Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 16
Morgunblaðið/Gunnar Hauksson Morgunblaðið/Alfons Vel sloppið MIKIL MILDI þótti að tveir karlmenn og tvær konur sem voru í bíl Rafmagnsveitna ríkisins, sem varð fyrir snjóflóði í Búlandshöfða síðastliðið sunnudagskvöld, skyldu sleppa að mestu ómeidd. en eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær hlaut fólkið aðeins minni háttar meiðsl og skrámur. Á stærri myndinni sést þegar verið var að bjarga bílnum af slysstað á mánudaginn, en hann reyndist vera gjörónýtur eftir óhappið. Á minni myndinni eru þær Valdís Brynjólfsdóttir t.v. og Sigrún Hansdóttir ásamt tíkinni Töru, sem var með þeim í bílnum, en Sigrún hlaut djúpan skurð á enni þegar bíllinn barst með snjóflóðinu hátt í hundrað metra niður fjallshlíðina. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994 Þröstur Ólafsson um sjávarútvegsmála- ályktun flokksstjórnar Alþýðuflokks „Jesus Christ Superstar“ á nemendamóti Verzlunarskóla íslands Mun drífa mig I Söngskólann Sjóprófum lokið vegna Mána ÍS 54 SJÓPRÓF voru haldin hjá sýslu- manninum á ísafirði í gær, vegna slyssins þegar línubáturinn Máni IS 54 fórst vestur af Barða þann 21. janúar. Við sjóprófin staðfestu skipveij- arnir tveir, sem komust af, fyrri skýrslur sínar um málið. Eins og fram hefur komið voru skipveijar að draga línuna þegar brotsjór reið yfir bátinn á bakborðssíðu, kastaði hon- um á stjórnborðssíðu með möstur í sjó og drapst við það á vélinni. Menn- irnir þrír komust um borð í gúm- björgunarbát, en þá var mjög dregið af skipstjóranum, sem lést áður en hjálp barst. Samkvæmt upplýsingum sýslu- mannsembættisins verður málið nú sent. Siglingamálastofnun, Rann- sóknarnefnd sjóslysa og ríkissak- sóknara til nánari athugunar. - segir Valgerður Guðnadóttir sem fer með hlutverk Maríu Magðalenu NEMENDAMÓT Verzlunarskóla íslands verður haldið á Hótel ís- landi á morgun, fimmtudaginn 3. febrúar, og er hápunktur móts- ins að þessu sinni sýning á söngleiknum „Jesus Christ Superstar" eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice. Leikstjóri er Þorsteinn Bachmann leikari og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson annast kór- stjórn, en danshöfundar eru Selma Björnsdóttir og Nanna Ósk Jónsdóttir nemendur I 6. bekk VI. Undirbúningur nemendamótsins hefur staðið í rúma níu mánuði, og taka rúmlega 100 nemendur skólans þátt í því. Með aðalhlutverk í söngleiknum fara Björgvin Skúii Sigurðsson, Guðmundur Aðalsteinsson og Valgerður Guðna- dóttir sem fer með hlutverk Maríu Magðalenu. Valgerður, sem er tæplega 18 ára gömul, er nemandi í 4. bekk Verzlunarskólans. Aðspurð sagð- ist hún ekki hafa lagt stund á ■“söngnám enn sem komið væri, en hún hefði hins vegar tekið þátt í söngvakeppnum innan skólans og í fyrra tók hún einnig þátt í nem- endamótinu. „Svo er ég alltaf að syngja með mínum ástkæra kór, Kór Langholtskirkju, en í honum hef ég verið í tæplega tvö ár. Það er ofsalega gaman að vera í hon- um og við förum út núna í sumar til að syngja," sagði hún. Valgerður'er í nemendamóts- nefnd skólans og sagði hún gífur- legan tíma hafa farið í allan undir- búning, en æfíngar á söngleiknum hefðu hafíst fyrir alvöru í októ- ber. „Þetta hefur verið alveg æðis- lega gaman og viðbrögðin hafa verið mjög góð. Ég ætla að reyna að drífa mig í Söngskólann eins fljótt og ég get, og kannski fæ ég einhver tilboð í framhaldi af sýningunum á söngleiknum, en ég er alveg tilbúin til að prófa mig eitthvað áfram á þessu sviði, t.d. í poppinu,“ sagði hún. Áherslur flokksins ekki endilega réttar Valgerður Guðnadóttir. Morgunblaðið/Sverrir Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞRÖSTUR Ólafsson, annar formanna Tvíhöfðanefndarinnar svo- nefndu, segist ekki vera að öllu leyti sáttur við þær áherslur sem flokksstjórn Alþýðuflokksins hefur lagt í sjávai-útvegsmálum. Flokks- stjórnin samþykkti á laugardag að gerbreyta verði fiskveiðistjórnun- inni þar sem kvótakerfið hafi gengið sér til húðar, en tillögur Tví- höfðanefndarinnar miðuðu að því að treysta kvótakerfið í sessi. Þröstur Ólafsson var fulitrúi Al- þýðuflokksins í nefnd ríkisstjórnar- flokkanna tveggja sem fékk það verkefni að fara yfír fiskveiðistjórn- unarstefnuna. Hann sagði við Morg- unblaðið, að á flokkstjórnarfundi Alþýðuflokksins á laugardaginn hefði komið skýrt fram i sínum mál- flutningi, að hann var ekki að öllu leyti sáttur við þær áherslur sem flokksstjórnin lagði þar, og teldi þær ekki endilega réttar. Pólitísk niðurstaða „Þegar við vorum að vinna í nefndinni síðasta vetur vorum við að reyna að ná niðurstöðu sem báð- ir flokkarnir gætu sætt sig við og sú niðurstaða er ekki endilega sú sama og stefna flokkanna. En ég tel að vegna þess að þetta var pólitísk nefnd, sem komst að pólitískri niður- stöðu sé ég bundinn af þeim niður- stöðum sem þar komu fram. Það hefði verið kjánalegt að hlaupa í öldu óánægjunnar og skipta um skoðun á þeim forsendum,“ sagði Þröstur. Hann sagðist ekki telja núverandi fískveiðistjórnunarkerfi gallalaust en það mætti ekki vera blórabögg- Fyrirlestur um bamsmissi NÝ DÖGUN, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, efna til fyrirlestr- ar um barnsmissi annað kvöld, fimmtudagskvöld kl. 20 í safnað- arheimilinu í Grensáskirkju. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur mun í þessum fyrirlestri fjalla um sorg foreldra við missi barna. Næstu þijú fímmtudagskvöld verður þeim foreldrum, er þess óska, boðið upp á svokallaða nærhópavinnu, þ.e. 8-10 manna hópar munu koma saman undir leiðsögn sjálfboðaliða innan samtakanna, segir í fréttatilkynn- ingu frá samtökunum. Valgerður Guðna- dóttir í hlutverki Maríu Magdalenu, Björgvin Skúli Sig- urðsson í hlutverki Jesú Krists ásamt Herdísi Önnu Þor- valdsdóttur og Re- bekku Sif Kaaber í uppfærslu nem- enda Verslunar- skólans á söng- leiknum um Jesus Christ Superstar. ull fyrir allt sem aflaga færi. Aðspurður hvort ekki væri erfítt fyrir Álþýðuflokkinn að standa að niðurstöðu Tvíhöfðanefndarinna.r í ljósi ályktunar flokksstjórnarinnar nú, sagði Þröstur svo ekki vera. Nið- urstaða nefndarinnar hefði verið málamiðlun beggja stjórnarflokk- anna og þvi hvorki stefna eins eða annars flokksins. Búvörulagafrumvarp ríkisst j órnarinnar ekki enn lagt fram á Alþingi Stj órnarandstaðan vill ræða frumvarp framsóknarmanna ÞINGFLOKKSFORMENN Framsóknarflokks og Alþýðubandalags kröfðust þess á Alþingi í gær að frumvarp þingmanna Fram- sóknarflokksins, um innflutningsbann á búvörum, verði tekið til umræðu á þinginu í dag þar sem boðað stjórnarfrumvarp um sama efni líti ekki dagsins ljós vegna ágreinings í ríkisstjórn- inni. Utanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær að spurning um verðjöfnunargjöld á innfluttar landbúnaðarvörur væri enn óút- kljáð en landbúnaðarráðherra svaraði og sagði að verðjöfnunar- gjöldin væru í hans höndum. í umræðum um _stjórn þingsins í gær spurði Guðni Ágústsson þing- maður Framsóknarflokksins eftir því hvenær -frumvarp ríkisstjórnar- innar um takmörkun á innflutningi búvara kæmi fram. Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra sagði að verið væri að vinna að málinu í samræmi við samkomulag ríkisstjórnarinnár. „Það urðu mér auðvitað vonbrigði að ekki náðist samkomulag um að leggja frumvarpið fram snemma í síðustu viku en ég vona svo sannar- lega að lausn fari að finnast á þessu máli og heimild gefist til þess að leggja fram breytingu á búvörulög- um,“ sagði Halldór. Deila um verðjöfnunargjöld Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra sagði að texti frum- varps ásamt viðaukum um vöru- flokka tollskrár væri vissulega fyr- irliggjandi. „Það sem ekki er endanlega útkljáð varðar spurn- ingu um verðjöfnunargjöld. Sá þáttur málsins er tæknilegs eðlis og ég geri ráð fyrir því að þau mál verði leidd til lykta í dag eða á morgun [þriðjudag eða miðviku- dag] og frumvarpið þar af leiðandi lagt fram. En forsenda þess er sú, eins og kom fram í máli landbúnað- arráðherra, að réttarstaðan verði sú sama, og staða mála sú hin sama, og hún var eftir lagabreyt- ingpna fyrir jólin," sagði Jón Bald- vin. Halldór Blöndal kom aftur í ræðustól, eftir athugasemd Jóns Baldvins, og sagðist til að koma í veg fyrir misskilning vilja láta það koma alveg skýrt fram, að eins og lögin hefðu verið samþykkt í desember, og samkvæmt úrskurði forsætisráðherra, þá færi landbún- aðarráðherra með innflutnings- og útflutningsmál landbúnaðarins. „Og verðjöfnunargjöld hans eru í höndum landbúnaðarráðherra," sagði Halldór. Ágreiningur staðfestur Þingmenn stjórnarandstöðu- flokka sögðu þessar orðræður ráð- herranna staðfesta ágreininginn um málið í ríkisstjórninni. Guðni Ágústsson og Jóhannes Geir Sigur- geirsson, sem lögðu á föstudag fram frumvarp um breytingu á búvörulögunum, óskuðu eftir því að frumvarpið yrði tekið á dagskrá þingsins í dag og tóku Páll Péturs- son þingflokksformaður Framsókn- arflokksins og Jóhann Ársælsson varaformaður þingflokks Alþýðu- bandalags undir þá kröfu í umræð- unum. Frumvarp þingmannanna tveggja er í raun tillaga sem meiri- hluti landbúnaðamefndar þingsins lagði fram síðasta vor en var ekki afgreidd þá. Þar er lagt til innflutn- ingur á búvörum sé háður sam- þykki landbúnaðarráðherra og setji í reglugerð nánari ákvæði um til hvaða vara lögin taki. Það fmmvarp sem ríkisstjómin hefur verið að undirbúa gerir einnig ráð fyrir því að innflutningur á landbúnaðarvör- um sé óheimill án leyfís landbún- aðairáðherra, en með lögunum fylgi listi yfir þá vömflokka sem innflutn- ingsbannið nái til. í þessu felst einn- ig að landbúnaðarráðherra ákveði hvort, og þá hvað há verðjöfnunar- gjöld verði lögð á þær vörur sem hann heimilar að flytja inn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.