Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994 13 Er allt í lagí hjá lífeyrissj óðunum? eftir Vilhjálm Egilsson Málefni lífeyrissjóða hafa nú komist í brennidepil þjóðmálaum- ræðunnar eftir að skýrsla nefndar á vegum Verslunarráðs íslands var kynnt á morgunverðarfund ráðsins hinn 19. janúar sl. Sem eðlilegt er hefur sitt sýnst hverjum um málið og skýslu Verslunarráðsins enda var hún innlegg í umræðuna án þess að vera endanlegur dómur. Talnaefni skýrslunnar byggir á skýrslu bankaeftirlits Seðlabankans frá því í nóvember sl. en þar koma fram nýjustu fáanlegar opinberar upplýsingar um málefni lífeyrissjóð- anna. í skýrslunni eru dregnar fram nokkrar lykilupplýsingar sem sýna stöðu lífeyrissjóðakerfisins. í stuttu máli er hallinn á lífeyrissjóðakerfinu miðað við áframhaldandi starfsemi 153 milljarðar króna. Halli þeirra sjóða sem hafa ábyrgð ríkis og sveitarfélaga er 84 milljaðar króna og hallinn á Lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins er 63 milljarðar króna. Málþing um stöðu kvenna í Há- skólanum VAKA stúdentafélag í HÍ stend- ur fyrir málþingi um efnið „Konur og háskóli“ í dag mið- vikudaginn 2. febrúar. Flutt verða framsöguerindi sem fjalla um áhrif kvenna á sljórnun Háskólans, breytingar á stöðu kvenna innan skólans, launa- mál, viðhorf stúdenta og mikil- vægi háskólamenntunar fyrir konur. Framsöguerindi flytja: Margrét Guðnadóttir, prófessor við lækna- deild, Edda Magnúsdóttir, fram- . kvæmdastjóri starfsmannasviðs HÍ, Edda Benediktsdóttir, formað- ur jafnréttisnefndar Félags Há- skólakennara, Elsa B. Valsdóttir læknanemi og Guðrún Helgadóttir alþingismaður. Að framsöguerind- unum loknum verða umræður og fyrirspurnir. Málþingið hefst kl. 17 í Odda, stofu 101, og eru allir velkomnir. Við blön litinn... DU PONT bflalakk notað af fagmönnum um land allt. Er bfllinn þinn grjótbarinn eða rispaður ? DU PONT lakk á úðabrúsa er meðfærilegt og endingargott. Faxafeni 12. Sími 38 000 Siðlaust ábyrgðarleysi í framhaldi af útkomu skýrslunn- ar hafa ýmsir reynt að gera lítið úr vanda lífeyrissjóðanna. T.d. líta sumir svo á að halli á þeim lífeyris- sjóðum sem hafa ábyrgð ríkis og sveitarfélaga skipti ekki máli. Þó er með því verið á hverju ári að velta milljörðum af launakostnaði vegna nústarfandi opinberra starfs- manna til skattgreiðenda í framtíð- inni. En er ekki áleitin sú spurning hvort mögulegt geti verið að skatt- greiðendur eftir 20-30 ár ákveði að þetta hafi verið siðlaust og hvorki geti né vilji standa við þessa ábyrgð? Kynslóðin sem nú er á vinnualdri horfist ekki í augu við raunverulegan launakostnað af. vinnu sinni fyrir hið opinbera en krefst þess af næstu kynslóð að hún axli þennan kostnað með ríflegum lífeyrisgreiðslum. Jafnvel ennþá ábyrgðarlausara hugarfar ríkir gagnvart Lífeyris- sjóði sjómanna en hallinn á honum eru rúmir 20 milljarðar króna. Þó liggur fyrir að hann nýtur ekki rík- isábyrgðar á skuldbindingum sínum og augljóst að hann getur ekki stað- ið við skuldbindingar sínar í fram- tíðinni. Því hefur verið haldið fram að vandi sjóðsins sé Alþingi að kenna vegna þess að einhvern tíma í tengslum við kjarasamninga hafi lífeyrisaldurinn hjá sjómönnum ver- ið lækkaður. Væntanlega fylgir þá röksemdafærslunni að skattgreið- endur eigi að borga brúsann þegar sjóðurinn lendir í greiðsluþrotum. Staðreyndin er hins vegar önnur og skattgreiðendur bera enga ábyrgð á sjóðnum. En er ekki at- hyglisvert að forystumenn sjó- manna skuli geta farið hringferð í kringum landið og talað fyrir kröf- um í kjarasamningum án þess að því er virðist að minnast einu orði á yfirvofandi þrot lífeyrissjóðsins sem er þó afgerandi fyrir starfskjör og réttindamál sjómanna? Er enginn SAL sjóður í vanda? Talsmenn SAL sjóða hafa komið fram í umræðunni og haldið því fram m.a. að flestir (ath. ekki allir) sjóðanna á samningssviði ASI séu nálægt jöfnuði milli skuldbindinga og eigna. Þeir hafa líka gagnrýnt að í skýrslu Verslunarráðsins sé ekki tekið tillit til ýmissa viðbótar- upplýsinga um einstaka sjóði sem fram koma í skýrslu bankaeftirlits Seðlabankans. Vissulega hafa for- ystumenn ýmissa lífeyrissjóða verið að bregðast við aðsteðjandi vanda og sem betur fer er ábyrgðarleysið ekki algjört. Nefnd Verslunarráðs- ins studdist hins vegar við þær töl- ur sem bankaeftirlitið setur fram sem tryggingafræðilegar úttekt á stöðu sjóðanna og væntanlega eru komnar frá sjóðunum sjálfum. í einhveiju tilvikum hafa aðgerðir sjóðanna ekki farið í gegnum nýjar tryggingafræðilegar úttektir og finna má dæmi þar sem bankaeftir- litið hefur bent á að reikna megi núvirði eigna einstakra sjóða með öðrum hætti og laga stöðuna eitt- hvað. Þetta breytir þó ekki neinu um heildarmyndina af stöðu lífeyr- issjóðanna. Talsmenn SAL sjóðanna hafa verið að draga úr því að þeir ættu við vanda að glíma og vissulega má ekki segja vandann meiri en hann raunverulega er. Nóg er nú samt. En á móti er heldur ekki gott að bíta saman jöxlum og veija það sem miður fer svo lengi sem stætt er. Það rýrir líka traust fólks á sjóðunum. Eitt dæmi má nefna. Lífeyrissjóði starfsmanna Áburðar- verksmiðju ríkisins var lokað um síðustu áramót þannig að hann tek- ur ekki lengur við iðgjöldum. Ákveðið var að skerða öll lífeyris- réttindi um 15% og vextir á lánum til sjóðfélaga voru hækkaðir í 7%. Starfsmenn verksmiðjunnar voru að sjálfsögðu brenndir af þessari réttindaskerðingu og óskuðu eftir því að fá að greiða í Lífeyrissjóð verslunarmanna sem stendur mjög vel. En þá kom tilskipun um það að starfsmenn ættu að greiða í Líf- eyrissjóð Dágsbrúnar og Framsókn- ar og hótanir um lögsókn gengi það ekki eftir. En hvernig skyldi nú staða Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og Framsóknar vera? Samkvæmt tölum bankaeftirlits Seðlabankans var hallinn á honum rúmlega 6 milljarðar eða um 90% af höfuðstól sjóðsins. í athugasemdum banka- eftirlitsins kemur fram að til standi Vilhjálmur Egilsson „Jafnvel ennþá ábyrgð- arlausara hugarfar rík- ir gagnvart Lífeyris- sjóði sjómanna en hall- inn á honum er rúmir 20 milljarðar króna.“ að skerða örorku- og makalífeyri sem með öðrum aðgerðum á að bæta stöðuna eitthvað. En tæpast verður hallanum snarað út svo létti- lega og það verður fróðlegt að sjá hver hann verður í næstu trygg- ingafræðilegu úttekt. Þá geta starfsmenn Áburðarverksmiðjunn- ar sem greiða nauðugir í sjóðinn undir hótunum um lögsókn farið að velta fyrir sér hvaða frekari réttaskerðing bíður þeirra í framtíð- inni. Þá verður fróðlegt að sjá við- brögð stéttarfélagsins Dagsbrúnar sem á að gæta þeirra hagsmuna og þeir eru skyldugir til að greiða í. Ábyrgðarvæðing nauðsynleg Ábyrgðarvæðing lífeyrissjóða- kerfisins er rauði þráðurinn í um- fjöllun nefndar Verslunarráðsins um lífeyrissjóðina. í því skyni er m.a. lagt til að fólki verði fijálst að velja á milli lífeyrissjóða, tekið verði á tvísköttun lífeyrisiðgjalda, lífeyrissjóðir niðurgreiði ekki lán til sjóðfélaga, lífeyrissjóðir kaupi hlutabréf í opnum hlutafélögum skráðum á markaði og greiðendur í sjóðina fái betri tækifæri til þess að hafa bein áhrif á málefni þeirra. í skýrslunni er öflugur rökstuðning- ur á bak við margar ágætar tillögur sem snerta aðalatriði málsins. Þess vegna hefur skýrslan vakið athygli og viðbrögð. Lífeyrissjóðakerfið er ekki í lagi. Skýrslan dregur fram þau atriði sem þarf að laga. Henni verður því ekki stungið undir stól hvort sem það er í vörn fyrir áfram- haldandi ábyrgðarleysi eða tiltekna sérhagsmuni. Höfundur er alþingismaður og framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands. IÐNSKOLINN I HAENARFIRÐI REYKJAVÍKURVEGI 74 OG FLATAHRAUNI SÍMAR 51490 OG 53190 TREFJAPLASTNAM Trefjaplastnámskeið verður haldið nú á vorönn 1994. Upphaf námsins verður í formi heimanáms (fjarnáms), þar sem nemendur kynna sér bóklegt kennsluefni nám- skeiðsins og leysa verkefni er tengjast námsefninu. í lokin verður tveggja vikna námskeið þar sem farið verð- ur ítarlegar í efnisþætti og unnar verklegar æfingar. Námskeiðið er ætlað þeim, sem hafa unnið eitthvað við trefjaplast. Þeir, sem eru að öllu leyti ókunnirtrefja- plasti, þurfa að sækja fornámskeið (helgarnámskeið) í notkun efnisins áður en bóklega námið hefst. Innritun í námskeiðið þarf að berast Iðnskólanum í Haf narfirði fyrir 8. febrúar. Gjald fyrir námskeiðið er kr. 20.000 auk kennslugagna. Þeir er þurfa að sækja fornámskeið greiða auk þess kr. 5.000. y i Einhver ævintýralegasta skemmtidagskrá allra tíma á Hótel íslandi Raggi Bjarna, Maggi Ólafs, Hemmi Gunn, Úmar Ragnars, Þorgeir Ásvatds, Jón Ragnars, Bessi Bjarna og Sigga Beinteins Frumsýninð lauga^3®' 5. feb- um skemmtu þjóðinni með óborganlegu gamni, gríni og glensi. Þeir eru mættir aftur til leiks eftir áralangt hlé, enn harðskeyttari og ævintýralegri en fyrr og nú með vinsælustu söngkonu landsins Siggu Beinteins. Að lokinni skemmtuninni tekur við hin nýja hljómsveit Verð aðeins kr. 3.900.- Eyþór Gunnars, Halli Gulli, Þórður Guðmunds. Gummi Jóns og Einar Bragi. Tónlistarstjóm: Gunnar Þórðarson og leikstjóm: Egjli Eðvaldsson. Matseðill p rtvínsba-tt»^sks'to!raiaSÚpl Koníaks'c#6 6^ aamberuðura Miðasala og borðapantanir íslma 687111 frákl. 13 til 17. Glæsileg tilboð á gistingu. Sími 688999 Sími 687111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.