Morgunblaðið - 03.12.1993, Síða 18

Morgunblaðið - 03.12.1993, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 Öll kvöld frá 26. nóvember í hádeginu frá fimmtudegi til sunnudags og öll hádegi síðustu vikuna fyrir jól. Yerð: 1.950.- í hádeginu og 2.400.- á kvöldin Salir fyrir 40- 130 manna hópa m.a. Háteigur á efstu hæð með útsýni yfir borgina. . ■ ■ m «■ ■ , BORGARTUNI 20 sími 626788 HÁRBLÁSARAR FYRIR JÓLAGREIÐSLUNA VERÐ FRÁ Fjölmiðlaumfjöllun réttlæt- ir ekki ummæli Krisljáns Lögfræðileg álitsgerð vegna ummæla formanns bankaráðs íslandsbanka Upplýsingar um umboðsaöila hjá Gulu línunni í 241. gr. sömu laga er ákvæði, sem heimilar að dæma óviður- kvæmileg ummæli ómerk, svo og ákvæði, sem heimilar að dæma þann, sem sekur gerist um þá hátt- semi, sem t.d. er lýst í 235. gr. til þess að greiða hæfilega fjárhæð til að kosta birtingu dóms í opinberu blaði eða riti. í 1. gr. 1. 71/1928 um vernd at- vinnufyrirtækja gegn óréttmætum prentuðum ummælum segir svo: „Hlutafélög, samlagsfélög, sam- vinnufélög og önnur atvinnufyrir- tæki, þar með talið þau, er rekin eru af hálfu hins opinbera, skulu njóta sömu lagaverndar sem ein- stakir menn gegn óréttmætum prentuðum ummælum, sem fallin eru til að hnekkja atvinnurekstri þeirra." Loks er rétt að benda á 43. gr. 1. 43/1993 um viðskiptabanka og sparisjóði, sem hljóðar svo: „Banka- ráðsmenn, stjórnarmenn sparisjóðs, bankastjórar og sparisjóðsstjórar, endurskoðendur og aðrir starfs- menn viðskiptabanka eða sparisjóðs eru bundnir þagnarskyldu um allt það er varðar hagi viðskiptamanna hlutaðeigandi stofnunar og um önn- ur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls nema dómari úrskurði að upplýs- ingar sé skylt að veita fyrir dómi eða lögreglu eða skylda sé til að veita upplýsingar lögum sam- kvæmt. Þagnarskyldan helzt þótt látið sé af starfi." Samkvæmt 100 gr. í lögum 43/1993 um viðskiptabanka og sparisjóði, skal refsa fyrir brot á lögunum með sektum eða varð- haldi, liggi ekki þyngri refsing við broti samkvæmt öðrum lögum. 3. Mat á réttaráhrifum ummælanna Ákvæði almennra hegningar- laga nr. 19/1940. Þegar það er metið, hvort hin tilvitnuðu ummæli Kristjáns Ragn- arssonar fari í bága við 229. gr. almennra hegningariaga, er til þess að líta, að ákvæðið hefur verið skil- ið svo, að það verndi ekki eingöngu friðhelgi einstaklinga, heldur einnig félaga og samtaka1. Má reyndar einnig um þetta vísa til hins tilvitn- aða ákvæðis í lögum 71/1928, sem veita atvinnufyrirtækjum sömu vernd og einstaklingum gegn prent- uðum ummælum. Skilja ber orðin „prentuð ummæli“ svo, að það taki einnig til ummæla, sem birtast með öðrum opinberum hætti t.d. í út- varpi eða sjónvarpi. Það ræður engum úrslitum við mat á því, hvort 229. gr. almennra hegningarlaga á við eða ekki, hvort einkamálefni þau, sem skýrt er frá séu sönn eða ekki. Það kann hins vegar að horfa til refsiþyngingar, ef þau eru höfð í frammi án þess að vera sönn. Eins og fram kemur í orðalagi ákvæðisins leiðir það ekki til refsingar, ef sá er skýrir opinber- lega frá einkamálefnum annars manns (félags), hefur til þess nægi- legt tilefni. Þess vegna verður að taka afstöðu til þess hér, hvort nægilegt tilefni hafi verið til þeirra ummæla, sem Kristján Ragnarsson viðhafði og hér er vísað til. Kristján hefur sjálfur réttlætt orð sín með því að segja í kvöldfrétta- tíma Ríkisútvarpsins þann 29. nóv- ember 1993, að hann hafi verið að „hafa eftir ummæli forstjóra Vinnslustöðvarinnar sem hann hef- ur borið fram opinberlega, ítrekað meðal annars í blaðaviðtali þar sem hann lýsir fjárhagsstöðu hans fyrír- tækis. Mínar ályktanir eru dregnar af þeim upplýsingum og varða ekki íslandsbanka.11 Af þessu tilefni hef ég farið yfir viðtöl við fyrirsvarsmenn Vinnslu- PFAFF RAKVÉLAR FRÁ BRAUN ÞÆGILEGRI RAKSTUR VERÐ FRÁ HÉR fer á eftir lögfræðileg álits- gerð Viðars Más Matthíassonar hrl., sem hann vann fyrir Vinnslustöðina hf. í Vestmanna- eyjum, um réttarstöðu Vinnslu- stöðvarinnar hf. og fram- kvæmdastjóra félagsins vegna tiltekinna ummæla Kristjáns Ragnarssonar, formanns banka- ráðs Islandsbanka hf. og for- manns LIU, í Ríkisútvarpinu (Rás 2) 29. nóvember 1993. 1.Inngangur „Vinnslustöðin hf. og fram- kvæmdastjóri félagsins hafa óskað eftir áliti mínu á því, hver sé réttar- staða félagsins og framkvæmda- stjórans vegna tiltekinna ummæla rvnstjans Ragnarssonar. Ummælin voru viðhöfð í morgunútvarpi Rásar 2 í Ríkisútvarpinu, í viðtali við Leif, Hauksson dagskrárgerðarmann um kvótakerfið o.fl. Þau ummæii Kristjáns Ragnars- sonar, sem hér skipta máli eru eftir- farandi: „... ég tek ekki mikið mark á því þótt einhver einn einstakling- ur í 600 manna hóp, eins og Sig- hvatur Bjarnason í Vestmannaeyj- um, sem er að reka fyrirtæki sem á í gríðarlegum íjárhagslegum erfið- leikum, á hann að vera leiðarljós fyrir samtök útvegsmanna eða fyrir útvegsmenn yfir höfuð um það að taka upp einhveija nýja gjaldtöku á greinina? Nei, ég hafna því algjörlega og tel það ekki skipta nokkru einasta máli, þótt fyrir fínnist einhver ein- staklingur í þessum hópi, sem er svo óábyrgur, eins og fram kemur í afstöðu hans, að mínu mati, vegna þess að hann hefur enga íjármuni, ég fullyrði hann hefur enga fjár- muni, til þess að greiða fyrir ein- hvern rétt til að fara á sjó til að sækja afla, sem er ekki nema þriðj- ungur af því, sem fyrirtæki hans mátti gera fyrir nokkrum árum.“ Eins og fram hefur komið er Krist- ján Ragnarsson formaður banka- ráðs íslandsbanka hf., en hann hef- ur síðar sagt, að ummæli þessi komi því starfi hans ekki við, heldur sé hér um að ræða upplýsingar, sem hann hafi úr opinberum ummælum framkvæmdastjóra Vinnslustöðvar- innar hf. Rétt er að taka fram, að það er erfitt að skilja fyllilega á milli þess, að hvaða leyti þessi ummæli snerta Vinnslustöðina hf. og að hvaða leyti þau snerta framkvæmdastjóra fé- lagsins. Litið er svo á hér, að um- mælin beinist að Vinnslustöðinni hf. að því leyti, sem þau snúast um fjárhagsstöðu, en fullyrðingar um óábyrgni Sighvats Bjarnasonar, framkvæmdastjóra, vita auðvitað að honum persónulega. 2. Gildandi lagaákvæði, sem sérstaka þýðingu hafa Þau lagaákvæði, sem koma helzt til skoðunar þegar hin tilvitnuðu ummæli og áhrif þeirra eru metin og hver réttaráhrif þau hafi, eru eftjrfarandi: í 229. gr. almennra hegningar- laga nr. 19/1940, er svohljóðandi ákvæði: „Hver, sem skýrir opinberlega frá einkamálefnum annars manns, án þess að nægar ástæður séu fyr- ir hendi er réttlæti verknaðinn, skal sæta sektum eða varðhaldi allt að 1 ári.“ Jafnframt er að líta til 235. gr. sömu laga, sem er svohljóðandi: „Ef maður dróttar að öðrum manni einhveiju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka aðdróttun út, þá varðar það sektum eða varðhaldi allt að einu ári.“ ÞAR SEM SMÁTÆKIN FÁST SAMLOKUGRILL GÆÐAGRILL Á GÓÐU VERÐI VERÐ HANDÞEYTARI HANDHÆG JÓLAGJÖF VERÐ FRÁ Við tökum smá forskot á jólin og borð að höfðingja sið. Að sjálfsögðu er allt það besta úr íslenska búrinu, til dæmis heitt og kalt hangikjöt, svið, sviðasulta, rófustappa, rauðkál og laufabrauð. Við lumum einnig á klassískum jólaréttum frá útlöndum og berum fram danska riíjasteik, sænska síldarrétti, gljáð grísalæri, fylltan kalkún og margt fleira girnilegt góðgæti sem ómissandi er á höfðingja- borðum. Einnig jólaglögg að hætti hússins. RIFVÉL FYRIR OSTA, HNETUR, SÚKKULAÐI OG MARGT FLEIRA VERÐ FRÁ Kynnið ykkur gistítilboð í desember. Sigtúni 38 - Allar upplýsingar í síma 689000 - Fax: 680675

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.