Morgunblaðið - 20.11.1993, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Menntskælingar með endnrskinsmerki
KRAKKARNIR í 4b í Menntaskólanum á Akureyri
fengu Valgerði Hrólfsdóttur umferðarfulltrúa á
Fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra í heimsókn til
sín í gær, en hún færði þeim endurskinsborða sem
hún bað þau að bera í skammdeginu og sýna þann-
ig gott fordæmi. Nú stendur yfir sérstakt átak þar
sem fólk er hvatt til að nota endurskinsmerki og
sagði Valgerður að þessi hópur yrði oft útundan í
umræðunni, foreldrar væru meðvituð um að setja
endurskinsmerki á litlu börnin sín og því hefði hún
beðið þau í 4b að ganga á undan með góðu for-
dæmi og bera endurskinsborða í skammdeginu. í
næstu viku ætlar Valgerður síðan að heimsækja
nemendur í Gagnfræðaskólanum á Akureyri og
brýna fyrir þeim nauðsyn þess að bera endurskins-
merki.
Alfreð Garðarsson útgerðarmaður í Grímsey
Betra verð í boði hjá Jóni
Ekki ljóst hversu margir útgerðarmenn flytja
viðskipti sín frá KEA til Jóns Asbjörnssonar
Grímsey
UNDANFARIÐ hefur ekki viðrað til sjósóknar í Grímsey, þannig
að enn sem komið er hefur lítið sem ekkert borist af fiski í fiskverk-
un Jóns Asbjörnssonar sem nýlega tók til starfa í eynni. Fram til
þessa hafa útgerðarmenn selt Fiskvinnslustöð Kaupfélags Eyfirðinga
í Hrísey aflann og hefur hann verið fluttur þangað til vinnslu. A
liðnu ári voru um 1.800 tonn af fiski flutt frá Grímsey til Hríseyjar.
Þorsteinn Orri Magnússon hjá
fiskmóttöku KEA í Grímsey hefur
verið að kanna undirtekir útgerðar-
manna varðandi áframhaldandi við-
Eftirlit við
spilakassa
verði hert
STJÓRN Foreldrafélags
Gagnfræðaskóla Akureyrar
samþykkti eftirfarandi álykt-
un á fundi sínum í vikunni:
„Þar sem ákveðið er að stór-
auka spilakassa í bænum m.a.
með opnun nýrrar „spilastofu" í
miðbænum beinir stjórnin því til
yfirvalda að stórlega verði hert
allt eftirlit í tengslum við spila-
kassana. f því sambandi er sér-
staklega áréttað að unglingar
undir 16 ára aldri fái ekki að-
gang að þeim.“
skipti, en óljóst er á þessu stigi
hvar þeir ætla sér að leggja inn
afla sinn.
Breytir heilmiklu
Alfreð Garðarsson útgerðarmað-
ur í Grímsey sagðist í framtíðinni
reikna með að leggja upp afla hjá
SKÓLPDÆLUSTÖÐ sem stað-
sett er austan við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri var tekin
í notkun í gær Dælustöð þessi
Jóni Ásbjörnssyni, hann gerir út
trillu hluta úr ári og hefur nú lagt
henni fram á vorið. Alfreð sagðist
hafa fengið um 50 tonn af fiski í
sumar, þar af um 20 tonn af þorski.
Hann sagði betra verð í boði hjá
Jóni Ásbjörnssyni en KEA, ef fisk-
verkun Jóns Ásbjömssonar hefði
keypt þennan afla til vinnslu hefði
hann fengið 960 þúsund krónum
meira fyrir hann. „Það breytir heil-
miklu peningalega fyrir útgerðina,"
sagði Alfreð.
Guðmundur G. Arnarson sem
gerir út bátinn Kristínu EA í félagi
við Sæmund Ólason sagði að grund-
velli hefði verið kippt undan útgerð-
inni eftir að KEÁ lækkaði verð á
dælir öllu skólpi frá sjúkrahúsinu
upp í aðallögn í Þórunnarstræti
í staðinn fyrir að það fari beint
í Pollinn eins og verið hefur.
Þetta er fyrsta skrefið í fram-
kvæmd áætlunar sem Bæjarstjóm
Akureyrar hefur samþykkt um að
öllu skólpi á Akureyri verði safnað
að einni útrás, grófhreinsað þar og
því síðan veitt til sjávar út á 40
metra dýpi um það bil 600 metra
frá landi. Með tilkomu þessarar
skólpdælustöðvar minnkar það
skólpmagn sem rennur til sjávar
við Höphnersbryggjur um meira en
helming og það magn sem leitt er
út í Pollinn í um 20%.
Kostnaður um 10 milljónir
Heildarkostnaður við þetta verk
er um 10 milljónir króna. Þar af
er kostnaður við dælustöð, þrýsti-
lögn frá henni og þann hluta breyt-
inga á lagnakerfi við sjúkrahúsið
Atvinnurekendur Akureyri
og nágrenni
Samtök iðnaðarins og Vinnuveitendasamband ís-
lands boða til fundar á Hótel KEA kl. 17 mánudag-
inn 22. nóvember. Tilefni fundarins er að kanna
áhuga á því að samtökin reki sameiginlega upplýs-
inga- og þjónustuskrifstofu á Akureyri í samvinnu
við heimamenn.
Á fundinn koma formenn og framkvæmdastjórar
samtakanna og gefst norðlenskum atvinnurekend-
um kjörið tækifæri til að ræða hagsmunamál sín
við talsmenn samtakanna.
Samtök iðnaðarins.
Vinnuveitendasamband íslands.
Skólpdælustöð tekin í notkun við FSA
Skólpið í aðallögn
í stað þess þess að
fara beint í sjóinn
KEA-Nettó
Seldu tonn af svína-
kjöti á tveimur tínium
TÆPT eitt tonn af svínakjöti var selt á innan við tveimur tímum í
verslun KEA-Nettó í gær. Kjötið var selt með 30-40% afslætti og
greinilegt að margir hafa hugsað sér gott til glóðarinnar að ná sér
í jólasteikina á hagstæðu verði því örtröð var í versluninni.
Júlíus Guðmundsson verslunar-
stjóri í Nettó sagði að ætlunin hefði
verið að selja um eitt tonn af svína-
kjöti, svínahamborgarhrygg, bay-
on-skinku, hringskornum svínabóg
og úrbeinuðum svínakambi á til-
boðsverði i versluninni um helgina.
Strax og verslunin var opnuð á
hádegi í gær tók fólk að streyma
að og seldist kjötið upp á innan við
tveimur tímum.
■SÖNGHÓPURINN Emil og Anna
Sigga heldur ásamt píanóleikaranum
Daníel Þorsteinssyni þrenna tónleika
á Norðurlandi um helgina.
Þeir fyrstu verða á morgun, laug-
ardaginn 20. nóvember kl. 16 í sal
Gagnfræðaskólans á Akureyri, um
kvöldið verða síðan tónleikar í Dal-
víkurkirkju og hefjast þeir kl. 21 og
þeir þriðju verða í Tónlistarskólanum
á Sauðárkróki á sunnudaginn kl. 17.
Sönghópinn skipa tenórarnir
Bergsteinn Björgúlfsson, Skarphéð-
inn Þór Hjartarson og Sverrir Guð-
mundsson, Sigurður Halldórsson
enKEA
línufiski í mars síðastliðnum, „það
þolir enginn 20% verðlækkun á einu
bretti,“ sagði hann.
Guðmundur sagði að fram hefði
komið á fundum með forsvars-
mönnum KEA sem haldnir hafa
verið í Grímsey að þeir teldu sig
get fengið ódýrara og'betra hráefni
á mörkuðum annars staðar. „Við
hljótum að hafa verið baggi á þessu
fyrirtæki, þeir hafa sagt á þessum
fundum að við séum bæði dýrir og
ekki með nógu gott hráefni. En við
hljótum að hjálpa þeim mikið ef við
hættum viðskiptum við þá, það hlýt-
ur að hafa í för með sér mikla hag-
ræðingu fyrir þá,“ sagði Guðmund-
ur.
Júlíus sagði að greinilega ætluðu
margir að taka forskot á sæluna
fyrir jólin, en aðrir væru að nota
tækifærið og kaupa jólasteikina
tímanlega. Hann sagðist eiga von
á að fá meira af svínakjöti sem
hægt yrði að bjóða á sama verði,
með allt að 40% afslætti. „Ég býst
við að fá eitthvað í dag, laugardag
og sennilega fæ ég líka eitthvað í
næstu viku,“ sagði Júlíus.
kontratenór, Ingólfur Helgason bassi
og Anna Sigríður Helgadóttir mezzó-
sópran.
Á efnisskrá hópsins eru þjóðlög
frá Englandi og Skotlandi, lög eftir
Bruce Springsteen, Janis Jopiin,
Ladda, Ellington og Bítlana og einn-
ig verður flutt tónlist eftir P.D.Q.
Bach, en hópurinn hefur áður staðið
fyrir kynningu á tónlist þess siðast-
nefnda við mikinn fögnuð.
Sönghópurinn hefur víða haldið
tónleika og komið fram bæði í út-
varpi og sjónvarpi.
■AKUREYRARPRESTAKALL-
Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun.
Hátíðarguðsþjónusta verður í Akur-
eyrarkirkju kl. 14 í tilefni afmælis
kirkjunnar. Kór Akureyrarkirkju
syngur og Þuríður Baldursdóttir
syngur einsöng. Eftir guðsþjónustu
hefst basar og kaffisala Kvenfélags
Akureyrarkirkju í Safnaðarheimilinu
þar sem kór kirkjunnar syngur létt
lög. Fundur verður í æskulýðsfélag-
inu kl. 17 á morgun. Biblíulestur í
safnaðarheimili kl. 20.30 á mánudag.
■GLERÁRKIRKJA Biblíulestur og
bænastund í kirkjunni kl. 13 í dag,
laugardag. Barnasamkoma kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14 og molasopi í
safnaðarheimilinu að henni lokinni.
Fundur æskulýðsfélagsins kl. 17.30.
■HJÁLPRÆÐISHERINN Laufa-
brauðs- og kökubasar kl. 15. Kvöld-
vaka kl. 20 með fjölbreyttri dagskrá.
Daníel og Anne Gurine Óskarsson
stjórna og tala. Helgunarsamkoma
kl. 11 á sunnudag, Sunnudagaskóli
kl. 13.30, bæn kl. 19.30 og almenn
samkoma kl. 20.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bæjarráðsmenn skoða skólpdælustöð
NÝ skólpdælustöð var tekin í notkun við Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri í gær og minnkaði þá magn þess skólps sem rennur til
sjávar við Höphnersbryggjur um meira en helming. Gunnar Jóhann-
esson verkfræðingur hjá Akureyrarbæ sýndi bæjarráðsmönnum og
Halldóri Jónssyni bæjarstjóra stöðina í fyrradag.
sem tilheyrir þessum verkáfanga
rúmlega 8 milljónir króna og við
aðrar breytingar sem Akureyrar-
bær gerði fyrr á árinu á lögnum inn
á lóð sjúkrahússins var kostnaður
tæplega 2 milljónir króna.
í ár verður ennfremur unnið við
breytingar á lagnakerfi í nágrenni
fiskihafnar og þrýstilögn lögð með-
fram nýjum hluta Strandgötu, en
bæði þessi verk eru liðir í fram-
kvæmd fyrrnefndar áætlunar.