Morgunblaðið - 03.12.1993, Síða 14
• GÆPIN ERU HJÁ OKKUR!» •GÆPIN ERU HJÁ OKKUR'* «GÆPIN ERU HJÁ OKKUR!*
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993
•GÆPIN ERU HJÁ OKKUR!*
Hundakexið
NOATUN
Jólin nálgast!!
Bókmenntir
fi>
Rl
Sigurður Haukur Guðjónsson
Höfundur texta: Einar Már Guð-
mundsson. Myndskreyting: Erla
Sigurðardóttir. Prentverk: Prent-
smiðja Árna Valdemarssonar hf.
Utgefandi: Almenna bókafélagið
hf.
Bráðsnjöll hugmynd að minna
aldna og unga á, hver hætta getur
hlotizt af dæmalausu kæruleysi okk-
ar við margar húsbyggingar.
Gapandi grunnar; uppsláttur;
vinnupallar; vinnuvélar, allt eru þetta
manandi áskoranir til tápmikilla
krakka um að reyna fími og þor.
Hrein mildi, að ekki skuli oftar hljót-
ast slys af, og sú tíð hlýtur að koma,
að foreldrar láti ekki kæruleysi
sumra sljógva dómgreind sína svo,
að þeir taki að álykta, að slysagildr-
ur og húsbyggingar hljóti að fylgjast
að. Þetta er höfundur að minna okk-
ur á, leiðir því strákalingana Bjössa
og Magga til sögu. Bjössi telur sig
mikinn karl, þakkar það hundakexi,
er hann kallar svo. Hann manar og
Maggi fylgir eftir. Þeir koma að yfir-
gefnum vinnustað, og príla sem mót
leyfa. Bjössi fellur í gildru, og Maggi
hleypur til að ná í hjálp. Mamma er
nærtækust, en er þau koma á stað-
inn, höfðu byggingamenn mætt og
heldur betur látið hendur standa
fram úr ermum, rennt steypu í mót-
in, líka þau er Bjössi hafði fallið í.
Skelfing martraðar grípur um sig,
Einar Már Guðmundsson
en í bókarlok breytist hún í gleðifund.
Höfundur segir frá á látlausan
hátt, en hefði mátt vanda sumar
setningar betur: „Aðeins regnið
drippaði niður.“; „Maggi fann hvern-
ig orðin brutust um í höfðinu á
mömmu hans.“ Einar Már kann ör-
ugglega betur til verka.
Myndir Erlu eru bráðvel gerðar.
Listakonan dregur til þeirra, svo að
gleður augu og auðgar ímyndunar-
afl, eru því gersemar.
Prentverk allt mjög vel unnið.
Athyglisverð, vekjandi bók.
Nauta Innralæri
gúllas snitzel "Roast beef"
799r» 899, d) i. 00 O) CM ■
"Stroganoff" "Prime ribs" Nautalundir
998r 998. 1 .899mkt'
Svínakjöt: Nýslátrað
Svínabógar Svínalæri Svínahnakki
486■ 486■1,9 í sneiöum 688■kg
Svfna Bayonne Hamborgar
kótilettur skinka hryggur
799r 949: 899:9
000S300 Nóatún 17 - S. 617000 Hamraborg 14, Kóp. - S. 43888
Rofabæ 39-S. 671200
Laugavegi 116-S. 23456
JL-húsinu vestur i bæ - S. 28511
Furugrund 3, Kóp. - S. 42062
Þverholti 6, Mos. - S. 666656
0
S
Z
m
39
C
l
o
*
*
c
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins
Pétur Jónasson held-
ur einleikstónleika
PÉTUR Jónasson gítarleikari
heldur tónleika í Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins næstkomandi
laugardag, 4. desember, kl. 17. Á
efnisskrá verða verk eftir
spænska höfunda frá 19. öld og
eru tónleikarnir jafnframt fyrstu
einleikstónleikar Péturs í Reykja-
vík síðan árið 1986.
Pétur nam gítarleik fyrst hjá Ey-
þóri Þorlákssyni og stundaði fram-
haldsnám hjá Manuel López Ramos
í Mexíkóborg og José Luis González
á Spáni. Hann hefur komið fram á
tónleikum sem einleikari í tuttugu
löndum, gert fjölmargar útvarps- og
sjónvarpsupptökur og leikið inn á
hljómplötur og geisladiska, m.a. verk
sem samin hafa verið fyrir hann sér-
staklega. Árið 1986 var hann einn
tólf gítarleikara sem valdir voru til
þess að leika fyrir Andrés Segovia á
námskeiði sem haldið var í Los Ang-
eles. Pétur hlaut SONNING-heiðurs-
styrkinn í Kaupmannahöfn árið 1984
og var tilnefndur til Tónlistarverð-
launa Norðurlandaráðs árið 1990.
Pétur sagði í samtali við Morgun-
blaðið að verkin á efnisskrá tónleik-
anna væru frá rómantísku tímabili,
Pétur Jónasson
hefðu öll verið samin milli 1850 og
1950 og höfundar þeirra verið samt-
íðarmenn á Spáni. Ný á efnisskrá
fyrir reykvíska áheyrendur eru verk
eftir Federico Garcia Lorca, Enrique
Granados og Isaac Albéniz.
Ljóðabók eftir
Kristleif Björnsson
• GÆÐIN ERU HJA OKKUR!
Út er komin Ijóðabókin Logn
eftir Kristleif Björnsson,
fyrsta bók höfundar. Hann
sýnir einnig Ijósmyndir eftir
sig á Egilsstöðum um þessar
mundir.
Mörg ljóðanna í Logni eru í
tönku- og hækustíl, yfirleitt stutt
ljóð sem spegla hugrenningar ungs
manns. Ljóðin eru 77 að tölu og
skiptast í þrjá kafla.
Logn er útgefin af höfundi
og að öllu leyti unnin af honum.
Hún er prentuð í litlu upplagi
og kostar 800 krónur.
Kristleifur Björnsson