Morgunblaðið - 20.11.1993, Síða 21
NOKKRAR umræður urðu á borgarstjórnarfundi á fimmtudag
um þá ósk starfsmanna Strætisvagna Reykjavíkur að fá að
vera áfram í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar eftir að
nýtt hlutafélag tekur við rekstrinum um næstu mánaðamót.
Fulltrúar minnihlutans sögðu að sjálfsagt væri að virða þessar
óskir og borgarstjóri kvaðst vona að sátt “næðist í málinu.
Kristín Á. Ólafsdóttir, borgar-
fulltrúi Nýs vettvangs, hóf umræð-
una og vísaði til bréfs 136 starfs-
manna SVR þar sem þeir óskuðu
eftir áframhaldandi aðild að
Starfsmannafélaginu. Hún sagði
að félagið hefði lýst yfir vilja til
að breyta lögum sínum svo þetta
mætti ganga eftir.
Hveragerði
Gerð stytta
af Gísla Sig-
urbjörnssyiii
BÆJARSTJÓRN Hveragerðis
hefur ákveðið að reisa styttu
af Gísla Sigurbjörnssyni for-
stjóra. Helgi Gíslason mynd-
höggvari hefur verið ráðinn
til að gera styttuna. Ekki hef-
ur verið ákveðið hvar í bænum
hún verður reist.
Hans S. Gústavsson garðyrkju-
bóndi og oddviti minnihluta Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórn
Hveragerðis flutti tillögu um gerð
styttunnar og var hún samþykkt.
í greinargerð með tillögunni segir
m.a. að Gísli hafi rekið elli- og
dvalarheimili í Hveragerði í 40 ár
og hann hafi ávallt stutt menning-
ar- og framfaramál í bænum. Sér-
staklega er minnst á frumkvæði
hans í athugunum á lækninga-
mætti hveravatnsins og leirsins
og þær vísindarannsóknir sem
hann fyrstur manna lét gera. Þá
segir að hugsjónir hans um fram-
tíð Hveragerðis sem heilsubæjar
séu enn í fullu gildi.
Markús Örn Antonsson, borgar-
stjóri, sagði að erindi starfsmanna
SVR hefði verið vísað til stjórnar
SVR hf., sem ynni að undirbún-
ingi þess að hlutafélagið tæki við
rekstrinum. Hann kvaðst mundu
óska eftir við formann stjórnarinn-
ar að borgarráði yrði gerð grein
fyrir hvar málið stæði. Þá sagði
borgarstjóri að hann hefði gjarnan
viljað að Starfsmannafélagið hefði
lýst fyrr þeim vilja sínum að breyta
lögum. Þess í stað hefði það fund-
ið breytingu á formi rekstrar SVR
allt til foráttu. Hann kvaðst hins
vegar eiga von á góðri sátt um
málið.
Sigrún Magnúsdóttir, fulltrúi
Framsóknarflokksins, sagði að
henni fyndist þetta mál lykta af
því að verið væri að þreyta starfs-
mennina, svo þeir segðu upp störf-
um og hægt yrði að ráða aðra í
þeirra stað, á öðrum kjörum.
Starfsmannafélagið hafi ekki verið
samþykkt breytingunni í hlutafé-
lag, en hins vegar óskað eftir að
vera haft í samráði um hana.
Siguijón Pétursson, Alþýðu-
bandalagi, sagði borgarstjóra vega
ómaklega að Starfsmannafélag-
inu. Hann sagði sjálfsagt að verða
við óskum starfsmanna um að
vera áfram í sínu gamla stétarfé1-
lagi.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
5
h
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993 21
JÓIASTJARNA!
jóiastjarnan er komin
í BIÓMAVERSIANIR UM lANDAJlT
BÆTUM IÍFIÐ MEÐ BIÓMUM!
BLÓMAMIÐSTÖÐIN HF.
íslenskir blómaframleiðendur
íslensk jólastjarna er ræktuð í
mörgum stærðum og
verðflokkum.
Berið saman verð' og gæði!
Alyktun bandalagsráðstefnu BSRB
Vaxandi atvinnu-
leysi áhyggjuefni
BANDALAGSRÁÐSTEFNA BSRB, sem haldin var 18. og 19.
nóvember, ályktaði um að skipaður verði starfshópur með
fulltrúum samtaka launafólks, ríkisins og sveitarfélaga til að
Ieita leiða til eflingar atvinnulífsins. Einnig að lög og reglur
um atvinnuleysistryggingar verði tekin til endurskoðunar með
það fyrir augum að bæta réttindastöðu atvinnulausra og að
komið verið á formlegu samstarfi milli fulltrúa BSRB, ríkis-
stjórnar og sveitarfélaga þar sem fjallað verði um breytingar
og nýskipan í opinberum rekstri.
í ræðu sinni sagði Ögmundur
Jónasson formaður BSRB m.a. að
tilhneigingar hefði því miður gætt
í tengslum við samninga að veikja
tekjustofna ríkis og sveitarfélaga
með flatri skattalækkun. Með
þessu væri verið að veikja velferð-
arkerfið og grafa undan jöfnuði.
Hann sagði að lítið gagn væri í
kjarabótum í formi lækkaðra út-
gjalda á einum stað ef þegnunum
væri íþyngt um leið varðandi ann-
að, svo sem með aukinni kostnað-
arhlutdeild í heilbrigðis- og
menntakerfi ásamt lækkun skatt-
leysismarka. Hann sagði óhugs-
andi að sátt næðist um kjarasamn-
inga sem fælu í sér breytingar á
skattlagningu og kjörum alls al-
mennings í landinu, nema með
breiðri samstöðu launafólks.
Vaxandi atvinnuleysi
í ályktun bandalagsráðstefnu
BSRB segir að vaxandi atvinnu-
leysi sé mikið áhyggjuefni og
mikilvægt sé að gripið verði til
ráðstafana til að stemma stigu við
því. Sé nauðsynlegt að við allar
skipulagsbreytingar, hvort sem er
í tengslum við sameiningu sveitar-
félaga, breytingar á rekstrarformi
opinberra stofnana eða annars
staðar í atvinnulífinu, verði ekki
teknar ákvarðanir sem leiða til
aukins atvinnuleysis í landinu.
Sérstakt áhyggjuefni sé þó hrað-
vaxandi atvinnuleysi meðal ungs
fólks.
Á verkstæðinu
Morgunblaðið/Þorkell
JÓFRÍÐUR Benediktsdóttir, kjólameistari, og Helga Rún Pálsdóttir, hönnuður, hattagerðarkona og
klæðskeri, eru meðal þeirra sem hafa opnað verkstæði í Borgarkringlunni.
íslenskir fatahönnuðir sýna vörur sínar í Borgarkringlunni
Almenningi sýnt handbragðið
„HINGAÐ hefur ekki verið sérstaklega mikill straumur enda
vorum við að opna í dag. En ég vona að úr því rætist um helg-
ina,“ sagði Jófríður Benediktsdóttir, formaður Félags meistara-
og sveina í fataiðn, eftir að hún hafði, ásamt nokkrum hönnuð-
um, klæðskerum, kjólameisturum og hattagerðarkonu, komið
upp verkstæði í Borgarkringlunni á föstudag. Verkstæðinu var
komið upp i tengslum við átakið íslenskt, já takk.
Jófríður sagði að með henni væru
m.a. klæðskerarnir Sigrún Einars-
dóttir og Hanna Laufey Elísdóttir frá
saumastofunni Spori í rétta átt og
sérhæfði stofan sig í íþróttafatnaði
að ýmsu tagi. Jafnframt gæti fólk
orðið nokkurs vísara um handbragð
hattagerðarkonu hjá Helgu Rún
Pálsdóttur og vinnubrögð kjólameist-
ar hjá Guðrúnu Ernu Guðmundsdótt-
ur.
Sjálf sagðist Jófríður, sem er
kjólameistari, einbeita sér að sér-
saumi ýmis konar og gerð þjóðbún-
inga. Hún sagðist finna fyrir miklum
áhuga á þjóðbúningum um þessar
mundir. „Eg veit ekki hvort lýðveld-
afmælið hefur einhver áhrif en konur
sýna því almennt mikinn áhuga að
eignast þjóðbúning eða endurnýja
gamla búninga. Mér finnst mest
gaman af yngri konunum. Þær eru
greinilega að fá sér búning fyrir
sjálfa sig, ekki fyrir t.d. mömmu eða
ömmu, og finnst búningurinn mjög
fallegur," sagði Jófríður og benti sem
dæmi um áhugann á að hún kæmi
ekki fleiri verkefnum að fyrir jól.
Almennt sagðist hún halda að
konur hefðu gaman af því að ganga
í sérsaumuðum íslenskum fötum.
„En hvort íslenskar konur séu algjör-
lega hættar að snobba fyrir erlendum
merkjum veit ég hins vegar ekki,“
sagði hún. Verkstæði kvennanna er
í suðurenda Borgarkringlunnar.
Starfsmenn SVR
vilja vera áfram í
sama stéttarfélagi
Jólastjarnan er viðkvæm fyrir kulda
og dragsúg. Því er sérstök ástæða
til að benda söluaðilum á að pakka
henni vel inn fyrir viðskiptavini sína.