Morgunblaðið - 02.02.1994, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994
11
Morgunblaðið/Sverrir
Fúría fer á kostum
_________Leiklist_____________
Guðbrandur Gíslason
Fúría, Leikfélag Kvennaskólans
í Reykjavík:
Sjö stelpur
eftir Erik Thorsteinsson.
Þýðandi: Sigmundur Örn Arn-
grímsson.
Leiksljóri: Sigrún Valbergsdótt-
ir.
Búningar/leikmynd: Guðrún
Auðunsdóttir.
Ljósameistari: Kári Gíslason.
Aðalleikendur: Þórhildur Ýr
Valsdóttir, Kristín Eysteinsdótt-
ir, íris Ösp Bergþórsdóttir,
Ragnar Brynjúlfsson.
Sýnt í Tjarnarbíói.
Þetta leikrit er fjórða verkefni
ieikfélags Kvennaskólans, en það
hefur starfað síðan 1990. Leikritið
er all viðamikið, tekur á þriðju
klukkstund í flutningi, og það er
því bæði skynsamlegt 'og réttlátt
að þeir sem að því vinni fái það
metið að nokkru til náms. Það fer
ekki á milli mála að sá lærir margt
sem starfar við sýningu af þessu
tagi undir handleiðslu reynds leik-
stjóra.
Höfundur verksins lítur köldu,
klínísku auga á þær persónur sem
hann gefur líf á sviðinu. Þetta eru
nokkrir meðferðarfulltrúar og
unglingsstelpur sem hafa lent á
upptökuheimili af ýmsum ástæð-
um: ein hefur dópað of mikið, önn-
ur farið til Amsterdam, reykt hass
og tamið sér tungutak hippa, sú
þriðja er fórnarlamb ofbeldis á
heimili, sú ijórða vanelskuð o.s.frv.
Það sem er skelfilegt við þetta leik-
rit er að hér er sviðsett á raunsæan
hátt hringekja stöðnunar og von-
leysis. Þessar stelpur eiga einfald-
lega engan „sjens“ í tilverunni. Þær
þroskast ekkert þrátt fyrir mis-
munandi upplag og reynslu og þess
vegna verður þetta leikrit um þær
í raun ódramatískt: drama er þegar
eitthvað hrærist í átt að lausn og
skilningi - hér stendur allt blikkf-
ast eins og nál föst á sömu rauf-
inni á hljómplötu. Að horfa á þetta
leikrit er svipað og að virða fyrir
sér glóðarauga. Maður ferðast ekk-
ert. Og raunsæisbúningurinn
hindrar allar frumspekilegar bolla-
leggingar um stöðnun yfirleitt.
Burtséð frá þessu er hér á ferð-
inni ein' vandaðasta sýning áhuga-
leikhóps sem ég hef séð á þessu
leikári. Þýðingin er pt'ýðileg,
tungutakið fjöibreytt og lagað að
hverri persónu fyrir sig, leikmynd
Guðrúnar Auðunsdóttur er einföld,
stílhrein og nýtir sviðið afbragðs-
vel. Það fer ekki framhjá neinum
að meðal léikenda eru mikil leikara-
efni og ber þar (að öðrum ólöstuð-
um) helst að nefna Kristínu Ey-
steinsdóttur og Þórhildi Ýr Vals-
dóttur, sem hvor á sinn þróttmikla
hátt skila eftirminnilegum persón-
um. En ómótuð ungmenni þurfa
styrka handleiðslu tii að skila jafn
öflugum og sannfærandi leik og
hér gerðist, og þá handleiðslu hefur
Sigrún Valbergsdóttir veitt þeim.
Líkamstjáning er oftast sköip og
eðlileg, þótt stundum sé hún
hömlulaus (hér kemur í ljós annar
eðlisgalli verksins: það leyfir ekki
breiðan túlkunarskala), en fram-
sögnin er flestum til fyrirmyndar.
Framsögn Kristínar var t.a.m.
bæði blæbrigðarík og skýr, og býr
persónu hennar þó meira í brjósti
en hún fái sagt.
Heildarsvipmót sýningarinnar er
agað. Flæðið er svo gott að hvergi
rennur undan leikendum og at-
hygli áhorfenda. Sú brotalöm er í
verkinu af hálfu höfundar að vart
örlar á kímni og því verður leikrit-
ið eintóna. Reynt er að veita áhorf-
endum stundargrið með því að láta
formann barnaverndarnefndar
hafa uppi hommatilburði. Það er
ósmekklegt. Allt annað ber að-
standendum vitni um skýra hugs-
un, aga, þrótt og leikræna hæfi-
leika.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1994 tilkynnt
Ekman fær verðlaunin
tir í dómnefndinni
nefndar og bókin hefði fengið eink-
ar góðar undirtektir innan hennar.
Þessi bók eins og fleiri bækur eftir
Ekman væri ótrúlega víðfeðm og
auðug. Lesandinn lyki lestrinum
aldrei alveg.
Ekki er venjan að gefa upp hverj-
ar viðtökur aðrar bækur en verð-
launabókin hafa fengið í dómnefnd-
inni, en af viðtökum við nefndar-
menn eftir að veitingin hafði verið
tilkynnt kom fram að íslensku bók-
unum hefði verið mjög vel tekið í
dómnefndinni. Ingmar Svedberg,
annar finnsku fulltrúanna, sagði að
ekki síst hefði bók Vigdísar verið
mikils metin. í dagblaðinu „Politi-
ken“ i gær birtist síðasta umsögnin
um bækurnar sem voru tilefndnar
að þessu sinni og var hún um ís-
lensku bækurnar tvær, skrifuð af
Lisu Schmalensee Burgess, fyrrum
dönskum sendikennara á íslandi.
Fyrirsögnin er „íslenskar fyrirbæra-
veiðar" og á við bók Vigdísar. Um
bókina segir gagnrýnandinn að þar
sé öllum mögulegum fyrirbærum
rakað saman, án þess að innihaldið
sé burðugt eftir því. í upphafí grein-
arinnar segir um bókina að Vigdís
hafi fengið tvær viðurkenningar
fyrir bók sína, „aðra meira að segja
frá Rithöfundasambandinu, svo
þeim hlýtur að finnast þetta góð
bók, þarna lengst uppi í Norður-Atl-
antshafi". Því er greinarhöfundur
ósammála, en hins vegar mjög hrif-
in af bók Sigurðac.
íslensku bækurnar hlutu góðar undirtek
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
í GÆR var tilkynnt í Kaupmannahöfn að bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs 1994 kæmu í hlut sænska rithöfundarins Kerstin Ekman.
Verðlaunin verða afhent á fundi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi 8.
mars og nema um tveimur milljónum íslenskra króna. Islensku verkin
tvö, Stúlkan í skóginum eftir Vigdísi Grímsdóttur og Ljóð námu völd
eftir Sigurð Pálsson, hlutu góðar viðtökur dómnefndar.
Kerstin Ekman er fædd 1933 og
hóf feril sinn sem spennusagnahöf-
undur. Eftir þrjár leynilögreglusög-
ur sem hlutu mjög góðar viðtökur
tók hún til við fagurbókmenntaskrif
og hefur lengi verið með virtustu
rithöfundum Svía. Hún á sæti í
sænsku akademíunni, en hcfur ekki
sótt fundi hennar síðan 1989 í mót-
mælaskyni við afstöðu akademíunn-
ar í máli breska rithöfundarins Sal-
mans Rushdies.
Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs eru veitt fyrir ákveðin
verk og að þessu sinni fyrir bók
Ekmans, „Hándelser vid vatten" eða
Atburðir við vátn. Um hana segir í
ummælum dómnefndar að bókin sé
nútíma vekjaraklukka. Sagan er
spunnin í kringum spennu sem kem-
ur upp þegar fólk brýtur hvert ann-
að og náttúruna niður á umbrota-
tímum. Fortíð Ekmans sem spennu-
höfundar þykir skína í gegn, því
bókin er einkar spennandi aflestrar.
Bæði Sigurður A. Magnússon og
Dagný Kristjánsdóttir, sem voru
fulltrúar íslands í dómnefndinni,
sögðust í viðtali við Morgunblaðið
vera algjörlega sammála vali dóm-
Einstakt ferðatillioð á lúxus
SRemmtisidlindum um
Ódýrara en Jyicf grunar
Lífið um torð er sannkallað lúxuslíf og pað testa er að þú |?arft aldrei
að opna veskið.
9 glæsimáltíðir á dag, Broadway Sliow á liverju kvöldi,
fjölLreytt í|)rótta og keilsurækt
- allt er ^etta innifalið í verði ferðarinnar.
yiðurkenningin afhent. Hjónin Ragnheiður Ólafsdóttir og Vilhjálmur
Árnason og Hjalti Hugason formaður Hagþenkis.
Yilhjálmur Arna-
son hlaut viðurkenn-
ingu Hagþenkis
UNDANFARIN ár hefur Hagþenkir, sem er félag höfunda fræðirita
og kennslugagna, veitt viðurkenningu fyrir framúrskarandi fræði-
störf og samningu fræðirita og námsefnis. Ákvörðun um hver viður-
kenningu skuli hljóta er í höndum sérstaks viðurkenningarráðs.
Viðtakandi fær viðurkenningarskjal og fjárhæð sem er nú 250.000 kr.
Viðurkenningu Hagþenkis 1993
hlaut Vilhjálmur Árnason heim-
spekingur, í tilefni af b.ók hans Sið-
fræði lífs og clauða sem kom út á
árinu á vegum Siðfræðistofnunar
Háskóla íslands. Viðurkenningin
var veitt við sérstaka athöfn föstu-'
daginn 28. janúar.
Vilhjálmur Árnason er yngstur
þeirra sem hlotið hafa viðurkenn-
ingu Hagþenkis til þessa, fæddur
Eyjólfur Einarsson sýn-
ir í Gallerí AllraHanda
EYJÓLFUR Einarsson listmálari opnaði málverkasýningu í Gallerí
AllraHanda á Akureyri sl. laugardag. Eyjólfur opnaði einnig sýningu
í Gallerí Sólon íslandus fyrir skömmu og skiptir því myndefni sínu á
milli tveggja sýningarstaða.
Á sýningunni í Gallerí Sólon ís-
landus sýnir hann stór olíumálverk
þar sem hafið og dulúð þess eru
honum viðfangsefni. Á sýningunni í
Gallerí Allrahanda sýnir Eyjólfur
einkum vatnslitamyndir. í vatnslita-
myndunum tekst hann einkum á við
landslag og beitir til þess margbreyti-
legum litum.
Eyjólfur nam við Konunglegu
listaakademíuna í Kaupmannahöfn á
árunum 1962 til 1966 og eru sýning-
ar hans nú 16. og 17. einkasýningar
hans. Sýningin í Galleríi AIlraHanda
er auk þess þriðja málverkasýning
hans á Ákureyri og stendur hún til-
12. febrúar.
1953. Hann lauk BA-prófi í heim-
speki og almennri bókmenntasögu
frá Háskóla íslands 1978 og prófi
í uppeldis- og kennslufræði ári síð-
ar. Doktorsprófi í heimspekilegri
siðfræði lauk hann við Prudue-
háskóla í Indiana í Bandaríkjunum
árið 1982. Síðan hefur Vilhjálmur
einkum stundað kennslu, ritstörf
og rannsóknir. Hann hefur verið
ritstjóri Skírnis síðan 1987. Árið
1990 varð hann lektor í heimspeki
og dósent ári síðar.
í greinargerð viðurkenningar-
ráðs Hagþenkis 1993 segir m.a. um
störf og ritverk Vilhjáms Árnason-
ar: „Bókin Siðfræði lífs og dauða
er byggð á traustum grunni sem
Vilhjámur sækir annars vegar til
ritheimilda og hins vegar til reynslu
sinnar af viðræðum við starfsfólk
heilbrigðiskerfisins og jafnvel af
eigin störfurri á vettvangi barna-
verndarmála. Hann skrifar texta
sem er bæði áhugaverður frá heim-
spekilegu sjónarmiði og um leið lif-
andi og jarðbundinn á þann hátt
að hann vekur áhuga þeirra sem
vinna að þessum málum eða Iáta
sig þau varða í framkvæmd."
ÚRVALÚTSÝN
LAgmúla 4: s(ml 699 300. (Hafnarfirði: síml 65 23 66.
tið Rdðbústorg á Akurcrrt: s(mi 2 50 00
- og bjá umboðsmönnum um biná alll.
’ Innifalið I vcrði: Flug. Vikuiigling í 2ja manna Ucfa með (ullu íarði og «110 •Wnjmtun um W»ið.
Giiting (tvd’tli i Bcit Wiilcm Occ*n»i<lc Inn ( Ft. LaudrnUlc ( 3 nwtur (1 nótl i útlcið ”g 2 u.vtur 4 Keimleió). llafnargjölil og flugv'alUnlrattar.
Vikusigling
og prjár nætur
í Fort Lauderdale
á einstöku verði.
Ferðatillioðið gildir í brottíarir í
febrúar og mars.
KlúLLar og félög athugiðað kægt er að fá
kynningarvídeó lánað á söluskrifstofum olekar.