Morgunblaðið - 02.02.1994, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994
Reuter
Á viðhafnarbörum
KISTA austurrísku skíðakonunnar Ulrike Maier, sem beið bana er hún féll í brunkeppni í Þýskalandi á
laugardag, á viðhafnarbörum á heimili foreldra hennar í bænum Rauriz sem er suður af Salzburg í Austurríki.
Alsamkomulag-
inu vel tekið
í Evrópuríkjum
Brusscl. Reuter.
HELSTU álframleiðsluríki heims
hafa samþykkt að draga úr ál-
framleiðslu sinni til að minnka
offramboðið og Dick Dermer, for-
seti Evrópska álsambandsins,
sagði þetta stórt skref í rétta átt.
Samningamenn Evrópubanda-
lagsins (EB), Bandaríkjanna, Rúss-
lands, Ástralíu, Kanada og Noregs
hafa undirritað viljayfírlýsingu um
að minnka álframleiðsiuna, að sögn
framkvæmdastjórn EB á sunnudag.
Ekki var skýrt frá því hversu mikill
samdrátturinn yrði, en vestræn ál-
fyrirtæki höfðu beitt sér fyrir því
að framleiðslan yrði minnkuð um
10%, eða um 1,5-2 rniiljónir tonna á
ári, á næstu 18 mánuðum. Samn-
ingamennirnir koma aftur saman í
Kanada 28. febrúar til að ræða
ástandið á mörkuðunum.
„Þetta er af hinu góða,“ sagði
Dermer. „Næsta skrefið er að stjórn-
völdin hafi samband við fyrirtækin."
Tvö evrópsk álfyrirtæki, Hoogovens
og Norsk Hydro, sögðust reiðubúin
að draga úr framleiðslunni.
Rússar hafa samþykkt að minnka
framleiðsluna um 500.000 tonn á
ári á næstu tveimur árum og vænta
jafn mikils samdráttar hjá vestræn-
um framleiðendum.
Offramboðið á áli hefur valdið
mikilli verðlækkun og er Rússum
aðallega kennt um. Rússneskir ál-
framleiðendur hafa stóraukið út-
flutning sinn frá því þeir misstu
stærsta viðskiptavin sinnt sovéther-
inn fyrrverandi, í kjölfar hruns
kommúnismans.
---» ■♦•■4-
Friðarverðlaun
Nóbels
Rabin o g
Arafat
tilnefndir
Evrópubandalagsskýrsla um erfiðleika evrópsku flugfélaganna
Framtíðin er samkeppni
en ekki opinberir styrkir
Brussel. Reuter.
NEFND, sem fjallað hefur um langvarandi fjárhagserfiðleika evr-
ópskra flugfélaga og leiðir út úr vandanum, hvetur flugfélögin
til að taka sjálfum sér tak en að öðru leyti segir hún framtíðina
vera fólgna í samkeppni og ströngum takmörkunum við ríkisstyrkj-
um.
í skýrslu nefndarinnar ræður
hún eindregið frá því, að dregið
verði úr auknu frelsi í fluginu og
segir, að það yrði aðeins til að
géra evrópsku flugfélögin ósam-
keppnisfær á alþjóðamarkaði.
Segir formaður nefndarinnar,
Herman De Croo, fyrrverandi fjar-
skiptaráðherra Belgíu, að forráða-
menn flugfélaganna verði að til-
einka sér nýjan hugsunarhátt eigi
þau að komast út úr kreppunni,
sem haft hefur í för með sér gífur-
Norðurlandaráð
Ekmanfær
bókmennta
verðlaun
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt
ur, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNSKI rithöfundurinn Kerst-
in Ekman fær bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs í ár.
Verða þau afhent á þingi ráðs-
ins sem haldið verður í Stokk-
hólmi 8. mars.
Kerstin Ekman er fædd 1933
og hóf feril sinn sem spennusagna-
höfundur. Eftir þrjár leynilög-
reglusögur sem hlutu mjög góðar
viðtökur tók hún til við fagurbók-
menntaskrif og hefur lengi verið
meðal virtustu rithöfunda Svía.
Hún á sæti í sænsku akademíunni
en hefur ekki sótt fundi hennar
frá 1989 í mótmælaskyni við af-
stöðu akademíunnar í máli breska
rithöfundarins Salmans Rushdie.
legan taprekstur. „Tækninni hefur
fleygt fram og lög og reglur hafa
breyst en hugsunarhátturinn er
gamall. Á honum veltur þó fram-
tíðin.“
Nefndarmenn segja, að ríkis-
styrkurinn við flugfélög og flug-
stöðvar hafi gert þau ósam-
keppnisfær, sérstaklega gagnvart
Bandaríkjunum þar sem fram-
leiðnin sé miklu meiri. Er fram-
kvæmdastjórn Evrópubandalags-
ins hvött til að taka harða afstöðu
til ríkisstyrkja og veita þá aðeins
einu sinni í sambandi við endur-
skipulagningu fyrirtækja.
Kröfum ríkisfyrirtækja
hafnað
Þá er vísað á bug kröfum Sa-
bena í Belgíu, Air France í Frakk-
landi og Alitalia á Ítalíu um að
farið verði hægar í að auka frelsi
í flugrekstri.
Nefndin segir, að stjórnvöld í
Evrópuríkjunum geti þó gert ýmis-
legt til að létta flugfélögunum
róðurinn, til dæmis með því að
draga úr þeim mikla kostnaði, sem
evrópsku félögin bera umfram
flugfélög í Bandaríkjunum. Þá eru
þau hvött til að auka athafnapláss
á yfírfullum flugvöllum, að sam-
eina margskipt flugstjórnarkerfi í
eitt og uppræta einokun í flug-
höfnunum.
Ósló. Jcrúsalem. Reuter.
YITZHAK Rabin, forsætisráð-
herra Israels og Yasser Arafat,
leiðtogi Frelsissamtaka Palest-
ínu (PLO) eru á meðal þeirra sem
tilnefndir eru til friðarverðlauna
Nóbels í ár en frestur til tilnefn-
inga rann út í gær. Þær streyma
enn inn og verður ekki ljóst fyrr
en að um tveimur vikum liðnum,
hveijir verða tilnefndir.
Undanfarin ár hafa tilnefningar
verið um 125. Segja Norðmenn að
framanaf hafi þeir talið að þær
yrðu færri en venja er en síðustu
vikur hafi þær hellst inn.
Það var þing Evrópuráðsins sem
tilnefndi Arafat og Rabin fyrir
vegna friðarsamnings þjóðanna
sem undirritaður var í Washington
í september s.l. Þá var Johan Jörg-
en Holst, fyrrum utanríkisráðherra
Noregs tilnefndur fyrir milligöngu
hans um friðarsamninginn en hann
mun ekki hljóta verðlaunin þar sem
reglur Nóbelsnefndarinnar koma í
veg fyrir að verðlaunin séu veitt
mönnum eftir lát þeirra en Holst
lést í janúar.
Hátt verðlag varpar skugga á
ólympíuleikana í Lillehammer
Lillehammer. Reuter.
HIMINHÁTT verðlag í Lillehammer kann að draga athyglina frá
íþróttum á Vetrarólympíuleikunum sem hefjast í norska smábæn-
um í næsta mánuði. Víðlesið þýskt blað heldur því fram að jafn-
vel ísbjörnum hrylli við því hversu dýr bjórinn er.
íbúar Lillehammer höfðu gert er Noregur dýrt land fyrir. Við
sér vonir um að leikarnir hefðu
varanleg áhrif hvað fjölgun ferða-
manna til bæjarins varðar en ótt-
ast nú að verða sakaðir um græðgi
og ekki verði minnst á bæinn í
ferðamannapésum næsta árs.
Norðmenn vona í lengstu lög
að sagan frá skíðaheimsmeistara-
mótinu 1982 í Ósló endurtaki sig
ekki en þá fjölluðu fréttamenn
allt eins mikið um hátt bjórverð
í Noregi og um sjálfa íþrót.ta-
keppnina.
„Það er viðurstyggilegc hvemig
menn notfæra sér aðstöðu sína
og skrúfa upp verðlagið," sagði
Gerhard Heiberg formaður fram-
kvæmdanefndar Lillehammer-
leikanna. „Það hefði skelfilegar
afleiðingar í för með sér fyrir
héraðið fari verðlag úr böndum
því í augum margra útlendinga
viljum að fólk komi hingað aftur
eftir leikana," sagði Heiberg.
Hóteleigendur segja að sökin
liggi að hluta til hjá framkvæmda-
nefnd leikanna sem tekið hafi
heilu hótelin frá fyrir gesti sína
og þar með skapað verðspennu.
Þá er umdeild sú ákvörðun nefnd-
arinnar að leigja út öskubakka í
blaðamannamiðstöðinni á 30
krónur þar sem þeir kosta tals-
vert lægri upphæð í verslunum í
Lillehammer.
Norska samkeppnisráðið heldur
því fram að óeðlilegar verðhækk-
anir hafi ekki átt sér stað í Lille-
hammer þó dýrustu hótelin,
krárnar og veitingahúsin hafi
hlotið mikið umtal. „Verðlag er
ekkert hærra í Lillehammer en
annars staðar í Noregi. Það hefur
engin verðsprenging átt sér stað,“
sagði Jan Erik Halvorsen, tals-
maður ráðsins.
Halvorsen segir að engin
ástæða sé til að grípa inn í og
gefa út hámarksverð, eins og
samkeppnisráðið hefur völd til. I
könnun stofnunarinnar á 175 bör-
um og veitingahúsum hafi bjór-
kollan kostað að meðaltali 38-39
norskar krónur, rúmar 350 ís-
lenskar. Hærra verð fyndist ein-
ungis á næturklúbbum en ekki
venjulegum krám og börum.
Dýr næturgisting
Á einu hótelinu sem byggt var
sérstaklega fyrir leikina, Tráseth
Park, kostar nóttin í tveggja
manna herbergi 4.200 norskar,
jafnvirði 41.000 íslenskra króna.
Veitingahús í Lillehammer,
Lundegárden Brasserie, hleypti
öllu í bál og brand er það ákvað
að krefjast þess að greiðsla fylgdi
fyrirframpöntunum fyrir mat
meðan á leikunum stæði. Sá bögg-
ull fylgdi skammrifi að ekki feng-
ist endurgreitt gætu menn ekki
notfært sér pöntunina eða kæmu
nokkru seinna en upp var gefið.
Á matseðli veitingahússins
kostar flaska af frönsku hvítvíni
260 krónur en í vínbúð norsku
einkasölunnar handan götunnar
kostar hún 57 krónur. Stjómend-
ur veitingahússins hafa þó boðað
verðlækkun - í mars.
Útbreiddasta blað Þýskalands,
Bild, hvatti nýverið þýska bjór-
framleiðendur til þess að senda
þýska íþróttahópnum ókeypis
birgðir af bjór þar sem þessi uppá-
haldsdrykkur Þjóðveija yrði á
óviðráðanlegu verði í Lilleham-
mer. „Verðið er svo hræðilega
hátt að jafnvel ísbjörnunum hryll-
ir við,“ sagði í fyrirsögn blaðsins.
Útbreiddasta blað Noregs,
Verdens Gang, kannaði verð á
bjór í Lillehammer og í fyrirsögn
sagði: „Bjórhneyksli í Olympíu-
bænum.“ Þar kom fram að bjór-
kollan, hálfur lítri, kostar frá 37
og upp í 64,80 krónur norskar.