Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 3
BOKMl fæst í næstu bókabúó F O R L A G I Ð MÁL O G M E N N I N G MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994 Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson ísingin hlóðst á Óðin VARÐSKIPSMENN á Óðni þurftu að taka á honum stóra sínum við að betja ís af skipinu þegar það var statt út af Vestfjörðum í frost- hörkunum á dögunum. Þar sem veðurhæð var mikil og sjór kaldur og ísingin hlóðst á skipið tóku varðskipsmenn fram kylfurnar og drógu ekki af sér við að beija af ísinn. Undirskriftir gegn staðsetningu dómhúss HÓPUR manna hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun, til að mót- mæla staðsetningu fyrirhugaðs dómhúss fyrir Hæstarétt á horni Lindar- götu og Ingólfsstrætis, fyrir aftan Safnahúsið við Hverfisgötu. I for- mála undirskriftalistanna er skorað á ríkisstjórnina að endurskoða áform um staðsetningu hússins þannig að komið vérði í veg fyrir skipu- lags- og menningarslys í lvjarta höfuðborgarinnar. Skúli Norðdahl arkitekt er í for- svari þess tólf manna hóps, sem hef- ur ákveðið að safna undirskriftum. „í þessum hópi er fólk í ýmsum stétt- um, sem hefur áður tjáð sig ópinber- lega um þetta mál og ber það mjög fyrir bijósti," sagði hann í samtali við Morgunblaðið. Uggðu ekki að sér í texta undirskriftalistanna, undir fyrirsögninni „Komum í yeg fyrir menningarslys — það er ekki of seint“ er fyrst nefnt að fyrirhuguðu dómhúsi hafi verið valinn staður á horni Lindargötu og Ingólfsstrætis. „Margir borgarbúar uggðu ekki að sér og trúðu lengi vel að aldrei yrði samþykkt bygging á þessum stað, sem þó hefur verið gert,“ segir síðar í textanum og einnig: „Margar aðrar lóðir, jafnvel í næsta nágrenni, mætti nýta þar sem áformað hús fyrir Hæstarétt myndi njóta sín vel. Við undirritúð skorum á ríkisstjórnina að endurskoða áform um staðsetn- ingu nýs hæstaréttarhúss þannig að komið verði í veg fyrir skipulags- og menningarslys í hjarta höfuðborgar- Samskip segja 11 upp starfí SAMSKIP hf. hafa sagt ellefu starfsmönnum upp starfi, frá og með síðustu mánaðamótum. Að sögn Árna Geirs Pálssonar, markaðsstjóra, eru uppsagnirnar liður í einföldun og hagræðingu í rekstri. Þeir, sem nú missa atvinnu sína, eru af skrifstofu, úr áhöfnum og starfsmenn á hafnarsvæði. Árni Geir segir að með fækkun skipa úr 10 í 4 á undanförnu ári hafi starfsfólki fækkað úr um 300 í um 240. „Fækkunin hefur bitnað mest á áhöfnum skipanna, en þó hefur verið litið til þess við sölu skipa að flytja menn á milli og meta starfsaldur. Við höfum reynt að hagræða með því að minnka vinnu- álag hvers og eins, þannig að fleiri haldi atvinnu sinni og hagræðingin verði sem léttbærust. Með fækkun skipum og samdrætti í verkefnum því samfara höfum við reynt að ein- falda reksturinn, án þess að skerða þjónustu." Þeir ellefu starfsmenn, sem sagt var upp fyrir mánaðamót, eru með mislangan uppsagnarfrest, mest þijá mánuði. Aukínn afli og meiri frystíng hjá Granda hf. GRANDI hf. jók bæði afla og frystingu afurða á síðasta ári. Afkoina fyrirtækisins liggur ekki endanlega fyrir en ljóst er að reksturinn mun skila að minnsta kosti 50 milljóna króna hagnaði. Á undanförnum misserum hefur starfsemi Granda verið endurskipulögð, og að sögn Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra Granda, er sú vinna að byrja að skila sér. „Árið 1991, þegar tilkynnt var um töluverða lækkun á þorsk- og ufsak- vóta, ákvað stjórn Granda að fara í aðgerðir árið 1992, sem meðal ann- ars fólu í sér að við seldum Ásgeir og keyptum Ögra. Við keyptum frystitogarann Örfirisey og færðum alla vinnslu okkar saman í Norður- garð,“ segir Brynjólfur. „Þetta var allt gerð árið 1992 þannig að síðasta ár er fyrsta heila árið eftir þessar breytingar á rekstri fyrirtækisins. Á því ári var veitt mesta magn í sögu fyrirtækisins, samtals 32.700 tonn. Arið áður varð heildarafli um 26.000 tonn. Þarna er úthafskarfi um 3.500 tonn og munar mikið um það. Við höfum líka sett met í frystum afurð- um, því í fyrra nam magnið 11.500 tonnum, en það er aukning frá árinu áður, þegar fryst voru um 10.000 tonn af afurðum. í Norðurgarði voru fryst um 6.200 tonn af ýmsum afurð- um. Tæplega 2.900 tonn voru fryst um borð í Örfirisey og 2.400 um borð í Snorra Sturlusyni," segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda. Sjá nánar í Úr verinu: „Metár í veiðum og vinnslu hjá Granda" á bls. B3. vcró frá 1. mars HHÆVISAGA KEITH RICHARDS Hér er rakinn stormasamur ferill einnar frægustu rokkhetju okkar tíma. Við kynnumst erfiðum upp- vexti ósköp venjulegs stráks úr lægri miðstétt sem í einangrun sinni á táningsaldri fer að sökkva sér niður í bandaríska blústónlist. Um tvítugt er hljóm- sveit hans og æskuvinar hans Micks Jaggers, The Rolling Stones, orðin heimsfræg og samnefnari fyrir uppreisnaranda nýrrar kynslóðar. Bókin lýsir samfelldri sigurgöngu hljómsveitar- innar á 7. áratugnum, en um leið valdabaráttu innan hennar og vaxandi vímuefnavandamálum. Smám saman ánetjast Richards heróíninu og missir tökin á lífi sínu. Loks snýr hann þó við blaðinu og byrjar nýtt líf snemma á 9. áratugnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.