Morgunblaðið - 03.12.1993, Síða 38

Morgunblaðið - 03.12.1993, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 Ingibjörg Njáls- dóttír - Minning Fædd 1. júlí 1948 Dáin 24. nóvember 1993 Þegar mér barst fréttin um and- lát Ingibjargar, eða Imbu eins og hún var kölluð, reikaði hugurinn ósjálfrátt aftur í tímann og margar ljúfar æskuminningar úr Leirár- sveitinni hrönnuðust upp. Imba fæddist í Vestri-Leirár- görðum í Leirársveit hinn 1. júlí 1948, þriðja í röðinni af tíu systkin- um. Hún ólst upp við mjög gott atlæti í stórum systkinahópi við mikla glaðværð sem við nágrannar og sveitungar þeirra fengum að njóta í ríkum mæli. Það sem einkenndi Imbu mest var hennar einstaklega létta lund. Hún var lágvaxin, fínleg og létt á fæti. Mikill samgangur var á milli okkar systkinanna á Leirá og þeirra í Vestri-Leirárgörðum þegar við vorum í uppvexti. Vinahópurinn var stór, þau voru tíu en við sjö. Og margt skemmtilegt var brallað og gert í sveitinni. Það var alltaf líf og fjör í kringum Imbu, hún var oft upphafsmaður ýmissa uppátækja sem við hin tókum fús- lega þátt í. Þetta voru auðvitað saklaus barnabrek og heilbrigð uppátæki. Við uxum úr grasi og hópurinn dreifðist. Sumarið 1969 unnum við Imba saman í Hvalstöðinni í Hval- firði. Frá þeim tíma á ég sérstak- lega góðar minningar með henni. Það var mjög gott að vinna með Imbu. Bæði var hún dugleg og ósérhlífin en léttleikinn fylgdi henni alltaf. Þessi tími leið áhyggjulaus hjá okkur. Við unnum mikið, skemmtum okkur enn meir en hvíld var algjört aukaatriði. Við stunduðum sveitaböllin af kappi, héldum upp á afmælin okkar sam- an og margt fleira datt okkur í hug. Eftir þetta sumar skildu leiðir að mestu. Imba bjó á Akranesi, giftist eftirlifandi eiginmanni sín- um Bjama Þór Bjamasyni sem studdi hana einstaklega vel í veik- indum hennar sem hijáðu hana í um tuttugu ára skeið. Imba var skorin upp við alvarlegum hjarta- galla fyrir u.þ.b. tuttugu árum. Eftir þann uppskurð varð hún að fara hægar yfir. Imba var fóstra að mennt og starfaði alla tíð sem fóstra á Akra- nesi. Henni hefur vafalaust farist það vel úr hendi því að hún var mjög bamgóð að eðlisfari. Ég fylgdist með Imbu úr fjar- lægð en hitti hana þó af og til gegnum árin. Ekki varð ég vör við neina breytingu á hennar góðu skapgerð, alltaf jafn létt og kát þrátt fyrir sína sjúkragöngu. Þó að Imba færi varlega með sig virðist það ekki hafa dugað henni. En að hún færi svona skyndilega frá okkur átti ég ekki von á. Það er komið að leiðarlokum. Kynni mín af Imbu voru gefandi og minningarnar eru bjartar. Elsku Bjami Þór, börnin, Fríða, systkini og fjölskyldur, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Björg Kristinsdóttir. Elsku besta Imba mín. Þegar við stöndum frammi fyrir örlögum sem þessum er alltaf jafn sárt að mæta þeim, jafnvel þótt við vitum báðar nú að dauðinn er ekki til og lífið heldur áfram eftir þetta líf. En hvaða huggun er það okkur nú þegar þessir tveir heimar eru enn svo aðskildir? Jú það er huggun þungum harmi í að vita að þú heldur áfram að brosa og aðstoða hér eftir sem hingað til, bara á annan hátt. Og ef ég þekki þig rétt með þína léttu lund þá verður þú fljót að aðlaga þig nýjum heimi. Og þá munum við verða nærveru þinnar og aðstoðar vör, óskum við eftir því, enda aldrei staðið á liðstyrk þínum. Af hveiju þú varst kölluð svo ung burt úr þessu jarðlífi, kæra vinkona, ert þú eflaust þegar búin að fá svar við núna og tekið því trúlega með þínu jafnaðargeði. Þó veit ég hversu erfitt það er að sætta þig við að yfirgefa manninn þinn, börn- in þín og nánustu ættingja þína og vini. Þú sem varst svo mikil og sönn mamma, eiginkona, dóttir, systir og vinkona. Þú varst alltaf dugleg að fóta þig í jarðlífinu þrátt fyrir veikindin þín og efast ég ekki um að þú verður jafn fljót að aðlag- ast breyttum heimkynnum með guðs hjálp. Fyrir okkur sem eftir sitjum og syrgjum þig sárt, getum við aðeins huggað okkur við það að sorgin er fögur og sprettur upp af djúpum kærleika og kærleikur- inn er það græðandi afl sem móð- ir jörð þarf nú á að halda. Leiðir okkar lágu fyrst saman í verknámi í Lindargötuskóla þar sem við lögðum stund á saumaskap og önnur hagnýt fræði. Eftir að því gagnfræðanámi lauk ákváðum við tvær að fara í Fóstruskólann saman og að honum loknum unn- um við fóstrumar á barnaheimili Kleppspítalans um nokkurt skeið. Það var ómetanlegt fyrir mig á þessum árum að njóta samfylgdar þinnar því þú hafðir sérstakt lag á að rækta barnið hið innra með þér. Þú varst opin, hreinskilin og spaugsöm og gerðir ekki veður út af smámunum. Enda hændust börnin að þér og fýrir mér varst þú mikill stuðningur og mín besta vinkona. Við vorum saman í tveimur saumaklúbbum, Lindó klúbb og fóstru klúbb og þessa saumaklúbba gæddir þú léttleika og gleði og saknaði ég þín sárt úr þeim, þegar þú fluttist búferlum upp á Akranes. Þú gistir oft hjá mér þegar þú komst til Reykjavíkur og við fóstr- umar vorum að fagna einhveijum áfanga saman. Þá var oft glatt á hjalla hjá okkur og lífsgleði þín og létt lund smitaði út frá sér. Árið 1985 sýndi Bjarni Þór þér mikinn kærleik með því að fara einn síns liðs til Sri Lanka og færa þér litla stúlku þaðan sem ég veit að hefur verið ykkur báðum mikill gleði- gjafi. Og hún verður pabba sínum mikill styrkur í hans miklu sorg þegar hann horfir nú á eftir ann- arri eiginkonu sinni svona ungur. Ég bið algóðan guð að umvefja þaú bæði, elsku Vigdísi, Bjöm, móður þína, systkin og umfram allt þig sjálfa ljósi sínu, styrk og kærleika og megi minningin um þig lýsa aðstandendum fram veg- inn inn í sólskinið á ný. Þegar þú er sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Spámaðurinn) Sá er skarpskyggn, sem hyggur að smáu, að haldast hðgvær og blíðurveit- ir sannan styrkleik. Fylgdu ljósinu og láttu það vísa þér veginn heim, þá mun eyðing líkamans ekki verða þér að tjóni. t>að er að íklæðast eilífðinni. (Lao Tse). Þín vinkona að eilífu. Birna Smith. í minningunni eru sumur æsk- unnar sólskinssumur. Sumur gleði og kátínu, sumur ástar og hlýju. Þannig voru sumrin okkar Imbu frænku minnar. I skjóli álfa og annarra hulinna vætta byggðum við bú okkar og ævintýrin biðu í hveiju spori, hveijum hól og hverri lautu. Þessar æskustundir leita á huga minn nú þegar ævi Ingibjargar Njálsdóttur er liðin. Imba var dóttir hjónanna í Vestri-Leirárgörðum, þeirra Fríðu Þorsteinsdóttur og Njáls Markús- sonar. Hún var þriðja í röð tíu systk- ina; eldri eru þær Klara og Þórdís en á eftir komu Marteinn, Stein- unn, Sveinbjörn Markús, Hjalti, Smári og tvíburarnir Kristín og Sæunn. Þótt börnin væru mörg í Leirár- görðum var ætíð gestkvæmt á þeim bæ enda gleðin ríkjandi þrátt fyrir mikið annríki bæði innan dyra sem utan. Mér var tekið opnum örmum og í mörg ár voru Leirárgarðar mitt annað heimili. Við Imba fylgd- umst að og áttum okkar skyldu- störf eins og allir aðrir á bænum. Imba var ótrúlega hugmyndarík og gerði sér leik úr hveiju sem á vegi hennar varð enda vildi það brenna við að það drægist fram eftir degi að við skiluðum okkur til byggða. Hún var einstaklega orðheppin og gat slegið öll vopn úr hendi þeirra sem ætluðu sér að kveða hana í kútinn. Þannig leystust flest deilu- mál upp í kátínu. Imba tók gagnfræðapróf í Reykjavík og bjó þá hjá föðursystur okkar, Ástu Markúsdóttur. Síðan lá leiðin í Fósturskóla íslands en þá höfðum við frænkurnar báðar hleypt heimdraganum og leigðum okkur saman íbúð við Grettisgöt- una. Á þessu tímaskeiði í lífi ungs fólks gerast hlutimir hratt og brátt vorum við báðar giftar konur og síðan fæddust frumburðir okkar með fárra daga millibili. Fyrri mað- ur Ingibjargar var Stefán Hall- grímsson, en dóttir þeirra, Vjgdís, fæddist í júlí 1970. Þegar þaíi Stef- án slitu samvistir fluttust þær maeðgur upp á Akranes. Árið 1973 komu tveir menn inn í líf Imbu og gáfu því nýja merk- ingu. Það voru þeir Bjarni Þór Bjarnason myndlistarmaður og son- ur hans Björn. Þau bjuggu fyrstu árin í Reykjavík á meðan Bjarni stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann en síðan fluttust þau upp á Akranes þar sem heimili þeirra hefur verið síðan. Það var gott að koma til Imbu og Bjarna. Frá þeim stafaði þessari miklu hlýju sem umlykur sumt fólk og gerir það að gefendum í lífinu. Það göntuðust og gerðu grín hvort að öðru — voru eins og prins og prinsessa í nútíma ævintýri. Inn í þetta ævintýri kom síðan lítill sólar- geisli, Sara Björg, fyrir átta árum. Þegar Imba var unglingur kom í ljós að hún var með hjartagalla. Árið 1975 fór hún til London í erf- iða aðgerð þar sem hanni var vart hugað líf. Aðgerðin tókst vonum framar en alla tíð síðan hefur hún ekki gengið heil til skógar. En Imba var sterk og lifði lífinu lifandi. Hún minntist aldrei á sjúkdóm sinn að fyrra bragði og lífsgleði hennar var slík að hún hreif okkur hin burt frá allri sorg og sút. Mig langar að lokum að gera orð Ingibjargar Haraldsdóttur að mín- um er hún segir í kvæðinu Minning: Þín augu mild mér brosa á myrkri stund og minning þín rís hægt úr tímans djúpi sem hönd er strýkur mjúk um fóla kinn þín minning björt. Ég votta Bjarna og börnunum, Fríðu og systkinum Imbu mínar dýpstu samúð. Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir. Þegar þú er sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Spámaðurinn) í dag kveðjum við fóstrur á Akranesi eina úr okkar hópi. Þegar myrkur skammdegisins er að verða hvað svartast og ljós jólanna að veita birtu og yl, var tími Ingibjargar kominn. Við höfð- um þó vitað það lengi að lífi henn- ar gæti snögglega verið hætta búin, en áttum ekki von á að það yrði svo fljótt. Samstarf okkar hófst 1973 er Ingibjörg, þá nýflutt til Akraness, hóf störf á leikskóla sem fóstra og leikskólastjóri, en hún hafði útskrifast sem fóstra úr Fóstur- skóla íslands vorið 1971. Það sam- starf stóð allt fram til síðasta dags. Að vísu fluttist hún um smátíma til Reykjavíkur, en kom svo alkom- in nokkru seinna og tók upp þráð- inn þar sem frá var horfið. Á starf hennar bar aldrei skugga. í fóstru- starfinu komu allir mannkostir Ingibjargar vel í ljós, hvort heldur hún var í hlutverki stjórnandans eða fóstra barnanna. Þetta kom vel í ljós er leikskól- inn hennar fluttist í nýtt húsnæði fyrir stuttu og börn og starfsfólk urðu að aðlagast nýju fólki og umhverfí. Þá hélt hún vel utan um hópinn sinn og reyndi að sjá til þess að allir aðlöguðust þessum breytingum sem best mátti. Við hið ótímabæra fráfall Ingi- bjargar hefur stórt skarð verið höggvið í raðir fóstra. Við þökkum henni samfýlgdina og sendum ást- vinum hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Því hvað er það að deyja annað en standa nakinn 1 blænum og hverfa inn í skólskinið. (Spámaðurinn) Fóstrur á Akranesi. Elsku Ingibjörg okkar er dáin. Það gerðist svo snöggt, hún kom hress og kát í vinnuna eins og allt- af, tilbúin að gefa okkur öllum af sér. Og ekkert okkar grunaði að hún yrði öll áður en dagurinn væri á enda. Ingibjörg var með meðfæddan hjartagalla, sem hún hafði þó svo vel lært að lifa með. Þrátt fyrir erfiða veikindakafla náði hún sér alltaf aftur. Ingibjörg var fóstra af lífi og sál. Allt sem var lifandi höfðaði til hennar, hvort sem það voru dýr, plöntur eða við manneskjurnar stórar og smáar. Ingibjörg var já- kvæð og virk. Og í starfi hennar með börnum var allt mögulegt sem hugur hennar bauð. Hún hafði ein- stakt lag á að ná til barnanna og hrífa þau með frásögnum sínum. Hún var svo hlý, góð og gefandi og alltaf var svo stutt í grínið. Stressið og lífsgæðakapphlaupið voru aukaatriði, það að láta sér og öðrum líða vel var aðalatriðið. Missir okkar á Garðaseli er mik- ill, en minningarnar um Ingibjörgu lifa í hjarta okkar um ókomna tíð. Elsku Bjarni Þór, Sara Björg, Vigdís og Bjössi, þið hafíð misst mikið. Við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Börn og starfsfólk á leikskólanutn Garðaseli. Það er engum auðvelt að kveðja hinstu kveðju góða samstarfskonu og félaga, sem í blóma lífsins er fyrirvaralaust kölluð burt frá líf- inu. Þess vegna er það sorgarstund þegar kvödd er Ingibjörg Njáls- dóttir. Sorginni blandast hlýjar minningar um Ingibjörgu og þegar sorgin dvín verða þær minningar efstar í huga þess, sem til hennar hugsar. Ingibjörg var fóstra hjá Akra- neskaupstað um 14 ára skeið. Hún var forstöðukona eða leikskóla- stjóri eins og það nefnist í dag til margra ára, en starfaði síðastliðin tvö ár sem fóstra á nýjum leik- skóla bæjarins. Ingibjörg var bestu kostum gædd sem stjómandi og fóstra. Viðmót hennar var þannig að hún átti greiða leið að trausti fólks — jafnt samstarfsfólks sem leikskóla- barna. í starfi sínu öllu var Ingi- björg gjöful á hlýju sína og víst er, að þeirrar hlýju munum við öll sakna. Reyndar er það svo að á leikskólum bæjarins starfar ein- staklega gott fólk. Ingibjörg var þar í framvarðarsveit og hennar verður ætíð minnst með þeirri virð- ingu og alúð sem hún ávann sér með starfí sínu, vináttu og trú- mennsku. Það vissum við samstarfsfólk Ingibjargar að hún átti við van- heilsu að stríða. Einhvern veginn er það svo, að æðruleysi hennar og trú okkar á tækni læknavísind- anna vék burtu þeirri hugs'un að lífi Ingibjargar væri sú hætta búin að fýrirvaralaust gæti það vikið fyrir dauðanum. Og fyrirvaralaust stöndum við í þeim sporum að kveðja. Þá kveðju sendum við sam- starfsfólk Ingibjargar að góðar minningar verða sorginni sterkari og jákvætt lífsviðhorf hennar er hvatning til dáða. Ég flyt Bjarna Þór og dætrum hennar tveimur, Vigdísi og Söru, og fóstursyninum Birni innilegustu samúðarkveðjur og bið þeim styrks og æðruleysis nú þegar Ingibjargar nýtur ekki lengur við. Gísli Gíslason bæjarstjóri. Elskuleg, ástrík og hlý var mín ástkæra móðursystir. Það sker mig í hjartarætur að þessi svona ung og geislandi kona skuli vera hrifín á brott frá okkur. Hún sem ætíð gat sýnt bjartsýni og gefíð frá sér mikla hlýju, þó að hún sjálf þurfti að berjast við veikleika sinn að eiga veilt hjarta. Þegar ég sit hér rifjast upp fyr- ir mér svo skýrar minningar, hláturinn, söngurinn og stuðnings- orðin sem hún gaf mér. Ég man þegar ég lá á barnadeild Hringsins á barnsaldri, var hún mér þar ætíð til stuðnings þegar foreldrar mínir gátu ekki verið hjá mér. Eitt sinn þegar ég var sex ára gömul leidd- ist mér mjög mikið, þá var hún einmitt stödd á Landspítalanum þar sem hún var í rannsóknum. Ég fékk að hringja yfir til hennar og stuttu eftir kom hún til mín. Hún strauk burt tárin hjá mér og sagði að við þurftum að standa saman og í hvert skipti sem mér leið illa skyldi ég líta út um gluggann og veifa til hennar og ef ég væri að fara að gráta skyldi ég veifa með báðum höndum og þá myndi hún koma eins og skot. Ég óx úr grasi, fluttist til út- landa og eignaðist fjölskyldu. Hvar sem ég var stödd fylgdist hún ætíð með mér. Ég þakka fyrir það að hafa fengið að vera nær henni þessi þrjú síðustu ár eftir að við fluttumst heim. Þegar einhver svona ástkær er tekinn frá mánni vekur það ósjálfrátt þá tilfinningu að vernda það sem maður á eftir i kringum sig. Ég reyni að hugga mig við það að þar sem hún er nú líður henni vel hjá föður sínum og öðrum liðnum ástvinum. Ég vil senda móður hennar, eig- inmanni og börnum mínar hlýjustu kveðjur og megi Guð gefa þeim og öllum sem unnu henni heitt styrk og verndarhönd á þessari erfiðu stundu. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér, sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (H.P.) Með saknaðarkveðju til Ingi- bjargar minnar. Þín systurdóttir, Lovísa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.