Morgunblaðið - 02.02.1994, Síða 7

Morgunblaðið - 02.02.1994, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994 7 Kristján Jóhannsson syngur hlutverk Gústafs III í Bayerische Staatsoper Á fljúgandi ferð úr Ölpunum í frumsýn- ingu Grímudansleiks Viðtal Agnes Bragadóttir „MAESTRO!" „Ah! Boun Giorno!“ Þessi voru upphafsorðin að spjalli stórsöngvarans Kristjáns Jóhannssonar og blaðamanns Morgunblaðs- ins, símleiðis um hádegisbil í gær, en söngvarinn var þess fullviss að menningarbiaðamaður Morgunblaðsins væri við Islandsenda si- malínunnar, en ekki einn af stjórnmálafréttamönnunum. „Æ! Hæ! Agnes, er það ekki?“ Þar með renndum við okkur i einskonar stór- svigi inn í viðtal um glænýjan viðburð á listaferli Kristjáns, sem söng titilhlutverkið, hlutverk Gústafs III Svíakonungs, í Grímudans- leik í Bayerische Staatsoper, einu virtasta óperuhúsi Þýskalands, á frumsýningu í fyrrakvöld, við leiftrandi undirtektir áheyrenda sem gagnrýnenda. Það sem er makaiausast við þessa nýjustu skrautfjöð- ur á ferli Krisljáns er, að hann var kallaður með engum fyrirvara ofan úr Austurrísku ölpunum, þar sem hann, ásamt fjölskyidu sinni, hugðist renna sér á skíðum í eina viku, til Miinchen seint á sunnu- dag, beint inn á æfingu og frumsýningu á Grímudansleik Giuseppe Verdis, sem fram fór í fyrrakvöld, eins og áður segir. — Kristján, ég veit vel að Grímu- dansleik kannt þú betur en Faðir vorið — en var þetta samt sem áður ekki svolítið hættuspil, svona gjörsamlega fyrirvaralaust? „Það má kannski segja það, en þó ekki svo mikil áhætta, þar sem þetta verk er annars vegar. Grímu- dansleikur er náttúrlega mitt sérfag, sem ég er búinn að syngja í, líklega um áttatíu sinnum.“ — En hvað gerðist? — Þú varst að syngja í sama óperuhúsi í Cavall- eria Rusticana örfáum dögum áður. Fimm barítónar á þremur sýningum „Ég er búinn að vera að syngja hér í Bayerische Staatsoper Cavall- eria Rusticana og I Pagliacci. Frum- sýningin var 19. janúar og á þessum fyrstu fjórum sýningum af sex, sem ég samkvæmt samningi söng í, þá gekk vissulega á ýmsu. Á frumsýn- ingunni voru einkennilegar uppá- komur. Piero Cappuccilli, þessi heimsfrægi barítónsöngvari var að syngja í fyrsta sinn utan síns heimalands eftir slys sem hann lenti í. Við höfum sungið saman nokkr- um sinnum áður og gengið vel. Hann lenti í slæmu umferðarslysi fyrir tveimur árum, sem hefur greinilega farið mjög illa með hann, því honum gekk ekki vel á frumsýn- ingunni og sagði upp. Á næstu þremur sýningum á eftir vorum við með samtals fimm barítóna í Ca- valleria og Pagliacci. Þeir renndu bara hjá, eins og um brautarstöð væri að ræða! Fjórða sýningin var eiginiega sú sýning, sem var fyrsta rétta og fullmótaða sýningin. Að vísu er þriðja sýningin eftirminnileg fyrir þær sakir að þá kom inn hin fræga gríska mezzósópransöngkona, Agnes Baltsa og hún syngur áfram, það sem eftir er. Við náðum and- skoti góðum töktum saman og það var virkilega mikill hiti, átök og drama eftir að hún var komin inn, enda voru viðtökurnar alveg frá- bærar.“ Neyðarkall upp í Alpa — En hvar koma skíðin og Lech inn í myndina? „Eftir að ég var búinn að syngja í fjórðu sýningu, þann 27. janúar, hafði ég ákveðið hlé, áður en ég syng í þeim tveimur sýningum sem ég á eftir að klára, og við hjóna- kornin ákváðum að taka okkur viku skíðafrí í Lech í Austurríki. Við ákváðum að hittast í Innsbruck, ég keyrði héðan frá Múnchen og hún kom ásamt strákunum frá Italíu. Við fórum síðan saman þaðan upp til Lech. Þetta var einmitt þegar þetta bijálaða veður gekk yfir hér um daginn. Ég er nú búinn að aka ósjaldan á milli Akureyrar og Reykjavíkur, bæði yfir Öxnadals- heiði og Holtavörðuheiði, í blindbyl, þar sem maður ekur með hausinn út um gluggann og fer fetið og þetta var bara alveg eins. Veðrið var gjörsamlega snælduvitlaust. Við vorum fyrst á tveimur bílum, en skildum svo Benzinn minn eftir og fórum áfram á hinum bílnum. Strákunum fannst þetta hreint ævintýri, því þeir hafa aldrei lent í slíku veðri og raunar fannst mér þetta líka ofsalega gaman, ekki síst vegna þess að okkur tókst að ná á leiðarenda heil á húfi. Strax næsta dag var veðrið orðið yndislegt og við bara renndum okk- ur á skíðum og nutum hreina lofts- ins og útiverunnar — þetta var bara dýriegt. Svo var það seinni- partinn á sunnudag, svona um fjög- urleytið, þá erum við enn uppi í fjalli að renna okkur á skíðum, þegar ég fæ skilaboð um að koma þegar í stað í símann á nærliggj- andi veitingastað. Þar voru þeir frá Bayerische Staatsoper. Laugardeg- inum á undan voru þeir með loka- æfíngu á Grímudansleik og þar átti vinur minn og kollegi, Dennis O’Neiil, breskur tenór að syngja hlutverk Gústafs III. Dennis missti bara röddina á generalprufunni og komst ekki nema fram í miðjan annan þátt. Þeir höfðu upp á mér í Lech, voru alveg miður sín og báðu mig um að koma, því Dennis var búinn að fá þá niðurstöðu úr læknisskoðun á sunnudeginum að hann væri kominn með blöðrur á raddböndin, og því fyrirsjáanlegt að hann gæti ekki sungið á frum- sýningunni í gær. Ég brunaði því af stað aftur til Múnchen og var kominn á æfíngu hér í g^rmorgun (mánudag) um kl. 10 og æfði til kl. 13 með ieik- stjóra og aftur frá kl. 16 til 18 með hljómsveitarstjóra og svo renndi maður sér bara beint inn í frumsýn- inguna sem var kl. 19 í gærkvöldi." Enginn tími til að vera stressaður — Og hvað? Hvernig gekk þetta hraðaupphlaup þitt? „Þetta var ofsalega gaman. Ég hafði engan tíma til þess að vera stressaður. Auðvitað þekki ég verk- ið út og inn. Við fluttum þessa svo- kölluðu sænsku uppfærslu, sem er ekki ósvipuð þeirri sem við gerðum með Sveini Einarssyni í Þjóðleik- húsinu, sællar minningar. Nema sviðsmynd og búningar í þessari uppfærslu eru mjög „modern" og það var greinilegt að leikhúsgestun- um líkaði sú umgjörð misvel.“ Eins og api í búri „Það eina sem segja má að hafi valdið mér smáerfíðleikum á frum- sýningunni var þegar spákonan var að spá fyrir mér. Sá þáttur fór fram í svona litlum skáp á miðju sviði, sem var úr hvítu plasti og halogen- ljós lýstu hann upp, þannig að hann varð svona eins og glóandi hnöttur af himnum ofan sendur. Hann var lokaður á alla kanta og þykkt fílt fyrir framan. Ég var eiginlega eins og api í búri, en af því að þetta var úr harðplasti, með þessari filtein- angrun, þá hljómaði röddin þarna inni allt að því með ólíkindum, þannig að það hefði líklega nægt að hvísla, eða eitthvað nálægt því. Fyrri hluta aríunnar söng ég þar inni og svo kom ég út aftur og söng bara af sviðinu. Þá fannst mér ég allt í einu vera orðinn radd- laus, því ég heyrði ekki í sjálfum mér á sama hátt og inni í klefan- um. En ég áttaði mig fljótt á því að ég þurfti bara að bæta svolítið við raddstyrkinn og þá gekk þetta alveg glimrandi og til að gera langa sögu stutta, þá var þetta bara það sem hægt er að kalla „Grand Succ- ess“. Raunar ætlaði allt af göflun- um að ganga í sýningarlok." Kristján segir að það ráðist í dag eða á morgun, hvort Dennis O’Neill hafi náð sér nægilega til þess að taka við hlutverkinu, en ef svo reyn- ist ekki, muni hann líklega syngja nokkrar sýningar í þessu gamal- kunna hlutverki sínu hjá Bayerische Staatsoper. Held mig við konubrekkurnar á skíðum! — Kristján, nú er ég sannfærð um að ég er ekki ein um að eiga bágt með að ímynda mér þig renna þér á skíðum. Þjóðin hlýtur að vilja svar við þeirri spurningu sem brennur á vörum mér: Getur þú eitthvað á skíðum! Nú heyrist-hinn dillandi hlátur Kristjáns og hann svarar:_ „Þú ætt- ir bara að sjá mig núna! Ég er orð- inn voðalega sætur! Búinn að vera í strangri megrun og losa mig við fímm kíló. Bít bara á jaxlinn og segi: Enga helvítis græðgi lengur! Mér finnst ég vera í andlegu og líkamlegu toppformi. En veistu, ég druilast alveg þokkalega á skíðum, já, já, það eru ábyggilega engar ýkjur. Ég er held ég megi segja þokkaiegur skíða- maður, en ég hef þó ekkert skíðað síðan heima í Hlíðarfjalli fyrir mörgum árum. Jóna er náttúrlega fædd á ísafirði og pabbi hennar var og er mikill skíðamaður, þannig að þaðan hefur hún grunninn.“ — En hvað? Þú heldur þig við rauðu og bláu brekkurnar, eða Kristján Svíakonungur KRISTJÁN Jóhannsson í hlutverki Gústafs III Svíakonungs á sviði Bayerische Staatsoper í Munchen í fyrrakvöld, á frumsýningu Grímudansleiks eftir Giuseppe Verdi. Með Kristjáni á myndinni er Juiia Varadin, í hlutverki Amegiiu. hættir þú þér í þær svörtu í Ölpun- um? „Jú, ætli megi ekki segja að ég haldi mig við þær rauðu og bláu. Ég sleppi þeim svörtu alveg. Það má segja að ég haldi mig við konu- brekkurnar!“ Og hér beinlínis ískrar hláturinn í tenórnum. — Áður en við kveðjumst, Krist- ján. Við segjum frá því á forsíðu Morgunblaðsins í dag (þriðjudag) að Liceo-óperuhúsið í Barcelona, frægasta óperuhús Spánar og eitt hið frægasta í heimi, eyðilagðist af eldi í fyrradag. Hefur þú sungið í þessu húsi? „Nei, ég hef ekki sungið þar enn, en ég er með samning við húsið um að syngja í II Trovatore á næsta ári. Reyndar var ég með samning við Liceo-óperuhúsið um að syngja í II Trovatore í fyrra, en ég varð því miður að falla frá þeim samningi, vegna of mikilla anna. Þetta er auðvitað mjög sorglegt, en þó er ánægjulegt að ákveðið hefur verið að endurbyggja þetta virta hús, þar sem svo margir heimsfrægir listamenn hafa þreytt frumraun sína. Listamenn eins og José Carreras, en þetta er í raun hans heimahús, því hann er ættað- ur úr grennd Barcelona." Að þessum orðum mæltum kveð- ur Kristján, því hann segist hafa komið frá Lech til Múnchen sl. sunnudag á skíðagallanum, aðeins með nærbrækur til skiptanna! Nú þurfi hann að nota.þær stundir sem gefist til þess að fara aftur til Lech — renna sér með Jónu, sonum þeirra, þeim Víkingi og Sverri, a.m.k. nokkrar salíbunur, og vera síðan til taks að bruna uppábúinn og skíðagallalaus til baka til Múnchen, hafí raddbönd Dennis O’Neil! ekki náð umtalsverðum bata, þegar líða tekur á daginn í dag. Tenór á heimsmælikvarða ÞEGAR Agnes Baltsa mezzósópransöngkonana heimsfræga kom inn í hlutverki Santuzza sem mótsöngvari Kristjáns Jóhannssonar á þriðju sýningu á Cavalleria Rusticana fjölluðu gagn- rýnendur á nýjan leik um sýninguna og veittu Baltsa frábæra dóma, en luku jafnframt lofs- orði á Kristján. I Múnchener Abendzeitung segir m.a. þann 1. febrúar (í gær): „Baltsa er frábær... Röddin er með sópranískum glans... Leikræn tjáning og radd- beiting fullkomin, einnig á hinum hættulega háu tónum.“ Um Kristján segir í sama dómi: „Á engan hátt stóð Kristján Jóhannsson í skugga Baltsa og í þessu samspili og samsöng með Baltsa hafði hann fullkomið vald á Turudu. Tenór á heimsmæli- kvarða.“ Slæmar fréttir, góðar fréttir „DÖMUR mínar og herr- ar. Ég færi ykkur slæmar og góðar fréttir. Um há- degisbil í dag var skammt í það að við aflýstum þess- ari frumsýningu,“ sagði Peter Jonas, óperuhús- stjóri Bayerische Staats- oper í Munchen við upphaf frumsýningar á Grímu- dansleik eftir Verdi í fyrrakvöid. „Dennis O’Neill, „Gustavo" okkar, fékk nú um helgina skyndilega heift- arlega raddbandasýkingu. Þrátt fyrir mikla umönnun lækna varð læknir hans að tilkynna okkur í dag að Dennis O’Neill gæti ekki sungið á frumsýningunni í kvöld,“ hélt Jonas áfram, og kvaðst harma það bæði hans vegna og frumsýningar- gesta. „Til allrar hamingju tókst okkur að ná símasambandi við Kristján Jóhannsson og fá hann til þess að koma hingað til Múnchen. Hann prufusöng í morgun, og er reiðubúinn til þess að taka að sér þetta erfiða titilhlut- verk í kvöld, undir þessum erfiðu kringumstæðum, og bjarga þar með frumsýning- unni. Ég vona að þið ásamt mér þakkið honum hug hans til okkar og kjark. Þökk fyrir og þrátt fyrir allt sem á undan er gengið óska ég ykkur dásamlegs kvölds.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.