Morgunblaðið - 16.11.1993, Page 36

Morgunblaðið - 16.11.1993, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 I Greinargóð skýrsla fyrir hestamenn Myndbönd Meðal margra góðra hrossa sem fram koma á myndbandinu er Þyrill frá Vatnsleysu sem sigraði B-flokk gæðinga með glæsibrag. Valdimar Kristinsson SÚ HEFÐ hefur skapast að stærri viðburðir á sviði hesta- mennsku hafa verið kvikmynd- aðir og seinni árin gerðar mynd- bandsspólur til afnota fyrir al- menning. Hestatímaritið Eiðfaxi tryggði sér réttinn á upptökum á fjórðungsmóti norðlenskra hestamanna sem haldið var á Vindheimamelum í sumar og er nú komið út myndband sem inni- heldur mörg af þeim hrossum sem þar komu fram. í myndbandinu er dagskráin rak- in nánast eftir dagskrá mótsins. Fram kemur mikill fjöldi hrossa sem þulurinn Júlíus Brjánsson kynnir, nafn, ætt og árangur, með þægilega .tónlist í bakgrunni. Inn á milli er skotið stuttum viðtölum við knapa og eigendur ýmissa hrossa og svo stutt mannlífsskot inn á milli. Eftir þessari eða svipaðri formúlu hafa myndbönd frá stærri hestamótum verið framleidd nema hvað nú virð- ist hafa tekist að sneiða hjá slæm- um villum í þulartexta enda mun hafa verið lögð sérstök áhersla á það við vinnslu myndarinnar. Myndband þetta er mjög keimlíkt öðrum myndum frá hestamótum; löng skýrsla frá mótinu þar sem margir hestar koma við sögu. Af þeim sökum á myndbandið aðeins erindi til hestamanna, þ.e. þeirra sem hafa allnokkum áhuga á að „stúdera" einstaka hesta. Fyrir þann hóp er þetta ágæt uppsetning. Fyrir þá sem ekki voru á mótinu gefur þetta nokkuð greinargóða mynd af hestakostinum sem þar kom fram og fyrir hina sem á mót- inu voru er þetta skemmtileg og gagnleg upprifjun. En svo vikið sé að kvikmyndun og klippingu þá virðast það vera vinnubrögð svona rétt í meðallagi og á köflum varla það. Finna má mörg augnablik sem hefði mátt sleppa, ýmist í upphafi myndskeiðs eða í lok. Þá virðist sem kvikmynda- tökumenn hafi á stundum verið hálf skjálfhentir og átt af þeim sökum erfítt með að staðsetja mann og hest í myndrammanum. Vafalít- ið hefur þeim verið kalt eins og öðrum mótsgestum því veðrið var heldur óhagstætt meðan á mótinu stóð eins og fram kemur hjá þuli. Val á tónlist í bakgrunni hefur tek- ist með miklum ágætum þótt þar megi finna eina undantekningu þegar sýnt er frá hópreið og undir er leikið „ísland er land þitt“. Þarna stendur myndefnið engan veginn jafnfætis áhrifaríkri tónlist og þeg- ar þannig er myndast ójafnvægi milli myndar og tónlistar. Mætti líkja því við þegar hálffalskur söngvari reynir að syngja við góðan og vandaðan undirleik. Þulurinn Athyglisverður samanburð- ur á afurðum stóðhesta _________Bækur______________ Valdimar Kristinsson ÚT ER komin bókin Hagahrókar eftir Jónas Kristjánsson ritstjóra og hestamann. Er þetta fimmta bókin í þessum bókaflokki sem hef- ur að geyma ættbók ársins og ein- hveija útfærslu af tölvuspili höf- undar þar sem hann nýtir sér mögu- leika tölvu sinnar til gagns og gam- ans fyrir áhugamenn um hrossa- rækt. Að þessu sinni birtir hann skrá yfir afkvæmi allra ættbókar- færðra stóðhesta sem eiga einhver ættbókarfærð afkvæmi. í formála kemur fram að höfund- ur hafi farið á fundi með hesta- mönnum og kynnt tölvuna sína og möguleika hennar en eiginlega ver- ið rekinn á gat þar sem hann gat ekki kallað fram skrá sem þessa og segir að það hafi hann látið sér að kenningu verða. Jafnframt lýsir höfundur eftir hugmyndum frá les- endum um stef næstu bókar. Af því má ráða að ekkert lát verði á tölvuleikjum Jónasar, enda ekki ástæða til meðan hestamenn sýna afurðinni áhuga. En svo vikið sé að aðalefni bók- arinnar er hér um að ræða gagn- merka skrá sem að því er best er vitað hefur aldrei fyrr komið fyrir augu almennings. Skrá þessi gefur nokkuð góða mynd af því hverju stóðhestarnir hafa skilað í ræktun- inni. Getið er meðaleinkunna af- kvæma stóðhestanna og má því gera athyglisverðan samanburð auk þess sem hægt er að kanna hvað afkvæmaverðlaunaðir hestar sam- kvæmt BLUP-kerfmu hefðu fengið samkvæmt gamla kerfmu. Hefðu tii dæmis Hervar 963, Gáski 920 og Ófeigur 882 náð heiðursverð- launum á síðasta landsmóti eftir gamla kerfinu? Þá er skráin ekki aðeins upptalning á skráðum af- kvæmum stóðhestanna heldur fylg- ir með móðurætt, fæðingarár, litur, að sjálfsögðu nafn og númer af- kvæmis, sýningarár og staður þar sem afkvæmið hefur komið til dóms, sundurliðaðar einkunnir og hæð afkvæmis. Þá fylgja með upp- Jónas Kristjánsson lýsingar um nafn stóðhests, númer, lit, fæðingarár og föður og móður. í bókinni notar höfundur þrjár teg- undir talnamerkinga; það sem hann kallar bítölur (bí fyrir Búnaðarfélag íslands), jótölur (jó fyrir Jónas), sem aðeins ættbókarfærð hross fá og svo að síðustu raðtölur, að því er næst verður komist fyrir tölvu Jónasar. Aður hafa jótölur Jónasar verið gagnrýndar á þessum vett- vangi og má hiklaust telja það tíma- skekkju að reyna að halda í gamla númerakerfið, því í töluðu máli er ekki lengur minnst á númer þegar talað er um einstök kynbótahross eins og gert var áður fyrr, sbr. Sörli 653, Hrafn 802 og Þáttur 722 og þá vissu allir um hvaða hesta var verið að ræða. Hver þekkir t.d. Sörla 1115 eða Andvara 1316 — já, og hver er þá Nasi 1296? Höf- undur ætti nú að hætta að berja hausnum við steininn og henda þessum númerum. í ættbókarhlut- anum er hvort sem er eingöngu getið hrossa sem náð hafa gömlu ættbókarlágmörkunum. Það hlýtur að vera nóg að hafa raðtölurnar og svo kennitölur Búnaðarfélags- ins. En svo vikið sé aftur að af- kvæmaskránni má gera ráð fyrir að henni verði flett fram og til baka, vanti menn ákveðnar upplýsingar eða bara til að grúska í. Fullyrða má að skráin sé með því athyglis- verðasta sem gefið hefur verið út í þessum efnum. Ættbókin er með svipuðu sniði og verið hefur í bókum Jónasar. Síðasta bók Jónasar var gagnrýnd fyrir að ekki fylgdu neinar upplýs- ingar með myndum og ættargröfum en nú hefur hann að hluta bætt þar úr með því að birta einkunnir í súluritum. Vissulega er þetta til bóta, en betur má ef duga skal. Júlíus skilar sínu hlutverki vel, beit- ir röddinni á mildan hátt. Verið getur að sumum finnist hann óþarf- lega hægmæltur á köflum en þessi notalega framsetning gerir það að verkum að menn sitja afslappaðir við myndina og fylgjast með af athygli. Hér að ofan er bent á, að mynd þessi sé svipað uppbyggð og fyrri myndir frá stórmótum en undirrit- aður hefur áður lýst þeirri skoðun sinni að við útgáfu sem þessa ætti að gera hálfrar klukkustundar til þriggja kortera langa yfirlits- eða þverskurðarmyndar af mótinu þar sem stiklað væri á stóru og það helsta dregið fram og þá gjarnan spilað nokkuð inn á fagurfræðina. Að þeirri mynd iokinni mætti skeyta við svona skýrslumynd eins og ég kýs að kalla þetta form. Fjórðungsmótsspóla Eiðfaxa er eiguleg fyrir alla sem hafa áhuga á fallegum hestum, hrossarækt og képpni. Þær aðfinnslur sem hér eru dregnar fram, draga ekki úr gildi myndbandsins, sem er góð heimild frá þessu kalda og blauta en ann- ars ágæta fjórðungsmóti, eins og þulurinn orðar það í lokin. Síður afkvæmahrossanna eru nokk- uð fátæklegar og finnst mörgum illa farið með góðan pappír. Enn skal þeirri spurningu varpað fram hvort ástæða sé til að birta svo viða- mikil ættargröf eins og gert er í bókinni? í flestum eða mörgum til- fellum er um að ræða sömu ættar- tölurnar aftur og aftur, bók eftir bók. Fyrir flesta væru þrír ættliðir nægjanlegir og mætti fylgja með myndum og ættargröfum allar upp- lýsingar sem birtar eru á öðrum stað í bókinni og gera bókina þar með mun aðgengilegri. Súluritin með einkunnum koma prýðilega út, ættargröfin eru góð, þótt óþarflega viðamikil séu, og myndir yfirleitt góðar. Aftast í bókinni eru ýmis- konar skrár til að auðvelda leit að einstökum hrossum út frá mismun- andi upplýsingum. Listi er yfir feður hrossa í ættbók ársins, þar sem sá aldni höfðingi Hrafn frá Holtsmúla ber höfuð og herðar yfír aðra hesta eins og reyndar í afkvæmaskránni sem áður var getið. Þá er hrossum raðað upp eftir lit, bítölum, nöfnum, fæðingarstöðum, mannanöfnum sem koma við sögu hvers hests og að síðustu má geta skrár yfir hross sem hafa hæstu einkunnir fyrir ein- stök atriði og meðaleinkunnir. starfsmenntun ■ Námskeið hjá 476350 Stjórnunarfélagi S'ióm íslands: Stjórntækin 17. og 18. nóvember kl. 13.00-17.00. Markaðs- og söluáætlun fagmannsins 23., 24. og 25. nóvember kl. 09.00-12.00. Tímastjórnun - (Time Manager) ^ 25. nóvember kl. 8.30-18.00. Leiðir til sterkrar samningsstöðu 25. og 26. nóvember kl. 13.00-17.00. Stjórnun sölufyrirtækis 30. nóvember kl. 13.00-17.00. Nánari upplýsingar í sfma 621066. i ■ Námskeið fyrir starfsfólk i gestamóttöku Fræðsluráð hótel- og veitingagreina Fraeðsluráö hótel- og veitingagreina fékk úthlutað styrk úr Starfsmenntasjóði fé- lagsmálaráðuneytisins til að skipuleggja og koma í framkvæmd námskeiði fyrir starfsfólk í gestamóttöku. Námskeiðið er ætlað þeim, sem þegar starfa í gesta- móttöku á hóteli eða hafa verið ráðnir -til starfa í gestamóttöku. Síðasti skrán- ingardagur á námskeiðin, sem haldín verða fyrir jói, er 19. nóvember. Námskeiðinu er skipt niður á eftir- farandi hátt: 1. Hótelið sem vinnustaður - skipulagsmál Kennari: Þorsteinn Helgason, móttöku- stjóri á Hótel Esju. Staður og tími: Matreiðsluskólinn okkar, 2. -7. des. kl. 8.45-13.00. 2. Tölvukennsla Kennari: Guðfinnur Traustason, tölvufræðingur. Staður og tími: Rafiðnaðarskólinn, 7.-10. des. kl. 8.45-13.00. 3. Markaðsfræði Kennari: Guðbjörg Björnsdóttir, viðskipta- og markaðsfræðingur. Staður og tími: Matreiðsluskólinn okkar, 10.-13. jan. kl. 8.45-13.00. 4. Öryggismál hótelsins Kennarar: Ómar Friðþjófsson, skyndi- hjálparkennari, Björn Ágúst Einarsson, afbrotavarnadeild lögreglunnar í Reykja- vík og Landssamband slökkviliðsmanna. Staður og tími: Matreiðsluskólinn okkar, 17.-18. jan. kl. 8.45-13,00. 5. Samskipti og þjónusta Kennarar: Emil Thoroddsen, félags- og markaðsfræðingur og Magnea Hjálmars- dóttir, sölustjóri Hoiiday Inn. Staður og tími: Matreiðsluskólinn okkar, 20.-27. jan. kl. 8.45-13.00. Nánari upplýsingar og skráning hjá Fræðsluráði hótel- og veitingagreina. Sími 91-653850. handavínna ■ Ódýr saumanámskeið Aðeins 4 nemendur í hóp. Bæði dag- og kvöldtímar. Faglærður kennari. Upplýsingar f síma 17356. tölvur STJÓRNUNARFÉLAGS fSLANDS OG NÝHERJA 69 77 69 6Z 1 □ 66 <Ö> NÝHERJI ■ WORD, framhald 22.-25. nóv kl. 13-16. ■ AutoCad12 tölvuhönnun Námskeið hefst 17. nóv. kl. 9. ■ WordPerfect f. Windows 22.-25. nóv. kl. 13-16. ■ AmiPro ritvinnsla 30. nóv. til 3. des. kl. 13-16. ■ PageMaker framhald 29. nóv.-l. des. kl. 13-16. ■ Access gagnavinnsla 29. nóv. til 2. des. kl. 13-16. ■ Næstu tölvunámskeið Tölvu- og verkfræðiþjónustunnar, Grensásvegi 16: ■ Access gagnagrunnurinn, 29. nóvember-3. desember kl. 9-12. ■ Excel fjölvar, 30. nóvember-9. desember kl. 19.30-22.30. ■ Excel framhaldsnámskeið, 22.-24. nóvember kl. 16-19. ■ Excel töflureiknirinn, 22.-26. nóvember kl. 9-12. ■ FileMaker gagnagrunnurinn, 29. nóvember-3. desember kl. 16-19. ■ Macintosh fyrir byrjendur, 22.-26. nóvember kl. 13-16. ■ PageMaker framhaldsnámskeið, 29.-30. nóvember kl. 9-12. ■ QuarkXPress umbrotsnámskeið, 22.-26. nóvember kl. 16-19. ■ Word ritvinnslunámskeið, 29. nóvember-3. desember kl. 13-16. ■ Word framhaldsnámskeið, hefjast 23. og 30. nóvember kl. 13-16. Aliar nánari upplýsingar veittar í síma 68 80 90. Tölvu- og verkfræðiþjónustan. myndmennt ■ Silkimálun Olíu- og vatnslitir. Helgar-, kvöld- eöa dagtímar Upplýsingar í síma 611614. Björg Isaksdóttir. heilsurækt ■ Alexandertækni Kenni tækni í líkams- beitingu, sem breytir líkamanum í betra horf og eykur vellíðan. Upplýsingar gefur: Helga Jóakims, Listhúsinu, Engjateigi 17-19, sími 811851 eftir kl. 13.00 ídag, aðra daga kl. 9-17. ■ Lífefli - Gestalt - liföndun Úrvinnsla sállíkamlegra einkenna. Námskeið, hefst 16. nóvember. v Gunnar Gunnarsson, sálfræðingur, sími 641803. ■ Námskeið. Námskeið í svæðanuddi, baknuddi, and- litsnuddi (með þrýstipunktum), sjálfs- nuddi (do in) og námskeið í ungbarna- nuddi fyrir foreldra með börn 1-10 mánaða. Góð aðstaða hjá menntuðu fagfólki. Heilsunuddstofa Þórgunnu, Skúlagötu 26, simi 624745 eða 21850. ýmislegt NÁMSAÐSTOÐ ■ Námsaðstoð fyrir grunn-, fram- halds- og háskólanema. Flestar námsgreinar. Einkatímar - hópar. Reyndir réttindakennarar. Innritun í síma 79233 kl. 14.30-18.30. Nemendaþjónnstan sf. Islenska fyrir útlendinga. Enská 103 og 203. Tölvubókhald. Markaðssetning. Þýska 103 og 203. Islensk stafsetning o.m.fl. Sendum ókeypis kynningarefni. Hlemmi 5, pósthólf 5144, 125 Reykjavík, sími 91-629750.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.