Morgunblaðið - 04.01.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994
33
Tvö börn fórust í eldsvoða í Biskupstungum á nýársnótt
Brunarústir Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
íbúðarhúsið að Stöllum í Biskupstungum brann til grunna á nýársnótt. Rannsóknarlögregla ríkis-
ins og lögreglan á Selfossi leituðu upptaka eldsins á laugardag og sunnudag. Niðurstaða hafði
ekki fengist í gær.
Með snarræði var
komabami bjargað
Selfossi.
TVö börn, fjögurra ára stúlka
og átta ára drengur, fórust í
eldsvoða á nýársnótt þegar bær-
inn Stallar í Biskupstungum
brann til grunna. Tíu mánaða
barni var með snarræði bjargað
úr brennandi húsinu og ungl-
ingsstúlku var bjargað út um
glugga á síðustu stundu. Aðrir
sem í húsinu voru áttu fótum
fjör að launa. Heimilisfaðirinn
brenndist á höndum og andliti
er hann reyndi að fara inn í
brennandi húsið eftir börnunum
sem sváfu á efri hæð þess. Hann
er enn á sjúkrahúsi.
Tilkynning um eldinn barst
lögreglunni í Árnessýslu klukkan
4.52. Tiltækt slökkvilið, í Biskups-
tungum og á Selfossi, var kallað
út. Þegar slökkviliðsmenn komu á
staðinn skömmu seinna var húsið
alelda og byijað að falla. Húsið
var tvílyft timþurhús með risi.
Eldurinn kom upp í þvottahúsi
og þegar hans varð vart voru í
húsinu hjónin ásamt þremur börn-
um, ungri stúlku og tveimur full-
orðnum. Börnin tvö sem fórust
sváfu á efri hæð hússins.
Einn hinna fullorðnu hugðist
sækja slökkvitæki í þvottahúsinu,
opnaði dymar en varð frá að
hverfa. Þá strax breiddist eldurinn
um húsið með ógnarhraða og það
fylltist á svipstundu af eldi og
reyk. Fólkið átti fótum fjör að
launa og átti þess engan kost að
komast til barnanna.á efri hæð-
Pétur Steinn Freysson Njarðvík
inni. Faðir þeirra reyndi það en
varð frá að hverfa brenndur á
höndum og í andliti.
Unglingsstúlku sem var í húsinu
var bjargað út um glugga á sal-
erni hússins þar sem hún lokaðist
af þegar eldsprengingin varð í
húsinu.
Bjargaði kornabarni
Ung stúlka, Guðrún S. Eyvind-
ardóttir, sat í bifreið á hlaði húss-
ins eftir að hafa skömmu áður
ekið fólki þar heim. Hún varð vör
við eldinn og hljóp beina leið inn
ísabella Diljá Hafsteinsdóttir
í svefnherbergi hússins og sótti
litla barnið. Þegar hún var komin
með. barnið í fangið var eldurinn
orðinn það magnaður og rafmagn
farið af húsinu að hún þurfti að-
stoð við að komast klakklaust út
aftur.
Heimilisfaðirinn var fluttur á
slysadeild þar sem gert var að
brunasárum hans. Börnin sem fór-
ust i brunanum hétu Pétur Steinn
Freysson Njarðvík, fæddur 23.
apríl 1985, og ísabella Diljá Haf-
steinsdóttir, fædd 26. maí 1989.
Sig. Jóns.
Landeigendur Eiðis á Langanesi um grunnvatnið
Blýmengunar farið að gæta
RANNSÓKNIN á Heiðarfjalli á Langanesi sýnir að blýmengun frá
sorphaugum Bandaríkjahers á fjallinu er þegar farið að gæta í grunn-
vatni svæðisins, segir í frétt frá landeigendum Eiðis á Langanesi.
Umhverfisráðuneytið fól Hollustuvernd ríkisins að rannsaka meinta
mengun á fjallinu síðastliði haust og í niðurstöðum segir að allt lind-
arvatn á svæðinu sé vel drykkjarhæft og að ekki hafi fundist þrá-
virk halógenlífræn efni í þeim sýnum sem tekin voru.
í frétt landeigenda segir að blý- sé allt að 600 sinnum meira magn
innihald í lindum sunnanmegin
Heiðarfjalls neðan við haugana sé
þrefallt meira en norðan fjallsins.
Bent er á til samanburðar að það
en í vatni úr Gvendarbrunnum.
Fram kemur að sú fullyrðing
umhverfisráðuneytisins um að lan-
deigendur hafi Iagst gegn rannsókn
á sorphaugum á Heiðarfjalli árið
1991 sé alröng. Landeigendur hafi
fyrst og fremst lagt til bætt vinnu-
brögð við rannsókn á að afla gagna
frá Bandaríkjaher um það hvað
farið hefði á haugana. Þá segir að
sú staðhæfing ráðuneytisins um að
allt lindarvatn á svæðinu sé vel
drykkjarhæft sé villandi þar sem
þungmálmamengun mælist í veru-
legu magni í vatni af svæðinu.
Skipaðir sýslumenn í
Reykjavík og Siglufírði
FORSETI íslands hefur skipað Guðgeir Eyjólfsson sýslumann á Siglu-
firðþ Rúnar Guðjónsson sýslumann í Reykjavik og Sigurð Hall Stefáns-
son héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Alla frá 1. janúar 1994.
Guðgeir hefur
verið fulltrúi
sýslumanns í
Kópavogi, Rúnar
sýslumaður í
Borgarnesi og
Sigurður Hall
settur héraðs-
dómari.
Forseti skipar
í stöðurnar að til-
lögu dóms- og
kirkjumálaráðu-
neytisins.
Guðgeir Eyjólfsson Rúnar Guðjónsson Sigurður Hallur
Stefánsson
Undirbúa rekstur
fiskimj ölsverk-
smiðju í Helffuvík
Keflavík.
UNDIRBÚNINGSFÉLAG að stofnun hlutafélags um uppbyggingu og
rekstur fiskimjölverksmiðju í Helguvík sem á að framleiða hágæðafiski-
mjöl var stofnað í Keflavík þann 30. desember sl. Stefnt er að opnun
verksmiðjunnar á næsta ári og er áætlað verð hennar um 860 milljón-
ir króna miðað við 1.000 tonna bræðslugetu á sólarhring.
Þorsteinn Erlingsson skipstjóri,
Pétur Jóhannsson hafnarstjóri og
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Kefla-
vík, hafa unnið að þessari hugmynd
að undanförnu og voru þeir kosnir
í stjórn undirbúningsfélagsins. Á
fundinum kynnti Þorsteinn störf
áhugahópsins og kom fram í máli
hans að á svæðinu frá Grindavík til
Akraness væru nú fjórar verksmiðj-
ur og þar af væru aðeins hægt að
tala um tvær loðnubræðslur - í
Grindavík og Akranesi sem saman
afköstuðu 1.000 tonnum á sólar-
hring. Miðað við reynslu síðustu ára
ætti verksmiðjan að fá nægt hráefni
en í rekstrarforsendum væri miðað
við 60.000 tonna bræðslu á ári.
Fram kom hjá Þorsteini að þeir
hefðu tilboð frá norskum aðilum sem
framleiddu hágæðafiskimjölsverk-
smiðjur og væru þeir tilbúnir að
afhenda allt sem til þyrfti og að
norskur banki væri tilbúinn að lána
allt kaupverðið. Ætlunin væri hins
vegar að safna 300 milljónum í
hlutafé hér heima en að taka af-
ganginn að láni.
- BB
—..♦---------
Landvegamót
Þrennt slas-
ast í bílveltu
ÞRENNT var flutt á heilsugæslu-
stöðina á Hvolsvelli eftir að pall-
bíll á austurleið valt á þjóðvegin-
um við Landvegamót upp úr kl.
18 á fimmtudag. Meiðsl fólksins
eru ekki talin alvarleg.
Lögreglan á Hvolsvelli segir að
hálka hafi valdið því að bíllinn rann
út af veginum og valt nokkrar veltur
og stöðvaðist á hjólunum á skurðar-
barmi. Þrír voru í bílnum og skárust
farþegarnir á höfði. Ökumaður var
einnig fluttur á heilsugæslustöðina á
Hvolsvelli til skoðunar.
—
BARNADANSNÁMSKEIÐ
í Grafarvogi og Mjódd
Mánudaga í sal Hamraskóla,
Dynhömrum 9(12 tíma námskeið) og
þriðjudaga og laugardaga í sal Þjóðdansa-
félagsins í Álfabakka 14A, Mjódd
(12 tíma námskeið).
Ath. að miðstöð strætisvagna er í Mjódd.
GRAFAR- MJÓDD MJÓDD
VOGUR
Mánudaga Þriðjudaga Laugardaga
3-5 ára kl. 17.00-17.30 kl. 17.00-17.30 kl. 10.00-10.30
6-8 ára kl. 17.40-18.25 kl. 17.40-18.25 kl. 10.40-11.25
9 ára og eldri kl. 18.30-19.30 kl. 18.30-19.30
Systkinaafsláttur er 25%
Kennsla hefst mánudaginn lO.janúar 1994 í
Grafarvogi og þriðjudaginn 11. janúar í Mjódd.
V
Innritun og
upplýsingar
í síma 681616.
J