Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 44
imdir emu þaki SJÓVÁQgTALMENNAR MORGVNBLAÐW, KRINGLAN 1 103 REYKJAVlK SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKl’REYRl: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Piltanna leitað með neðansjáv- armyndavél NEÐANSJÁVARMYNDAVÉL var notuð til að leita við Vatns- nes í grennd við Keflavíkurhöfn að piltunum tveimur sem sakn- að hefur verið siðan í liðinni viku. Leitin bar ekki árangur. Tveir kafarar og tveir lögreglu- menn voru um borð í báti með neðansjávarmyndavélina. Að sögn Ólafs Bjarpasonar í leitarstjórn björgunarsveitanna hefur verið rætt um að leita einnig með þess- um hætti í Keflavíkur- og Njarð- "^víkurhöfn. Að sögn rannsókarlögreglunnar í Keflavík eru síðustu vísbendingar um ferðir piltanna sem taldar eru áreiðanlegar á þá leið að sést hafí til þeirra að leik við klettana við Vatnsnes. Að sögn Ólafs Bjarnasonar er ekki ákveðið að halda skipulagðri ieit áfram þegar leit með neðan- sjávarmyndavélinni lýkur. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Loðnufrysting hafin á Austfjörðum SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna hóf loðnufrystingU í að ræða tilraunavinnslu enda er hrognafyllingin enn sem gær í frystihúsum sínum á Seyðisfírði, Eskifírði og Nes- komið er ekki nema 12,6% en miðað er við að loðnufryst- kaupstað, þar sem meðfylgjandi mynd var tekin. Um er ing hefjist þegar 15% hrognafyllingu er náð. ' 14,6 milljarða króna útboð á skuldabréfum ríkisins í Bandaríkjunum An fyrirvara í frumsýn- ingu Grímu- dansleiks KRISTJÁN Jóhannsson tenór- söngvari var fenginn til þess með nánast engum fyrirvara í fyrra- dag að taka að sér titilhlutverkið í Grímudansleik Verdis, sem frum- sýndur var í fyrrakvöld, í Bayer- ische Staatsoper í Miinchen. Krist- ján hafði aðeins 12 dögum áður sungið titiihlutverkið í frumsýn- ingu á Cavalleria Rusticana á sama sviði. Kristján lýsir því svo í samtali við Morgunblaðið í dag, að hann hafi ásamt fjölskyldu sinni verið í skíða- fríi í Lech í Aust- urríki, þegar for- svarsmenn Bayer- ische Staatsoper höfðu samband við hann upp í austurrísku Alpana og báðu hann að koma þegar í stað til Múnchen. Vinur Kristjáns og kollegi, breski tenórinn Dennis O’Neill, missti skyndilega röddina á lokaæfíngunni, svo Kristján var fenginn til þess að hlaupa í skarðið. Frumsýningin tókst að sögn afbragðsvel. Sjá viðtal við Kristján á bls 7. ---------»-♦ ♦----- Mikil sala og ávöxtun tal- in hagstæð fyrir ríkissjóð MIKILL áhugi reyndist vera á skuldabréfum ríkissjóðs sem boðin voru út á bandarískum skuldabréfamarkaði í gær og fengu færri bréf en vildu. Alls voru seld bréf fyrir um 200 milljónir dollara eða sem svarar til um 14,6 milljarða. Bréfin eru með 0,57% álagi á vexti af 10 ára ríkisskuldabréfum Bandaríkjanna þannig að ávöxtun þeirra er um 6,2%. Kristni boðið að syngja á Scala KRISTINN Sigmundsson óperusöngvari hefur fengið tilboð um að syngja hlutverk Sarastró í óperunni Töfrafluutunni á La Scala á Ítalíu í nóvember og desember á næsta ári. Kristinn segir að ekki sé víst að hann geti tekið tilboðinu þar sem hann hafi einnig fengið tilboð frá Parísaróperunni um að syngja í óperunni La Boheme á sama tíma. Það tilboð feli í sér fleiri sýningar og sé því fjárhagslega betra; „Það er verið að reyna að sameina þetta tvennt þessa dagana. Á öðrum hvorum staðnum verð ég og helst á báðum,“ sagði Kristinn í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að auk þess hefði hann feng- ið nokkur tilboð frá Parísaróper- unni, sem hann tæki sennilega flestum ef ekki öllum, en þetta væri nýja Bast- illuóperan. Auk 'V La Boheme væri um að ræða Évgení Ónegín og Fordæmingu Fausts eftir Berlioz. „Það er mjög mikill heiður að bjóðast að syngja hlutverk Mefistófelesar þar og það að mér skuli vera treyst fyrir því að syngja á frönsku fyrir Frakka eitt aðalhlptverkanna í þessari óperu, sem er franskari en allt sem franskt er, það er mér mikill heiður,“ sagði Kristinn. Hann sagði aðspurður að auð- vitað væri sér mikil sómi sýndur með boðinu um að syngja á Scala. Hins vegar hefði hann ekki sótt það neitt fast að syngja þar frek- ar en annars staðar. „Það er tíma- spursmál hvenær ég syng þar. Þegar ég ber sjálfan mig saman við þá sem ég syng með, sem hafa sungið á Scala heilmikið, þá finnst mér, án þess að ég sé að mikla mig af því, það bara eðli- legt framhald að einhvern tíma komi að því. Jafnvel þó ég tæki ekki þessu tilboði með Töfraflaut- una þá er ég sannfærður um að það kemur þá að því einhvern tíma seinna að ég syng þar. Svona er maður nú orðinn montinn mað- ur,“ sagði Kristinn að lokum. Verðbréfatækið Handsal hf. var eini íslenski þátttakandinn í útboðinu en ekki lá fyrir í gær hversu mikið fyrirtækið fengi í. sinn hlut, að sögn Eddu Helgason framkvæmdastjóra. „Við munum væntanlega bjóða þessi bréf til sölu hér innanlands þegar viðskipti á eftirmarkaði hefjast í Bandaríkjunum. íslendingar geta fagnað kjörum bréfanna því þau voru afar hagstæð fyrir ríkissjóð sem lán- takanda," sagði Edda. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenska ríkið býður út skuldabréf á banda- rískum markaði. Útgáfuhópur undir forystu JP Morgan vann að útgáf- unni en aðrir þátttakendur voru Citi- bank, Goldman Sachs og Merill Lynch. Markmiðið með þessari út- gáfu er að endurfjármagna eldri lán þ. á m. 100 milljóna dollara lán sem fellur í gjalddaga í maí nk. og létta að nokkru leyti þrýstingi af innlenda lánsfjármarkaðnum í samræmi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda þar um. Þyrla köll- uð út vegna neyðarblyss ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var send til leitar í gærkvöldi eftir að tilkynnt hafði verið um neyðarblys út af Malarrifi, vestast á sunnan- verðu Snæfellsnesi. Skipveijar á Reykjafossi töldu sig sjá neyðarblys um klukkan hálftíu og fór þyrlan í loftið um klukkustund síðar. Kannað var hvort bátar væru á þessum slóðum og var ekki vitað um annað skip þarna en Reykjafoss og engra báta var saknað. Laust fyrir miðnætti hætti þyrlan leit vegna éljagangs en Reykjafoss og varðskip- ið Oðinn voru á svæðinu. Efnahagsbati í Bandaríkjunum hefur áhrif hérlendis Flugleiðir stefna að 14% söluaukningu STARFSFÓLK Flugleiða í Bandaríkjunum hefur orðið vart við aukna sölu í Bandaríkjunum að undanförnu, að sögn Péturs J. Eiríkssonar, framkvæmdasljóra markaðssviðs félagsins. Pétur segir efnahags- ástandið í Bandarikjmium gefa tilefni til aukinnar sölu og segir félag- ið stefna að a.m.k. 14°/o söluaukningu þar á þessu ári. Friðrik Sophus- son fjármálaráðherra telur að sá efnahagsbati sem náðst hefur í Banda- ríkjunum og þær spár um að hann eigi eftir að reynast viðvarandi, muni án nokkurs vafa hafa jákvæð áhrif á efnahagslíf íslendinga og Evrópubúa innan tíðar. Pétur J. Eiríksson sagði að Flug- leiðamenn litu til Bandaríkjanna sem eins af björtustu mörkuðum sínum á þessu ári. „Við erum að breyta áætl- unum okkar og ætlum a_ð stórauka söluna, sérstaklega til íslands og einnig til Evrópu. Við leggjum mikla áherslu á sölu Saga class-fargjalda frá Bandaríkjunum til Lúxemborgar og nú eru teikn á lofti um að hún sé að aukast.“ Friðrik Sophusson ijármálaráð- herra sagðist engan vafa telja á því að batnandi ástand í Bandaríkjunum mundi hafa áhrif í Evrópu og þar á meðal hér á íslandi. „Þetta segi ég auðvitað með þeim fyrirvara, að við færum okkur í nyt hagkvæmni sam- keppninnar, bæði hér innanlands og á milli landa. Við höfum búið í hag- inn með þeim stöðugleika sem hér er, með því að hætta erlendri skulda- söfnun, með því að lækka vexti og styrkja samkeppnisstöðu atvinnufyr- irtækjanna með lægra raungengi," sagði fjármálaráðherra. Friðrik kvað vera ástæðu til bjart- sýni, að því tilskildu að botninum væri náð, að því er varðaði takmörk- un aflaheimilda og að við yrðum ekki fyrir öðrum slíkum ytri áföllum. Ef hagvöxtur héldi áfram á þessari braut í Bandaríkjunum, þá ætti það að leiða til batnandi viðskiptakjara íslendinga. „Við ættum að ná betri viðskiptakjörum og þar með að ná hér fram auknum hagvexti," sagði Friðrik Sophusson, íjármálaráð- herra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.