Morgunblaðið - 03.12.1993, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993
Enn árangurslaus leit að sjómanninum á Breiðafirði
Leitað í ejg-
um og fjörum
Á ANNAÐ hundrað björgunarsveitarmanna og sjómanna leitaði í
gær að manninum sem saknað er eftir að smábátnum Onnu SH
hvolfdi í innanverðum Breiðafirði í fyrradag. Leitað var í eyjum
og skeijum og fjörur gengnar. Leitin var árangurslaus. Maðurinn
heitir Gísli G. Kristjánsson, 51 árs, fæddur 21. apríl 1942, til heimil-
is á Bókhlöðustíg 3 í Stykkishólmi. Hann er kvæntur og á tvær
uppkomnar dætur og eina fósturdóttur.
Félagar úr björgunarsveitum frá
Akranesi, Borgamesi, af norðan-
verðu Snæfellsnesi og Dalasýslu
tóku þátt í leitinni í gær ásamt
sjómönnum úr Stykkishólmi. Mið-
stöðvar leitarinnar voru í Breiða-
fjarðarferjunni Baldri og Hafrúnu,
báti Eyjaferða. Farið var á gúm-
bátum í eyjar og sker. Einnig voru
gengnar fjörur úr Hvammsfirði að
mynni Álftafjarðar. Að sögn Eð-
varðs Ámasonar yfirlögregluþjóns
var þokkalegt leitarveður.
I dag er fyrirhugað að leita fjör-
ur í Alftafirði og vestur fyrir
Stykkishólm.
Taldi sig sjá bát á hvolfi
Benedikt Jónsson, tæplega tví-
tugur maður í Stykkishólmi, taldi
sig hafa séð bát á hvolfí og tvo
menn á kili í hádeginu í fyrradag
og varð það til þess að farið var
að leita að Önnu SH. Benedikt
sagðist í gær hafa litið út um
gluggann þegar hann kom heim í
mat og þá rekið augun í eitthvað
óvenjulegt við Æðarsker. Það hefði
rekið frá og verið of lítið til að
geta verið bátur. Hann sagðist
hafa farið yfír í næsta hús til að
fá lánaðan sjónauka. Hann sagðist
ekki hafa séð þetta skýrt en talið
að það væri bátur á hvolfi með
tveimur mönnum á kili. Benedikt
sagði að fólk hefði í fyrstu talið
þetta vitleysu í sér en þegar hann
hefði borið þetta undir menn í
næsta húsi og þeir verið sammála
honum og þá hefðu þeir látið lög-
regluna vita.
Æðarsker er skammt út af
Stykkishólmi en báturinn og kass-
ar úr honum fundust miklu aust-
ar. Eðvarð Árnason yfirlögreglu-
þjónn sagði að lögreglan teldi að
Gísli G. Kristjánsson.
slysið hefði orðið áður en Benedikt
taldi sig fyrst sjá bátinn á hvolfi
en hins vegar væri útilokað að
hægt hefði verið að sjá hann frá
Stykkishólmi, að minnsta kosti á
þeim tíma sem talið væri að slysið
hefði orðið. Hann sagði að á svip-
uðum tíma hefði maður verið á lít-
illi trillu við Æðarsker. Hann hefði
stöðvað bátinn til að losa þang úr
skrúfunni. Þessi trilla væri með
háu stýrishúsi og úr fjarlægð gæti
litið svo út að tveir menn væru á
henni. En hvað sem Benedikt hefði
séð hefði það leitt til þess að farið
var að huga að bátum á þessu
svæði.
Stendur upp á banka
að fara jafnhratt nið-
ur og þeir fóru upp
- segir Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra
SIGHVATUR Björgvinsson, viðskiptaráðherra, segir að það sé auð-
séð að nafnvextir bankanna hafi ekki fylgt eftir þeirri lækkun sem
orðið hafi annars staðar á markaðnum. „Skýringarnar eru að sjálf-
sögðu þær að afkoma bankanna virðist vera mjög erfið. Þeir eru
enn að afskrifa og þeir virðast sækja sér fé til þess með því að halda
nú nafnvöxtunum uppi meira en ástæða er tíl,“ sagði Sighvatur, en
í Hagtölum mánaðarins kemur fram að verulegur munur er á raun-
ávöxtun vertryggðra og óverðtryggðra útlána.
Aðspurður sagði hann fímm pró-
sentustiga mun á verðtryggðum og
óverðtryggðum lánum alltof mik-
inn. „Þeir sögðust sumir fara jafn
hratt niður með nafnvextina eins
og þeir fóru upp þegar smá verð-
bólguskot kom í sumar í kjölfar
gengisfellingar og það stendur nú
upp á þá að fara jafnhratt niður
og þeir fóru upp,“ sagði Sighvatur.
Ekki staðið við fyrirheit
Hann sagði það ljóst að bankarn-
ir hefðu ekki staðið við þetta fyrir-
heit. Aðspurður um orð seðlabanka-
stjóra í Morgunblaðinu í gær að
erfið afkoma og fákeppni sé ástæð-
an fyrir háum nafnvöxtum, sagði
Sighvatur að það þyrfti að stórauka
aðhald að bönkunum og samkeppni
á vaxtamarkaðnum.
Lækka eftir áramót
Alþingi í gær vitnaði Ólafur Rangar
Grímsson, Alþýðubandalagi, til
baksíðufréttar Morgunblaðsins 2.
desember þar sem segir að raun-
ávöxtun óverðtryggðra útlána séu
12,2 til 16,6%. Ólafur Ragnar
spurði forsætisráðherra hvort þetta
sýndi ekki að aðgerðir ríkisstjórnar-
innar til að lækka vexti hefðu
brugðist.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, sagði að kaup á ríkisskulda-
bréfum sýndu að því væri treyst
að vaxtalækknunin væri raunveru-
leg. Óraunhæft væri að ætla að
dæma vaxtaþróunina út frá einum
vaxtadegi. Enginn vafi væri á að
bankarnir myndu fylgja í kjölfarið
og lækka sína vexti, ekki síst eftir
að jafnvægi kæmist á þegar binding
innlánsbóka bankanna losnaði um
áramótin.
í umræðum um fjáraukalög á
Sjá einnig miðopnu.
Sighvatur Bjamason, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum
Danskir
Kemur vonandi ekki til op-
inberrar kæru á Kristj án
VINNSLUSTÖÐIN hf. hefur sent bankaráði íslandsbanka hf. bréf og
lögfræðilega álitsgerð um ummæli Kristjáns Ragnarssonar, formanns
bankaráðsins, um „gríðarlega fjárhagserfiðleika fyrirtækisins" og
óábyrga afstöðu framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Kristján Ragnars-
son, formaður LÍÚ og formaður bankaráðs íslandsbanka, vildi í gær
ekkert um málið segja. Sagði aðeins að væntanlega yrði erindi
Vinnslustöðvarinnar tekið fyrir á bankaráðsfundi bráðlega.
„Ég reikna með því að stjóm
Vinnslustöðvarinnar muni taka
ákvörðun um það hvert næsta skref
verður, ef engin eða óviðunandi svör
berast frá íslandsbanka,“ sagði Sig-
hvatur Bjamason, framkvæmda-
stjóri Vinnslustöðvarinnar, í samtali
við Morgunblaðið í gær. Aðspurð-
ur hvort hann ætti við opinbera
kæm á hendur Kristjáni Ragnars-
syni vegna ummæla hans, svaraði
Sighvatur: „Ég vona nú í lengstu
lög að til kæru þurfi ekki að
koma. Ég bara trúi því ekki og
held að menn hljóti að geta leyst
þetta á annan hátt.“
Það er mat lögfróðra manna,
sem rætt var við í gær, að Vinnslu-
stöðin eigi um tvær leiðir að ræða,
telji stjórn fyrirtækisins viðbrögð
íslandsbanka og formanns banka-
í dag
Dagur fatlaðra__________________
Eitt samfélag fyrír alla - fatlaða
líka er eitt af baráttumálum
Þroskahjálpar 22
Kristján Jóhannsson
Fær bæjarlykil í viðurkenningar-
skyni frá Akureyrarbæ 25
Kanslari i vondri stöðu
„Ragnarök" sögð vofa yfir Helmut
Kohl í kjölfar hneykslismáls 26
Ixiðarí_________________________
Stýring á neyzlu mjólkurafurða 29
ráðsins óviðunandi: Annars vegar
verði hægt að höfða einkarefsi-
mál á hendur Kristjáni Ragnars-
syni, eða með öðrum orðum meið-
yrðamál. Öðru máli gegnir hins
vegar, vilji Vinnslustöðin kæra
formann bankaráðsins vegna
brots á 43. grein bankalaganna,
sem tekur til bankaleyndar. Þar
gæti orðið um kæm að ræða, sem
yrði beint til saksóknara, með
kröfu um rannsókn og eftirfar-
andi ákæru. Yrði um málshöfðun
að ræða af hálfu Vinnslustöðvar-
innar, er talið fullvíst, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins, að
síðari leiðin, opinber kæra, yrði
fyrir valinu.
Sjá ennfremur lögfræðilega
álitsgerð Viðars Más Matthías-
sonar á bls. 18 og 19.
Fasteignir
► Félag fasteignasala tíu ára -
Nýtt stórhýsi í Hafnarfirði -
Markaðurinn - Smiðjan — Lagna-
fréttir
Morgunblaðið/Sverrir
Fjögurra bíla árekstur
MAÐUR var fluttur á slysadeild eftir árekstur fjögurra bíla, þar á meðal
strætisvagns, við mót Bústaðavegar og Litluhlíðar laust eftir klukkan 10
í gærmorgun. Meiðsli mannsins vora ekki hættuleg, samkvæmt upplýsingum
lögreglu. Alls urðu 17 árekstrar í Reykjavík frá morgni fram yfir hádegi,
en þá var talsverð hálka á götum borgarinnar og gekk á með éljum.
JÍlotöunHnMb
Félag fasteignasala
10 ára
fto («.VrvD,1mC lo.UV*V«V I <Í4f* l*%l ctyOAfclL
Mikill ábyrgöarliluti að
varóveha þjóðarauðinn
Fosteignir
Daglegt líf
► Afmælisblað: í fótspor Einars
Ben - Öryggi kaupenda og selj-
enda stórbatnað — Vinnubrögð
vandaðari en áður
► Rykmaurar og kattaofnæmi
- Þorsteinn Sæberg skólasljóri -
um slæður - Hótel mánaðarins -
Svalbarði, nýr ferðamannastaður
- Viðdvalarfarþegar í Bláa lónið
símasérfræð-
ingar á leið
til landsins
HALLDÓR Blöndal samgöngu-
ráðherra mun í dag eiga fund
með Ólafi Tómassyni, póst- og
síinamálasljóra, þar sem m.a.
verða til umræðu síendurteknar
bilanir í stafrænu símstöðinni í
Landsímahúsinu. Sérfræðingar
frá Danmörku eru væntanlegir
til landsins vegna þessa en að
sögn Ólafs hafa danskir og ís-
lenskir sérfræðingar unnið stöð-
ugt að lausn á málinu og nemur
kostnaður við leitina milþ'ónum
króna. Ólafur sagði að um þessar
mundir væri verið að koma fyrir
sérstökum línum fram hjá staf-
rænu símstöðinni til nokkurra
aðila, þar á meðal lögreglu, til
þess að símsamband haldist óháð
bilunum í stafrænu stöðinni.
í gær datt starfræna stöðin í
Landsímahúsinu út í 45 mínútur
og varð fjöldi númera sem byijar
á 1, 61 og 62 sambandslaus auk
fyrirtækja sem eru með beint inn-
val á stöðinni. Undanfamar vikur
°g mánuði hafa fjölmargar sams
konar bilanir orðið. Ólafur Tómas-
son sagði að vitað væri að í stöð-
inni væri að finna sams konar galla
°g fyndist í fjölmörgum sams kon-
ar stöðvum annars staðar í heimin-
um en ekki væri vitað hvað ylli því
að meðan gallinn truflaði ekki
starfsemi hinna erlendu stöðva
tækist ekki að komast fyrir hann
hér á landi.
Athygli að rafkerfi
Ólafur sagði að nú beindist at-
hygli sérfræðinga m.a. að rafkerfi
Landsímahússins og væri verið að
yfirfara það og jarðsamband í því
nákvæmlega ef eitthvað fyndist
sem ylli útleiðslu. Ólafur sagði að
ekki hefði verið kannað hvort um
sé að kenna skemmdum á rafkerfí
hússins vegna eldsvoðans í Land-
símahúsinu fyrir um 2 árum.
Ólafur Tómasson sagðist harma
þær tafir og óþægindi sem ástand
þetta ylli símnotendum. Hann
kvaðst fullvissa notendur um að
öHu væri tjaldað til að leita orsaka
vandans og úrbóta.