Morgunblaðið - 02.02.1994, Síða 17

Morgunblaðið - 02.02.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994 17 Samvinna vegna lyfjaofneyslu RÁÐSTEFNA um lyfjaofneyslu á Norðurlöndum verður haldin í Stokkhólmi í mars. Á kynningarfundinum, frá vinstri: Einar Magnússon, yfirmaður lyfjamáladeildar heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins, Lena Westin og Jan Álbinson frá Kilen í Stokkhólmi og Ólafur Ólafs- son landlæknir. CR STICLAÐ? Fáöu þér þá brúsa al Fermitex og máliö er leyst. Fermltex losar stíflur í Irárennslispíp- um, salemum og vöskum. Skaölaust fyrir gler, postulín, plast og flestar tegundir málma. Fljótvirkt og sótthreinsandi. V VATNSVIRKINN HF. ARMÚLA 21 SIMAR 686455 - 685966 Ráðstefna um lyfjaávana á Norðurlöndum haldin í mars Neysla róandi lyfja hefur dreg- ist saman um helming hérlendis TALIÐ er að 2,5% Svía eigi í erfiðleikum vegna neyslu ávanabind- andi lyfja sem þeir hafa fengið samkvæmt læknisráði. Þetta kom fram á kynningu Landlæknisembættisins og heilbrigðisráðuneytisins á norrænni ráðstefnu um lyfjaofneyslu sem haldin verður um miðjan mars í Stokkhólmi. Er ráðstefnunni ætlað að vera vettvangur um- ræðu um lyfjaávana á Norðurlöndum því læknar, lyfjaeftirlit og framleiðendur hafi ef til vill daufheyrst við vanda þeirra sem taka lyfin í góðri trú og ánetjast síðan. Neysla róandi lyfja hérlendis hefur dregist saman um helming síðan 1970 en einnig kom fram að neysla á þunglyndislyfjum sem innihalda flúoxetín, til dæmis Fontex, hefði fjórfaldast síðan 1989 og hefur þetta gífurlegan kostn- að í för með sér fyrir ríkið. Landlæknir segir aukninguna eiga sér eðlilegar skýringar. Fram kom að neysla róandi lyija hafi dregist saman um helming frá 1970 hérlendis en nákvæmar tölur yfir fjölda þeirra sem taka róandi lyf án þess að misnota þau liggur ekki fyrir að sögn landlæknis, Olafs Ólafssonar. Þó er ljóst að fjöldi þeirra sem tekur róandi lyf í stórum skömmtum hefur dregist saman um helming frá 1970. Neysla á geðlyij- um sem innihalda flúoxetín og gef- in eru við þunglyndi hefur fjórfald- ast síðan 1989. Lyfið er dýrt en landlæknir segir svo jafnan vera um ný lyf. Fontex er eitt þriggja skráðra sérlyfja sem innihalda þetta efni og segir Þórarinn Tyrfingsson læknir að skýringarinnar sé að leita í því að lyfið komi í stað annarra eldri lyfja með svipaða verkun. Um sé að ræða ný lyf sem meðal ann- ars hafi minni aukaverkanir. „Þetta eru talin ágætis lyf, þau eru sér- hæfð, hafa minni aukaverkun og hafa ekki ávanahættu í för með sér,“ segir Þórarinn. Konur í meirihluta Kynningarfundinn sóttu meðal annars Lena Westin og Jan Albin- son frá Kilen í Svíþjóð sem er með- ferðarstofnun fyrir þá sem ánetjast lyflum. Fram kom í máli þeirra að í Svíþjóð ættu hundruð þúsunda íbúa við vandamál að stríða vegna ávanabindingar og þá er aðeins átt við sjúklinga sem taka lyfin sam- kvæmt læknisráði. Til Kilen-stofn- unarinnar leitaði fólk sem kvartaði yfir óþægindum vegna langvarandi neyslu, sjúklingarnir hafi margir hveijir neytt lyíjanna í tíu ár eða lengur. Konur eru í meirihluta, eða tveir þriðju hlutar. Ástæða þess er ekki kunn en þetta hlutfall er svip- að og annars stáðar á Vesturlönd- um að þeirra sögn. Fram kom á fundinum að 55% þeirra sem fá róandi lyf samkvæmt læknisráði taka ráðlagðan skammt eða minna. Sjúklingarnir leita einkum til lækn- isins í upphafi vegna kvíða eða lík- amlegra verkja og eru læknar, aðr- ar heilbrigðisstéttir, kennarar og blaðamenn áberandi. Tveir af hundraði sjúklinga leita læknis vegna geðrænna vandamála og 13% vegna líkamlegra kvilla. 6-8 vikur duga Að sögn Lenu Westin og Jans Albinson er heilladrýgst að beita róandi lyíjum til lækninga í fáeinar vikur, til dæmis 6-8, en margir sjúklinganna hafa neytt þeirra frá því þau skutu fyrst upp kollinum. Eftir langvarandi neyslu verði sjúkl- ingarnir gjarnan varir við frá- hvarfseinkenni á borð við óþægind- in sem ráku viðkomandi til læknis upphaflega og því ljóst að langvar- andi neysla leiði sem slik ekki til bata. Að sögn landlæknis hafa ró- andi lyf hjálpað mörgum þótt þau leysi ekki vanda viðkomandi í sjálfu sér. Neysla þeirra hefur dregist saman um helming síðan 1970 en þá voru 150 manns á á höfuðborg- arsvæðinu sem neyttu lyfjanna í talsvert stórum skönimtum að sögn Ólafs Ólafssonar. Ólafur segir að í dag sé hlutfallið 5-6% hjá fólki undir fimmtugu, en 7% hjá þeim sem eldri eru. :aldmom Skíðaskór Evolution fyrir dömur og herra Verð kr. 17.790 S% staðgreiðsluafsláttur, einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga. sra úTiLírm® GLÆSIBÆ. SÍMI812922 Ingvar Helgason hf. gerir bílkaupendum tilboð Býður tryggingar í sex mánuði og þjónustu í ár MEÐ því að bjóða frítt þjónustu- og smureftirlit í eitt ár, fría trygg- ingu í sex mánuði og allt að 20% verðlækkun á vara- og aukahlutum býður Ingvar Helgason hf. væntanlegum kaupendum Nissan- og Subaru-bifreiða umtalsverða kjarabót og stuðlar að hámarks endur- söluverð eftir því sem Július V. Ingvarsson, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, segir. Hann segir að bílaútsölur stuðli að lægra endursölu- verði, þ.e. eyðileggingu á fjármunum fólks. Júlíus sagði að ákveðið hefði ver- ið að koma til móts við bíleigendur, m.a. vegna aukinna álagna. „Við höfum líka tekið eftir því að bíleig- endur hafa kvartað yfir að fá reikn- inga í bakið. Þó slíkt viðhorf hafi ekki komið fram hjá okkar kaup- endum höfum við tekið eftir þessu almennt og viljum geta útilokað alla slíka reikninga í ár. Af þessum sökum bjóðum við upp á fríar upp- herslur og olíuskipti fyrsta árið eða fyrstu 20.000 kílómetrana og veit- um allt að 20% afslátt af varahlut- um enda höfum við orðið varir við að verð á þessum vörum hefur kom- ið fólki á óvart,“ sagði Júlíus. Reynst vel ytra Hann sagði að lengi hefði verið legið yfir því hvernig skyldi að til- boðinu staðið og þessi leið hefði reynst vel erlendis. HÍns vegar væri að auki boðið upp á fría trygg- ingu fyrstu sex mánuðina. „Við ákváðum að fara þessa leið til að Iiðka fyrir viðskiptum með nýja bíla vegna þess að oft getur verið erfitt fyrir fólk, sem er að festa kaup á nýjum bílum og þarf að greiða mik- ið í upphafi, að fá reikning frá tryggingunum strax í kjölfarið," sagði Júlíus. Vel í stakk búið Aðspurður hvernig fyrirtækið hefði efni á að bjóða tilboð af þessu tagi sagði hann að þrátt fyrir minnkandi bílaeign landsmanna undanfarið þyrfti fyrirtækið ekki að kvarta. Þó auglýsingar hefðu verið í lágmarki væri markaðshlut- deild góð og fyrirtækið vel í stakk búið ti) að bjóða upp á tilboð sem þessi. Þegar hins vegar spurt var hvers vegna ekki hefði verið farið út í aðgerðirnar fyrr sagði Júlíus að fyrirtækið hefði því miður stund- um farið að dæmi keppinautanna og efnt til útsala á notuðum og nýjum bílum. Sem betur færi hefðu slíkar útsölur þó verið í miklu hófi enda leiddu þær til lægri endursölu- verðs. ★ nCRDPRIWT TIME RECORDER CO. Stlmpilklukkur tyrlr nútíð og framtíð OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 ■ 105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 Nyr tækjasalur Verð 1.900,- pr. mán milli kl. 11 og 17. immi.i.B dag- og kvöldtímar pr. mán. Leiðbeinandi á staðnum: Viðar Guðjohnsen (tek að mér einkaþjálfun eftir samkomulagi). Við hugsum um gleði og heilbrigði Mörkinni 8 v/Suðurlandsbraut, 108 Reykjavík, sími 683600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.