Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994 33 Minning Jónína Guðbjörg Braun, Siglufirði Fædd 26. mars 1916 Dáin 17. janúar 1994 Ég veit þú heim ert horfin nú, og hafin þrautir yfir, svo mæt og góð, svo trygg og trú, svo tállaus, falslaus reyndist þú, ég veit þú látin lifir. (Steinn Sigurðsson) Mér er bæði ljúft og skylt að minnast tengdamóður minnar með örfáum orðum, en hún lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar hinn 17. jan. sl., eftir tveggja mánaða legu þar. Áður var hún oft búin að liggja á sjúkrahúsi, en alltaf reis hún upp aftur af óbugandi vilja- þreki, til að takast á við störfin, unz yfir lauk. Nú er kallið mikla komið, Jónína er komin heim, og vissulega hefur heimkoma hennar verið góð, eftir hennar langa og farsæla starf hér í jarðheimi. Fósturforeldrar Jónínu voru hjónin Jón Gunnlaugsson og lngi- björg Siguijónsdóttir, í Ási í Glerárhverfi. Þar ólst hún upp við gott atlæti. Ung að árum fluttist hún til Siglufjarðar, í síldarævin- týrin þar. Hennar beið þó annað og meira ævintýri. Hún kynntist þar mannsefni sínu, Sæmundi Jónssyni, af Lambanes-ætt, sonar- sonur Kristjáns Jónssonar, sem lengi bjó í Lambanesi í Fljótum, og lést árið 1959, á 105. aldursári. Þau Jónína og Sæmundur gengu í hjónaband hinn 17. júlí árið 1937. Reistu þau bú í Siglu- fírði, fyrst á Hvanneyrarbrautinni, Fæddur 9. mars 1976 Dáinn 24. janúar 1994 Vegir skiptast. - Allt fer ýmsar leiðir inn á fyrirheitsins lönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. Einum flutt er árdagskveðja, öðrum sungið dánarlag, allt þó saman knýtt sem keðja, krossför ein með sama brag. Veikt og sterkt í streng er undið, stórt og smátt er saman bundið. (Einar Ben.) Ingi Páll lést mánudaginn 24. janúar sl., aðeins 17 ára. Hann var sonur Hrannar Pálsdóttur og Egils Helga Kristinssonar og eiga þau eldri son, Sigurjón Elvar. Ingi Páll byijaði í Öskjuhlíðar- skóla haustið 1982, þá 6 ára, og hefði hann útskrifast úr starfsdeild skólans í vor. í litlum skóla eins og okkar myndast sterk tengsl milli nemenda og starfsfólks. Það er erfitt að sætta sig við að bekkjarfélagi, vinur og nemandi hverfi skyndilega af sjón- arsviðinu eftir ellefu ára samveru og er Inga Páls sárt saknað. Ingi Páll var sérstaklega ljúfur og gefandi drengur. Hann hlustaði mikið á tónlist og kunni marga texta. Ingi Páll átti góða vini í skól- anum og leið vel á meðal þeirra. Hann var hjálpsamur og fljótur til að aðstoða og hugga skólafélaga ef á þurfti að halda. Að loknum skóladegi á föstudögum kom Ingi Páll oft og kvaddi okkur kennarana með kossi um leið og hann bauð góða helgi. Starfsfólk og nemendur Öskju- hlíðarskóla kveðja Inga Pál með söknuði, þakklæti og virðingu. Foreldrum, bróður og öðrum að- en lengst bjuggu þau á Hólavegi 36. Þar byggði Sæmundur hús, þegar fjölskyldan stækkaði. Þau hjón eignuðust sjö börn, og eru sex þeirra á lífi. Þau eru: Stefanía Þórunn, f. 16.1. 1937, húsmóðir í Syðra-Vallholti, gift Gunnari Gunnarssyni b. þar. Þau eignuðust tvær dætur. Jón Örn, f. 13.5. 1938, smiður að atvinnu. Kona hans var Þórunn Freyja Þor- geirsdóttir, nú látin. Þau eignuð- ust tvær dætur og tvo syni. Jórunn Gunnhildur, f. 28.11. 1943, hús- móðir á Akureyri. Gift Jóni Ævari Ásgrímssyni, verslunarmanni, og eiga þau eina dóttur. Úlfar Helgi, f. 5.10. 1945, vélvirki, veitustjóri í Reykjahlíð í Mývatnssveit. Hann er í sambúð með Unu Einarsdótt- ur, og eiga þau eina dóttur sam- an. Úlfar á tvo syni frá fyrra hjónabandi og dóttur og son frá því fyrir hjónaband, auk tveggja stjúpbarna. Anna Kristín, f. 17.11. 1948, húsmóðir á Siglufírði. Gift Ámunda Gunnarssyni, vélvirkja, og eiga þau þijú börn. Sigrún, f. 10.1. 1951, d. 14.1. 1951, og Sig- rún Björg, f. 21.7. 1957. Hún býr að Hofi í Öræfum, gift Ara Magnússyni, og eru þau ferðaþjón- ustubændur þar. Þau eiga þijár dætur. Langömmubörnin eru orðin 17. Þau Jónína og Sæmundur voru mjög samhent hjón og komust farsællega frá sínu. Börnin voru mörg, heimilið vissulega stórt, svo mikils þurfti við að koma öllu fram. Það tókst vel með elju og standendum sendum við innilegar samúðark veðjur. Blessuð sé minning hans. Jónína, Valgerður og Friðbjörn. útsjónarsemi. Sæmundur var mik- ill völundur, þúsund þjala smiður. Hann var jafnvígur á margt, hug- myndaríkur og útsjónarsemi hans góð, og finnst mér þó einhvern veginn að hann hafi ekki notið mikillar skólagöngu í æsku. Samt lék allt í höndunum á honum, var honum meðfætt. Mér finnst það sannast best á honum, að skóli lífsins er besti skólinn. Hann hóf ungur að vinna að hugðarefnum sínum, og vissi hvað hann vildi. Hann var rafvirki, vélstjóri og sjómaður, svo fátt eitt sé nefnt. Skip sín smíðaði hann sjálfur. Það var varla til sá hlutur, að hann gæti ekki smíðað hann, hvort held- ur var um skip að ræða, tíu tonna fagurrendar fleytur, eða þá smærri hlutir, sem of langt yrði hér að telja. Síðast, en ekki síst, má svo nefna að hann lék fyrir dansi á fiðluna sína um áratuga skeið, ásamt félögum sínum. Nú er hann orðinn aldraður maður, dvelur í Skálarvík, dvalar- heimili aldraðra á Siglufirði. Það er aðdáunarvert hversu vel hann reyndist konu sinni í veikindum hennar. Þau hafa verið hvort öðru allt, allt frá því þau fundust í síld- inni norður á Siglufirði, forðum daga. Jónína var mikil atgerviskona, sívinnandi, og leysti sérhvert verk vel af hendi. Hún var rösk og kvik í hreyfingum, glaðvær og skemmtileg. Þennan vitnisburð er mér ljúft að gefa henni eftir 30 ára kynni, sem aldrei féll skuggi á. Hún kom hér stundum í Syðra-. Vallholt, alltof sjaldan þó. Henni var létt að lífga upp á heimilislíf- ið. Ævinlega gleðiauki er hún kom, en eftirsjá að, er hún fór Nú er hún öll. Glaðvær hlátur hennar ómar ekki lengur í hlustum okkar nema sem mirining. Þær eru margar fagrar og bjartar minning- arnar sem við eigum um Jónínu Braun frá liðnum dögum og árum Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku besti vinur minn hann Ingi Páll er dáinn. Því er erfitt að trúa, hann var svo lífsglaður, hjálpsamur og góður. Elsku Ingi, ég sakna þín svo sárt en ég veit þér líður vel núna hjá Guði. Með þessum fáu orðum kveð ég þig og þakka þér fyrir allt. Þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Vertu sæll kæri vinur. Megi Guð geyma þig. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer sitji guðs englar yfir mér. (H.P.) Elsku Hrönn, Egill, Elvar og aðrir ástvinir, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Minning um góðan dreng lifir. Eva og fjölskylda. sem gott er að eiga og una við í annríki daganna. Persónulega vil ég þakka henni hjartanlega fyrir allt og allt, og um leið og ég lýk þessum fátæklegu minningarorð- um, vil ég votta eftirlifandi eigin- manni hennar, ættingjum öllum og vinum, rnínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Góður Guð verndi ykkur öll. Blessuð veri minning Jónínu Braun. Gunnar Gunnarsson. Hún Ninna amma er dáin. Þar er óskiljanlegt að þessi dásamlega kona, sem alltaf hefur verið til staðar, sé horfin að eilífu. Ég kynntist henni fyrst fyrir tæplega tuttugu og átta árum, ég man auðvitað ekki eftir okkar fyrstu kynnum, en um leið og ég komst til vits og ára, skildist mér að þarna væri kona sem væri ein- stök, enda ekki á állra færi að kyssa á „báttið“ svo að það batn- aði eða að gefa faðmlag er væri svo hlýtt að allur ótti eða einmana- leiki hvarf á augabragði. Amma var alla tíð glaðlynd og lífsglöð kona sem vert var að kynnast og reyndist hún mér vel í öll þessi ár sem virtust svo mörg fyrir nokkrum dögum en eru alltof fá í huga mínurn í dag. Ég vil því með þessum fáu orð- um, sem geta með engu móti tjáð tilfinningar í garð móðurömmu minnar, fá að kveðja hana og láta hana vita að hún mun verða í huga mínum og hjarta hveija inín- útu þar til við hittumst á ný. Þórhildur Heiða Jónsdóttir. t Elskulegur sonur okkar, fóstursonur og bróðir, BJÖRN ELLERTSSON, Urðarstekk 2, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. febrúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Málraektarsjóð, sími 28530, eða Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Gyða Sigvaldadóttir, Kristján Guðmundsson, Hólmfrfður Kristjánsdóttir, Ellert Guðmundsson, Sigríður Marta Sigurðardóttir, Hildur Ellertsdóttir, Stefán Hallur Ellertsson, Margrét Ellertsdóttir, Ægir Pétur Ellertsson. T t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSU ÁRNADÓTTUR, Laufvangi 16, Hafnarfirði. Karl Brynjólfsson, Kristín Kristjánsdóttir, Sóley Brynjólfsdóttir, Bjarni Ágústsson, Haukur L. Brynjólfsson, Ásgerður Hjörleifsdóttir Bragi Brynjólfsson, Guðlaug Björgvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okk- ur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og sambýliskonu, GUÐRÚNAR LAUFEYJAR TÓMASDÓTTUR, Laugavegi 50. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 7 Borgarspítala, söngfélaga SVR og söngstjóra. Guðmundur Kr. Erlendsson, Sigursteina Jónsdóttir, Guðbjörg Erlendsdóttir, ^ ömmubörn og Vilbert Stefánsson. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt- ingar endurgjaldslaust.. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðs- ins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnar- stræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrii-vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Þetta er minning-arkort Slysavarnafélags Islands Skrifstofan sendir þau bæði innanlands og utan. Þau fást með enskum, dönskum eða þýskum texta. SímiSVFÍer 627000. Gjaldið er innheimt með gíró. Ingi PáUHelga- son — Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.