akureyri í Möppudýrinu, Sunnuhlíð, og á Pósthúsinu. Auk þess sjá félagskon- ur um sölu á Akureyri. Hagnaður af merkjasölunni styrkir Elliheimil- issjóð félagsins. Framleiðum óprentaðor jólasveinahúfur. Lágmork 30 stk. Jólasveinabúningar, leiga - sala. lausir pokar og skegg. Húfugerð og tauprent, sími 91-67791 1. ■ NÝR veitingostaður hóf starf- semi sína 8. október sl. við Linnet- stíg 1 í Hafnarfirði, Tilveran veitingahús, kaffihús. Eigendur Tilverunnar eru hjónin Haraldur Þór Benediktson matreiðslumeist- ari og Elín Jakobsdóttir. Boðið er upp á hádegismatseðil frá kl. 11 til 13.30 ásamt kaffi, kökum og brauði allan daginn. Á kvöldin og um helg- ar eru boðið upp á vandaðan mat- seðil fyrir alla fjölskylduna, t.d. stórsteikur, fisk, pasta, pizzur, hamborgara, súpur, salatdiska og fleira. Opnunartími Tilverunnar er frá kl. 11-22 alla daga nema föstu- daga og laugardaga frá kl. 11-23. Jólakort Hringsins. ■ JÓLAKORT Hringsins eru komin út. Myndefnið er boðun Mar- íu teiknað af Jóni Reykdal listmál- ara. Allur ágóði af sölu kortanna rennur í Bamaspítalasjóð Hrings- ins. Kortin er hægt að panta á Ásvallagötu 1, félagsheimili Hringsins, kl. 14-16 alla virka daga. Allar stærri pantanir sendar út. Verð er óbreytt frá í fyrra ári, þ.e. 60 kr. stykkið. Jólakort íslandsdeildar Amnesty. ■ ÍSLANDSDEILD mannrétt- indasamtakanna Amnesty Inter- national hefur gefíð út jólakort sem selt verður til styrktar samtök- unum. Kortið prýðir olíumálverk eftir Kristínu G. Gunnlaugsdóttur listmálara sem hún kallar Rauður draumur. Kortið er fáanlegt með eða án jólakveðju. Kortin eru seld á skrifstofu samtakanna, Hafnar- stræti 15 í Reykjavík. ■ VÉLHJÓLAFÉLAG gaml- ingja var stofnað 30. október sl. á Bíóbarnum við Hverfisgötu. Stjórnarform er einræði. Valinn hefur verið leiðtogi. Hann hefur skipað fjármálaráðherra og upplýs- inga- og menntamálaráðherra. Landinu hefur verið skipt í fjögur lén og settur lénsherra í hvert þeirra. Markmið félagsins er að varðveita og nota gömul vélhjól, miðla upplýsingum, safna ljós- myndum, viðgerðabókum, varahlut- um og öllu sem tengist gömlum vélhjólum. Leiðtogi hefur ákveðið að félagið skuli verða yfirlýstur og opinber stuðningsaðili allra barna, einkum þó þeirra sem um sárt eiga að binda af einhverjum ástæðum. Hægt er að ná sambandi við með- limi félagsins með því að senda bréf til Vélhjólafélag gamlingja, Pósthólf 1467, 121 Reylgavík. Morgunblaðið/Björn Sveinsson Hjá Randalín Nemendur textíldeildar Kennaraháskóla Islands í heimsókn hjá Rand- alín handverkshúsi á Egilsstöðum. ■ HÓPUR nemenda úr textíl- deild Kennaraháskóla íslands var á dögunum í námsferð um Austur- land undir leiðsögn Fríðar Ólafs- dóttur dósents og HaHgerðar Tryggvadóttur lektors. Aðspurðir sögðust nemendurnir komnir til Austurlands til að kynna sér þá fjöl- breyttu textíllist sem í boði væri víða á Austurlandi. Hér væri ákjós- anlegur kostur að sjá hvernig nytj- alist og fagurfræði tvinnaðist sam- an. Á Austurlandi heimsótti hópur- inn Randalín handverkshús á Egilsstöðum, en það er nýstofnað fyrirtæki kvenna og er tilgangurinn að éfla handverk á Fljótsdalshér- aði. Einnig kynntu þær sér úr- vinnslu og nýtingu hreindýraskinna á Jökuldal, en þar hafa konur haf- ið fataframleiðslu og fleira úr hrein- dýraleðri. Hjá hagleikshjónunum Eddu og Hlyn á Miðhúsum skoð- aði hópurinn list- og skrautmuna- gerð og hjá Frú Láru á Seyðis- firði kynntu nemendurnir sér áform um ullarvinnslu og framleiðslu úr henni. - Björn Morgunblaðið/Helga Halldórsdóttir Stjórn Harmonikufélags Vestfjarða ásamt skólanefnd og kennurum Tónlistarskólans á Þingeyri. Þingeyri. ■ ÞEIR komu færandi hendi yfir heiðar félagar í Harmonikufélagi Vestfjarða fyrir nokkru er þeir færðu Tónlistarskólanum á Þing- eyri harmoniku að gjöf. Formaður félagsins, Ásgeir Sigurðsson, flutti stutt ávarp en með honum í för voru þeir Guðmundur Ingvars- son, Pétur Bjarnason, Baldur Geirmundsson og Ingi Jóhannes- son. Starf tónlistarskólans er mjög öflugt og eru um sextíu nemendur, bæði börn og fullorðnir, skráðir í tónlistarnám í vetur. Kennt er á píanó, orgel, gítar, blokkflautu auk ýmissa blásturshljóðfæra svo sem trompets, básúnu, baritóns og saxa- fóns. Skólastjóri tónlistarskólans er Helga Jónsdóttir og auk hennar kenna þar Edda Þórðardóttir og Guðmundur Vilhjálmsson en hann er einnig organisti og stjórn- andi kirkjukórs staðarins. - Helga. Á myndinni eru, taldir f.v.: Filippía I. Elísdóttir, Ólafur Þ. Þórðar- son, fræðslustjóri Iðnnemasambands Islands, Birna Jónsdóttir, Ingi- björg Þóra Helgadóttir, Sigríður Einarsdóttir, Soffía Weisshappel og Benedikt Geirsson, aðstoöarsparisjóðsstjóri SPRON. ■ VERKEFNASTYRKIR úr styrktarsjóði Iðnnemasambands íslands og Sparisjóðanna voru afhentir 4. nóvember sl. Styrktar- sjóðurinn var stofnaður með samn- ingi á milli Iðnnemasambands ís- lands og Landssambands spari- sjóða. Samningurinn fól í sér að iðnnemum var boðið upp á sérstök viðskiptakjör gengju þeir í Liðveislu sparisjóðanna. Sparisjóðirnir greiddu siðan ákveðna upphæð í styrktarsjóðinn fyrir hvern félaga Iðnnemasambandsins sem var í við- skiptum við Liðveisluna. Síðastliðið vor voru afhentir einstaklingsstyrk- ir úr styrktarsjóðnum og nú var komið að verkefnastyrkjunum. Verkefnastyrkir voru veittir til þátt- töku í úrslitum alþjóðlegrar fata- hönnunarkeppni, þátttöku í Norður- landakeppni hársnyrtifólks og út- gáfu á námsefni um réttindi og skyldur iðnnema. Styrkina hlutu Filippía I. Elísdóttir, fataiðnnemi, Sigríður Einarsdóttir, hár- greiðslunemi, Soffía Weisshappel, hárgreiðslunemi, Ingibjörg Þóra Helgadóttír, hársnyrtinemi, Birna Jónsdóttir, hársnyrtinemi og Fé- lagsmálaskóli Iðnnemasambands Islands. Við ákvörðun um upphæð styrkjanna var litið til að þarna var um þijú verkefni að ræða og fékk hvert verkefni fyrir sig fjörutíu þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.