Morgunblaðið - 02.02.1994, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994
r
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Úrslit prófkjörs
••
Markús Orn Antonsson borgarstjóri segir að þátttakan í
Fagna þessu svari
samkrulli og hræðs
MARKÚS Örn Antonsson borgarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið
að þátttakan í prófkjöri flokksins í Reykjavík væri ákaflega sterkur
vitnisburður um stöðu Sjálfstæðisflokksins í borginni í upphafi kosninga-
baráttu fyrir borgarstjórnarkosningarnar. „Ég er mjög ánægður með
þennan lista og fagna þessu svari Sjálfstæðisflokksins sem fram kemur
í prófkjörinu við þessu samkrulli og stofnun hræðslubandalags á vinstri
væng. Það er greinilegt að sjálfstæðismenn hafa brugðist skjótt við og
hafa sýnt ótvírætt styrk síns flokks með prófkjörinu. Vonandi verður
framhaldið eftir því.“ Morgunblaðið ræddi í gær við frambjóðendur um
niðurstöðu prófkjörsins og fara syör þeirra hér á eftir.
Meginniðurstaða prófkjörs
sjálfstæðismanna í
Reykjavík vegna. borgar-
stjórnarkosninganna í vor er
sú, að flokkurinn gengur til
þessara kosninga með sterk-
an framboðslista. Tæplega
níu þúsund Reykvíkingar
hafa valið framboðlista, sem
endurspeglar annars vegar þá
breidd í skoðunum, sem er
að finna innan Sjálfstæðis-
flokksins og hins vegar þá
hófsemi og umburðarlyndi,
sem lengst af hefur einkennt
störf og stefnu sjálfstæðis-
manna. Þegar á heildina er
litið er hér á ferðinni fram-
boðslisti, sem líklegur er til
að vekja traust hjá kjósend-
um.
I tíu efstu sætum fram-
boðslistans, eins og hann lítur
út skv. útslitun prófkjörsins,
er fólk með mikla reynslu í
borgarmálum. Þar eru þijár
konur, þar eru fulltrúar laun-
þega og þar eru fulltrúar ungs
fólks. I raun og veru er nán-
ast ótrúlegt að prófkjör skili
framboðslista, sem einkennist
af slíku jafnvægi á milli ólíkra
hópa í stórum flokki.
Markús Örn Antonsson,
borgarstjóri, hlaut afdráttar-
lausa traustsyfirlýsingu í
þessu prófkjöri. Hann á að
baki langan feril í borgarmál-
um, en hafði starfað utan
borgarstjórnar í nokkur ár er
hann var kallaður til starfa
sem borgarstjóri í Reykjavík,
þegar Davíð Oddsson tók við
embætti forsætisráðherra
vorið 1991. Borgarstjóri hlaut
í þessu prófkjöri um 88%
gildra atkvæða. í því felst,
að honum hefur með ótvíræð-
um hætti verið falin pólitísk
forysta Sjálfstæðisflokksins í
borgarmálum og gengur til
borgarstjórnarkosninga í vor
með sterkan bakhjarl, þar
sem er stuðningur þúsunda
sjálfstæðismanna.
Að öðru leyti hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn fengið til
starfa að borgarmálum öfluga
nýja liðsmenn á borð við Ingu
Jónu Þórðardóttur og Gunnar
Jóhann Birgisson, þannig að
saman fer reynsla þeirra, sem
fyrir eru og sá kraftur, sem
fylgir nýjum frambjóðendum.
Ekki fer hjá því í prófkjör-
um, að einhverjir lenda utan
garðs. Fjórir borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins á yfir-
standandi kjörtímabili náðu
ekki kosningu í tíu efstu sæti
listans. Við því geta menn
alltaf búizt, sem á annað borð
gefa kost á sér til framboðs,
hvort sem er til sveitarstjórn-
ar eða á Alþingi. Slíkur ósigur
getur verið sár, en fyrir þá,
sem kunna að taka ósigri,
kemur dagur eftir þennan
dag.
Að öllu óbreyttu stefnir í
sameiginlegt framboð minni-
hlutaflokkanna í borgarstjórn
Reykjavíkur undir forystu til-
greinds borgarstjóraefnis.
Slík staða hefur ekki áður
komið upp í borgarstjórnar-
kosningum og augljóst, að
vígstaða Sjálfstæðisflokksins
verður erfiðari en þegar
minnihlutaflokkarnir hafa
boðið fram hver fyrir sig og
atkvæði dreifst á milli þeirra
og ekki nýtzt til fullnustu.
Fyrstu skoðanakannanir hafa
gefið til kynna, að sameigin-
legur listi minnihlutaflokk-'
anna hefði möguleika á að
ná meirihluta í borgarstjórn.
Sá framboðslisti sjálfstæð-
ismanna, sem við blasir eftir
þetta prófkjör, er hins vegar
líklegur til þess að vekja
traust og tiltrú meðal reyk-
vískra kjósenda. Augljóst er,
að listinn verður skipaður
frambjóðendum, sem höfða til
fylgis kjósenda á miðju stjórn-
málanna, frambjóðendum,
sem eru þekktir af allt öðru
en öfgakenndum skoðunum.
Þetta eru athyglisverð úrslit
og umhugsunarverð og gefa
tilefni til bjartsýni.
Með úrslitum þessa próf-
kjörs hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn fengið sterka viðspyrnu.
Áherzla á þau málefni, sem
nú brenna mest á hinum al-
menna borgara og drengileg
kosningabarátta mun duga
flokknum vel í þeim kosning-
um, sem framundan eru.
Meirihluti sjálfstæðis-
manna hefur haldið vel á
málefnum borgarinnar á því
kjörtímabili, sem nú er að líða.
En í borgarmálum eins og í
öðrum málefnum lands og
þjóðar hafa viðhorf breytzt
verulega á þeim krepputím-
um, sem við nú lifum. Reykja-
víkurborg hefur ekki eins
mikil fjárráð og áður. í rekstri
borgarinnar þarf að leggja
áherzlu á aðhald og sparnað
eins og í öðrum rekstri. Þessi
breyttu viðhorf munu áreið-
anlega móta baráttumál
Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjórnarkosningunum í vor.
Þeim framboðslista, sem nú
hefur verið valinn, er vel
treystandi til þess að fylgja
slíkri stefnu eftir í fram-
kvæmd.
Borgarstjóri sagði að þúsundir
manna hefðu skráð sig í flokkinn síð-
ustu daga og þannig gengið til liðs
við flokkinn í þeirri baráttu sem í
hönd fer. „Þátttakan í prófkjörinu
hefur verið með afbrigðum góð,“
sagði Markús. „Það er vissulega góðs
viti fyrir okkur sem stöndum í barátt-
unni. Þessi niðurstaða hvað mig varð-
ar er ákaflega mikils virði og ég
þakka þann stuðning sem þátttakend-
ur í prófkjörinu hafa sýnt mér með
þessari niðurstöðu. Ég hef marg oft
tekið það fram að ég tel það höfuðatr-
iði að maðurinn í efsta sætinu fái
afgerandi og eindregna traustsyfir-
lýsingu. Það er afar biýnt út frá hags-
munum Sjálfstæðisflokksins vegna
kosningabaráttunnar sem framundan
er. Þegar litið er yfir listann eins og
menn raðast í sætin þá sýnist mér
að þetta sé sigurstranglegur listi
frambjóðenda og að við megum vænta
mikils af öflugu samstarfi og sókn
þessara frambjóðenda okkar.“
Konur mega vel við una
Markús sagði það staðreynd að
konur hefðu átt erfitt uppdráttar í
prófkjöri flokksins. Vera kynni að
einhverjum fyndist sem þeirra hlutur
hefði átt að verða enn betri. Miðað
við aðstæður teldi hann að niðurstað-
an hvað þær varðaði væri góð og að
þær mættu vel við una að hans mati.
Margir um sömu sæti
„Ég tel að ástæðan fyrir að nokkr-
ir borgarfulltrúar náðu ekki árangri
sé sú að margir kepptu um sömu
sætin og það getur valdið því að ein-
hverjir hrapi niður eftir listanum eins
og raunin varð á,“ sagði Markús.
„Þetta fólk sem þarna um ræðir og
hefur starfað með okkur í borgar-
stjórnarflokknum hefur unnið mjög
vel að þeim málefnum sem þeim var
falin forsjá fyrir. Auðvitað saknar
maður þess að sjá þau ekki í þessari
fylkingu sem verður í aðalsætunum.
Hins vegar vænti ég þess að við
megum eiga gott samstarf við þau
áfram og að þau muni koma að kosn-
inga- og málefnaundirbúningi með
okkur. I prófkjöri með svona mikilli
þátttöku er alltaf viðbúið að ákveðin
endurnýjun eigi sér stað. Ymsir
mundu telja að til þess væri leikurinn
gerður að svona fjöldahreyfing hefði
áhrif þar á. Það hefur verið séð til
þess núna og það eru ákaflega hæfir
nýir frambjóðendur sem koma til liðs
við okkur sem við væntum mikils
af,“ sagði Markús Örn Antonsson.
Skýr niðurstaða
„Þetta Ieggst mjög vel í mig,“ sagði
Árni Sigfússon, sem er í 2. sæti list-
ans. Árni var í 7. sæti í síðasta próf-
kjöri árið 1985 og í 6. sæti listans á
síðasta kjörtímabili, en þá var listan-
um stillt upp. „Ég átti von á að ná
árangri þar sem markið var sett á
annað sæti en mér sýnist niðurstaðan
vera skýrari en ég bjóst við. Það voru
jú fimm nefndir í annað sætið þannig
að ég bjóst við talsverðri dreifingu í
það sæti.“
Árni sagði, að niðurstaðan sýndi
að sjálfstæðismenn treystu honum og
að hann ætlaði að reyna að verða
traustsins verður. Þeim hlyti að líka
þau verk sem hann hafi unnið og það
sem hann stæði fyrir. Sagði hann að
endurnýjun á listanum væri talsvert
meiri en menn hefðu búist við. „Þeg-
ar tæplega 9 þúsund manns taka
þátt í prófkjöri og þetta er niðurstaða
þeirrar röðunar þá hlýtur maður að
dást að því hvað hægt er byggja
sterkan lista með þessari aðferð,"
sagði hann. „Ég held að listinn sé
sterkur en auðvitað getur maður horft
til einstaklinga sem maður hefði viljað
sjá á listanum."
Árni sagðist vera fylgjandi próf-
kjöri og taldi að nú hefði verið kom-
ist hjá persónulegu níði, en oft væri
hætt við því í prófkjöri. Þá væri próf-
kjör sæmilegur kostur þegar þátttaka
væri mikil þar sem val væri alltaf
flókið þegar nokkrir kostir bjóðast.
Sjálfstæðismenn í sókn
„Ég er mjög ánægður með þá
traustu kosningu sem Markús Örn
Antonsson borgarstjóri fær,“ sagði
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem er í
3. sæti. Hann bauð sig fyrst fram
árið 1981 og varð þá í 8. sæti að
undangengnu prófkjöri, í 5. sæti árið
1985 eftir prófkjör og í 4. sæti list-
ans á síðasta kjörtímabili. „Þá er
mjög ánægjulegt hversu mikil þátt-
taka var í prófkjörinu. Það segir mér
einfaldlega að sjálfstæðismenn í
Reykjavjk eru komnir í mikinn sókn-
arhug. Ég er sjálfur mjög sáttur við
þessa niðurstöðu. Ég sóttist eftir einu
af efstu sætum listans og greinilegt
að kjósendur hafa svarað þeirri ósk
minni.“ Vilhjálmur sagðist fagna því
að vera áfram í forustusveit borg-
arstjórnarflokksins. Þessi kosning
gæfi honum tækifæri til að sinna
borgarmálum með sama hætti og síð-
astliðin ár.
„Ég óska þessu nýja fólki sem
greinilega hefur hlotið bindandi kosn-
ingu til hamingju með þennan ágæta
árangur sem það nær,“ sagði hann.
„Sérstaklega finnst mér athyglisverð-
ur góður árangur Gunnars Jóhanns
Birgissonar og Ingu Jónu Þórðardótt-
ur. Ég sakna góðra félaga og sam-
starfsmanna sem ekki hafa náð bind-
andi kosningu inn á listann, en það
er nú einu sinni svo að það er allra
veðra von í prófkjöri. Þetta er vilji
kjósenda. Þátttakendur í prófkjöri
hafa kveðið upp sinn úrskurð og það
er sú lýðræðislega leið sem við höfum
kosið að viðhafa. Ég h’eld að þessi
listi sé gríðarlega sterkur og vil ég
sérstaklega þakka stuðningsmönnum
mínum og þeim sem unnu fyrir mig.
Ég er þeim mjög þakklátur."
Kraftur í flokknum
„Ég er mjög ánægð með minn
árangur og tei mig geta vel við un-
að,“ sagði Inga Jóna Þórðardóttir,
sem er í 4. sæti. „Ég kem inn í þetta
mjög seint. Þetta er rúmlega tveggja
vikna barátta, sem er að baki. Úrslit-
in eru á ýmsan hátt óvænt en engu
að síður tel ég að þarna sé á ferðinni
sigurstranglegur listi. Það sem mér
finnst skipta miklu máli er þátttakan
sem sýnir kraftinn í flokknum núna.
Hann bregst mjög vel við þegar á
reynir. Eins og komið hefur fram er
þetta metþátttaka í prófkjöri af þess-
ari gerð. Það finnst mér skipta miklu
og sömuleiðis hvað efsti maður listans
fær góða og afdráttarlausa kosn-
ingu.“
Þrjár konur eru á meðal efstu átta
manna á listanum og sagði Inga Jóna
það vera mjög góðan árangur. „Vissu-
lega hefði ég kosið jafnræði og að
fjórar konur væru í átta efstu sætun-
um, en ég tel að við höfum náð þarna
töluverðum árangri og að sjálfstæðis-
menn hafi skynjað að þetta var það
sem kallað var eftir,“ sagði hún. „Ég
fer ekki dult með það að ég held að
skoðanakönnunin um fylgi flokksins
og fylgi við vinstri bræðinginn og
þann svip sem sá listi hefur á sér í
fljótu bragði hafi ýtt töluvert mikið
við mönnum. Menn hafi viljað breyt-
ingar með kosningarnar í vor í huga.
Þátttakan sýnir það. Þetta er líka í
takt við það sem er að gerast annars
staðar. Mér finnst við sjá það í þeim
prófkjörum sem eru í gangi hjá Sjálf-
stæðisflokknum að það er mikil
sveifla og þróttur í flokknum. Mikil
þátttaka á Akranesi, í Hafnarfirði,
Njarðvík og á Isafirði. Þetta á ekki
eingöngu við um Reykjavík. Mér
finnst það vera að skila sér að sjálf-
stæðismenn láta mjög mikið finna
fyrir sér og ryðjast fram.“
Gæti ekki verið betra
„Ég er mjög ánægður með minn
árangur. Hann getur ekki verið
betri,“ sagði Hilmar Guðlaugsson,
sem er í 5. sæti. Hilmar tók fyrst þátt
í prófkjöri árið 1982 og var þá fyrst
kjörinn borgarfulltrúi, en þá voru
borgarfulltrúar 21 en ekki 15 eins
og núna og þá var hann í 9. sæti.
Árið 1985 varð hann í 6. sæt.i og á
síðasta kjörtímabili var hann í 12.
sæti þegar listanum var stillt upp.
„Ég hef sagt að við þyrftum að
huga að þremur þáttum. I fyrsta lagi
að réttur kvenna yrði tryggður inni
á listanum. í öðru lagi að góð breidd
væri á listanum og í þriðja lagi að
þó svo að þarna væru menn með
reynslu þá þyrfti ákveðna endurnýj-
un. Þetta hefur allt komið fram að
mínu áliti," sagði hann. „Ég er því
mjög ánægður með listann ef fyrstu
átta sætin verða óbreytt Þessi listi
leggst mjög vel í mig. Ég held að
þetta verði mjög sterkur listi."
Hilmar sagðist vera hlynntur próf-
kjöri en að þau ættu ekki aþtaf við.
Stundum ættu menn að hvíla sig á
þeim. „Ég var hiynntur því að ekki
var prófkjör síðast en nú var það
nauðsynlegt eins og á stóð að mínu
áliti,“ sagði hann.
Öflugri listi
„Ég er mjög ánægður með minn
árangur,“ sagði Gunnar Jóhann Birg-
isson, sem er í 6. sæti listans, en
þetta er í fyrsta sinn sem hann býður
sig fram í prófkjöri. „Ég er líka
ánægður með útkomuna í þessu próf-
kjöri. Ég held að listinn sé mjög sigur-
stranglegur og miklu öflugri en hann
var. Mín tilfinning er sú að breyting-
arnar í þessu prófkjöri séu meiri en
sjálfstæðismenn hafa áður upplifað í
prófkjörum. Það eru mikiu meiri
sviptingar, sem sýna að sjálfstæðis-
menn vildu breytingar. Þeir vildu
nýjan lista og þétta þannig raðirnar
fyrir kosningarnar í vor.“
Gunnar Jóhann sagðist vera undr-
andi á að Júlíus Hafstein skuli ekki
hafa náð betri kosningu. „Ég hélt að
hann yrði öruggur meðal tíu efstu
manna,“ sagði hann.
Sagði hann að prófkjör hefðu bæði
kosti og galla. Kostirnir væru þeir
að þetta væri lýðræðisleg aðferð við
val á framboðslista og gæfi fleirum
tækifæri til að hafa áhrif en þegar
uppstillingarnefnd réði listanum.
„Hins vegar er þetta dýrt fyrirtæki
og kannski allt of dýrt,“ sagði hann.
„Þetta er náttúrlega ofboðsieg vinna.
Hjá nær öllum frambjóðendum voru
þrír til fjórir menn í stanslausri sjálf-
boðavinnu í vinnu í heilan mánuð.
Þetta er rosaleg vinna að baki en líka
skemmtileg. Prófkjör skapar ákveðna
stemmningu."
Gunnar sagðist vera ánægður með
listann og þá niðurstöðu sem Markús
Orn Antonsson borgarstjóri fékk.
Raddir hafi verið uppi um að hann
mundi ekki fá afgerandi kosningu í
fyrsta sæti. Þetta væri því mikill sig-
ur fyrir hann. „Hann er í raun í fyrsta
sinn að sækja umboð til sjálfstæðis-