Morgunblaðið - 06.01.1994, Side 55
55
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994
KNATTSPYRNA
ísland í 4. styrkleikaflokki
samkvæmttillögum frá Knattspymusambandi Evrópu, UEFA
KNATTSPYRNUSAMBAND Evrópu, UEFA, hefur raðað 46 lands-
liðum Evrópu í styrkleikaflokka fyrir dráttinn í næstu Evrópu-
keppni, en framkvæmdanefnd keppninnar á síðasta orðið og
tekur lokaákvörðun 21. janúar. Dregið verður í Manchester í
Englandi daginn eftir og verða liðin dregin í átta riðla, sex með
sex liðum og tvo með fimm liðum. ísland er ífjórða styrkleika-
flokki sem fyrr, en aðeins einu sæti frá þriðja flokki.
Miðað við frammistöðu liðanna
í Evrópukeppninni 1992 og
nýlokinni riðlakeppni heimsmeist-
aramótsins er ísland í 22. sæti.
Hins vegar hefur UEFA metið
þjóðir, sem ekki hafa verið með í
EM eða HM, eftir árangri félagsl-
iða þeirra í Evrópumótunum og
því færast Tékkland, Úkraína og
Króatía upp fyrir ísland sam-
kvæmt tillögunum, en Slóvakía,
Hvíta-Rússland og Georgía eru
fyrir neðan. Lið frá Slóveníu,
Moldavíu, Armeníu og Aserbajd-
sjan hafa ekki tekið þátt í Evrópu-
mótum undanfarin 10 ár og eru
því neðst á listanum. KSÍ vill fá
nánari skýringar á niðurröðuninni
og verður málið tekið upp á fundi
norðvestur þjóða Evrópu, sem
hefst í Finnlandi í dag.
Riðlakeppnin hefst í ár og hefur
UEFA lagt til 12 keppnisdaga á
þessu ári og því næsta. Efstu liðin
í fimm liða riðlunum og tvö efstu
liðin í sex liða riðlunum fara í
úrslitakeppnina sumarið 1996
ásamt gestgjöfum Englands, en lið
í öðru sæti í fimm liða riðlunum
leika um 16. sætið.
Styrkleikaröðunin er eftirfar-
andi samkvæmt tillögum UEFA:
1. flokkur:
Þýskaland, Frakkland, Rúss-
land, Holland, Danmörk, Svíþjóð,
Ítalía, írland.
2. flokkur:
Noregur, Rúmenía, Sviss, Port-
úgal, Grikkland, Spánn, Tékkland,
Úkraína.
3. flokkur:
Wales, Búlgaría, Belgía, Skot-
land, Norður-Irland, Pólland, Ung-
verjaland, Króatía.
4. flokkur:
ísland, Austurnki, Finnland,
Litháen, ísrael, Slóvakía, Hvíta-
Rússland, Georgía.
5. flokkur:
Tyrkland, Lettland, Albanía,
Kýpur, Malta, Færeyjar, Eistland,
Lúxemborg.
6. flokkur:
San Marínó, Lichtenstein, Sló-
venía, Moldavía, Armenia, As-
erbajdsjan.
HANDBOLTI
Egyptar
unnu Svía
Egyptar komu mjög á óvart
er þeir unnu Svía 23:22 á
fjögurra þjóða handknattleiks-
móti sem lauk í Svíþjóð í gær-
kvöldi. Svíar voru með sitt sterk-
asta lið og þó svo að Mats Olsen
hafi varið yfir 20 skot dugði það
ekki til gegn góðu liði Egypta.
Svíar unnu þó mótið á hagstæð-
ara markahlutfalli en Egyptar
og Danir sem hlutu 4 stig eins
og Svíar, en Svisslendingar töp-
uðu öllum leikjum sínum.
Úrslit voru sem hér segir:
Svíþjóð — Danmörk.......25:24
Egyptaland — Sviss......19:18
Egyptaland — Svíþjóð....23:22
Danmörk — Sviss.........21:16
Svíþjóð — Sviss.........27:21
Danmörk — Egyptaland....21:20
G. Eyþórsson, Svíþjóð
Landsliðinu boð-
ið til Japans
Knattspyrnusamband íslands hefur fengið óformlegt boð um að
fara til Japans í apríl eða maí og leika við sterkt úrvalslið.
Rætt hefur verið um að koma á landsleik í ferðinni og er málið í vinnslu
í Japan, en gert er ráð fyrir að það skýrist fyrir næstu mánaðarmót.
Snorri Finnlaugsson, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði við Morgunblað-
ið að formaður vinafélags íslands í Japan, sem jafnframt er háttsettur
hjá stærsta íþróttablaði landsins, hefði sett sig í samband við KSÍ og
sagst vilja koma á knattspyrnutengslum við Island. Hann hefði boðið
liðinu til Japans KSÍ að kostnaðarlausu og ætlaði að vinna að því að
fá Knattspyrnusamband Japans í samstarf.
URSLIT
Körfuknattleikur
NBA-deildin:
Leikið aðfaranótt miðvikudags:
New York - Orlando..............100:95
■l’atrick Ewing og Shaquille O’Neal mætt-
ust og gerðu báðir 26 stig. Það var bakvörð-
urinn knái hjá New York, John Starks, sem
var maður leiksins. Hann gerði 39 stig og
jafnaði sitt persónulega met. Hann tók 30
skot i leiknum, hitti rryög illa framan af
en hrökk síðan í gang og gerði hann meðat
annars 15 stig t síðasta fjórðungi. „Eg er
skotbakvörður og skotbakverðir eiga að
skjóta," sagði kappinn eftir leikinn.
Houston - Portland.............106:95
■Hakeem Olajuwon var allt í öllu hjá Hous-
ton, gerði gerði 33 stig, tók 11 fráköst og
varði 6 skot. Otis Thorpe gerði 18 stig og
tók 13 fráköst. Hjá Trail Blazers var Terry
Porter atkvæðamestur, gerði 24 stig og
átti níu stoðsendingar.
San Antonio - Philadelphia.....107:84
■David Robinson gerði 32 stig fyrir Spurs
þegar liðið vann sinn fimmta leik f röð.
Hann hefur gert yfir 30 stig í 16 leikjum
með Spurs í vetur en liðið hefur leikið 31
leik. Dennis Rodman tók 18 fráköst fyrir
Spurs og var tilkynnt fyrir leikinn að félag-
ið hefði sektað hann um 10 þúsund dollara
fyrir að neita að fara af velli þegar hann
fékk tvö tæknivíti í leik á sunnudaginn.
Rodman varð alveg æfur og henti stól upp
í áhorfendabekki en enginn slasaðist.
Phoenix - Seattle..............106:112
■Þetta var hörkuleikur þar sem úrslitin
réðust ekki fyrr en á síðustu mínútunni.
Þetta var sætur sigur hjá Seattle því Phoen-
ix vann þegar liðin mættust í Seattle fyrir
skömmu og er það eini tapleikur Super-
Sonics á heimavelii á tímabilinu, en Seattle
hefur náð bestum árangri liða í vetur, unn-
ið 23 leiki og tapað þremur. Houston hefur
tapað fjórum leikjum en unnið 25. Kendall
Gill gerði 19 stig í leiknum og þar af 12 í
fjórða leikhluta. Miðherjinn Shawn Kemp
gerði 22 stig og þeir Detlef Schrempf og
Gary Payton 18 hvor. Charles Barkley var
stigahæstur í liði Phoenix með 22 stig,
Kevin Johnson gerði 22 og Dan Majerle 21.
Miami - New Jersey.............100:83
Atlanta - Charlotte............133:94
Indiana -Cleveland.............104:99
Chicago - Detroit...............97:91
Denver - LA Lakers............118:119
Golden State - Sacramento.....115:112
Íshokkí
NHL-deildin:
New Jersey - NY Islanders.........6:3
Toronto - Tampa Bay...............0:1
Dallas - Chicago.................1 ;2
BEftir framlengingu.
St Louis - Detroit................4:4
BlEftir framlengingu.
Los Angeles - Quebac..............5:1
San Jose - Montreal..:............2:2
■Eftir framlengingu.
FOLK
■ ALZIRA, lið Geirs Sveinssonar
og Júlíusar Jónassonar hefur skipt
um þjálfara en það kemur ekki til
með að hafa áhrif á stöðu þeirra fé-
laga í liðinu.
■ BJÖRN Jilsén, fyrrum landsliðs-
maður Svía í handknattleik, hefur
verið ráðinn þjálfari þýska liðsins
Wallau Massenheim. Jilsén lék með
Massenheim eitt tímabil 1985-86 en
þjálfaði Irstad í fyrra. Hann gerði
tveggja ára samning og tekur við
þýska liðinu eftir þetta keppnistíma-
bil
■ ORÐRÓMUR hefur verið uppi
um að Isiah Thomas væri á förum
frá Detroit til New York en á þriðju-
daginn ræddi hann málin við eiganda
Detroit og komust þeir að samkomu-
lagi um að Thomas verði áfram hjá
félaginu. Eftir tímabilið mun hinn
32ja ára bakvörður hætta og gerast
framkvæmdastjóri hjá félaginu og sjá
um körfuknattleikshliðina, ekki við-
skiptahliðina. Hann mun fá 55 millj-
óna dotlara eignarhlut í félaginu en
það er metið á 132 milljónir dollara.
M HEIKE Henkel, þýski ólympíu-
meistarinn í hástökki kvenna, á von
á fyrsta barni sínu í mars. Hún seg-
ist stefna að því að komast aftur í
fremstu röð hástökkvara eftir barns-
burðinn. Henkel missti af heims-
meistaramótinu í Stuttgart sl. sumar
vegna meiðsla en segist ákveðin í að
keppa á Evrópumeistaramótinu í ág-
úst. Heike Henkel er gift Þjóðverj-
anum Rainer Henkel fyrrum heims-
meistara í sundi.
■ ALEXANDER Popov frá Rúss-
landi bætti fimm daga gamalt heims-
met sitt í 100 metra skriðsundi á
heimsbikarmóti í sprettsundi í Pek-
ing í gær. Hann synti á 47,82 sekúnd-
um og bætti gamla metið um 0,01
sekúndu. Zhong Weiyue frá Kína
bætti metið í 100 metra flugsundi
kvenna á sama móti, synti á 58,71
sek., en eldra metið var 58,91 sek
og var sett af Mary Meagher frá
Bandaríkjunum í janúar 1981.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Morgunblaðið/Sverrir
Hvít-Rússarnir eru komnir
Landslið Hvíta-Rússlands kom til landsins í gær og tók létta æfingu f Laugardalshöll þar sem þessi mynd var tekin.
Fyrir miðju er einn besti handknattleiksmaður heims, Jakimovitsj.
Hvít-Rússar með
bestu markatöluna
Hvít-Rússar, sem mæta íslend-
ingum í Laugardalshöllinni
annað kvöld í Evrópukeppni, leika
þijá landsleiki á sex dögum. Þeir
leika tvisvar gegn íslendingum —
annað kvöld og á sunnudaginn, en
halda síðan til Króatíu og leika
gegn Króötum í Zagreb miðviku-
daginn 12. janúar.
Islenska landsliðið verður að
vinna báða leikina til að halda í
vonina um að komast_ í úrslita-
keppni EM í Portúgal. íslendingar
og Hvít-Rússar hafa leikið fimm
leiki, en Króatar, sem eru i efsta
sæti riðilsins hafa leikið sjö leiki
og eru með ellefu stig. Hvít-Rússar
eru með níu stig og íslendingar sjö
stig. Finnar eru með eitt og Búlgar-
ar ekkert.
Hvít-Rússar eru með bestu
markatöluna, eða 53 mörk í plús.
Króatar eru með 45 mörk í plús,
en íslendingar 20.
Leikirnir eru afar þýðingarmiklir
fyrir íslendinga og Hvít-Rússa, sem
eru að beijast við Króata um þátt-
tökurétt í Portúgal. Efsta þjóðin í
riðlinum fer til Portúgal, en þjóðin
sem hafnar í öðru sæti þarf að leika
um farseðilinn til Portúgal — gegn
þjóð, sem hafnar í öðni sæti i ein-
hveijum hinna riðlanna í EM. Þá
verður leikið tvisvar, heima og
heiman.
Það má segja að leikirnir séu
þýðingarmeiri fyrir Hvít-Rússa, því
að ef þeir komast ekki til Portúg-
al, eiga þeir hvorki möguleika á að
taka þátt í HM á íslandi 1995 ne
Ólympíuleikunum í Atlanta 1996,
en í HM á íslandi er keppt um far-
seðlana á ÓL.
Forsala
Forsala aðgöngumiða á leikina
tvö gegn Hvít-Rússum verður í
Kringlusporti og Sporthúsinu,
Laugavegi í dag og á morgun. Miða-
sala hefst í Laugardalshöll kl. 17
báða keppnisdagana.