Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994 AFREKSVERK Viðurkenning'ar afhentar Björgunarfélagið hf. sem gerði út björgunarskipið Goðann veitti nýlega flugbjörgunarsveit vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli og áhöfnum björgunarþyrlanna viðurkenningarskildi fyrir afrek þeirra þegar þeir björg- uðu sex skipveijum af Goðanum. Á myndinni sést Kristján Sveinsson skipstjóri afhenda Jim Sills yfirmanni flugbjörgunarsveitarinnar viðurkenningarskjöld sem hann tók við fyrir hönd sveitarinnar. Fjölmargir voru mættir í ráðhúsið. Fremst á myndinni má sjá Markús Örn Antonsson borgarstjóra og eiginkonu hans Steinunni Ármannsdóttur ræða við Elísabetu Hermannsdóttur formann kvenfélagsins Hringsins og Indriða Pálsson stjórnarformann Skeljungs. MANNFAGNAÐUR Hringskonur í ráðhúsinu Níutíu ár eru liðin síðan Kvenfé- iag Barnaspítala Hringsins var stofnað og héldu Hringskonur upp á afmælið um síðustu helgi með pompi og pragt. Markús Öm Antonsson borgarstjóri bauð í hana- stél í ráðhúsinu og voru meðfylgj- andi myndir teknar við það tæki- færi. Færðu konurnar honum að 0öf kristalskúlu með merki félags- ins, sem þær höfðu látið útbúa. Að teitinu loknu var haldið á Hótel Borg, þar sem árshátíð félagsins var haldin og voru matargestir 160. Þorgeir Andrésson og Ingibjörg Marteinsdóttir sungu fyrir gesti og Stefán Höskuldsson lék á flautu. Þá fluttu Guðmundur Ámi Stefáns- son heilbrigðisráðherra og Davíð Á. Gunnarsson forstjóri Ríkisspítal- anna ávörp, en hátíðarræðuna flutti Víkingur Arnórsson læknir. Meðal gesta voru, f.v.: Katla Ólafsdóttir, Edda Ólafsdóttir, Páll Víg- konarson, Erna Arnar, Stefán M. Gunnarsson, Hertha W. Jónsdóttir hjúkrunarforsljóri á Barnaspítala Hringsins og Helgi Sigurðsson. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Stefanía Harðardóttir og Anna Thorlacius voru ánægðar með að hafa Ólaf Schram á þorrablótinu, þótt þær vilji ekki fá hann á fundi! SKEMMTUN Kvenfélag Bessa- staðahrepps blótar þorrann Kvenfélag Bessastaðahrepps hélt sitt árlega þorrablót síðastliðið laugardagskvöld að við- stöddu miklu fjölmenni. Blótið var haldið í íþróttahúsi hreppsins og þótti takast með miklum ágætum. Að loknu veglegu borðhaldi með tilheyrandi fjöldasöng var boðið upp á skemmtiatriði, sem vom heimatil- búin að venju. Síðan var stiginn dans við undirleik Gömlu brýnanna og stóð dansleikurinn til klukkan fjögur að morgni sunnudags. Fylgst með skemmtiatriðunum. F.v.: Magnhildur Gísladóttir, Mar- grét Sveinsdóttir, Ása Atladóttir formaður Kvenfélagsins, Gunnlaug- ur Guðmundsson, Aðalheiður S. Steingrímsdóttir, Níelsa Magnúsdótt- ir, Áslaug Ragnarsdóttir, Kjartan Sigtryggsson, forseti íslands Vig- dís Finnbogadóttir og Ijórólfur Arason. Eins og á öllum þorrablótum iðkuðu menn fjöldasöng af miklum móð og var hraustlega tekið undir eins og sjá má. COSPER Fyrrverandi kærastan mín sat fyrir, en hún sagði mér upp þegar myndin var tilbúin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.