Morgunblaðið - 20.11.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
29
Álit umboðsmanns um ráðningn tollvarðar á Keflavíkurflugvelli rætt á Alþingi
Harkaleg orðaskipti utaiiríkisráðherra
og þingmanna Sjálfstæðisflokksins
NOKKRIR alþingismenn, þar á meðal tveir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, gagnrýndu utanríkisráðherra harðlega fyrir ráðningu
tollvarðar á Keflavíkurflugvelli á árinu 1990 þegar skýrsla umboðs-
manns Alþingis fyrir árið 1992 var rædd á Alþingi sl. fimmtudag.
í skýrslunni kemur fram það álit umboðsmanns að ráðningin hefði
verið ótæk, bæði um undirbúning og niðurstöðu, þar sem í veiga-
miklum atriðum hefði verið brotið í bága við lög og vandaða stjórn-
sýsluhætti. Ráðherra sagðist ekki geta fallist á að lög hefðu verið
brotin á umsækjendum en viðurkenndi gagnrýni á formgalla.
Salome Þorkelsdóttir, forseti
Alþingis, og Björn Bjarnason, for-
maður allsherjarnefndar, gerðu
Alþingi grein fyrir skýrslu um-
boðsmanns Alþingis fyrir árið
1992. Björn vakti sérstaka at-
hygli á því að umboðsmaður hefði
í sex málum talið að meinbugir
væru á lögum. Hann sagði einnig
frá því að óvenju mörg mál hefðu
á þessu ári snúist um gjaldtöku
og skattheimtu og af því tilefni
hefði umboðsmaður áréttað
grundvallarreglur um skatta og
gjöld í skýrslu sinni. í þessu sam-
bandi vísaði Björn einnig til gagn-
rýni um óvönduð vinnubrögð við
skattalöggjöf sem fram er sett í
nýlegri skýrslu Félags löggiltra
endurskoðenda. Þeir þingmenn
sem tóku til máls um þetta voru
almennt sammála um grundvallar-
reglurnar.
Ráðherra breyti um
vinnubrögð
í umræðunum um skýrslu um-
boðsmanns var ráðning utanríkis-
ráðherra á tollverði á Keflavíkur-
flugvelli á árinu 1990 mikið rædd.
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins, sagði
að leggja þyrfti meiri þunga á að
fylgja eftir álitsgerðum umboðs-
manns, sagði að framkvæmda-
valdið léti álit hans oft sem vind
um eyru þjóta. Hann vakti einnig
sérstaka athygli á áliti umboðs-
manns á ráðningu tollvarðarins.
Árni Mathiesen, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, benti á mik-
inn drátt á svörum ráðuneytis við
erindum umboðsmanns vegna
þessa máls og sagði að sum svara
þess hefðu síðan reynst staðlausir
stafir. Sagðist hann telja þetta
mál svo alvarlegt að ekki yrði við
unað. Setti hann það í samhengi
við ýmsar aðrar sporslur og emb-
ættisveitingar utanríkisráðherra
til flokksmanna á Keflavíkurflug-
velli og veitingar á nokkrum af
æðstu og best launuðu stöðunum
hjá ríkinu í sumar. Árni sagðist
hafa stutt utanríkisráðherra til
margra góðra verka og þætti sér
afar miður að upp skuli koma
hver embættisveitingin á fætur
annarri þar sem eina skýringin
væri sú að menn hefðu sérstök
flokksskírteini upp á vasann. Skor-
aði hann á utanríkisráðherra að
breytá um vinnubrögð og koma
sér þannig undan gagnrýni sem
þessari. Arni R. Árnason, þing-
maður Sjálfstæðisfiokksins, hvatti
utanríkisráðherra til að koma á
faglegum vinnubrögðum við ráðn-
ingar starfsmanna.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
Námsgagnastofniin og samtök iðnaðarins
Fræðslumyndband
um iðnað komið út
SAMTÖK iðnaðarins og Námsgagnastofnun hafa látið gera
fræðslumyndband um iðnað fyrir 10-12 ára nemendur grunn-
skóla. Námsgagnastofnun sá um gerð námsefnisins með fjárstuðn-
ingi frá Samtökum iðnaðarins og Iðnþróunarsjóði og sagði Harald-
ur Sumarliðason, formaður Samtaka iðnaðarins, við frumsýningu
myndbandsins í Grandaskóla, að það væri beint innlegg I átak
fyrir íslenska framleiðslu sem nú er verið að gera undir kjörorðun-
um „íslenskt, já takk!“. Leikstjóri er Andrés Indriðason.
Myndbandið ber titilinn Líf í
tuskunum og fjallar um bekk í
grunnskóla. Akveðið hefur verið í
skóla þessum að heimsækja nokk-
ur iðnfyrirtæki og vinna síðan úr
heimsókninni og kynnast áhorf-
endur sérstaklega tveimur krökk-
um, Ingu og Óla, ijölskyldum
þeirra og viðhorfum. Með mynd-
inni fylgir nemendabók þar sem
saga myndarinnar er endursögð.
Auk þess eru verkefni á eftir hveij-
um kafla sem hvetja til umhugsun-
ar og upplýsingaöflunar um ís-
lenskan iðnað við lausn þeirra.
Með helstu hlutverk í myndinni
fara Álfrún Ömólfsdóttir, Jóhann
Ari Lárusson, Jóhann Sigurðar-
son, Guðrún Marinósdóttir og
Steindór Hjörleifsson.
ríkisráðherra sagði að ráðuneytið
gæti ekki fallist á að brotin hefðu
verið lög á umsækjendum í þessu
máli. Setja mætti úr á formgalla,
svo sem að auglýsingin birtist
ekki í Lögbirtingarblaði, en það
væri álitamál hvort um veigamikla
athugasemd væri að ræða. Hins
vegar megi segja að formleg máls-
meðferð hjá embætti lögreglu-
stjórans í Keflavík hafi ekki verið
með þeim hætti sem ákjósanlegast
var. Gerðar hafi verið ráðstafanir
til þess að slíkt endurtaki sig ekki.
Þá tók hann undir það að dráttur
á svari til umboðsmanns frá emb-
ættismönnum hafi verið aðfinnslu-
verður og svörin hefðu mátt vera
ítarlegri.
Ráðningar sjálfstæðismanna
Hann sagði að ráðuneytið féllist
hins vegar ekki á það að við þessa
embættisveitingu hafi verið brotin
lög. Hann sagði það álit ráðu-
neytisins að enginn umsækjenda
hefði verið hæfur samkvæmt
ýtrustu kröfum. Starfsreynsla hafi
verið fyrir hendi hjá tveimur um-
sækjendum. Sú starfsreynsla hafi
ekki verið þess eðlis að starfsfólk
og yfirmenn í tollgæslunni teldu
ráðlegt að fastráða þessa tvo
menn. Niðurstaðan hafi verið að
ráða þriðja manninn. Sú ráðning
hafi í alla staði sýnt sig hafa ver-
ið farsæla.
í svari við gagnrýni Árna Mat-
hiesen rökstuddi utanríkisráðherra
m.a. ráðningar nokkurra þing-
manna Alþýðuflokksins í embætti
fyrr og nú. í því sambandi nefndi
hann Kjartan Jóhannsson, Jón
Sigurðsson, Eið Guðnason og Karl
Steinar Guðnason. Sagði hann
þingmanninn hafa notað ræðu sína
til að veitast að sér og flokki sínum
og skipa sér í röð með ófyrirleitn-
ustu gagnrýnendum Alþýðu-
flokksins. Hann rifjaði upp ráðn-
ingar stjórnmálamanna úr röðum
. Sjálfstæðisflokksins í ýmis emb-
ætti og spurði Árna hvort hann
gagnrýndi ekki þær á sama hátt
og gerðir Alþýðuflokksins. Nefndi
hann í þessu sambandi Geir Hall-
grímsson og Birgi ísleif Gunnars-
son seðlabankastjóra og Sverri
Hermannsson bankastjóra Lands-
bankans. Hann nefndi einnig þing-
menn flokksins sem valdir hefðu
verið til að gegna embætti sýslu-
manna, þá Friðjón Þórðarson og
Einar Ingimundarson. Loks nefndi
hann að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði valið starfandi þingmenn til
að gegna mikilsverðum störfum í
bankaráðum þjóðbanka og stjórn-
um annarra fj árm álastofnana, eins
og til dæmis Byggðastofnunar.
Ráðherra sagði einnig í svari
sínu að hann hefði tekið til varna
fyrir Davíð Oddsson forsætisráð-
herra þegar á hann hafi verið ráð-
ist í þinginu vegna embættaveit-
inga (Hrafnsmálið) en ólíkt hefð-
ust menn að.
Árni Mathiesen sagði það rétt
hjá ráðherra að þrír umsækjendur
um tollvarðarstöðuna hefðu komið
til greina, en sá sem fékk stöðuna
hefði ekki verið þar á meðal og
raunar verið einn af þeim umsækj-
endum sem talinn hefði verið síst
hæfur og hvergi nefndur í umsögn
lögreglustjórans. Sagði hann
rökstuðning ráðherrans ekki halda
vatni. Páll Pétursson sagði að svör
ráðherrans sýndu sorglega for-
herðingu og siðblindu.
Varðandi embættisveitingar Al-
þýðuflokksins í sumar sagðist Árni
ekki gagnrýna ráðningar ein-
stakra manna, þeir væru hæfir
hver út af fyrir sig. Hins vegar
sagðist hann hafa í blaðagrein
gagnrýnt þá keðju sem sett var
af stað. Þá pólitísku leikfléttu sem
gerð hefði verið til að leysa innan-
flokksmál og til að létta þrýstingi
af formanni flokksins. Sagði hann
óeðlilegt að þriðjungur af þing-
flokki Alþýðuflokksins hafi verið
fluttur í æðstu embætti landsins
á einu bretti og sagði að það sam-
svaraði því að 8-9 þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins hefðu verið
settir í slík embætti á sama tíma.
Sagði þingmaðurinn að hann hefði
gagnrýnt það, ef það hefði verið
gert, og sagðist þess fullviss að
utanríkisráðherra hefði tekið undir
þá gagnrýni. Tók Ámi það fram
að gagnrýni sín á ráðningu toll-
varðarins á Keflavíkurflugvelli
hefði verið efnisleg gagnrýni og
sett fram í fullri vinsemd og sagð-
ist hann vilja frábiðja sér það að
vera settur í sérstakan flokk hat-
ursmanna utanríkisráðherra. Bað
hann ráðherrann aftur á móti að
taka mark á gagnrýninni og
breyta vinnubrögðum sínum.
Heimildir til að bæta miska
Björn Bjamason, formaður alls-
herjarnefndar, sagði að fyrir
nefndinni lægi það álit umboðs-
manns Alþingis, vegna þessa máls,
að í lögum ætti að vera víðtækari
heimild en nú væri til að bæta
miska, þegar stjórnvöld hefðu
brotið rétt á mönnum við stöðu-
veitingar. Þyrfti nefndin að taka
þetta mál til umfjöllunar. Hann
sagðist vonast til að málum hjá
umboðsmanni myndi fækka þegar
farið yrði að vinna eftir nýjum
stjórnsýslulögum.
Hörður Torfason.
Útáfutón-
leikar Harð-
ar Torfa
GULL heitir nýjasta plata Harð-
ar Torfa og verða tónleikar í til-
efni útkomu hennar haldnir í
Borgarleikhúsinu nk. mánudags-
kvöld 22. nóvember kl. 21. Gull
er tíunda plata Harðar.
Hörður Torfa hefur algjöra sér-
stæðu í íslenskri tónlistarflóru og
er sá sem fyrstur hérlendra tekur
upp merki trúbadúranna og hefur
haldið því á lofti í meira en 26 ár.
Venjulega er Hörður einn á sviðinu
með gítarinn og sögurnar sungnar
og sagðar en að þessu sinni fær
hann til liðs við sig Þórð Högnason
sem leikur á bassa en Þórður er
einmitt eini meðleikari Harðar á
plötunni. Gestur Harðar eru svo
Haraldur Reynisson sem hefur ný-
lega sent frá sér sína fyrstu plötu
Undir hömrunum háu. Haraldur
hefur sér til aðstoðar Hallberg
Svavarsson á bassa.
-----♦ ♦ ♦
■ ÍSLENSKI Fjallahjólaklúhh-
urinn (ÍFHK) hvetur hjólandi borg-
arbúa til að bregða sér á reiðhjól
nk. sunnudag í tilefni þess að vetur-
inn er kominn. Klúbburinn mun
efna til hóphjólreiða til þess að
minna á slæma aðstöðu þjólreiða-
manna í borginni. Verður lagt af
stað frá Kolaportinu kl. 13. Hjólað
verður upp Sæbrautina, beygt inn
hjá kaffíhúsinu Sólon íslandus. Þar
verður undirskriftarlisti afhentur
borgarfulltrúa. Á haus undirskrifta-
listans kemur fram að nauðsynlegt
sé að leggja sérstakar hjólreiðagöt-
ur til þess að fækka slysum á ber-
skjölduðum hjólreiðamönnum borg-
arinnar. í framhaldi geta áhuga-
samir komið sér fyrir á efri hæð
Sólon íslandus og hlýtt á fróðlegt
erindi um umhverfísmál sem flutt
verða á ráðstefnunni Græna bylt-
ingin, hverjar eru horfumar? Ráð-
stefnan hefst kl. 14.
Kynning spítalaskýrslu
Jóhann Ari Lárusson, sem leikur Óla, Andrés Indriðason leikstjóri
oet Álfrún Örnólfsdóttir. sem leikur Intru.
sætir gagnrýni á Alþingi
VIÐ UPPHAF þingfundar á fimmtudag tóku nokkrir þingmenn
til máls um störf þingsins og gagnrýndu hvernig staðið hefur
verið að kynningu skýrslu um framtíð sjúkrahúsa á landsbyggð-
inni, sérstaklega að hún skyldi ekki kynnt þingmönnum um leið
og fjölmiðlum.
Hjörleifur Guttormsson, þing-
maður Alþýðubandalags á Austur-
landi, hóf umræðuna. Gagnrýndi
hann að skýrsla þar sem boðuð
væri róttæk breyting á starfsemi
sjúkrahúsa væri kynnt með þess-
um hætti. Nefndi hann sem dæmi
að ekki væri gert ráð fyrir neinu
sjúkrahúsi sem stæði undir nafni
á öllum austurhluta landsins.
Heilbrigðisráðherra er ekki á
landinu en Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra svaraði
gagnrýninni á þá leið að hér væri
um að ræða sérfræðiálit í embætt-
ismannaskýrslu sem ekki hefði
verið rætt í ríkisstjóm og því eng-
in afstaða verið tekin til.
Hvers vegna var byggt upp?
Taldi hann ekki ástæðu til að
ræða efni skýrslunnar á þessu stigi
málsins.
Nokkrir þingmenn úr öllum
stjórnarandstöðuflokkunum tóku
undir gagnrýni á kynningu skýrsl-
unnar og einnig Matthías Bjama-
son og Sturla Böðvarsson þing-
menn Sjálfstæðisflokksins. Matt-
hías spurði hvers vegna unnið
hefði verið að uppbyggingu
sjúkrahúsa úti um landið, keypt
dýr tæki og starfsfólk ráðið ef svo
allt í einu væri það talinn mesti
spamaðurinn að leggja starfsem-
ina niður. Sturla vakti athygli á
því að í umræddri spítalanefnd
væri sama fólkið og unnið hefði
að uppbyggingu þeirra stofnana
sem það vildi nú leggja niður.