Morgunblaðið - 20.11.1993, Page 52

Morgunblaðið - 20.11.1993, Page 52
MORGVNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK Slm 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Kosið um sameiningu sveitarfélaga í dag Úrslitin víðast ljós á miðnætti 151.312 eru á kjörskrá við kosningar um sameiningu sveitarfélaga sem fram fara í dag í 185 af 196 sveitarfélögum í landinu. I þéttbýlisstöð- um og stærri sveitarfélögum verða kjördeildir opnar frá klukkan 10 fyrir hádegi til klukkan 22 i kvöld en sums staðar í smærri hreppum hefst kosningin á hádegi. Talning hefst strax að kjörfundi loknum og er talið að úrslit eigi að liggja fyrir í grófum dráttum um miðnætti. Yfirleitt var dræm þátttaka í ut- ankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna kosninganna. í Reykjavík greiddu 425 manns atkvæði utan kjörfund- ar, að sögn Önnu Mjallar Karlsdótt- ur, fulltrúa sýslumanns í Reykjavík, Vaxtalækkun úr 7% í 6% Hve mikið lækkar greiðslubyrðin af lífeyrissjóðsláninu? Mánaðarleg greiðslubyrði Mánaðarleg algengs lífeyris- greiðslubyrði sjóðsláns að algengs lífeyris- eftirstöðvum kr. sjóðsláns að 700.000 með fjárhæð kr. 12 ára lánstíma 1.000.000 til 15 lækkar um ára lækkar um 6,4% 7,2% en í Reykjavík em 73.759 á kjörskrá. Hljóti tillögur umdæmanefnda hvarvetna samþykki meirihluta kjós- enda liggur fyrir samþykki við því að sveitarfélög á landinu verði 43. Þau sveitarfélög þar sem ekki verður gengið til atkvæða í dag eru Hafnarfjörður, Kópavogur, Akranes, Eyrarsveit, Reykhólahreppur, Siglu- fjörður, Seyðisfjörður, Djúpavogs- hreppur, Skaftárhreppur, Mýrdals- hreppur og Vestmannaeyjar. Fylgst verður með talningu at- kvæða á báðum sjónvarpsstöðvum og á Rás 2 í Ríkisútvarpinu þar sem útvarp hefst klukkan 22. Kosninga- vaka Stöðvar 2 hefst klukkan 22.10 en í Ríkissjónvarpinu hefst útsend- ing klukkan 23.25. Morgunblaðið/Sverrir Teresa Berganza á íslandi HIN heimsfræga mezzosópransöngkona Teresa Berganza kom til landsins í gærkvöldi, en næstkomandi fimmtudagskvöld mun hún syngja á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói. Myndin er tekin á Keflavíkurflugvelli við komu söngkonunnar. Ríkisstjórnin vinnur að því að ganga frá tekju- og gjaldahlið fjárlagafrumvarpsins 6,4% Fjármagnstekjuskattur ekki um mitt næsta ár Fallið frá tekju- og eignatengingu lífeyrisgreiðslna EKKI er gert ráð fyrir tekjum af álagningu fjármagnstekju- skatts á næsta ári í því formi sem ráð var fyrir gert í fjárlaga- frumvarpinu en samkvæmt því átti fjármagnstekjuskattur sem yrði 10% af nafnvöxtum að leggjast á um mitt næsta ár og átti hann að skila 100-150 milljónum króna í tekjum til ríkissjóðs. Einnig hefur samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verið fallið frá tekju- og eignatengingu lífeyrisgreiðslna en það átti að skila 200 milljóna króna sparnaði á næsta ári. Þá á hækkun bensín- gjalds að skila 250-300 milljónum króna til vegagerðar á næsta ári, en það þýðir samkvæmt heimildum Morgunblaðsins að bensín- lítrinn hækkar um 1,40 krónur. Greiðslubyrði af einni milljón lækkar um 7,2% AÐALFUNDUR Sambands al- mennra lífeyrissjóða samþykkti í gær að beina þeim tilmælum til aðildarsjóða sinna, að þeir lækki vexti af lánum til sjóðfélaga frá og með 1. desember nk. í 6%. Yfírleitt munu vextir sjóðanna á þessum lánum hafa verið um 7%. Við lækkun vaxta í 6%, sem gildir einnig vegna eldri lána með breytilegum vöxtum, lækkar mánaðarleg greiðslu- byrði algengs lífeyrissjóðsláns að eft- irstöðvum 700.000 krónur með 12 ára lánstíma úr 8.835 krónum í 8.272 krónur eða um 6,4%. Mánaðarleg greiðslubyrði lífeyrissjóðsláns að fjár- hæð 1.000.000 krónur til 15 ára lækkar úr 11.271 krónu í 10.459 krónur eða um 7,2%. Við útreikning- inn er gengið út frá 1% verðbólgu á Lögregla og Björgunarsveitar- menn á Suðvestanverðu landinu áttu annríkt í gærkvöldi við að hefta fok í hvassviðrinu. í Reykjavík höfðu 60-70 björgunarsveitarmönnum sem kallaðir höfðu verið út borist á annan 35% meðaltalshækkun bifreiðagjalda Ríkisstjórnin stefnir að því að halli á fjárlögum verði ekki meiri en ráð var fyrir gert í fjárlaga- frumvarpinu. Nú er unnið að því að ganga frá frumvörpum vegna tekjuöflunar og útgjalda á næsta ári og var farið yfir málið í ríkis- stjórn í gær, en gert er ráð fyrir að þingflokkum stjórnarflokkanna tug beiða um aðstoð vegna hvas- sviðris og foks laust fyrir miðnætti. Ekki var vitað um teljandi tjón. í Innri Njarðvík losnaði þakjám af bílskúr í og einnig slitnuðu land- festar báta í Keflavík. verði kynnt málið í næstu viku. Meðal annars er um að ræða frá- gang vegna tekjutaps af lækkun virðisaukaskatts á matvæli í 14% um áramót og tekjuöflunar vegna þess. Komið hefur fram að tekju- skattur einstaklinga hækkar um 0,35% sem gefur af sér um 700 milljónir í tekjur, tryggingagjald vinnuveitenda hækkar um 0,35%, sem gefur af sér 540 milljónir króna í tekjur, bifreiðagjöld eiga að gefa af sér 450 milljónir í við- bótartekjur sem þýðir að þau hækka að meðaltali um 35%, en hækkunin er útfærð þannig að hún er hlutfallslega meiri á bíla sem eru þyngri en eitt þúsund kíló. Sýslumannsembætti ekki sameinuð Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er er gert ráð fyrir spam- aði í heilbrigðiskerfinu vegna þess að hætt var við 400 milljón króna tekjuöflun með útgáfu heilsukorta, en ekki er frágengið hvort það verði gert með öflun sértekna eða útgjaldaniðurskurði, þó komin sé fram hugmynd um hvernig eigi að mæta þessu tekjutapi. Þá er í útgjaldafrumvarpinu ekki gert ráð fyrir sameiningu sýslumannsemb- ætta og á eftir að útfæra hvernig á að ná þeim sparnaði í dómsmála- ráðuneytinu sem gert var ráð fyr- ir að sameiningin skilaði í fjárlaga- frumvarpinu. Ástæðan fyrir því að ákveðið hefur verið að hætta við álagningu 10% nafnvaxtatekjuskatts um mitt næsta ár, er samkvæmt heimildum Morgunblaðsins að það er talið geta teflt í tvísýnu þeim árangri sem náðst hefur í að lækka vexti, enda hafa bankastofnanir varað við álagningu skattsins. Hins veg- ar er enn í athugun álagning víð- tækari eignatekjuskatts, en óljóst hvaða framgang það mál hefur. í tengslum við kjarasamninga síðastliðið vor var gefið fyrirheit um álagningu 10% skattsins á nafnvexti, en í haust var horfið frá því þar sem tæknileg úrvinnsla var ekki nógu langt komin og ákveðið að skatturinn kæmi til framkvæmda um mitt ár. ,,Magic“ með lið til Islands á næsta ári? MIKLAR líkur eru á að banda- ríska körfu boltíistjarnan Ear- vin „Magic“ Johnson komi til íslands næsta vor með úrvalslið sitt og leiki hérlendis, skv. heimildum Morgunblaðsins. Skipulagning ferðar úrvalsliðs „Magics“ um Evrópu stendur yfir og nær öruggt er að ísland verði einn af viðkomustöðunum skv. upplýsingum sem Morgunblaðið fékk í Bandaríkjunum í gær. „Magic“ Johnson er einn fræg- asti körfuknattleiksmaður heims. Hann lék lengi með Los Angeles Lakers og varð fimm sinnum NBA-meistari með liðinu. Þrisvar var hann kosinn besti leikmaður deildarkeppninnar og jafn oft hlaut hann þann titil í úrslita- keppninni. Hann var annar tveggja fyr- irliða banda- ríska „draumaliðsins" sem sigraði í körfuknattleikskeppni Ólympíu- leikanna í Barcelona í fyrra. „Magic“ er smitaður af HlV-veir- unni, sem getur valdið alnæmi, og hætti þess vegna að keppa með liði Lakers. Hann hefur ferð- ast talsvert um með úrvalslið sitt og keppt, en í því hafa verið gam- alkunnir leikmenn úr NBA-deild- inni. án. Sjá einnig fréttir á miðopnu. 190 unglingar úr Borg- arnesi komust ekki heim 180-190 unglingar úr Borgarnesi gistu í félagsmiðstöðinni Hinu húsinu í Reykjavík í nótt þar sem þeir ekki þótti óhætt að láta þá halda heim- leiðis vegna hvassviðris sem geisaði um suðvestanvert landið í gær- kvöldi og nótt. Um miðnætti fór rafmagn af í Mosfellsbæ og Grafar- vogi. Ekki var vitað um teljandi tjón vegna foks um miðnætti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.