Morgunblaðið - 20.11.1993, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
GOLF / EM ATVINNUMANNALIÐA
ísland enn
íöðrusæti
Ulfar er sjö undir pari í öðru sæti
Islendingarnir Úlfar Jónsson, Am-
ar Már Ólafsson og John
Drummond eru í öðru sæti í Evrópu-
keppni atvinnumannaliða í golfí
sem fram fer á La Manga á Spáni.
í gær léku þeir samtals á 142 högg-
um, Úlfar á 70 höggum, tveimur
undir pari, og Arnar Már á parinu.
Drummond lék hins vegar á einu
yfir pari, 73 höggum, og taldi ekki
í gær. Strákarnir eru samtals á 281
höggi, 7 undir pari.
Skotar juku forskot sitt í gær
og eru alls 15 undir pari, hafa leik-
ið á 273 höggum og eiga nú átta
högg á íslendingana. Hollendingar
eru í þriðja sæti á 282 höggum og
síðan koma Englendingar, Spán-
verjar og írar með 285 högg.
Þetta er besti árangur sem ís-
lendingar hafa náð í þessu móti en
hingað til hafa þeir verið í neðri
hluta þess. Þetta er liðakeppni og
fær hver í sigursveitinni tæpar 290
þúsund krónur en strákamir vissu
ekki hvað annað sætið gæfi.
Úlfar virðist vera í miklu formi.
„Ég lék ágætlega í dag og er nokk-
uð ánægður. Eg hef slegið vel og
fékk ekki skolla fyrr en á 29. hol-
unni. í dag fékk ég skolla á tveim-
ur síðustu holunum og það var ekki
nógu gott,“ sagði Úlfar í gær-
kvöldi. Þó ekki sé um einstaklings-
keppni að ræða fylgjast menn með
og allir vilja ná besta skorinu. Skoti
nokkur er í fyrsta sæti, lék á 67
og 67 og er tíu undir pari. Úlfar
er annar á sjö undir pari.
Evrópukeppni áhugamannaliða
Keilir í 11. sæti
Keilismenn úr Hafnarfirði eru í
11. sæti eftir þrjá daga á
Evrópumóti áhugamannaliða í golfi
sem fram fer á Spáni. I gær léku
þeir Bjöm Knútsson og Björgvin
Sigurbergsson á 75 höggum en
Sveinn Sigurbergsson á 78. Sveitin
hefur því leikið á 457 höggum.
Fyrir síðasta dag eru Bretar í
fyrsta sæti með 444 högg en næst-
ir fyrir ofan Keili eru Svíar og
Spánveijar á 456 höggum, Belgar
á 566 og Frakkar á 453. Hinum
megin við Keili eru Italir á 458 og
b-sveit Dana á 460.
Sveitimar eru mjög jafnar og
stutt upp í 6.-8. sætið, þangað sem
Keilismenn stefna.
Úlfar Jónsson hefur leikið mjög vel í keppni atvinnumannaliða í golfí.
■ DÖNSK blöð skrifuðu mikið um
leik Argentínu og Ástralíu í fyrra-
dag. Ekki vegna þess að leikurinn
hafi verið góður, og alls ekki svo
mikið um gang leiksins sem slíks.
Áherslan var fyrst og fremst á dóm-
ara hans Peter Mikkelsen hinn
danska, sem trúlega verður eini
Daninn sem verður í lokakeppninni.
■ MARY Pierce frá Frakklandi
sigraði Martinu Navratilovu í
ijórðungsúrslitum á tennismóti í
Madison Square Garden í New
York í gær. Pierce hefur þá lagt
tvær af bestu tenniskonum af velli
í sama mótinu, Navratilovu og
Gabrielu Sabatini, sem hún vann
á þriðjudaginn.
■ „EG trúi þessi ekki. Þetta er
alveg stórkostlegt," sagði Pierce
eftir leikinn, en Navratilova komst
í úrslit í þessu móti í fyrra og hitteð-
fyrra átti ekkert svar gegn hinni
18 ára gömlu frönsku stúlku.
■ STEFFI Graf frá Þýskalandi
er komin í undanúrslit í mótinu og
hefur þegar sett nýtt met hvað
varðar tekjur á einu ári. Hún hefur
þegar fengið tæpar 190 milljónir
króna fyrir þátttöku í tennismótum
á árinu og hefur möguleika á að
bæta sex milljónum við sigri hún
að þessu sinni.
■ „ÞETTA er búið að vera frá+
bært ár hjá mér,“ sagði Graf en
hún sigraði á Wimbledon mótinu,
því Opna franska og Opna banda-
ríska. „Þetta eru gríðarlega miklir
peningar en þeir skipta litlu máli,“
sagði Graf.
■ MONICA Seles átti eldra met-
ið, en í fyrra vann hún sér inn 188
milljónir króna. Metið hjá körlunum
á Stefan Edberg en hann hefur
heldur lægri laun en stúlkurnar,
hefur „aðeins“ fengið 170 milljónir
á þessu ári.
KNATTSPYRNA / ARSÞING KSI
Tillaga milliþinganefndar um 32 liða aðalkeppni í bikarnum
Bikamrslitaleikur karla
verði eftir íslandsmótið
MÓTANEFND KSÍ leggur fram nokkrar breytingartillögur á reglu-
gerð KSÍ á ársþinginu, sem verður eftir hálfan mánuð á Hótel
Loftleiðum. Hún leggur m.a. til að félög 11. og 2. deild karla
komi inní bikarkeppnina í 32 liða úrslitum og að leiktíðinni Ijúki
með bikarúrslitaleik. Þá vill hún að leikir ftveimur síðustu umferð-
um í 1. og 2. deild karla fari fram á sama tíma og að félögum
verði óheimilt að treysta á flug í þessum umferðum til að kom-
ast á leikstað í tima.
UM HELGINA
Handknattleikur
LAUGARDAGUR
1. deild karla:
Eyjar: ÍBV - UMFA...............18
SUNNUDAGUR
1. deild karla:
Kaplakriki: FH-Þór..............20
Seljaskóli: ÍR - Víkingur.......20
Valsheimili: Valur-Stjaman......20
MÁNUDAGUR
1. deild kvenna:
Austurberg: Fylkir - Haukar.....20
Körfuknattleikur
SUNNUDAGUR
Úrvalsdeild:
Grindavík: UMFG - Haukar........20
Keflavík: ÍBK - Skallagrímur....20
Seltjn.: KR-Njarðvík............20
Stykkish.: Snæfell - Valur......18
Bikarkeppnin:
Akureyri: Þór-ÍA................20
Blak
SUNNUDAGUR
1. deild karla:
Hagaskóli: ÍS - Þróttur R.......14
Bortennis
Landsleikur verður við Færeyinga í Laugar-
dalshöllinni og hefst keppnin klukkan 20 á
mánudagskvöldið.
Hlaup
Hlaupakeppni fer fram við Pizza 67 í Hafn-
arfirði f dag og hefst kl. 14, en skráning
byrjar kl. 12.30. Hlaupið verður í mörgum
flokkum; 10 ára og yngri (600 m), 11-12
ára (1.000 m), 13-14 ára (1.500 m), 15-18
ára (8.000 m), 19-39 ára (karlar 5 km,
konur 3 km), 40-49 ára (karlar 5 km, kon-
ur 3 km) og 50 ára og eldri (karlar 5 km,
konur 3 km).
Badminton
55 ára afmælismót TBR fyrir badminton-
fólk fætt eftir 1. september 1972, verður í
TBR-húsunum í dag og hefst kl. 13.
Keila
Laugardagsmót Keiluhallarinnar og Nýliða
hefst f kvöld kl. 20.
Fyrir þinginu liggja fyrir 38. til-
lögur um breytingar. Á mál-
þingi í tengslum við þingið í fyrra
kom fram stuðningur við 32 liða
aðalkeppni bikarkeppninnar og
fylgir mótanefnd umræðunum eftir
með fyrmefndri breytingartillögu.
Gert er ráð fyrir að undankeppni
ljúki fyrir 15. júní, en aðalkeppni
hefjist eftir 1. júlí og verði um það
bil hálfur mánuður á milli umferða.
Úrslitaleikurinn verði síðan á Laug-
ardalsvelli sunnudaginn eftir að
keppni í 1. deild karla lýkur.
Fastir leikdagar og tími
Mótanefnd leggur einnig til að
leikir í 17. og 18. umferð i 1. og
2. deild karla fari fram á sama
degi og sama tíma. Samkvæmt til-
lögunni mega lið ekki treysta á flug
á leikdegi í þessum umferðum og
verða þau að nota annan ferðamáta
til að komast á leikstað á réttum
tírna.
Á síðasta þingi var samþykkt að
kjósa fimm manna milliþinganefnd
til að leggja fram tillögu fyrir kom:
andi þing um nýja reglugerð KSÍ
um knattspymumót og liggur til-
laga þess efnis fyrir þinginu.
Jöfnun ferðakostnaðar
Knattspymudeild KA leggur til
að öll lið í landsmóti 1. til 3. deild-
ar karla og 1. deildar kvenna greiði
ákveðið gjald í sameiginlegan jöfn-
unarsjóð vegna ferðakostnaðar,
sem ætlaður er til að jafna ferða-
kostnað liða í viðkomandi deildum.
í greinargerð með tillögunni seg-
ir m.a. að áætlaður ferðakostnaður
Morgunblaðið/Kristinn
Úrslit í október?
SIGURÐUR Jónsson fagnar sigri ÍA
í bikarkeppninni síðasta sunnudag í
ágúst sem leið. Tillaga liggur fyrir
ársþingi KSÍ um að úrslitaleikur bikar-
keppninnar verði helgina eftir síðustu
umferð 1. deildar eða í október skv.
núverandi fyrirkomulagi.
í umræddum deildum hafi verið 20
til 21 milljón krónur á liðinni leikt-
íð og er þá gert ráð fyrir 50% af-
slætti í flugi og 40% afslætti með
hópferðabifreiðum. Ennfremur seg-
ir að ferðakostnaður meistara-
flokksliðs hafi verið um 550 þúsund
að meðaltali, lægst um 250 þúsund
og allt uppí 1,2 milljónir. Lagt er
til að fyrsta árið verði brúttójöfnun-
argjald 550.000 krónur á hvert lið
í meistaraflokki og lið í íslandsmóti
2. flokks greiði hálft gjald.
' Lengri leiktími kvenna
Tvær nær samhljóða tillögur um
leiktíma í kvennaknattspymu verða
bornar upp og eru boðaðar breyt-
ingar í samræmi við það sem gerist
í nágrannalöndunum. Lagt er til að
leiktími í meistaraflokki verði 2x45
mínútur og gerir önnur tillagan ráð
fyrir 15 mínútna leikhléi en hin 10
mínútna.
Riðlar í 3. deild
Nokkur félög leggja fram tillögu
um að í 3. deild verði 18 Hð í tveim-
ur riðlum, þar sem tvö efstu liðin
úr hvorum riðli fari í úrslitakeppni
og sigurvegarar í undanúrslitum
færist upp í 2. deild. Tvö neðstu lið'
í hvorum riðli falli í 4. deild og fjög-
ur efstu í 4. deild færist upp.
Margar breytingartillögur varða
yngri flokka og dómaramál, en auk
þess leggur stjórn KSÍ til að keppni
utan deilda verði lögð niður.
Á sunnudag kl. 20.00 leika
KR og Njarðvík
f körfubolta á Nesinu.
Hvað gera Ijónin núna?