Morgunblaðið - 04.01.1994, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
Matvöruverð lækkar á nýbyrjuðu ári í kjölfar breytinga á virðisaukaskatti
Verð landbúnaðarvara sir'm"""
að mestu leyti óbreytt
NÝJAR reglur um lækkun virðisaukaskatts á matvörur úr
24,5% niður í 14% gengu í gildi um áramótin. Flestur þurrmat-
ur, ávextir, grænmeti og niðursuðuvörur lækka í verði en
verð á landbúnaðarvörum breytist lítið sem ekkert. í verslun-
um í gær var verið að breyta verði á þeim vörum sem lækkun-
in nær til og segja þeir kaupmenn sem rætt var við að það
hefði gengið vel að Iækka verðið, þrátt fyrir að tíminn væri
naumur, en reglugerðin um breytinguna var gefin út þann
27. desember síðastliðinn.
Þær vöruteg’undir sem lækka í
verði vegna lækkunar virðisauka-
skatts eru meðal annars ávextir,
grænmeti, pasta, kornvörur, krydd,
hnetur, olía til matargerðar sem og
smjörlíki, ósætt kex, saltkex, allt
nasl, morgunverðarkom, ávaxta-
súpur og grautar, bökunarvörur,
þó ekki súkkulaði og skrautsykur,
ís, pakkamatur, svo sem súpur og
sósur, og niðursuðuvörur.
VEÐUR
Verð á landbúnaðarvörum að
mestu óbreytt
Matvæli sem áfram bera 24,5%
virðisaukaskatt eru til dæmis allt
sælgæti, ávaxtasafar, gosdrykkir,
sætt kex og smákökur, kakóduft,
kakómalt, íssósur, vítamín i töflu-
formi, edik og marsípan.
Þrátt fyrir lækkunina breytist
hins vegar verð á ýmsum landbún-
aðarvörum og fiski ekki. Verð á
flestum mjólkurvörum, kjöti og ost-
um stendur í stað. Ástæðan er sú
að hingað til hafa flestar þessar
vörur í reynd borið 14% skatt vegna
ýmissa endurgreiðslna í kerfinu að
sögn Helgu Guðrúnar Jónasdóttur,
hjá Upplýsingaþjónustu landbúnað-
arins. Nú hefur þessum endur-
greiðslum verið hætt og nú beri
allar landbúnaðarvörur 14% virðis-
aukaskatt.
Sigurbergur Sveinsson í Fjarðar-
kaup í Hafnarfirði segir breyting-
una hafa gengið vel fyrir sig. Fjarð-
arkaup er ekki með tölvuvætt verð-
merkingarkerfí svo það þurfti að
verðmerkja hverja einustu vöru upp
á nýtt, að sögn Sigurbergs. Til þess
að auðvelda breytingamar greip
Sigurbergur til þess ráðs að fylla
lítið sem ekkert á hillur milli jóla
I DAG kl. 12.00
Heimíld: Veðurstofa íslands
(Byggt á vedurspó ki. 16.30 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 4. JANUAR
YFIRLIT: Skammt norðvestur af Skotlandi er víðáttumikil 975 mb lægð
sem þokast austsuðaustur. Suðvestur af Hvarfi er 990 mb vaxandi lægð
sem hreyfist lítið. Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1015 mb hæð.
SPÁ: Norðaustanátt, sumstaðar allhvöss, suðvestanlands verður úr-
komulaust, en annarstaðar él.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Norðaustanátt, víða strekkingur norðvestan-
til en annars hægari. Él norðanlands og austan en léttskýjað í öðrum
landshlutum. Frost verður á bilinu 2-7 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg norðlæg átt. Él vfða norðan-
lands en annars léttskýjað. Frost verður á bilinu 4-12 stig, kaldast í
ihnsveitum sunnan- og vestantil.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg austlæg átt. Él við norðausturströndina
en annars léttskýjað. Frost verður á bílinu 5-14 stig.
Nýir veðurfregnatfmar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu (slands — Veðurfregnir: 990600.
•Q
Heiðskírt Léttskýjað
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
1
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað Alskýjað
v ý v
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.,
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
sfig..
FÆRÐA VEGUM: (k, ,7.3019«,
Greiðfært er yfírleitt um Suður- og Vesturland, fært er norður og austur
um til Egilsstaða en skafrenningur í Öxnadal og á Öxnadalsheiði. Á
Austfjörðum er ófært um Oddsskarð, Vatnsskarð og Breiðdalsheiði en
Fjarðarheiði opnaðist síðdegis. Fært er um Steingrímsfjarðarheiði og
tsafjarðardjúp og Breiðadals- og Botnsheiðar opnuðust síðdegis. Hrafns-
eyrar- og Dynjandisheiðar eru ófærar. Fært er suður með fjörðum til
Reykjavíkur .
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
Morgunblaðið/Kristinn
Brauðið hafði lækkað
INGVAR Isebarn var ásamt dóttur sinni, Guðrúnu Osk, í óða önn
að setja í poka. „Eg sá að brauðið hafði lækkað,“ sagði hann.
og nýárs þannig að samhliða verð-
merkingunni var tekið upp úr köss-
um.
' Jóhannes Jónsson í Bónus segir
að breytingin hafí gengið prýðilega
í Bónus-búðunum enda allt tölvu-
vætt í búðunum. Hann segir að alls
hafi verið breytt verði á um 800
vörutegundum af þeim tólfhundruð
sem verslunin selur.
18.000 nýjar hillumerkingar
Hjá Hagkaup var sama sagan
og segir Karl West, verslunarstjóri
hjá Hagkaup í Skeifunni, að breyta
hafí þurft verði á um 6.000 vöruteg-
undum og prenta út um 18.000
nýjar hillumerkingar. „Það var búið
að leggja mikla vinnu í þetta í inn-
kaupadeildinni og kryfja þetta til
hlítar,“ segir hann.
Jóhann Olason, verslunarstjóri í
Nóatúni, segir að þrátt fyrir að
enginn fyrirvari hafí verið á breyt-
ingunum, þá hafi verðbreytingarnar
gengið snuðrulaust fyrir sig enda
allt tölvutengt.
Oflugt verðlagseftirlit
Neytendasamtökin ásamt Sam-
keppnisstofnun, ASÍ og BSRB létu
gera verðkönnun í lok nóvember
og segir Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna, að
ætlunin sé að gera aðra verðkönnun
í lok jannúar til að kanna fram-
kvæmd breytinganna. Kristín Fær-
seth hjá Samkeppnisstofnun segir
að verð hafi verið athugað hjá um
130 verslunum um land allt og á
Fylgist vel með
JÓHANNA Clausen segir að hún
hafi ekki tekið sérstaklega eftir
að verð hafi lækkað á því sem
hún var að kaúpa í Bónus í Skútu-
vogi.
24,5%
*
> 1
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veöur
Akureyri snjóél
Reykjavlk 4-3 skýjað
Bergen 0 skýjað
Helsinki +1 skýjað
Kaupmannahöfn 1 léttskýjað
Narssarssuaq skýjað
Nuuk 0 skafrenningur
Osló +8 skýjað
Stokkhólmur +4 snjókoma
Þórshöfn 4 rigning
Algarve 16 alskýjað
Amsterdam 6 þokumóða
Barcelona 16 hálfskýjað
Berlín 2 rigning
Chicago +2 snjókoma
Feneyjar 6 þokumóða
Frankfurt 8 skýjað
Glasgow 5 rígníng
Hamborg 1 þokumóða
London 7 rigning
Los Angeles 15 heiðskírt
Lúxemborg 6 þokumóða
Madríd 9 súld
Malaga 18 skýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal +22 léttskýjað
New York +2 alskýjað
Orlando 17 skýjað
Parfs 10 rigning
Madeira 18 hátfskýjað
ftóm 16 léttskýjað
Vín 8 léttskýjað
Washington 1 alskýjað
Winnipeg •rTð snjókoma
14,0%
Dæmium
verðbreytingar
vegna lækkunar
virðisaukaskatts
HAGKAUP lyrir eftir
Ólívuolía 11 586 537
Pasta skrúfur 79 72
Uncle Ben's hrísgrjón 794g 305 279
Þykkvabæjar skrúfur með salti
og pipar, 70g 127 116
Bananar (kr./kg) 125 114
FJARÐARKAUP
Cocoa Puffs, 400a 223 204
Juvel Hvelti 2 kg 68 62
Kaffi Marino Ljóma smjörlíki 194 97 177 89
NÓATÚN fyrir eftir
Sykur, 2 kg 119 109
Tekex 59 54
Ritz kex 69 63
Kornflex 245 224
Heilhveitibrauð, niðursneitt 169 155
BAKARAMEISTARINN
SUÐURVERI fyrir eftir
Snúður 78 71
Heilhveitlhorn 61 56
Franskbrauð 141 129
Verð lækkað
í HAGKAUP í Skeifunni var ver-
ið að merkja allar vörur í búð-
inni upp á nýtt. Vörur sem bera
14% virðisaukaskatt fá rauðan
verðmiða en hinar verða merktar
með grænum miðum.
um 130-150 vörutegundum í hverri
verslun.
Jóhannes segir að þó þessir aðil-
ar muni fylgjast með breytingunum
þá sé einnig mikilvægt að almenn-
ingur fylgist vel með. Hann kveðst
vera bjartsýnn á að verð lækki á
þeim matvörum sem við ætti og
lækkunin skili sér til heimilanna.
„Ég trúi því ekki að menn fari að
nýta sér þessa breytingu til þess
að hækka álagninguna,“ segir Jó-
hannes. „Ég get ekki ímyndað mér
að kaupmenn vilji lenda í stríði við
þessi þrjú samtök.“
♦ ♦ ♦
Hrafn Braga-
son forseti
Hæstaréttar
HRAFN
Bragason
hæstaréttar-
dómari verður
forseti Hæsta-
réttar íslands
næstu tvö árin.
Á fundi dóm-
ara við Hæsta-
rétt, sem hald-
inn var 29. des-
ember síðastlið-
inn var Hrafn
kjörinn forseti Hæstaréttar frá 1-
janúar 1994 til tveggja ára. Harald-
ur Henrysson hæstaréttardómari
var kjörinn varaforseti Hæstaréttar
sahia'tfmabil.
Mrafn Bragason