Morgunblaðið - 03.12.1993, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993
Treysta
ekki Abk-
hösum
EDÚARD Shevardnadze, for-
seti Georgíu, sagði í gær vilja
tryggingar fyrir því að Abkhas-
ar myndu standa við viljayfirlýs-
ingu þá sem þjóðirnar gerðu á
miðvikudag um að flóttamenn
mættu snúa til síns heima við
Svartahaf. Sagði Shevardnadze
erfitt fyrir Georgíumenn að trúa
því að orð Abkhasa stæðust og
vísaði til vopnahlés þjóðanna
sem Abkhasar rufu í september
Aideed til
friðarvið-
ræðna
MOHAMED Farah Aideed,
stríðsherra í Sómalíu, sam-
þykkti í gær að ganga til friðar-'
viðræðna við höfuðandstæðing
sinn, Ali Mahdi Mohamed, í
Addis Ababa, höfuðborg Eþíóp-
íu. Það er Meles Zenawi, forseti
Eþíópíu, sem boðar til viðræðn-
anna. Hafði Aideed áður neitað
að mæta þar sem hann óttaðist
um líf sitt. Hann hélt til Addis
Ababa í gær.
Gyðingur með-
al frambjóð-
enda fasista
GYÐINGURINN Filippo Fior-
entini hefur vakið mikla reiði
ítalskra gyðinga vegna fram-
boðs hans fyrir flokk nýfasista
í Róm. Seinni umferð borgar-
og sveitastjórnarkosninga fara
fram á Ítalíu á sunnudag. Hefur
Fiorentini verið sakaður um að
svíkja og óvirða minningu þeirra
, gyðinga er létust í síðari heims-
styijöld en hann svarar því til
að nú séu það efnahagsleg at-
riði sem skipti máli en ekki
söguleg.
Afsögn varn-
armálaráð-
herra Japans
VARNARMÁLARÁÐHERRA
Japans, Keisuke Nakanishi,
sagði af sér í gær, vegna harðra
viðbragða á japanska þinginu
er hann óskaði eftir endurbótum
á stjórnarskrá þeirri er gerð
eftir lok síðari heimsstyrjaldar-
innar. í henni er tekið fyrir það
að Japanir stilli til friðar utan
heimalandsins. Nakanishi lagði
til að henni yrði breytt svo að
japanskir hermenn gætu tekið
þátt í aðgerðum á vegum Sam-
einuðu þjóðanna.
Múslimar
neita sam-
komulagi
STJÓRN múslima í Bosníu
kvaðst í gær ekki hafa náð sam-
komulagi við Serba um skipt-
ingu Sarajevo í tvennt í friðar-
viðræðum í Genf. Nokkrum mín-
útum áður hafði Radovan
Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba,
lýst því yfir að þjóðirnar hefðu
náð samkomulagi þess efnis að
múslimar héldu tveimur þriðju
hlutum borgarinnar en Serbar
fengju þriðjung hennar. Auk
þessa lýsti Mohamed Sacibey,
fulltrúi múslima því yfir að þeir
þvertækju fyrir að gefa eftir
land í austur- og vesturhluta
Bosníu.
Kanada styð-
ur NAFTA
STJÓRN ftjálslyndra í Kanada
tilkynnti í gær að hún myndi
styðja Fríverslunarsarnning
Norður-Ameríku (NAFTA).
Reuter
Viðgerðarferð í geiminn
BANDARÍSKU geimfeijunni Endeavour var skotið á loft á Canaveral-höfða í Flórída í gærmorgun. Sex karlar
og ein kona eru í feijunni og hermt er að aldrei áður hafi jafn reynd áhöfn farið í geimferð. Henni er ætlað að
gera við geimsjónaukann Hubble, sem kostaði þijá milljarða dala, eða 216 milljarða króna. Áætlað er að geim-
ferðin kosti jafnvirði 45 milljarða króna.
Fiskveiðar við Svalbarða
Máliðgæti
tapastí Haag
GEIR Ulvstein, lektor við laga-
deild Óslóarháskóla, hélt því
fram í norska ríkisútvarpinu í
síðustu viku að Norðmenn gætu
vel beðið lægri hlut í málaferlum
fyrir alþjóðadómstólnum í Haag
ef látið yrði reyna á kröfur
þeirra um yfirráð fiskvemdar-
svæðis við Svalbarða.
Ulvstein segir Norðmenn ósam-
mála flestum öðrum þjóðum um
túlkun á Svalbarðasamningnum frá
1920. Að Finnum einum undan-
skildum telji þær allar að sérstakur
réttur Norðmanna gildi aðeins um
fiskveiðar innan fjögurra mílna en
ekki innan 200 mílna svæðisins.
Hann álítur norsk stjómvöld forðast
að láta málið fara fyrir dómstólinn.
Hann gæti að vísu úrskurðað að
það sé hlutverk Noregs að setja
reglur um nýtingu svæðisins innan
200 mílnanna en þær verði á hinn
bóginn að grundvallast á jafnrétti
allra þjóða.
Fréttamaðurinn sem ræddi við
Ulvstein bætti því síðan sjálfur við
að íslendingar hefðu aldrei viður-
kennt rétt alþjóðadómstólsins til að
úrskurða í fiskveiðideilum og þess
vegna væru þeir hikandi við að
stefna Norðmönnum í Haag.
Þýskir fjölmiðlar telja stöðu Helmuts Kohls veikari en nokkru sinni fyrr
„Ragnarök kanslarans“
sögð vera yfirvofandi
Bonn. Reuter.
STAÐA Helmuts Kohls, kanslara Þýskalands, hefur líklega aldrei ver-
ið veikari en nú, í kjölfar þess að Steffen Heitmann, forsetaefni kansl-
arans, dró sig í hlé vegna mikillar gagnrýni og hneykslismáls í sam-
bandslandinu Sachsen-Anhalt. Sagði öll ríkisstjórn sambandslandsins,
þar sem kristilegir demókratar voru í meirihluta, af sér í byijun vikunn-
ar eftir að ríkisendurskoðun Þýskalands sagði ráðherra þar hafa greitt
sér hærri laun en leyfilegt var. Töldu flestir þýskir fjölmiðlar jafnvel
líkur á að valdatíma Kohls myndi ljúka með þingkosningunum í septem-
ber á næsta ári.
„Hversu lengi til viðbótar getur
núverandi samsteypustjóm [kristi-
legra demókrata og fijálsra demó-
krata] eiginlega þraukað,“ spurði hið
íhaldssama dagblað Frankfurter All-
gemeine Zeitungí fyrirsögn á forsíðu
og í flestum öðrum helstu blöðum
Þýskalands var að finna svipaðar
vangaveltur. Sum hlökkuðu jafnvel
yfir óförum kanslarans líkt og vinstri
Berlínarblaðið Tageszeitung. „Allir
þeir sem hafa litla samúð með flokki
Kohls og hafa lengi beðið eftir að
hann myndi hrökklast frá völdum
þurfa nú bara að halla sér aftur á
bak og bíða ... Þetta verður gam-
an.“
Á sunnudag verður kosið í sam-
bandslandinu Brandenburg í norð-
austurhluta landsins og er búist við
að þá muni flokkur kanslarans, CDU,
bíða mikinn ósigur. Á næsta ári verða
svo haldnar nítján kosningar, þar á
meðal þingkosningar. Vikublaðið Die
Zeit minnti á að Kohl hefði unnið
sigur í síðustu kosningum vegna
góðs gengis í austurhlutanum og
sagði að nú virtist hins vegar sem
að ósigur hans myndi einmitt eiga
rætur að rekja til sama landshluta.
Blaðið Die Woche, sem gefið er út
í Hamborg, birti í gær skoðanakönn-
un þar sem 25% aðspurðra sögðust
búast við að stjóm Kohls myndi halda
velli. 45% töldu hins vegar að flokk-
ur jafnaðarmanna, SPD, myndi kom-
ast til valda í fyrsta skipti frá árinu
1982. Einungis 49% stuðningsmanna
CDU bjuggust við sigri í kosningun-
um.
„Staða [kanslarans] var mjög
slæm árið 1989 en hún er enn verri
nú,“ sagði Siiddeutsche Zeitung og
minnti þar með á að skömmu fyrir
fall Berlínarmúrsins voru vinsældir
Kohls mjög litlar og almennt búist
við að Oskar Lafontaine yrði næsti
kanslari. Frankfurter Allgemeine dró
hins vegar hliðstæður við árið 1982
er frjálsir demókratar hættu sam-
starfí við SPD og tóku upp stjórnar-
samstarf við CDU. Sagði blaðið
Júrgen Möllemann, fyrrum efna-
hagsmálaráðherra, og fleiri forystu-
menn flokksins virðast vera að reyna
að eyðileggja stjórnarsamstarfið.
Drifkrafturinn á bak við tjöldin, hvað
þetta varðaði, væri hins vegar Hans-
Dietrich Genscher, fyrrum utanríkis-
ráðherra.
Die Zeit sagði að oft hefði kanslar-
inn verið í erfíðri stöðu en náð sér
á strik aftur. „Nú virðist hins vegar
sem „ragnarök kanslarans" [Kanzl-
erdámmerung] séu að verða óumflýj-
anleg. Helmut Kohl kann að halda
að nú sé betri tíð í vændum fyrst
að Heitmann-málinu sé lokið. Hann
hefur rangt fyrir sér. Héðan í frá
mun allt fara úrskeiðis hjá honum“.
Maó með ofsóknaræði og
umvafinn ungrnn stúlkum
Hong Kong. Reuter.
EINKALÆKNIR Maós Tsetungs segir að byltingarleiðtoginn fyrr-
verandi hafi haft ýmis einkenni ofsóknarbijálæðis, lifað við munað
og haldið dansleiki að minnsta kosti tvisvar á viku, umvafinn ungum
stúlkum.
Li Sui Zhi var læknir Maós for-
manns í 22 ár og var þá meinað
að sinna öðrum en honum af örygg-
isástæðum. Li er nú 73 ára gam-
all, býr í Chicago og er að skrifa
endurminningar sínar. BBC-sjón-
varpið birti í gær afrit af viðtali
við hann sem sjónvarpað verður
síðar.
Félagarnir hleruðu samtöl
Maós
Li segir að Maó hafí verið tor-
trygginn í garð annarra forystu-
manna kínverska kommúnista-
flokksins fyrstu árin eftir bylting-
una árið 1949. Félagar í stjóm-
málaráði flokksins hafí verið haldn-
ir svo miklum ótta við að misskilja
byltingarleiðtogann að þeir hafi
látið setja hlerunarbúnað í skrif-
stofu hans. Maó hafí orðið ævareið-
ur þegar hann hafi fundið hlerunar-
tækin og sakað samstarfsmenn
sína um að reyna að grafa undan
sér._
„í rauninni var komið fram við
Maó sem keisara," segir Li. „Þegar
hann sagði eitthvað þorði enginn
að andmæla honum eða telja hon-
um hughvarf. Það eina sem þeir
sögðu var: „lengi lifí Maó formað-
ur“.“
Maó hótaði á sjötta áratugnum
að endurheimta Tævan og hætti
þar með á stríð við Bandaríkin. Li
segir að Maó hafí þá sagt við sig:
„Eg vona að Bandaríkjamenn varpi
sprengju á Fujian-hérað. Ég vona
að margar milljónir manna deyi svo
umheimurinn skilji að þeir eru
heimsvaldasinnar.“
Dansaði meðan fólkið svalt
Li segir að þegar hungursneyð
hafi skollið á í „Stóra stökkinu
framávið“ árið 1958 hafi Maó lagt
áherslu á að færa þyrfti fómir í
þágu byltingarinnar. „Hann minnt-
ist aldrei á þau hundruð þúsunda
manna sem sultu í hel.“
Á sama tíma voru haldnir að
minnsta kosti tveir dansleikir fyrir
Maó á viku hverri og leiðtoginn var
þar umlukinn stúlkum sem fengnar
voru úr menningarfarandsveitum
hersins. „Hann tók þær jafnvel með
sér inn í svefnherbergið," segir Li.
Reutcr
Goðið hyllt
UNGIR verkamenn hylla átrún-
aðargoðið, Maó formann, sem
lagði lag sitt við ungar stúlkur
fram í rauðan dauðann.
Maó hélt áfram að sækjast eftir
félagsskap ungra stúlkna á gamals
aldri þegar hann fór varla út úr
svefnherberginu; þótt hann væri
lasburða var hugurinn enn skýr.