Morgunblaðið - 04.01.1994, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1994
I
I
I
I
I
I
I
t
75
Ágreiningur um hvort lán Síldarverksmiðjanna í Lí hafi ríkisábyrgð
RUásábyrgðasjóður hef-
ur ekki afgreitt ábyrgðir
FORSVARSMENN kaupenda að hlutabréfum ríkisins í SR-mjöli
ræða við Landsbankann í dag um hvernig farið verði með skuld-
ir fyrirtækisins við bankann. Síldarverksmiðjur rikisins stofnuðu
til skuldanna áður en fyrirtækinu var breytt í hlutafélagið SR-
mjöl með lögum á síðasta ári og hefur Landsbankann og ráð-
herra greint á um hvort hvort ríkisábyrgð sé á lánunum. Banka-
sljóri Landsbankans segir ekki útilokað að hægt sé að ná sam-
komulagi um að nýir eigendur yfirtaki lánin en bankinn vilji
hafa ríkisábyrgð á þeim lánum.
í lögum frá 1937 um Síldarverk-
smiðjur ríkisins er kveðið á um
að leita þurfi samþykkis Alþingis
fyrir ríkisábyrgð á lánum fyrir-
tækisins og það var ekki gert þeg-
ar umrædd lán voru tekin. Harald
Andrésson hjá Ríkisábyrgðasjóði
sagði við Morgunblaðið, að sér
vitanlega hefði sjóðurinn ekki af-
greitt neinar ábyrgðir á lán til
Síldarverksmiðja ríkisins en sjóð-
urinn afgreiðir ábyrgðir ef laga-
heimild er fyrir hendi.
Halldór Guðbjarnason banka-
stjóri Landsbankans segir, að eng-
in ákvörðun hafi verið tekin innan
bankans um að höfða mál til að
fá úr því skorið hvort lán til Síldar-
verksmiðja ríkisins beri ríkis-
ábyrgð; fyrst yrði reynt að ná sam-
komulagi um málið við ráðuneytin.
Þá sé ekki útilokað að ná sam-
komulagi við nýja eigendur um
að þeir yfirtaki lánin, en Lands-
bankinn vilji hafa ríkisábyrgð á
lánunum áfram.
Áhersla Landsbankans á ríkis-
ábyrgð lána SR tengist meðal ann-
ars alþjóðlegum reglum um eigin-
fjárstöðu banka, svonefndum BIS-
reglum en samkvæmt þeim eru lán
með ríkisábyrgð í svonefndum 0%
áhættuflokki en ríkisábyrgðalaus
lán til hlutafélagsins SR-mjöls
væru í 100% áhættuflokki. Það
þýðir að 8% af andvirði lánanna
þarf að vera til staðar í Lands-
bankanum sem eigið fé.
550 miiljóna langtímalán
Jónas Aðalsteinsson sem er í
forsvari fyrir kaupendahóp SR-
mjöls, sagði að langtímaskuldir
SR-mjöls við Landsbankanum
næmu 550 milljónum króna og að
auki hefði bankinn ábyrgst 250
milljóna króna framkvæmdalán
frá Noregi.
Jónas sagði að í kaupsamningi
væri miðað við að þessi mál leyst-
ust á viðunandi hátt. „Þessi lán
eru í skilum og það er reiknað
með því að það þurfi að líta til
með þéim eins og öðrum skuldum
fyrirtækisins. Við komum til með
að hitta Landsbankamenn mjög
fljótlega og ræða þessi mál og ég
hef ekki minnstu trú á öðru en
að þau mál leysist á þeim vett-
vangi,“ sagði Jónas.
Sá kaupendahópur sem Jónas
Aðalsteinsson er fulltrúi fyrir,
samanstendur af 21 loðnuútgerð,
þremur stærri fjárfestum, starfs-
mönnum SR-mjöls og fimm sveit-
arstjórnum þar sem loðnuverk-
smiðjur fyrirtækisins eru. Þróun-
arfélag íslands á ekki aðild að
kaupsamningnum, að sögn Þor-
geirs Eyjólfssonar stjórnarform-
anns félagsins, en félagið sýndi á
fyrri stigum áhuga á þátttöku í
kaupunum.
Jónas Aðalsteinsson sagði að
ekki hefði enn verið gengið frá
því hvað hver aðili ætti stóran hlut
í fyrirtækinu en ljóst væri að eng-
inn yrði með stóran hlut. Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra
sagði fyrir áramótin að eignaraðild
að SR-mjöli yrði mjög deifð og
enginn einn aðili myndi eiga meira
en 10-12% í fyrirtækinu.
Jákvæð viðbrögð
Jónas sagði að mjölmarkaður-
inn hefði brugðist mjög jákvætt
við tilkynningum stjórnenda fyrir-
tækisins um breytta eignaraðild.
Stærstu viðskiptavinir fyrirtækis-
ins erlendis hefðu óskað fyrirtæk-
inu til hamingju og lýst sérstakri
ánægju með það hvernig hópur
nýrra eigenda væri byggður upp.
Þá sagðist Jónas hafa séð tvö sím-
bréf þar sem erlendir viðskiptavin-
ir óskuðu fyrirtækinu til hamingju
með það að hafa komið málum
þannig fyrir að fyrirtækið yrði
áfram í eigu landsmanna sjálfra.
Morgunblaðið/Þorkell
Mæðgur
HAFDÍS Magnúsdóttir með
dóttur sína í fanginu. Stúlk-
an fæddist klukkan hálffjög-
ur á nýársdagsmorgun og
var fyrsta barn ársins.
Fyrsta
bamársins
FYRSTA barn ársins fædd-
ist á fæðingardeild Land-
spítalans á nýársnótt kl.
3.30. 3.130 börn fæddust á
deildinni á nýliðnu ári.
Barnið, sem er stúlka, vó
3.892 grömm og var 50,5 cm
á lengd við fæðingu. Móðir
stúlkunnar, Hafdís Magnús-
dóttir, sagði að fæðingin hefði
verið áætluð 22. desember
þannig að hún hefði verið búin
að bíða alllengi.
Hafdís og maður hennar,
Steinar Birgisson, eiga fyrir
10 ára strák og 7 ára stelpu.
Að sögn Guðrúnar Bjargar
Sigurbjörnsdóttur, yfirljós-
móður á fæðingardeild, fædd-
ust 3.130 börn á deildinni á
árinu sem er metfjöldi og 217
börnum fleira en árið 1992.
Nr. Leikur: Röðin:
Nr. Leikur:_______________Röðin:
1. Aston V. - Blackbum - - 2
2. Everton - West Ham - - 2
3. Ipswich - Liverpool - - 2
4. Man. Utd. - Leeds - X -
5. Newcastie - Man. City 1 - -
6. QPR - Sheff. Wed - - 2
7. Shcff. Utd - Oldham 1 - -
8. Southampton - Norwich - - 2
9. Swindon - Cheisea - - 2
10. Tottenham - Coventry - - 2
11. Wimbledon - Arsenal - - 2
12. Millwail - C. Palace 1 - -
13. Notth For. - Charlton - X -
Heildarvinningsupphæðin:
96,5 milljón krónur
13 réttir: | 1.985.530 1 kr.
12 réttir: 36.850 1 kr.
11 réttir: 2.880 1 kr.
10 réttir: 740 | kr.
ÍTALSKJr*m \ 0J WN-
52. ieikvika, 2. jan. 1994
Nr. Leikur: Röðin:
1. Cagliari • Lecce 1 - -
2. Genoa - Cremonese 1 - -
3. Intcr - Atalanta - - 2
4. Lazio - Sampdoria - X -
5. Piacenza - Parma - X -
6. Reggiana - Milan - - 2
7. Torino - Roma - X -
8. Udinese - Juventus - - 2
9. Bresda - Cosenza - X -
Utsvar 9% ef sveitarfélög ætla
að fá Jöfnunarsj óðsframlag
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur ákveðið að eðlileg nýting á tekju-
stofnum sveitarfélaga teljist 9% útsvar til að þau verði gjaldgeng
við úthlutun úr Jöfnunarsjóði. Reykjavík og Kópavogur hafa ákveð-
ið að útsvarshlutfall verði 8,4% og í Hafnarfirði verður það 8,9%.
Samkvæmt sömu viðmiðun félagsmálaráðherra telst eðlileg nýting
tekjustofna að leggja 0,36% fasteignagjöld á fasteignir samkvæmt
lið a í 3. grein laga um tekjustofna sveitarfélaga, en þar á meðal
er íbúðarhúsnæði, bújarðir og sumarbústaðir. Þá telst eðlilegt að
leggja 1% fasteignagjöld á aðrar fasteignir, svo sem atvinnuhús-
næði, og 0,9% sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu sem send var frá félagsmála-
ráðuneytinu á gamlársdag. Tilkynn-
ingin er dregin út úr auglýsingu sem
hefur reglugerðargildi, að sögn Hún-
boga Þorsteinssonar skrifstofustjóra
ráðuneytisins. Hann sagði enn frem-
ur að þessar viðmiðunartölur væru
að tillögu Sambands islenskra sveit-
arfélaga, nema útsvarsálagningin,
en sambandið lagði til að þar yrði
miðað við 9,2%
Kópavogur
Sigurður Geirdal bæjarstjóri í
Kópavogi segir að útsvar verði þar
8,4% líkt og í Reykjavík. Fasteigna-
skattur, samkvæmt a-lið verður
0,375% og 1,25% á verslunar- og
atvinnuhúsnæði. Sorppokagjald, lóð-
arleiga, vatnsskattur og holræsa-
gjald er óbreytt. Kópavogur mun nú
samræma fasteignagjöld við það sem
gilt hefur í nágrannabæjum, öðrum
en Reykjavík.
„Þetta er undarleg árátta hjá rík-
inu að reyna að skrúfa upp útsvörin
í sveitarfélögunum, meðan vinnuveit-
endur og verkalýðshreyfing hvetja
okkur til að halda álögum í lág-
marki,“ sagði Sigurður og taldi nær
að sveitarfélögin hefðu fengið aukna
hlutdeild í staðgreiðslunni, án þess
að hún hækkaði. „Sveitarfélög sem
skattpína þegnana, eins og hægt er,
eru verðlaunuð með framlögum úr
Jöfnunarsjóði, en hin sem eru undir
meðaltekjum, en þora ekki að hækka
álögumar, fá ekkert.“
Mosfellsbær
í Mosfellsbæ er ekki búið að
ákveða álagningu gjalda í ár og verð-
ur það gert á fundi bæjarstjórnar
þann 12. janúar næstkomandi. Rób-
ert B. Agnarsson bæjarstjóri sagði
að sér litist ekki illa á viðmiðunar-
mörk útsvarsins vegna Jöfnunar-
sjóðs. „Það var lagt upp með 9,2%
en við sendum félagsmálaráðherra
áskorun um 9% og hljótum að vera
ánægðir með að þær ráðleggingar
voru teknar til greina,“ sagði Rób-
ert. Hann sagði Mosfellsbæ hafa
verið það tekjulágan að til þessa
hafi verið sóst eftir jöfnunarframlagi
íranN hf.
SKÓGARHLÍO 10 - SÍMI 20720
til að ná landsmeðaltali í tekjum. í 1,5% á móti hækkuðu útsvari, þann-
fyrra var miðað við 7,5% útsvar og ig að 9% er rökrétt viðmiðun að
nú lækkar tekjuskattur ríkisins um mati Róberts.
Ite rt oð syng/af
ungirsem aldnir,
laglausir sem lagvisir.
HÓPNÁMSKi/Ð
m • Byrjendanámskeið
M • Framhaldsnámskeið
• Söngleikjanámskeið I
____• Söngleikjanámskeið II
Kór Söngsmiðjunnar
p Krakkadeild
- ný deild innan Söngsmiöjunnar:
Hópar: 4-5 ára • 6-8 ára • 9-11 ára
UNSÖNGVARADULD
Skemmtileg og lifandi söngkennsla. Þar sem brotið er
upp hið hefðbundna og haldið inn á ferskari brautir.
Meðal kennara: Esther Helga Guðmundsdóttir, Ágústa Ágústs-
dóttir, Guðbjörg Sigurjónsdóttir, Soffía Vagnsdóttir, Ingólfur
Stefánsson, Einar Sigurðsson, Elfa Lilja Gísladóttir, Sigrún Þor-
geirsdóttir og Viera Gulazsiova.
Upplýsingar og innritun í s: 61 24 55 • Fax: 61 24 56
SÖNGSMIÐJAN • Skipholti 25
SONGSMIÐJAIU
auglýsir:
10. Cesena - Venezia 1 - -
11. Lucchese - Fiorentina - X -
12. Pescara - Bari - X -
13. Verona - Vicenza - X -
Heildarvinningsupphæðin:
11,8 milljónir króna
13 réttir:
12 réttir:
11 réttir:
10 réttir:
3.153.500 1
10.500 |
670 1
200 J
) kr
) ^
) kr.
VAKORTALISTI
Dags.Al.1994.NR. 147
5414 8300 0310 5102
5414 8300 0957 6157
5414 8300 2814 8103
5414 8300 3122 1111
5414 8300 3163 0113
5414 8301 0494 0100
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
Ofangreind kort eru vákort,.
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORTHF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
H
öfóar til
fólks í öllum
starfsgreinum!