Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994
EIGNASALAIM
REYKJAVIK
SAMTENGD
SÖLUSKRÁ
ÁSBYRGI
IICNAS/UAN
Símar 19540-19191 -619191
INGÓLFSSTRÆT112 101 RVÍK
Yfir 35 ára reynsla
tryggir öryggi þjónustunnar
HÖFUM KAUPANDA
Okkur vantar góða 3ja herb. jarðh. í
neöra Breiðholti. Fleiri staðir í Austur-
borginni koma til greina. Staðgreiðsla
í boði fyrir rótta eign.
HÖFUM KAUPANDA
að ca 130-150 fm sórhæö í Hlíöa-
hverfi. Bílskúr æskilegur en ekki skil-
yrði. Góð útborgun í boði.
HÖFUM KAUPANDA
að góðri 60-70 fm 2ja eða 3ja herb. íb.
miðsvæðis eða í Vesturborginni. Góð
útborgun í boði fyrir rótta eign.
HÚSEIGN ÓSKAST
Okkur vantar fyrir fjársterkan kaupanda
íbúöarhúsnæði með 4-5 íbúöum. Má
þarfnast stands. Eignin verður greidd
upp á skömmum’tíma.
HÖFUM KAUPENDUR
að 2ja-5 herb. ris- og kjíbúðum. Mega
þarfn. standsetningar. Ýmsir staðir
koma til greina. Góðar útborganir geta
verið í boði.
HÖFUM KAUPANDA
að góðri sérhæð eða raðhúsi í Vesturb.
eða á Seltjnesi. Góð útb. í boði.
SELJENDUR ATH.
Okkur vantar allar gerðir fasteigna á
söluskrá. Skoðum og verömetum. Ath.
það er góð sala og mikið um fyrirspurn-
ir þessa dagana.
EIGNASALAN
REYKJAVIK
Magnús Einarsson,lögg.fastsali,
Eggert Elíasson, hs. 77789,
Svavar Jónsson, hs. 33363.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Morð sem spegill mannlífs
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs 1994 hlýtur
sænski rithöfundurinn Kerstin
Ekman fyrir skáldsögu sína
Atburðir við vatn (Handelser
vid vatten) sem kom út í fyrra.
Ekman er kunnur rithöfundur
sem hóf feril sinn með glæpa-
sög^u 1959 og afbrot hafa jafn-
an verið meðal helstu við-
fangsefna hennar í skáld-
sagnagerð.
Skáldsagan Háxringarna
(1974) er fyrsta bókin í flokki
um konur og örlög þeirra í
sænsku bæjarsamfélagi, sú síð-
asta er En stad av ljus (1983).
Þessar bækur juku mjög á hróð-
ur Kerstin Ekman, auk ýmissa
viðurkenninga var hún valin í
akademíuna 1978. Hún lét þó
ekki staðar numið í skáldsagna-
gerðinni. Knivkastarens kvinna
(1990) og verðlaunabókin Hánd-
elser vid vatten þóttu enn styrkja
stöðu hennar meðal sænskra og
reyndar norrænna rithöfunda
yfirleitt.
Atburðir við vatn er skáldsaga
um glæp eða réttara sagt glæpi.
Hún hefst í Norður-Svíþjóð, nán-
ar tiltekið Jamtalandi, um jóns-
messu 1973 og nær til sam-
tímans. Þeir válegu atburðir sem
eiga sér stað á þessum slóðum
eru tengdir saman af almenning-
sálitinu þótt þeir séu ekki allir
af sömu rótum. Ofbeldi, ósætti
milli hjóna, fugladráp, virðingar-
leysi við náttúruna og tilraun til
eyðingar eru meðal þess sem
sagan greinir frá. Kona sér óljóst
ungling af asískum uppruna á
harðahlaupum. Skömmu síðar
kemur hún að tjaldi sem hefur
verið fellt. Inni í því eru tvö
ungmenni stungin til bana. Hún
horfir forviða á blóðugar hendur
sínar.
Aðalsögupersónur skáldsög-
unnar eru þijár og það eina sem
sameinar þær er morðið. Það eru
átján ár milli atburðanna, gamla
morðmálið er tekið upp og nýtt
morð er framið. Þessi langa
skáldsaga með sögum í sögunni
sem loks verða ein býður upp á
fleiri en eina túlkunarleið. Þrátt
fyrir frásagnargleðina, afar ná-
kvæmar umhverfislýsingar og
spennu er Atburðir við vatn ekki
saga sem liggur alveg í augum
uppi.
Eins og Dagný Kristjánsdóttir
hefur bent á í grein hér í blaðinu
(25. janúar sl.) eru óupplýst
morðin þungamiðja sögunnar:
„Þögnin færir ábyrgðina af
glæpnum yfir á margar fjöl-
skyldur og hin sameiginlega sekt
breytist í krabbamein sem hel-
tekur samfélagslíkamann hægt
en ákveðið. „Sannleikurinn"
hættir að skipta máli.“
Kerstin Ekman sættir sig ekki
við einfaldar lausnir og er síður
en svo neinn afþreyingarhöfund-
ur þótt hún skrifi um efni sem
Kerstin Ekman
nær til stórs lesendahóps. Um-
hyggja fyrir manni og náttúru
er henni ofarlega í huga. Persón-
ur hennar eru hvorki góðar né
vondar, sá vondi ekki alvondur.
Erindi hennar er aftur á móti
brýnt og það felst í textanum,
lesandinn verður að draga sínar
ályktanir.
Það er rétt sem stendur í
greinargerð dómnefndar að At-
burðir við vatn vekur til umhugs-
unar, afhjúpar sífellt ný svið,
einnig í lesandanum. Þannig eiga
miklar skáldsögur og meiriháttar
skáldskapur að vera. Því verður
ekki neitað að fólk spillir hvort
öðru jafnframt því sem það spill-
ir náttúrunni, umhverfi sínu, sín-
um nánustu.
Stíll Kerstin Ekman er skýr,
hnitmiðaður og oft ljóðrænn í
einfaldleika sínum. Andrúmi
skáldsagna hennar hefur verið
líkt við Siddharta Hermans Hes-
ses, aðrir gagnrýnendur hafa
talað um Thomas Mann meðal
fyrirmynda. Líkt og hann styðst
Kerstin Ekman við helgisögur
og goðsögur eru meðal þess sem
hún vinnur úr og fléttar saman
við eigin texta.
Kerstin Ekman hefur á afar
fróðlegan hátt lýst því hvaða
sænskir höfundar hafi orkað
mest á hana. Hún telur sig ekki
skrifa samkvæmt þeirri módern-
ísku hefð sem rekja má til Aug-
usts Strindbergs heldur standi
hún nær Hjalmar Bergman.
Selma Lagerlöf og Eyvind
Johnson (sérstaklega ein bóka
hans, Minnas) gagntóku hana
og hún nefnir með velþóknun
nöfn margra rithöfunda sem telj-
ast ekki beinlínis til hinna stóru
brautryðjenda heldur lögðu sig
fremur fram við að tileinka sér
alþýðlega frásagnarlist.
Hún orðar þetta skemmtilega:
„Ég ákvað með sjálfri mér að
um það sem gerðist í Katrine-
holm (þar ólst Kerstin Ekman
upp) skrifaði Hjalmar Bergman
í skáldsögum sínum. Um heim-
sviðburðina fjallaði Strindberg."
FASTGIGNA5ALA
VITASTÍG 13
Selvogsgrunn
Glæsilegt einbhús á einni hæð 171 fm auk 28 fm bíl-
skúrs. Húsið skiptist f stofu, borðstofu, forstofu, 3-4
barnaherb., hjónaherb., þvottaherb., eldhús og bað-
herb. Fallegur suðurgarður. Arinn í stofu.
Makaskipti möguleg á góðri sérhæð.
Gunnar Gunnarsson,
FASTEIGNASALA * lögg. fasteignasali, hs. 77410.
Miðvangur 41, Hafnarf.
Til sölu 2ja herbergja íbúð á 6. hæð ílyftuhúsi. Staðsetn-
ing og útsýni mjög gott. Gegnheilf parket á gólfum.
Laus fljótlega.
Upplýsingar í síma 657124.
011 Kfl 9197fl L^RUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjori .
L I IUvBkl0/v KRISTINNSIGURJ0NSS0N,HRL.loggiiturfasteignasau
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Nýtt eldhús - nýtt parket
Stór og góð 4ra herb. íbúð á 1. hæð við Hraunbæ. Kjallaraherb. fylg-
ir með snyrtingu. 40 ára húsnæðislán 3,3 millj. Mjög gott verð.
Bankastræti - úrvals staður
Stór rishæð 142,8 fm auk þess er mikið rými undir súð. Margskonar
breytinga- og nýtingarmöguleikar. Mikið útsýni. Tilboð óskast.
Verslunarhæð í sama húsi um 110 fm. Kjallari fylgir og viðbygging á
baklóð með bílastæðum. Nánari upplýsingar aðeins á skritstofunni.
Sérhæð - góð lán - frábært verð
Endurnýjuð 5 herb. glæsileg 2. hæð í Laugarneshverfi, rúmir 130 fm.
Nýtt parket, gler o.fl. Gott forstofuherb. m. sérsnyrtingu.
• • •
Mokkrar mjög glæsilegar
sér,hbæo?giínLölu FASTEIGNASAL AN
Opið á laugardaginn. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
ALMENNA
Eva Luna
Tónlistin úr sýningnnni
komin út á geisladiski
TÓNLISTIN úr leiksýningu Leikfélags Reykjavíkur, Evu Lunu,
er nú komin út á geisladiski. Eva Luna, leikrit með söngvum
eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson byggt á skáldsögu
Isabel Allende var frumsýnt í Borgarleikhúsinu 7. janúar sl. og
hefur verið uppselt á ailar sýningar til þessa.
Egill Ólafsson er höfundur tón-
listar og söngtexta en Egill leikur
jafnframt eitt aðalhlutverkið í sýn-
ingunni. Aðrir einsöngvarar eru
m.a. Edda^ Heiðrún Backman,
Steinunn Ólafsdóttir, Margrét
Pálmadóttir o.fl. Hljómsveitar-
stjóri er Árni Scheving en Ríkharð-
ur Örn Pálsson annaðist útsetning-
ar.
(Fréttatilkynning)
Edda Heiðrún
Backman.
DAGBÓK
SKIPIN_____________
REYKJAVÍKURHÖFN: í gær
fóru Hafnarey SF, Reykjafoss
og Svanur kom og fór samdæg-
urs. Þá komu Europe Feder,
Laxfoss og Uranus. í dag er
Dettifoss væntanlegur og búist
við að Hvörnen fari út.
HAFNARFJARÐARHÖFN: í
gær komu Haukur, Strong Ice-
lander og Lómur kom af veiðum.
Þá fóru Salt Lake og Oksimo.
KIRKJUSTARF______________
ÁSKIRKJA. Samverustund fyrir
foreldra ungra barna í dag kl.
10-12. 10-12 ára starf í safnaðar-
heimili í dag kl. 17.
DÓMKIRKJAN: Hádegisbænir
kl. 12.10. Orgelleikur frá kl. 12.
Léttur hádegisverður á kirkjulofti
á eftir. Opið hús í safnaðarheimili
í dag ki. 13.30-16.30.
HALLGRÍMSKIRKJA: Opið hús
fyrir foreldra ungra barna á morg-
un kl. 10-12.
HÁTEIGSKIRKJA: Kvöld- og
fyrirbænir í dag kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA. Aftan-
söngur kl. 18.
NESKIRKJA: Bænamessa kl.
18.20. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, alt-
arisganga, fyrirbænir. Léttur há-
degisverður í safnaðarheimili.
ÁRBÆJARKIRKJA: Mömmu-
morgunn í fyrramálið kl. 10-12.
Opið hús fyrir eldri borgara í dag
kl. 13.30. Fyrirbænaguðsþjónusta
í dag kl. 16. Starf fyrir 10-12 ára
(TTT) í dag kl. 17.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Kyrrð-
arstund kl. 12 á hádegi. Tónlist,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina. Unglingastarf (Ten-
Sing) í kvöld kl. 20.
KÁRSNESSÓKN. Mömmumorg-
unn í dag kl. 9.30-12 í safnaðar-
heimilinu. Starf fyrir 10-12 ára í
dag kl. 17.15-19.
FELLA- og Hólakirkja: Helgi-
stund, Gerðubergi, kl. 10.30.
Umsjón sr. Hreinn Hjartarson.
HJALLAKIRKJA: Starf fyrir
10-12 ára böm TTT kl. 17-19 í
dag.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Kyrrðarstund kl. 12 á hádegi og
léttur hádegisverður í safnaðarat-
hvarfínu, Suðurgötu 11, að stund-
inni lokinni.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Opið hús
í dag kl. 14.
VEGURINN, kristið samfélag,
Smiðjuvegi 5, Kópavogi: Biblíu-
lestur sr. Halldórs S. Gröndal í
dag kl. 18.
KEFLAVÍKURKIRKJA: For-
eldramorgnar kl. 10-12 og um-
rseða um safnaðareflingu kl.
18-19.30 í Kirkjulundi á miðviku-
dögum. Kyrrðar- og bænastundir
eru í kirkjunni á fimmtudögum
kl. 17.30.