Morgunblaðið - 02.02.1994, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994
Kærður fyr-
ir fjárkúg-
un úr stefnu-
mótasíma
ÞRJÁTÍU og níu ára gamall
maður hefur verið ákærður fyr-
ir fjárkúgun með því að hafa
tekið upp samtöl úr stefnumóta-
símanum 99-1895 og hótað
mönnum að birta upplýsingar
úr samtölum þannig að það
kæmi þeim illa nema þeir
greiddu fé inn á bankareikning
hans. Hann er ákærður fyrir að
hafa með þessu móti haft 100
þúsund krónur af tveimur
mönnum.
í ákærunni er manninum gefið
að sök að hafa tekið upp símtöl
mannanna í því skyni að kúga af
þeim fé en þar hafi komið fram
ýmsar fullyrðingar mannanna um
þá sjálfa, óskir þeirra á kynlífs-
sviði og fullyrðingar um framhjá-
hald.
í ákæru segir að fjárkúgarinn
meinti hafi sett sig í samband við
mennina og krafið hvorn þeirra
um fimmtíu þúsund krónur. Hann
hótaði öðrum að segja eiginkonu
hans eða samkeppnisaðila hans í
atvinnurekstri frá samtalinu og
hinum hótaði hann að senda spólur
með samtalinu til heimabyggðar
hans.
Þórarinn og Jón innsigla niður-
stöðuna með handabandi í gær.
Þórarinn verð-
ur í 3. sæti
„Þetta er ekkert áfall í mínum
augum. Niðurstaðan gat orðið á
hvorn veginn sem er og ég gat
því allt eins búist við þessu,“ sagði
Jón Kr. Sólnes, sem laut í lægra
haldi þegar dregið var um hvort
hann eða Þórarinn B. Jónsson
myndu skipa 3. sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins við bæjar-
stjórnarkosningarnar á Akureyri
í vor.
Þeir Jón og Þórarinn fengu jafn-
mörg atkvæði í prófkjöri flokksins,
en þeir komust ekki að samkomu-
lagi um hvor ætti að skipa sætið,
þannig að kjörnefnd ákvað að
höggva á hnútinn með því að draga
um það.
Samkvæmt þessari niðurstöðu
verður Jón í 5. sæti, en hann sagð-
ist í gærkvöld áskilja sér allan rétt
til að hugsa sinn gang í kjölfar
þessa.
í dag
Umdeild gjaldheimta_____________
Eigendur verslana í Kringlunni
óánægðir með að greiða STEF-
gjöld samkvæmt fermetrafjölda 19
Hátt verðlag í Lillehammer
Himinhátt verðlag í Lillehammer
kann að draga athyglina frá íþrótt-
um á Vetrarólympíuleikunum 20
Borgarstjóri fagnur
Þátttakan í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjavík sterkur vitnis-
burður um stöðu flokksins 22-23
Leiðari
Úrslit prófkjörs 22
Á myndinni tað ofan les Ilannes J. Hafstein laganemi Ijóð eftir nafna sinn Hannes Hafstein,
fyrsta íslenska ráðherrann, að Ioknum ríkisstjórnarfundi í gær. Á myndinni til hægri gengur
forseti Islands til hátíðardagskrár í ráðhúsi Reykjavíkur í gærkveldi í fylgd Júlíusar Hafstein
formanns lýðveldishátíðarnefndar Reykjavíkur og konu hans Ernu Hauksdóttur. Til hliðar
er borgarstjóri að afhenda flóðlýsingarkerfi við stjórnarráðshúsið að viðstöddum forseta ís-
lands og forsætisráðherra.
Heimastj órnar minnst
á margvíslegan hátt
NÍUTÍU ára afmælis heimastjórnar var minnst með
margvíslegum hætti í gær. Á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun var afmælisterta á borðum í tilefni
dagsins og laganemar fylktu liði frá Lögbergi, húsi
lagadeildar, og efndu til hátíðardagskrár við Stjórn-
arráðið í Lækjargötu. Þar ávarpaði Davíð Oddsson
forsætisráðherra hópinn og Hannes J. Hafstein laga-
nemi flutti ljóð eftir nafna sinn Hannes Hafstein,
fyrsta íslenska ráðherrann. Markús Örn Antonsson,
borgarstjóri, afhenti stjórnan-áðinu flóðlýsingarkerfi
fyrir stjórnarráðshúsið við athöfn í gær. Kerfið er
framlag Rafmagnsveitu Reykjavíkur á 50 ára lýð-
veldisafmæli íslands. í gærkvöldi var síðan hátíðar-
dagskrá í ráðhúsi Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Síðari umræða um fj árhagsáætlun Reykjavíkurborgar annað kvöld
Engiii tillaga lögð fram
af hálfu minnihlutans
FULLTRÚAR minnihlutans í borgarstjórn munu ekki leggja fram tillög-
ur eða ályktanir við síðari umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar, sem fram fer á fimmtudag. Markús Örn Antonsson borgar-
s^jóri minnist þess ekki að það hafi gerst áður. Telur hann þetta merki
um ósamkomulag milli minnihlutaflokkanna og málefnaskort. „Það er
rétt að þetta er óvenjulegt, en þetta er áætlun sjálfstæðismanna og
við viljum að þeir beri alfarið ábyrgð á henni,“ sagði Sigrún Magnús-
dóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og sem rætt er um að leiði
sameiginlegan framboðslista minnihlutaflokkanna í komandi borgar-
sljórnarkosningum.
„Minnihlutinn hefur að jafnaði
komið fram með breytingartillögur
og þá frá fulltrúum hvers flokks um
sig,“ sagði borgarstjóri. „Þeir hafa
komið með tillögur um breytingu á
fjárveitingum til einstakra mála-
fíokka og jafnframt áiyktunartillögur
um stefnumótandi atriði en ekkert
slíkt kemur fram núna við afgre'iðslu
fjárhagsáætlunar fyrir árið 1994.“
Tákn um samstöðuleysi
Borgarstjóri segist telja þetta til
marks um að minnihlutinn og þeir
flokkar sem hann myndar hafí ekki
komið sér saman um tillögur og jafn-
framt merki um algjöran málefna-
skort í borgarstjórnarmálum. „Það
er fyrst og fremst við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar sem ágreiningur kem-
ur upp milli meiri- og minnihluta og
svo hefur verið á undanförnum árum,
en núna er því ekki til að dreifa,“
sagði Markús Örn. „Við hljótum að
líta á þetta sem tákn um samstöðu-
leysi. Þeir hafi ekki getað komið
saman tillögum allir þessir flokkar
en það hefði þeim vissulega verið
nauðsyn í ljósi umræðna um sameig-
inlegt framboð í vor. En þeir sleppa
því og dæma sig þar með úr leik.“
„Það hafa þegar komið fram gall-
ar á fjárhagsáætluninni og við tökum
henni því með varúð,“ sagði Sigrún.
„Við höfum oft varað við þeirri
stefnu, sem ríkir við stjórnun borgar-
innar og lágt fram tillögur, sem allar
hafa verið feildar."
Úr verinu Myndasögur
► Aukinn útflutningur á kældum ► Risaeðlur í heilsdagsskóla -
fiski - Mikil aukning varð hjá Sagan hans Eyjólfs, Fólkið í
Unipeche - Loks mikil loðnuveiði blokkinni - Gæludýr vikunnar -
- Lítil b’ræðslugeta gæti dregið Kveðja frá Flórída - Pennavinir
úr loðnuvinnslunni - Stafarugl
FAIklð f blokklnot
Vaniarliðsaðfóng itin
og tslcnskur fiskur út yí'vrr.
iiisiiii
Sigrún var innt eftir því hvort
minnihlutinn hefði gefist upp á að
fá einhveiju breytt. „Við lítum svo
á að sjálfstæðismenn hafi gefist upp
við stjórn borgarinnar. Það er okkar
að veita aðhald og það höfum við
vissulega gert. Við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunarinnar á fimmtudag
munum við sanna mál okkar. Staða
borgarsjóðs er mjög erfið og hefur
orðið algjör kollsteypa í því hin síð-
ari ár og samdráttur tekna hefur
ekki verið slíkur að hann útskýri svo
slaka stöðu. Sjálfstæðismenn virðast
heldur ekki of sáttir við eigin fjár-
hagsáætlun, því þeir leggja fram
bunka af breytingartillögum. Það
er þvílíkur glundroði, óráðsía og vit-
leysa sem ráða ríkjum hjá þeim að
það er ekki gott að átta sig á einu
eða neinu. Minnihlutinn sér fram á
að þurfa að taka við þessu búi í vor
og við ætlum að geyma okkar út-
spil þar til við getum mótað okkar
áætlun," sagði Sigrún Magnúsdótt-
ir.
Húsnæðisbréf
fyrir 500 millj.
með 5% ávöxtun
HÚSNÆÐISBRÉF fyrir 524 milljónir króna með 5% meðalávöxtun
seldust í gær í fyrsta útboði húsnæðisbréfa sem haldið er á þessu ári.
Sigurður E. Guðmundsson, forstjóri Húsnæðisstofnunar, segir að stofn-
unin sé mjög ánægð með þessar viðtökur, en í síðasta útboði stofnunar-
innar fyrir jól seldust innan við eitt hundrað milljónir við 5% ávöxtun.
Hann sagðist. telja að nú væri stofnunin komin á lygnan sjó í þessum
efnum. Alls bárust 15 tilboð í húsnæðisbréfin frá 13 aðilum að nafn-
virði 529 milljónir. Lægsta ávöxtun var 4,99% og sú hæsta 5,15%.
Sigurður sagði að stefnt væri að
tveimur útboðum húsnæðisbréfa í
hveijum mánuði, eins og verið hefði
framan af síðasta ári, en stofnunin
þyrfti að afla sér að minnsta kosti
níu milljarða króna í lánsfé á þessu
ári og 11 milljarða ef vel ætti að
vera. Hann væri bjartsýnn á að það
gengi vel eftir að þessar niðurstöður
lægju fyrir.
Erlendir fjárfestar geta keypt
Sigurður sagði að undanfarnar
vikur hefði nefnd á vegum Húsnæðis-
stofnunar, Lánasýslu og fjármála-
og félagsmálaráðuneytis farið yfir
skuldabréfamarkaðinn hér. Nefndin
hefði nú lokið störfum og samkvæmt
niðurstöðum hennar yrði ýmislegt
gert til að betrumbæta markaðinn
og gera hann aðgengilegri fyrir alla
aðila. Aðspurður hvort erlend lántaka
hefði verið undirbúin eins og rætt
hefði verið um þegar útboð hús-
næðisbréfanna gengu illa í lok síð-
asta árs sagði hann að ekkert væri
því til fyrirstöðu að selja húsnæðis-
bréfin á innlendum markaði og er-
lendum fjárfestum sem vildu kaupa
húsnæðisbréf hérlendis. „Markaður-
inn mun allur saman opnást fyrir
okkur hér bæði varðandi sölu hús-
næðisbréfa til innlendra aðila sem
erlendra. I mínum augum jafngildir
það því að við tækjum lán erlendis,
enda er það í sjálfu sér opið fyrir
okkur eins og annað,“ sagði Sigurður
einnig.