Morgunblaðið - 16.11.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993
35
Elsa María Ólafsdóttir eigandi
Gott í efni.
■ GOTT í EFNI heitir vefnaðar-
vöruverslun sem nýverið var opnuð
á Laugavegi 22a (inngangur á
bakhlið). Uppistaðan í vöruúrval-
inu eru dönsk pijónaefni úr bómull
frá fyrirtækinu Skipper stoffer.
Þessi efni hafa ekki fengist hér á
landi fyrr en nú. Eigandi Gott í
efni er Elsa María Ólafsdóttir.
Hún er handavinnukennari að
mennt og hyggst bjóða upp á
saumanámskeið í húsnæði verslun-
arinnar.
■ NORRÆNA félagið er gras-
rótarhreyfing þar sem áhersla er
lögð á sem nánust tengsl við flest
svið þjóðlífs hér heima og annars
staðar á Norðurlöndum. A sl. vori
ákvað Norræna félagið á íslandi
að gefa út kynningarbækling um
helstu starfssvið félagsins, þ.e.
vinabæjastarf, menningarmál,
skólasamstarf, umhverfismál,
Nordjobb, Nordklúbbinn og ferða-
þjónustu svo eitthvað sé nefnt. Til-
gangurinn með útgáfunni er að
kynna Norræna félagið og norrænt
samstarf.
Kurt Nielsen á hljóðfæraverk-
stæði sínu.
■ HLJÓÐFÆRA VERKSTÆÐI
Kurts var opnað í júní 1992. Þar
er gert við allar tegundir málm- og
tréblásturshljóðfæra og einnig er
hægt að láta gera upp gömul blást-
urshljóðfæri. Þetta verkstæði er það
fyrsta sinnar tegundar hér á landi
sem hefur opið allan daginn. Verk-
stæðið er vel búið tækjum og verk-
færum til hverskonar viðgerða á
hljóðfærum. Kurt Nielsen hefur
unnið í 12 ár við viðgerðir á blást-
urshljóðfærum, lengst af hjá Scand-
inavian Brass og Woodwind í Kaup-
mannahöfn. Margir tónlistarskólar
á íslandi nýta sér þjónustu verk-
stæðisins og einnig margir hljóð-
færaleikarar m.a. frá Sinfóníu-
hljómsveitinni og fleiri hljómsveit-
um. Verkstæðið er á Skólavörðu-
stíg 33, gengið inn frá Bjarnarstíg
og er opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 10-12.
■ FORELDRAFÉLAG mis-
þroska barna stendur fyrir fyrir-
lestri Gyðu Stefánsdóttur mið-
vikudaginn 17. nóvember í húsnæði
Æfingadeildar Kennaraháskóla ís-
lands. Gyða hefur sinnt sérkennslu
og námsaðstoð um langa hríð með
góðuin árangri. Fyrirlestur henna'r
íjallar einkum um sérkennslu og
námsaðstoð. Gyða leggur höfuð-
áherslu á úrræði, að kenna foreldr-
um að kenna börnum og hún býr
yfir mikilli reynslu á þessu sviði.
Við hvetjum foreldra, kennara og
annað fagfólk til þess að koma og
kynna sér starf hennar. Fyrirlestur-
inn hefst kl. 20.30 og er gengið inn
í húsið frá Bólstaðarhlíð. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
Guðrún Alfreðsdóttir og Fanney
Sigurgeirsdóttir á hárgreiðslu-
stofunni Hárstofunni Spes og
Karítas.
■ HÁRSTOFAN Spes og Karít-
as var opnuð þriðjudaginn 9. nóv-
ember sl. í Hátúni 6a. Eigandi stof-
unnar er Guðrún Alfreðsdóttir
hárgreiðslumeistari og einnig vinn-
ur þar Fanney Sigurgeirsdóttir
hárgreiðslumeistari. Stofan er opin
frá kl. 9-18 virka daga og frá kl.
10-14 á laugardögum.
■ BANDALAG kvenna, Hafnar-
firði, heldur fræðslufund mið-
vikudaginn 17. nóvember kl.
20.30 í Gaflinum, Dalshrauni 13.
Jónas Bjarnason kvensjúkdóma-
læknir flytur erindi um breytingar-
tíma kvenna. Fulltrúi frá Kvenrétt-
indafélagi íslands mun síðan kynna
kvennaþingið Nordisk Forum, sem
verður haldið í Finnlandi á næsta
ári. Kaffiveitingar. Allar hafnfirsk-
ar konur eru hjartanlega velkomn-
ar.
Hl Skandia
L. t'xxxvý'l; !;• •> <>«*% >•
Morgunblaðið/Árni Sæberg
■ SAMKEPPNI um á vegum
Fjárfestingarfélagsins Skandia
fyrir Fijálsa lífeyrissjóðinn um
besta slagorðið fyrir lífeyrissjóðinn
fór fram dagana 6.-9. október,
samhliða Kringlukasti I Kringlunni.
Tæplega tvö þúsund tillögur bárust
en besta slagorðið að mati dóm-
nefndar kom frá Hildigunni Ólafs-
dóttur til heimilis í Smárahrauni
18, 220 Hafnarfirði. Slagorð Hildi-
gunnar var: Frjálsi lífeyrissjóður-
inn — Til að njóta lífsins. Á mynd-
inni sést Hildigunnur taka við ávís-
un að fjárhæð 50.000 kr. frá fulltrú-
um Fjárfestingarfélagsins Skandia.
Með henni á myndinni eru Katrín
Sverrisdóttir í Kringlunni og Elv-
ar Guðjónsson, markaðsstjóri frá
Skandia.
■ UMHVERFISMÁLAHÓPUR
Verðandi gengst miðvikudaginn
17. nóvember nk. fyrir umræðu-
fundi um Grænan hagvöxt. Rætt
verður um forsendur hagvaxtar og
hugsanlegar breytingar á hagvaxt-
arhugtakinu með hliðsjón af auk-
inni vitund og umræðu um um-
hverfismál. Framsögumenn verða:
Ari Skúlason, hagfræðingur hjá
Alþýðusambandi Islands, Björn
Guðbrandur Jónsson, líffræðingur
og umhverfissérfræðingur og
Guðni Níels Aðalsteinsson, hag-
fræðingur hjá Vinnuveitendasam-
bandi íslands. Fundurinn verður
haldinn í veitingastofunni í Tækni-
garði við Dunhaga og hefst kl.
20.30. Allir velkomnir.
Jólakort Hússins.
■ HÚSIÐ, neyðarathvarf Rauða
kross Islands fyrir börn og ungl-
inga við Tjarnargötu 1, Reykja-
vík, hefur gefið út_ jólakort tii
styrktar starfi sínu. Á átta árum,
en Húsið tók til starfa í jólamánuð-
inum 1985, hafa hundruð unglinga
víðsvegar að af landinu leitað at-
hvarfs í Húsinu á öllum tímum sól-
arhringsins og fengið hjálp. Einnig
er rekin í Húsinu símaþjónusta,
svokallaður barna- og unglinga-
sími, sem hægt er að hringja í og
ræða viðkvæm mál án þess að segja
til nafns. Grænt símanúmer barna-
og unglingasímans er 99-66-22. Þá
færist í vöxt að börn, unglingar og
foreldrar leiti til Hússins eftir við-
tölum og ráðgjöf. Myndin á jóla-
kortinu er af olíumálverki eftir
Sjöfn Haraldsdóttur myndlistar-
mann, sem góðfúslega lagði Húsinu
lið með því að heimila afnot af
myndinni. Kortið er í stærðinni
12x17 og hægt er að fá það án
áletrunar, með áletrun á íslensku
og á ensku, þýsku, frönsku og
spænsku. Kortin kosta 100 krónur.
Jólakortasalan er sá liður sem
þyngst vegur í eigin fjáröflun Húss-
ins.
■ HITT HÚSIÐ býður atvinnu-
lausum 16 ára og eldri upp á marg-
vísleg námskeið nú í nóvember.
Meðal námskeiða eru ljósmyndun,
framsögn/tjáning, myndbanda-
vinnsla, sjálfsvörn, nudd/slökun,
leiklist, skyndihjálp og tölvuvinnsla.
Skráning og allar nánari upplýs-
ingar eru veittar milli kl. 9-23 í
Hinu húsinu, Brautarholti 20.
■ Á FRÍMERKJASÝNINGU
sem efnt var til í Kringlunni í til-
efni af degi frímerkisins gafst gest-
um kostur á að giska á hve mörg
frímerki væru í ákveðnum kassa
sem þar var. Alls var skilað inn 952
svarseðlum og sá sem komst næst
réttu svari var Ólafur Sindri
Helgason, Hamrabergi 20, 111
Reykjavík. Rétt svar var 6.319
frímerki. Ólafur fær í verðlaun
ársmöppur með öllum útgefnum
íslenskum frímerkjum á árunum
1986-1993.
TILBOD
ÓSKAST
i Ford Bronco il XLT 4x4, árgerð '88, Chevrolet
Beretta GT, árgerð '89, Nissan P/U 4x4 (tjónabif-
reið), árgerð '89 og aðrar bifreiðar, er verða sýndar
á Grensásvegi 9 þriðjudaginn 16. nóv. kl. 12-15.
Ennfremur óskast tilboð í lyftutögg á hjólum með
dieselvél, lyftigeta 7000 Ibs.
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
V
■ m
\
L .
HEIMILISIÐNAÐARSKOLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
JOLANAMSKEIÐ
• Jóla-hús
tré og tágar 20. og 23. nóvember
• Jóla-hekl
23. nóvember
• Jóla-leöur
24. og 27. nóvember
• Stjörnukíkir
25. nóvember og 2. desember
• Jóla-dúkar
bútasaumur 25. og 29. nóvember
• Jóla-ásaumur
applikering 7. og 8. desember
Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga kl. 10-12 og 13-15.
Skráning í sima 17800.
J
Aldus PageMaker 5.0
NÝ ÚTGÁFA
ER KOMIN!
Við kynnum nýja útgáfu afAldus PageMaker umbrots-
forrítinu fyrir Windows. Útgáfu sem sannarlega slær öðrum
þekktum umbrotsforrítum við. Hafið samband við fulltrúa
okkar og kynnið ykkur nýju útgáfuna.
Umboðsaðili fyrir Aldus hugbúnað á íslandi:
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665
m
*
UTSALA
IflLLT GÓÐAR VÖRURIHEÐ STÓRAFSUETTI!
Dæmi: Peysur frá kr. 875 - Bolir frá kr. 440 - Pils frá kr. 550
Buxur frá kr. 699 - Jakkar frá kr. 1.100 - Kjólar frá kr. 1.399
Skyrtur frá kr. 525 - Skór frá kr. 629 - Kápur frá kr. 1.599
og margt, margt fleira á frábæru verði!
IPÓSTVAL , Skútuvogi 1, sími 68 44 22