Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C/D
276. tbl. 81.árg.
FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Viðræðurnar um GATT í Brussel
Segja samninga
í burðarliðnum
Brussel. Reuter.
VEL gekk í viðræðum Evrópubandalagsins, EB, og Bandaríkj-
anna um nýjan GATT-samning í gær og kváðust samninga-
mennirnir vera bjartsýnir á, að hægt væri að ganga frá síð-
ustu atriðunum á mánudag. „Eg bjóst ekki við, að árangurinn
yrði jafn mikill og raun ber vitni,“ sagði Sir Leon Brittan,
viðskiptafulltrúi EB, á fréttamannafundi í gær. „Lokasam-
komulag Bandaríkjanna og EB er farið að taka á sig mynd.“
Mickey Kantor, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, tók undir það
og sagði, að í landbúnaðarmálunum væri að nást sátt, sem öll
EB-ríkin, þar á meðal Frakkar, gætu stutt.
Reuter
Yonglaðir samningamenn
MJOG létt var yfir þeim Mickey Kantor, viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna, og Sir Leon Brittan, viðskipta-
fulltrúa Evrópubandalagsins, á fréttamannáfundi í Brussel í gær enda segjast þeir vera farnir að sjá
fyrir endann á nýjum samningi 115 ríkja um aukið frelsi í heimsviðskiptum. Þeir Kantor og Brittan
eiga ýmislegt sameiginlegt. Þeir eru jafn gamlir, 54 ára, lögfræðingar að mennt, gyðingar og báðir
af litháískum ættum.
Áform um samruna Ren-
ault og Volvo úr sögunni
Vantraust á Gyllenhammar sem hefur sagt af sér sem stjórnarformaður
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
MESTU sviptingar, sem um getur í sænsku viðskiptalífi, virð-
ast nú vera að ganga yfir. Stjórn Volvo ákvað á fundi í Stokk-
hólmi í gær að hætta við fyrirhugaðan samruna við franska
bifreiðaframleiðandann Renault. Það voru framkvæmdastjórar
fyrirtækisins og hópur hluthafa, sem þvinguðu fram þessa
niðurstöðu. Um leið tilkynnti Pehr Gyilenhammar að hann léti
af störfum sem stjórnarformaður.
Brittan sagði á fréttamannafund-
inum, að stefnt væri að því að ljúka
samningum á mánudag þegar þeir
Kantor hittust aftur í Brussel en
embættismenn EB og Bandaríkj-
anna myndu vinna hörðum höndum
um helgina að ýmsum lokafrá-
gangi. Mike Espy, landbúnaðarráð-
herra Bandaríkjanna, og Rene
Steichen, landbúnaðarfulltrúi EB,
voru jafn bjartsýnir á að deilan um
landbúnaðarmálin væri að leysast.
Kantor sagði einnig, að samkomu-
lag um þjónustustarfsemi væri að
mestu í höfn að undanskildum kvik-
myndum og tónlistarefni.
Balladur vill samninga
Edouard Balladur, forsætisráð-
herra Frakklands, sagði í gær á
fundi með frönskum iðnrekendum,
að ljúka yrði við GATT-samning-
ana. „Ég vil forðast viðskiptastríð
þótt ég taki ekki undir með þeim,
sem spá næstum heimsendi dragist
Auka hlut-
verk VES
Brussel. Reuter.
Utanríkisráðherrar Atl-
antshafsbandalagsins (NATO)
samþykktu í gær að stuðla að
auknu hlutverki Vestur-Evr-
ópusambandsins (VES) með
tilliti til vaxandi, pólitísks
mikilvægis Evrópubandalags-
ins og fækkunar í bandaríska
herliðinu í álfunni. Verða VES
heimiluð afnot af herstöðvum
og öðrum búnaði NATO komi
upp ástand, sem sambandið
vill hafa afskipti af en NATO
ekki.
Samþykktin verður formlega
lögð fyrir leiðtogafund NATO-ríkja
í næsta mánuði en Bandaríkjastjórn
hafði áður áhyggjur af, að tækju
Evrópuríkin innan NATO varnar-
málin meira í sínar hendur, gæti
það grafið undan bandalaginu. Nú
hefur hún snúið við blaðinu og vill
auka hlutverk Vestur-Evrópusam-
bandsins.
Á fundinum í Brussel var sam-
þykkt að veita ekki Austur-Evrópu-
ríkjum aðild að NATO í náinni fram-
tíð en þess í stað styður bandalagið
hugmyndir um náin hernaðarleg
tengsl við Austur-Evrópuríki og
fyrrum lýðveldi Sovétríkjanna undir
kjörorðinu, „Friðarsamstarf" og er
talið að samþykkt verði að þær
verði aðalefni NATO-fundarins.
samningarnir eitthvað, en skoðun
mín er skýr: Góðir GATT-samning-
ir koma okkur vel og því styð ég
þá,“ sagði hann við iðnrekendur,
sem telja allt undir því komið, að
samningar náist. Yfirlýsing Ballad-
urs er talin vísbending um, að
Frakkar muni ekki bregða fæti fyr-
ir samningana en Alain Juppe, ut-
anríkisráðherra Frakklands, sagði
hins vegar í gær, að enn væri margt
óljóst og því væri best að láta allar
yfirlýsingar bíða mánudagsins.
Þegar stjórnarformenn Renault
og Volvo kynntu áætlanir um fyrir-
hugaðan samruna 6. september síð-
astliðinn benti allt til að þær my.ndu
ganga greiðlega í gegn í báðum
fyrirtækjunum. Fyrirhugað var að
Volvo ætti 35% prósent í nýja fyrir-
tækinu og Renault 65%. Fljótlega
vöknuðu þó efasemdir meðal hlut-
hafa Volvo og ýmissa leiðandi
manna innan fyrirtækisins um að
hag fyrirtækisins væri vel borgið í
nýja fyrirtækinu.
Efasemdir um einkavæðingu
Renault er ríkisfyrirtæki, sem á
að einkavæða eftir samrunann, en
í Svíþjóð tortryggðu menn þær
áætlanir. Auk þess vöknuðu ýmsar
spurningar um hvernig fyrirtækin
og um leið styrkur þeirra og eignar-
hlutfall væri metið og eins vakti
það tortryggni að Renault-menn
höfðu rétt til að hindra að nokkur
einn aðili eignaðist meira en tuttugu
prósent í nýja fyrirtækinu.
Nú i vikunni virðist svo forstjóri
Volvo, Sören Gyll, hafa haft frum-
kvæði að þvi að þjappa saman hópi
hluthafa og leiðandi manna í fyrir-
tækinu, meðal annars fulltrúa
starfsmannafélaganna, en frá upp-
hafi hefur verið reiknað með, að
ekki yrði hægt að framkvæma
samrunann nema starfsfólkið tryði
á hann.
Óvæntur stjórnarfundur
í gær hélt stjórn Volvo svo óvænt
fund, þar sem ákveðið var að leggja
sameiningaráætlanirnar ekki fyrir
hluthafafund á þriðjudaginn eins og
áætlað hafði verið. A stjómarfundin-
um kom í ljós að allir yfirmenn
Volvo eru á móti sameiningunni.
Pehr Gyllenhammar tilkynnti þá að
hann myndi segja af sér enda hefur
frá upphafi verið ljóst að hann var
einn helsti hvatamaður að fyrirætl-
uðum samruna. Hann sagði að hann
hefði alla tíð freistað þess að koma
Volvo og framleiðslu fyrirtækisins á
heimsmælikvarða og áætlanirnar
um samruna við Renault hefðu verið
hluti af þvi markmiði. Þar sem þessi
stefna ætti sér ekki hljómgrunn inn-
an fyrirtækisins, kysi hann að segja
af _sér.
í höfuðstöðvum Volvo í Gauta-
borg gætti mikils léttis meðal starfs-
fólksins en því var þó lýst yfir að
haldið yrði áfram náinni samvinnu
við Renault. Eru lyktir þessa máls
einnig taldar áfall fyrir frönsku
stjórnina og geta haft áhrif á fyrir-
hugaða einkavæðingu Renault.
Kókaínkóngurinn felldur
Mcdellin. Reuter.
LÖGREGLAN í Kólombíu skaut í gær til bana eiturlyfjakónginn
Pablo Escobar í borginni Medellin. Kom til skotbardaga þegar
hann reyndi að komast hjá handtöku en lögreglan hafði komist
að verustað hans í borginni og girti hann af með hundruðum vopn-
aðra manna. Fárra manna hefur verið leitað meira en Escobars
og höfðu verið settar meira en 400 milljónir ísl. kr. honum til höfuðs.
Escobar var foringi Medellin-
kókaínhringsins og var eftirlýstur
í Bandaríkjunum og Kólombíu fyrir
eiturlyfjasölu og hryðjuverk. Þegar
lögreglan fékk veður af því, að
hann héldi til í verslanamiðstöð í
Medellin, stefndi hún þangað meira
en 500 vel vopnuðum mönnum, sem
umkringdu húsið. Escobar greip
hins vegar til byssunnar þegar átti
að handtaka hann og var hann þá
skotinn ásamt öðrum manni.
Gustavo De Greiff ríkissaksóknari
sagði í gær, að endalok Escobars
væru „sigur fyrir land og þjóð“.
Stjómvöld í Kólombíu hafa verið
í stríði við eiturlyfjasamtökin í land-
inu síðan 1982 og Escobar, sem
tókst að flýja úr fangelsi fyrir hálfu
öðru ári, skipulagði sprengjutilræði
og hryðjuverk frá því í desember
fyrir ári og fram á síðasta vor.
Pablo Escobar