Morgunblaðið - 02.02.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994
9
Franskar dragtir,
pils og buxur.
TESS
IM t
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opið virka daga
kl.9-18,
laugardag
kl. 10-14.
Láttu
sparnabinn
gerast
sjálfkrafa
Mörgum finnst fátt jafn auðvelt eins
og að eyða með greiðslukorti.
En að sama skapi er jafn auðvelt að
spara með greiðslukorti.
Þú gerist áskrifandi að spariskírteinum
ríkissjóðs og greiðir áskriftina
mánaðarlega með greiðslukortinu þínu.
Markús Örn Antonsson borgarstjóri.
Fjölskyldan hefur
forgang
Markús Antonsson borgarstjóri segir í
viðtali við Flokksfréttir, fréttabréf mið-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins, að málefni
fjölskyldunnar verði efst á baugi. Hann
fjallar einnig um uppbyggingu dagheim-
ila, heilsdagsskóla og baráttuna gegn
atvinnuleysinu.
Falleg borg
Markús Antonsson
borgarstjóri seglr m.a. í
viðtali við Flokksfréttir:
„Smám saman hefur
árangurinn af trjáplönt-
un og ræktun opinna
svæða verið að koma í
(jós. Við höfum einnig
bætt um betur með fram-
kvæmdum við götustíga
og gert fólki þannig
kleift að fara um borgar-
landið án þess að þurfa
að vera inn í umferðar-
niðnum. I því sambandi
má nefna útivistarsvæðin
í Elliðaárdal, Fossvogs-
dal og Heiðmörk. Fjöl-
skyldugarðurinn í Laug-
ardal, sem vígður var á
Jónsmessunni á sl. sumri,
er til að mynda ákaflega
skemmtileg viðbót. Þar
er boðið upp á fjölbreytta
leiki og alþreyingu í hinu
fegursta umhverfi, en
gestir í fjölskyldugarði
og húsdýragarði voru
rúmlega 200 þúsund á
árinu. Ég held að það sé
mjög eftirtektarvert
hvað almenn jákvæð við-
brögð hafa verið við
þessu hjá borgarbúum
sjálfum."
Ör uppbygging
dagheimila
„Við höfum bætt við
dagvistarplássum á þessu
ári (1993) sem eru fleiri
en á heilu kjörtímabili
áður. Það hefur gerzt
bæði með góðri sam-
vinnu við borgarstarfs-
mennina á leikskólunum
þar sem börnum liefur
verið fjölgað í kjölfar
þess að teknir voru upp
ábataskiptasamningar
við starfsfólkið. Með þvi
móti höfum við sparað
fjárfestingarkostnað -
en einnig hefur feikilega
mikið verið gert í upp-
byggingu nýrra leik-
skóla.“
Heilsdagsskóli
„Akaflega góð við-
brögð hafa verið við
heilsdagsskólanum, bæði
hjá foreldrum og bömun-
um sjálfum. Við verðum
ekki vör við annað en vel
hafi til tekizt."
I því sambandi nefndi
borgarsljóri að skóla-
sljórar í Reykjavik hefðu
samþykkt sérstaka álykt-
un um þetta efni þar sem
þeir fögnuðu heilsdags-
skólanum sérstaklega.
Sumarvinna fyr-
ir unga fólkið
„Með verkefnum til
skemmri og lengri tíma
höfum við getað saxað
töluvert á atvinnuleysis-
skráninguna. Þar fyrir
utan höfum við lagt mikla
áherzlu á að útvega skóla-
fólki vinnu yfir sumar-
mánuðina. Síðastliðið
sumar veittum við auka-
fjárveitingar til að útvega
5.000 ungmennum vinnu
- og jafnframt eldra fólki
sem hafði verið á atvinnu-
leysiskrá. Atvimiuleysið í
sumar fór verulega niður
á við vegna þessara að-
gerða og maður sér fyrir
sér hvílíkt hörmungar-
ástand hefði orðið hér ef
skólafólk hefði ekki feng-
ið vinnu. Þetta hefur kost-
að okkur hundruð millj-
óna króna en verkefnin
skila sér, þau eru þörf og
góð og mælast vel fyrir.“
Aflvaki
„Varðandi nýsköpun og
eflingu atvinnulífs í
Reykjavík til lengri tíma
vænti ég mikils af stofnun
Aflvaka Reykjavikur hf.,
sem ég hefi beitt mér fyr-
ir. Borgarsjóður og fyrir-
tæki Reykjavíkurborgar
munu auka hlutafé sitt í
Afivaka um 75 miiyónir á
árinu 1994. Vænst er þátt-
töku annarra fyrirtækja
og stofnana í borginni
með framlagi á móti.“
Sýndarsam-
staða
„Ég tel að samstarfið [í
borgarstjómarmeirihlut-
anumj hafi síðan orðið
eins og bezt hafi verið á
kosið. Enda hafa andstæð-
ingar okkar, þegar þeir
hafa reynt að gera sér
mat úr borgarstjóraskipt-
um, ekki getað bent á
neinn málefnaági’eining í
hópi borgarfulltrúa og
varaborgarfulltrúa Sjálf-
stæðisfiokksins.
Hins vegar hefur
ágreiningurinn í röðum
minnihlutans í borgar-
stjórn verið miklu meiri
og djúpstæðari núna en
t.d. fyrr á ámm þegar ég
var að hefja störf i borgar-
sljórn ... Þó menn ræði í
orði kveðnu um eitthvert
samstarf og hugsanlegt
sameiginlegt framboð er
hver höndin upp á móti
annarri."
Þannig verður sparnaðurinn sjálfvirkari
og þú hættir fljótlega að taka eftir því
að þú leggur fyrir í hverjum mánuði -
þar til þú færð yfirlit yfir sparnaðinn!
Áskrift með greiðslukorti er því ljós
punktur í mánaðarlegum
útgjöldum þínum.
Hringdu í síma 91-626040
(grænt númer 996699) og pantaðu
áskrift að spariskírteinum.
Það þarf aðeins eitt símtal til
að byrja að spara.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
ATTÞU
SPARISKIRTEINIRIKISSJOÐS
1. FL. D 1989?
Þann 10. febrúar nk. er gjalddagi fimm ára spariskírteina í
1. flokki D 1989. Ráðgjafar VÍB veita eigendum bréfanna
ókeypis ráðgjöf við áframhaldandi ávöxtun sparifjárins. í
boði eru meðal annars eftirfarandi verðbréf:
• NÝ SPARISKÍRTEINIMEÐ SKIPTIUPPBÓT
• SPEGILSJÓÐIR VÍB
• ERLENDIR VERÐBRÉFASJÓÐIR JAMES CAPEL
Ráðgjafar VÍB veita frekari upplýsingar um gjalddaga
spariskírteina og ávöxtun sparifjár. Verið velkomin í VIB.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
I—_______Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími: 68 15 30. Myndsendir: 68 15 26. _I