Morgunblaðið - 20.11.1993, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
31
gerða kjarasamninga stéttarfélaga
innan BHMR og virða þannig að
vettugi einn af hornsteinum lýðræð-
isins sem er fólgin í stjómarskrár-
bundinni þrískiptingu ríkisvalds.
Ekki er vafi á því að ríkisvaldinu er
siðferðilega skylt að standa við eigin
samninga við starfsmenn sína og
stéttarfélög þeirra ekki síður en aðra
samninga sem það gerir. Þannig yrði
ugglaust talið brot á stjómarskrá ef
alþingi breytti skilmálum seldra
spariskírteina ríkisins með lagasetn-
ingu. Réttur ríkisvalds til að afnema
eigin samninga ætti að einskorðast
við neyðarrétt í réttarríkinu og
byggja á því að eitt sé látið yfir alla
ganga.
Eftir að samningsrétturinn fékkst,
31. desember 1986, gerðu stéttarfé-
lög BHMR kjarasamninga á vordög-
um 1987, sum að undangengnum
verkföllum. Á árinu 1988 kom til
efnda á efnisákvæðum um endur-
skoðun sem ekki fengust rædd og
síðan tók við tímabil bráðabirgðalaga
sem stóð til 15. febrúar 1989 að
formi til en í reynd til 18. maí 1989.
BHMR-félögin nutu samningsrétt-
ar síns þó aðeins í eitt ár en voru
síðan undir ákvæðum bráðabirgða-
laga uns nýir samningar vom undir-
ritaðir seint í maí 1989. Samningam-
ir áttu aðeins að gefa hið sama af
sér og samningar ASI og VSI fram
á mitt ár 1990 en eftir það átti að
leiðrétta launin í áföngum. Þegar
kom að efndum á þessu í júlí 1990
neitaði ríkið. Félagsdómur úrskurð-
aði í sama mánuði að ríkinu bæri
að efna samningana! Síðan tók
bráðabirgðalöggjafínn til starfa og
nam kjarasamninga aðildarfélaga
BHMR úr gildi. Héraðsdómur skildi
betur sjónarmið ríkisstjómarinnar og
staðfesti í mars 1991 að ríkið mætti
nema samninga úr gildi ef þeir brytu
í bága við efnahagsstefnu ríkisstjóm-
arinnar! Hæstiréttur ógilti dóm und-
irréttar og úrskurðaði að lögin stæð-
ust ekki jafnræðisreglur stjórnar-
skrárinnar. Hæstiréttur taldi aðjafna
mætti bráðabirgðalögunum til upp-
sagnar á kjarasamningum og úr-
skurðaði á þeim gmndvelli að ums-
amdar launahækkanir féllu úr gildi
að liðnum uppsagnarfresti. í 12. gr.
l.nr. 94/1986 segir hins vegar að
eftir kjarasamningi skuli farið -
þrátt fyrir uppsögn - uns nýr er
gerður. Dómur Hæstaréttar í þessu
máli ætti því að vera sérfræðingum
Evrópuráðsins umhugsunarefni þeg-
ar þeir hefja rannsóknir sínar á já-
kvæðu félagafrelsi í aðildarríkjunum.
BHMR bar málið undir Alþjóða-
vinnumálastofnunina, ILO, og vísaði
eftir Emil B. Karlsson
Á síðastliðnum 3 árum hafa ver-
ið markaðssettar liðlega 30 mis-
munandi iðnaðarvörur sem þróaðar
voru í tveimur verkefnum á vegum
Iðntæknistofununar og Iðnlána-
sjóðs. Fyrra verkefnið, Vöruþróun-
arátak Iðntæknistofnunar, skilaði
22 markaðshæfum iðnaðarvörum.
Seinna vöruþróunarverkefninu,
Vöruþróun ’92, er að ljúka og kynn-
ing á níu vörutegundun fer nú fram
á ýmsum vettvangi. Vegna þess
hve árangurinn er góður hefur ver-
ið ákveðið að efna til nýs átaksverk-
efnis í vöruþróun, undir heitinu
Vöruþróun ’94.
Vörurnar sem unnar hafa verið
í verkefnunum tveimur bera þess
glögg merki að vöruþróun, sem
stunduð er með skipulögðum vinnu-
brögðum, er einhver skynsamleg-
asta leiðin til nýsköpunar í atvinnu-
lífinu. Nú eru liðin þijú ár frá því
fyrstu vörurnar voru settar á mark-
að og eru flestar þeirra framleiddar
með góðum árangri í dag. Nýlega
var gerð könnun á gildi og árangri
af þeim 22 vörum sem komu á
markað fyrir þremur árum. Þar
kemur fram að sala varanna skilar
framleiðendum verulegri veltu. All-
ir framleiðendurnir telja að með
því að fá faglega aðstoð við vöru-
til samþykkta hennar um félaga-
frelsi. Stofnunin taldi sannað að
skaði félagsmanna BHMR af lögun-
um hafi verið tímabundinn til 31.
ágúst 1994. Þama virðist stofnunin
hafa byggt á röngum upplýsingum,
því eins og kunnugt er breytist ekk-
ert í réttarstöðu eða kjörum félags-
manna BHMR 31. ágúst 1994 og
iaunahækkanir samninga voru
numdar endanlega úr gildi en ekki
tímabundið. M.a. á fyrmefndum rök-
um byggði stofnunin þá niðurstöðu
að láta sér nægja að hvetja samn-
ingsaðila til að freista þess að semja
(upp á nýtt) í góðri trú!
Áð semja við ríkisvaldið upp á
nýtt í góðri trú - eftir reynslu félags-
manna BHMR - er að hafna reynsl-
unni. Það gerir málið líka flóknara
að opinberir vinnuveitendur gefa ILO
langt nef og neita í reynd öllum al-
vöru samningaviðræðum við stéttar-
félögin. Á svoköliuðum samninga-
fundum koma engin tilboð frá þeim
á meðan beðið er eftir línunni frá
ASÍ-VSÍ. Þegar hún liggur fyrir
hljóðar tilboðið til opinberra starfs-
manna að skrifa upp á sams konar
samning, jafnvel eitthvað lakari.
Þetta þýðir að opinberir vinnuveit-
endur hafa enga sjálfstæða launa-
eða starfsmannastefnu og hafa fram-
selt samningsumboð sitt til ASÍ og
VSÍ frá þjóðarsátt 1990 þegar samið
var um að ræna félagsmenn BHMR
kjarasamningum þeirra frá 1989.
Raunar er opinberum vinnuveitend-
um farið að leiðast að þurfa að hitta
samninganefndir stéttarfélaganna,
sem alltaf eru að heimta eitthvað,
þannig að mörgum félögum gengur
jafnvel illa að ná samningafundum
mánuðum saman. Þessi framkoma
stríðir að sjálfsögðu gegn alþjóðleg-
um sáttmálum.
Neikvætt félagafrelsi
Hugmyndafræðin um neikvætt
félagafrelsi byggir á því að einstakl-
ingur eigi rétt á því að standa utan
stéttarfélags sem hefur önnur stjóm-
málaleg markmið en þau sem varða
kaup og kjör félagsmanna. í Evrópu
eru t.d. stéttarfélög eftir trúarskoð-
unum og pólitískum flokkum. Þar
er nauðsyn á að tryggja einstakling:
um rétt á neikvæðu félagafrelsi. í
réttarríkjum þar sem stéttarfélög
vinna einarðlega að kjaramálum fé-
lagsmanna sinna og hirða ekki um
refskák stjórnmála- og trúarbragða-
deiina og þar sem sérhver launamað-
ur á rétt á að njóta lágmarksákvæða
kjarasamninga er fráleitt að stilla
neikvæðu félagafrelsi upp sem
mannréttindum. Verkefni stéttarfé-
þróunina hafi orðið til hagnýt þekk-
ing í fyrirtækjunum til áframhald-
andi þróunarvinnu. Jafnframt segja
flestir framleiðendurnir að þátttaka
í verkefinu hafí orðið til að hvetja
starfsmenn til að áframhaldandi
vörijþróunar.
Ástæða þess að vöruþróun er
orðin einn af mikilvægustu þáttum
fyrirtækjarekstrar eru örar breyt-
ingar í eftirspurn og framboði. Það
sem er í tísku í dag þykir okkur
hallærislegt á morgun. Sama á við
um matarvenjur sem eru í sífelldri
breytingu. Samkeppnin um þarfír
neytenda harðnar um leið og líftími
hverrar vörutegundar verður æ
styttri með tímanum. Með því að
gera vöruþróun að eðlilegum þætti
í daglegum rekstri fyrirtækja verð-
ur framleiðslan sveigjanlegri og
auðveldara verður að breyta fram-
boðinu eftir því sem markaðsað-
stæður gefa tilefni til.
Þjónusta Iðntæknistofnunar á
sviði vöruþróunar er framkvæmd
af sérfræðingum með þekkingu á
tækni og rekstrarmálum. En vöru-
þróun getur einnig falist í því að
setja vöru, sem hefur verið á mark-
aði í langan tíma, í nýjar umbúðir
eða gera vöruna á einhvern annan
hátt meira aðlaðandi í augum neyt-
enda. Aðalatriðið eru tengsl fram-
leiðenda við markaðinn.
laganna er að standa vörð um hluta
af mannréttindum sem ella yrði ekki
gætt fyrir launamenn með sama
hætti. Álþjóðlegu samþykktimar eru
settar til að tryggja launamönnum
þátttökurétt í stéttarfélögum í þess-
um tilgangi. Stéttarfélög verða að
vinna faglega og af trúnaði fyrir sína
félagsmenn og mega í raun ekki
blanda sér í önnur mál en varða
umboð þeirra. Þannig tel ég vara-
samt að stéttarfélög álykti um al-
menn stjórnmál eða trúmál eða taki
þátt í slíku starfí.
Eg tel að opinberir vinnuveitendur
geri í reynd neikvæðu félagafrelsi
hærra undir höfði en jákvæðu.
Vinnuveitendur taka með lögum fé-
lagsmenn úr BHMR-félögunum og
lokka aðra með gylliboðum eða
þvinga til að standa utan stéttarfé-
lagarina. Framferði þeirra eins og
að ofan er rakið miðast við að draga
sem mest úr getu félaganna til að
semja og ná fram efni löglega gerðra
kjarasamninga. Þegar stéttarfélögin
vinna eitt dómsmál tekur það næsta
við. Fyrir opinberum vinnuveitendum
hefur ekkert mál fordæmisgildi held-
ur eru öll mál einstaklingsmál. Til-
gangurinn er að gera félögunum sem
erfíðast fyrir. Samtímis þessu hygla
vinnuveitendur þeim sem yfírgefa
stéttarfélögin og bera út félögin og
fyrirsvarsmenn þeirra. Lágir launa-
taxtar félagsmanna BHMR vegna
bráðabirgðalaganna eru notaðir sem
sönnunargagn um það að félögin
sinni ekki hlutverki sínu. Höfð eru
endaskipti á sannleikanum. Þannig
er reynt að mylja utan af þeim kjarna
sem sýnir samstöðu. Samtakamáttur
launafólks er mikilvægasta vopnið
og það vita vinnuveitendur jafnt op-
inberir sem óopinberir.
Endurreisn félagafrelsis
Það þarf stórkostlegt réttarátak
og hugarfarsbreytingu á íslandi til
að láta alþjóðasamþykktir um rétt-
arstöðu launamanna og stéttarfélaga
ná gildi sínu. Er það er eitt brýnasta
verkefni stéttarfélaganna í landinu
og ætti að vera verðug hugsjón ís-
lendinga að Mannréttinda- og Fé-
lagsmálasáttmálar Evrópu og Sam-
einuðu þjóðanna gildi einnig á ís-
landi. Ríkisvaldið á að búa stéttarfé-
lögum sanngjarnar leikreglur og
ganga fram fyrir skjöldu um að virða
leikreglumar og efni samninga. Það
gæti verið byrjunin á endurreisn fé-
lagafrelsis á íslandi.
Höfundur er framkvæmdastjóri
BHMR.
Emil B. Karlsson
__ . --wa auuVAl*
„Það sem er í tísku í
dag- þykir okkur hall-
ærislegt á morgun.“
Fyrirtæki sem taka þátt í átaks-
verkefnum Iðntæknistofnunar og
Iðnlánasjóðs fá faglega og fjár-
hagslega aðstoð við þróunarverk-
efnin. Verkefnisstjóri vinnur með
hveiju fyrirtæki og fylgir starfmu
eftir þar til að markmiðinu hefur
verið náð, þ.e. að þróa vöru sem
er markaðshæf innanlands eða hæf
til útflutnings.
Höfundur er kynningarstjóri
Iðntæknistofnunar.
_____________Brids__________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Kauphallarmótið 1993
Kauphallarmót Bridssambands ís-
lands verður haldið á Hótel Sögu helg-
ina 3.-5. desember nk. Mótið verður
haldið í samvinnu við Verðbréfamark-
að íslandsbanka sem mun reka Kaup-
höll á staðnum eins og undanfarin ár
og nú verða Eurocard-kreditkort í
samstarfi við okkur. Ef pör verða
keypt með einhverjum af kortum frá
Eurocard getur viðkomandi dottið í
lukkupottinn í enda mótsins en þá
verður eitt parið dregið út og kaup-
andi þess fær kaupverðið endurgreitt
en þetta gildir aðeins ef notað er eitt-
hvað af kortum frá Eurocard.
Mótið hefst að venju með uppboði
föstudagskvöldið 3. desember á Hótel
Sögu þar sem öll skráð pör verða að
spila í jakkafötum með bindi og kven-
fólkið í viðeigandi klæðnaði.
Skráning er hafín á mótið á skrif-
stofu Bridssambands íslands í síma
91-619360. Ef þátttaka fer yfir 32
pör verður valið úr pörum eftir stiga-
styrkleika. Þátttökugjald er 10.000 á
par og lágmarksboð er einnig 10.000
sem viðkomandi par ábyrgist ef enginn
býður hærra. Skráningarfrestur er til
mánudagsins 29. nóvember.
Bridsfélag Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur í 12 para riðli.
Efst urðu eftirtalin pör:
BaldurBjartmarsson-HelgiSkúlason 135
ValdimarSveinsson-FriíjónMargeirsson 133
FriðrikJónsson-Ingvarlngvarsson 115
Næsta þriðjudag hefst barometer-
tvímenningur, 4ra kvölda. Skráning
hjá Hermanni í síma 41507 og Baldri
í síma 78055. Spilað er í Gerðubergi
kl. 19.30.
Frá Skagfirðingum
Haustbarometer Skagfirðinga hófst
síðasta þriðjudag. Góð þátttaka er í
keppninni. Eftir fyrsta kvöldið af
þremur, er staða efstu para:
GuðlaugurSveinsson-LárusHermannsson 58
AlfreðAlfreðsson-ViktorBjómsson 45
Alfreð Kristjánsson - Eggert Bergsson 40
JónStefánsson-SveinnSigurgeirsson 33
Dan Hansson - Þórður Sigfússon 31
Ármann J. Lárusson - Þórir Leifsson 26
Spilamennsku verður fram haldið
næsta þriðjudag, en aðalsveitakeppni
Skagfírðinga hefst svo þriðjudaginn
7. desember.
Bridsdeild Rangæinga
Lokið er hraðsveitakeppni félagsins.
Sveit Lilju Halldórsdóttur bar sigur
úr býtum, en með henni spiluðu Páll
Vilhjálmsson, Daníel Halldórsson og
Viktor Björnsson. Lokastaða:
Lilja Halldórsdóttir 1654
Þorsteinn Kristjánsson 1596
Ingólfur Jónsson 1546
BaldurGuðmundsson 1508
Nk. miðvikudag hefst 4ra kvölda
tvímenningur þar sem keppt er um
Ingólfsbikarinn, sem spilað er um í
minningu Ingólfs Böðvarssonar sem
lést sl. sumar, en hann var einn af
máttarstólpum félagsins alla tíð.
Tilkynning um þátttöku berist til
Lofts í vs. 36120 og hs. 45186.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
. Sl. mánudag, 15. nóvember, var
spiluð þriðja umferðin í A-Hansen
mótinu og er staða efstu para þannig:
Kjartan Jóhannsson - Jón Þorkelsson 124
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 105
GuðbjömÞórðarson-JónSigurðsson 86
Kristófer Magnúss. - Guðbrandur Sigurbergss. 77
Sófus Bertelsen - Sigriður Guðmundsdóttir 67
Hæstu skor þriðja kvöldið fengu:
Sigurður Aðalsteinsson-Jón Sigurðsson 78
Sófus Bertelsen - Páll Sigurðsson 60
Ólafur Ingimundarson - Sverrir Jónsson 56
Æfingakvöld byijenda
Sl. sunnudagskvöld, Tí. nóvember,
var æfingakvöld byijenda og var spil-
aður Mitchell í tveimur riðlum og urðu
úrslit kvöldsins eftirfarandi:
N/S-riðill
Björgúlfur Péturss. - Guðmundur Bemharðss. 165
Kristín Jónsdóttir - Kristrún Stefánsdóttir 127
Ásta Þórðardóttir - Dagbjört Siprbergsd. 121
A/V-riðill
Erla Þórðardóttir - Hrefna Kjartansdóttir 149
GylfiÁstbjartsson-PéturÁstbjartsson 144
ÞóroddurRagnarsson-NicolaiÞorsteinsson 139
Á hveiju sunnudagskvöldi er brids-
kvöld í húsi BSÍ sem ætlað er byijend-
um. Húsið er opnað kl. 19.00 og spila-
mennskan hefst kl. 19.30.
Opið laugardag
kl. 10-16
Glæsilegt úrval
Leðursófasett
Verð frá kr. 139.000 til 419.000.
Áklæðissófasett
Verð frá kr. 80.000 til 219.000.
Leðurhornsett
Verð frá kr. 138.000 til 220.000.
Áklæðishornsett
Verð frá kr. 69.000 til 113.000.
Leðurlíkishornsófar
Verð frá kr. 89.000 til 134.000.
Leðurlíkissófasett, 3+2+1
Verð frá kr. 125.000.
Hvíldarstólar í leðri
Verð frá kr. 25.000,- til 76.000.
ARMULA 8, SIMAR 812275, 685375
Vaxtarbroddar
og vöruþróun