Morgunblaðið - 20.01.1994, Side 12
I
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994
Á Listasafni íslands
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Þriðjudaginn fjórða janúar leit
ég inn í Listasafn Islands, og
skoðaði það sem til sýnis er um
þessar mundir. Safninu hafði
verið lokað frá því um miðjan
desember eða fyrr vegna við-
gerða, og sömu sögu er að segja
um Kjarvalsstaði, sem einnig
hafa verið lokaðir frá því að Rod-
in-sýningunni lauk í byijun des-
ember og opnaði fyrst laugardag-
inn 8. janúar. Á þetta er sérstak-
lega bent hér, vegna þess að lista-
menn og vafalítið listunnendur
svo og ferðamenn, eru ekki par
hrifnir af þessum desemberlok-
unum helstu sýningarsala höfuð-
borgarinnar. -
Ekki svo að skilja, að fram-
hald eigi að vera á einhæfum
síbyljusýningum allt árið, því að
meira en gjarnan mættu listhúsin
hvíla sig jólamánuðinn og halda
úti annars konar starfsemi. Einn-
ig söfnin og stóru sýningarsalirn-
ir og væri einmitt gullið tækifæri
fyrir þau að skarta hátíðarbún-
ingi og bjóða landsmönnum í
heimsókn á hressilegar og
óvenjulegar sýningar. Mun það
víðast einsdæmi að söfn loki
þannig jólamánuðinn, og væri
nær að nota janúarmánuð til að
flikka upp á salina, því að það
er hvarvetna frekar daufur mán-
uður. Hins vegar bjóða söfn víða
upp á sérstakar uppákomur í
desember, og nota tækifærið til
að laða einnig að gesti sem alla
jafna venja ekki komur sínar á
söfn.
Að vísu hafa söfnin okkar þá
afsökun, að fólk hefur ekki ennþá
lært að njóta listasafna á sama
hátt og víða annars staðar, og
kemur þangað frekar af skyldu-
rækni og forvitni en í leit að sér-
stæðum lifunum. Þetta hlýtur að
breytast og einkum er áríðandi
að söfnin reyni að ná til almenn-
ings og miðli nytsömum upplýs-
ingum um eðli og gildi sjónlista.
Fá hér fjölmiðla í lið með sér og
þá einkum sjónvörpin, um hlut-
læga umfjöllun.
Víðast hvar troðfylla söfnin
sali sína jólamánuðinn, og sums
staðar kemur fólk langt að til
að njóta þess sem þau bjóða þá
upp á sérstaklega og einungis
þennan mánuð. Aldrei líður mér
t.d. úr minni heimsókn á Metró-
pólitansafnið í New York í des-
emberbyijun fyrir nokkrum árum
og jólastemmningin í anddyri
þessa risastóra safns.
Hið eina sem minnti á jólin á
listasafninu var listaverkadagat-
alið fallega, sem dreifist um allan
heim, en yfir 100 þjóðir munu
eiga aðild að útgáfunni, og má
enn fá það í afgreiðslunni. Er
dagatalið gott dæmi um vandaða
og hlutlæga miðlun.
Það eru óvenju fjölskrúðugar
upphengingar í sölum listasafns-
ins um þessar mundir, eða allt
frá gömlu meisturunum í stóra
salnum til yngri kynslóðar í sal
tvö. Ekki er það rétt, að allir
þekki gömlu meistarana, frekar
að margur þekki þá frá þeirri
hlið sem mest er haldið fram.
Hugmyndaríkur listsögufræðing-
ur ætti að geta nálgast þá frá
alveg nýrri hlið og skapa með
því ný og fersk viðbrögð. Ungu
listamennimir, sem kynntir eru
núna, eru málararnir Jón Axel,
Eggert Pétursson, Einar Gari-
baldi, Georg Guðni, Jón Óskar,
Grétar Reynisson, Erla Þórarins-
dóttir og Margrét Jónsdóttir
ásamt myndhöggvaranum Bryn-
hildi Þorgeirsdóttur.
Það er satt að segja ansi mik-
il grámóska í verkum þeirra, en
óneitanlega eru málverkin sam-
stæð og heildarsvipurinn sterkur.
Grámóskan getur þó naumast
talist tákngervingur lífsfirringar
síðustu ára, sem þetta fólk hlýtur
þó sumt hvert að hafa upplifað.
Helst finnur maður hana í verk-
um Jóns Axels, en sú firring er
frekar meginlands-evrópsk í eðli
sínu.
Það hafa orðið svo miklar
breytingar á íslenzku þjóðfélagi
á fáum árum, að líkja má við
sprengingu, og þá frekar margar
en eina, og þróunin er um margt
dapurleg. En hvar sér þessarar
þróunar stað í íslenzkri myndlist
og þýðir þetta kannski að listin
er ekki lengur sú sagnfræði og
spegilmynd samtíðarinnar sem
hún var til skamms tíma? Þá
værð og ró sem blasir við í saln-
um kannast maður frekar við í
stemmningaríkum myndum Dan-
ans Vilhelms Hammershöi (1864-
1916), svo og einstakra málara
síðmódemismans sem sökktu sér
niður í hinar dýpri og hreinni lí-
fæðar málverksins, en þann
nornaseið sem segja má að síð-
ustu ár hafi boðið upp á. Hins
vegar má segja þessu fólki til
hróss að það vinnur af þekkingu
og einlægni sem eru alltaf góðir
eðliskostir.
Mestar umræður manna á
meðal hefur þó portretmyndasýn-
ingin „Ásjónúr", í stóra salnum
uppi, vakið og sýnist sitt hveij-
um. Um er að ræða að íjöldi
portrettmynda, genginna og eldri
málara, hafa verið teknar úr
römmunum og þeim raðað saman
eftir ákveðnu mynstri hlið við
hlið á alla veggi salarins og hon-
um svo skipt með tveim rétt-
hymdum skilrúmum fyrir miðju,
og svo er höggmyndaþyrping á
stalli beggja vegna þeirra. Ur
verður mikið og yfirþyrmandi
kraðak og er hér visast kominn
sá angi listarinnar sem nefnist
„installation“ og hefur bæði verið
útlagður sem uppsetning og inn-
setning á íslenzku. Þykir sumum
sem starfsfólk safnsins hafí farið
út fyrir hlutverk sitt, framið
helgispjöll og að listamennirnir
hafí sumir lítinn sóma af að vera
í þessum félagsskap, en öðrum
finnst þetta lífleg uppstokkun og
fróðleg til samanburðar. En þá
eru það vísast í meirihluta þeir
sem litla tilfinningu hafa fyrir
málverki, en leggja þeim mun
meira upp úr hugmyndafræði-
lega rammanum.
Án nokkurs vafa liði mörgum
gengnum málaranum illa ef hann
mætti sjá þessa meðferð verka
sinna og hví var ekki kallaður til
einhver innsetningar- og lista-
maðurinn og gerður ábyrgur fyr-
ir frmkvæmdinni? spyija sumir.
Hvað sjálfan mig áhrærir, upp-
götvaði ég að við nánari skoðun
kemur í ljós mjög áhugaverður
möguleiki til samanburðar á ólík-
um stílbrigðum og listamönnum
og - að þannig séð hafi fram-
kvæmdin dijúgan tilgang. Að
auki verður sýningin smám sam-
an ekki eins yfirþyrmandi og við
fyrstu kynni, en framkvæmdin
er vissulega nýstárleg á sasfninu
og kemur því mörgum í opna
skjöldu.
Ég hafði í öllu falli mestan
lærdóm af að skoða hana í sjöttu
heimsókn sunnudaginn 9. janúar
(!) og jafnvel þá var eitthvað
nýtt að koma í ljós sem mér hafði
yfirsést og sennilega hefur ekki
beinlínis verið á dagskrá þegar
sýningin var sett upp.
Það er annars áberandi hve
Jón Stefánsson sker sig úr, það
stafar bókstaflega myndrænum
ljóma frá hveiju verki sem hann
hefur lagt hönd að og myndir
hans eru Iíkast að verða tímala-
usar eins og öll góð list. Hér
kemur nefnilega fram að góð list
er alltaf nútímaleg og að ekki
er hægt að staðla hugtakið svo
sem menn eru að rembast við sem
aldrei fyrr. Þá er eins og að Þór-
arinn B. Þorláksson sé stöðugt
að nálgast nútímann og litla
sjálfsmyndin hans fær mann til
að hugleiða ýmislegt. Til að
mynda hefði hún verið mun
sterkari ein sér á veggnum og
vafalítið væri mögulegt að nota
hana á ýmsa vegu í magnaða
innsetningu.
Sýningin í heild gefur þannig
tilefni til margvíslegra hugleið-
inga, m.a. eignar safnsins á port-
rettmyndum og þannig séð hefði
hún verðskuldað mun meiri at-
hygli og umfjöllun. En hér er fjöl-
miðlafólk víðs fjarri eins og svo
oft, er það ætti einmitt að vera
með skilningavitin galopin um
hlutlæga miðlun og þjónustu við
fólkið í landinu.
Fyrir vikið vita fáir af þessari
forvitnilegu framkvæmd og mun
færri koma á safnið en ella myndi
leggja leið sína þangað.
Loks er sýning á óhlutbundn-
um pappírsverkum í salnum uppi
er veit að Tjörninni, en það er
langsamlegast erfiðasti salur
safnsins. Þar er margt ágæta
verka, en það er óráð að hafa
salinn svona galopinn þegar um
verk er að ræða sem eru uppfull
af nánd, ef svo má að orði kom-
ast (intimitet). Hér hefðu skilrúm
og fleiri verk aukið á áhrifamátt
heildarinnar.
Mest kom á óvart hér hve verk
Hjörleifs Sigurðssonar nutu sín
vel, og þau undirstrika að hann
er einn ljóðrænasti málari hreinn-
ar abstraksjónar sem íslenzka
þjóðin hefur eignast og töfrar
fram einfaldar og lífrænar mynd-
heildir á þann hátt sem einungis
er á færi mikilla málara.
Af framanskráðu má ráða að
innlit á safnið um þessar mundir
er lifun út af fyrir sig og á það
skal bent að senn fer fram ný
uppstokkun á veggjum þess.
Að lokum, - eitt truflaði mig
mjög við skoðun myndanna eftir
áramótin og það var hið gljáf-
ægða gólf og sú endurspeglun
sem það býður uppá og þá eink-
um í stóra salnum niðri, - væri
ekki frekar ráð að reyna að gera
það mattara og leitast við að
minnka endurspeglunina?
ÚTSALA 10 - 60% AFSLÁTTUR
Vetrarfatnaður, skíðagallar, dúnúlpur, »hUtnfllGl^
íþróttaskór, íþróttagallar o.fl. sportbúðin
Ármúla 40 • Sími 813555 og 813655