Morgunblaðið - 02.02.1994, Side 23

Morgunblaðið - 02.02.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994 23 í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík sé sterkur vitnisburður um stöðu flokksins í borginni flokksins við slubandalagi Talning í fullum gangi MIKIÐ verk var að telja atkvæðin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins og lauk talningn ekki fyrr en seint í gær. manna og því mikilvægt fyrir hann og okkur öll að hann næði góðum árangri," sagði Gunnar. „Þá vil ég þakka öllum þeim sem aðstoðuðu mig. Þeir voru fjölmargir og vil ég þakka þeim stuðninginn og vinnuna.“ Vel sátt „Ég er vel sátt við þessa niður- stöðu,“ sagði Guðrún Zoéga, sem er í 7. sæti. Guðrún tók þátt í síðasta prófkjöri flokksins árið 1985 og varð þá í 19. sæt.i en á síðasta kjörtíma- bili skipaði hún 9. sæti. „Mér skilst að við séum mjög jöfn í 5., 6. og 7. sæti og þetta er vel við unandi. Próf- kjör eru ósköp hvimleið en mér sýnist sem þetta prófkjör hafi komið heil- mikilli hreyfingu á flokkinn og flokks- menn. Þetta er metþátttaka og marg- ir hafa gengið í flokkinn. Þannig að þegar á heildina er litið þá held ég að þetta sé gott fyrir flokkinn. Það eru þijár konur í fyrstu efstu sætun- um og það er meira en gerst hefur í prófkjörum áður. Við erum að vísu í neðri hlutanum við Jóna Gróa.“ Gott að fá 3 konur í efstu sætin Jóna Gróa Sigurðardóttir húsmóðir og varaborgarfulltrúi varð í 8. sæti prófkjörsins, en það sæti er svokallað baráttusæti í kosningunum, því til þess að halda meirihlutanum í borgar- stjórn þarf Sjálfstæðisflokkurinn að fá átta menn kosna. Jóna Gróa náði 9. sæti listans í síðasta prófkjöri, sem var fyrir átta árum og var kosin í borgarstjórn. Við röðun á framboðs- listann fyrir síðustu kosningar var hún færð niður í 11. sætið og er nú 1. varaborgarfulltrúi flokksins. Jóna Gróa sagði að margir sterkir einstaklingar hefðu boðið sig fram í prófkjörinu og sagði að hún mætti vel við una að hafa náð 8. sætinu. Sjálf hefði hún búist við að lenda á þeim slóðum. Hún sagðist alltaf hafa fengið þokkalega útkomu úr prófkjörum en þó aldrei betri en nú. Bjóst hún við að vinna hennar að atvinnumálunum með formennsku í atvinnumálanefnd borgarinnar hefði átt þátt í árangrin- um. _ „Útkoman er að mínu mati mjög sterkur framboðslisti. Það er gott að þrjár konur skuli vera í átta efstu sætunum eins og að var stefnt. Inga Jóna Þórðardóttir er til dæmis mjög hæf kona og sterkur frambjóðandi," sagði Jóna Gróa. Framar björtustu vonum Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari íslenska landsliðsins I handknattleik, varð í 9. sætinu. „Ég er nýliði í stjórn- málum og prófkjörið er frumraun mín á þessu sviði. Maður kunni ekki alveg á prófkjörsbaráttu og þurfti því að reka sig á margt. Ég gat því gert ráð fyrir því að lenda aftarlega á listan- um. Þessi niðurstaða er framar öllum mínum björtustu vonurn," sagði Þor- bergur. Hann sagði að stór hópur fólks hefði tekið þátt í prófkjörsbaráttunni með honum síðustu tvær vikurnar og hefði markviss vinna þess skilað þess-. um árangri. Sagðist hann vilja þakka þessu fólki sérstaklega fyrir. Fólk lætur málefnin ráða Olafur F. Magnússon læknir og varaborgarfulltrúi varð í 10. sæti í kosningunum, en hann var í 17. sæti listans við síðustu borgarstjórn- arkosningar. Sagðist Ólafur vera ánægður með þennan árangur. „Ég var með litla sem enga svokall- aða kosningavél í kringum mig í þess- ari baráttu. Ég tel að ég fái þessa kosningu fyrst og fremst út á þá sér- stöðu sem ég hafði í áherslum á málefni þó hún hafi farið fram hjá mörgum frétta- og blaðamönnum. Mér finnst að sjálfstæðisfólk hafi sýnt að það lætur málefnin ráða miklu í valinu, sem betur fer, og vil ég þakka því fyrir stuðninginn í þessu próf- kjöri,“ sagði Ólafur. Aðalatriðið að halda meirihlutanum Páll Gíslason læknir og borgarfull- trúi sagðist hafa vonast eftir betri útkomu en væri þó sáttur við ellefta sætið. „Maður verður að viðurkenna að kjósendur hafi alltaf rétt fyrir sér og taka þeirra dómi,“ sagði hann. Páli hefur verið borgarfulltrúi í 20 ár og þar áður í 8 ár bæjarfulltrúi á Akranesi. í prófkjöri flokksins fyrir átta árum varð hann í 4. sæti og tók 8. sætið við uppstillingu listans fyrir síðustu kosningar. Páll verður sjötug- ur síðar á árinu. Sagðist hann ekki sjá eftir því að hafa boðið sig fram í prófkjörinu. Hann hefði gjarnan vilj- að vinna meira að borgarmálunum en einhvern tímann yrðu menn að hætta. Páll sagði að sér litist vel á list- ann, þarna væri meðal annars nýtt fólk sem hann þekkti af öllu góðu. „Aðalatriðið er þó að halda meirihlut- anum, það skiptir meira máli en hveij- ir komast að,“ sagði Páll. Góður varnarsigur Anna K. Jónsdóttir, lyfjafræðingur og borgarfulltrúi, varð í 12. sæti próf- kjörsins. Hún var í 13. sæti í prófkjör- inu fyrir átta árum en var færð upp í 5. sæti framboðslistans við síðustu borgarstjórnarkosningar og hefur verið borgarfúlltrúi á yfirstandandi kjörtímabili. Hún sagðist hafa verið með erfiða málaflokka, meðal annars dagvistar- málin, og hafa fengið ósanngjarna og ranga umfjöllun, bæði um hluta þeirra mála sem hún hefði haft með að gera og í prófkjörsbaráttunni sjálfri. Því hefði mátt búast við slakri útkomu. Sagðist húri~líta svo á að miðað við það hvernig mál hefðu ver- ið rekin væri það góður varnarsigur að ná 12. sætinu. Nefndi hún í því sambandi að talað hefði verið um að hún félli á svipaðan hátt og Sveinn Andri Sveinsson, en hann hefði farið niður fyrir 15. sætið. „Ég tók ákvörðun um framboð á síðustu stundu og byrjaði mjög seint á prófkjörsbaráttunni. Það var hins vegar unnið af krafti og ég fann að starf okkar skilaði þeim árangri að ég var á sækja á hægt og bítandi þó það hafi ekki dugað," sagði Anna. Deilan við Ornólf skaðaði Júlíus Hafstein, framkvæmdastjóri og borgarfulltrúi, var í sjöunda sæti framboðslistans við síðustu kosning- ar, var þá færður upp um eitt sæti frá próikjörinu fyrir átta árum, og hefur þennan tíma verið borgarfull- trúi. Hann féll niður í 13. sætið í prófkjörinu nú og sagðist hann ekki telja það viðunandi útkomu. Júlíus sagði erfitt að skýra þessa breytingu. „Það er ljóst að deilan við Örnólf Árnason og Rithöfundasam- bandið sem kom upp skömmu fyrir prófkjörið hefur skaðað mig verulega. Mikill darraðardans varð vegna þessa í sumum ijölmiðlum og er það sér- stakt mál þegar maður horfir á þetta mál eftir á. Fram að þessari deilu hafði kosningabaráttan gengið mjög vel, ég var í fremstu röð í öllum könn- unum sem gerðar voru eftir að ég hóf baráttuna. Ég tel að þetta mál hafi ráðið úrslitum," sagði Júlíus. Júlíus sagðist nú endurmeta stöðu sína. Taldi hann ólíklegt að hann tæki 13. sætið þó honum yrði boðið það. Aðspurður hvort hann hygðist reyna fyrir sér í borgarmálunum á öðrum vettvangi sagði hann að ekki væri tímabært að segja neitt um það. „Ég vil sem minnst segja um þetta nú, vil láta daginn líða og fá niður- stöðuna," sagði Júlíus Hafstein. Geld fyrir breytingu á SVR Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður og borgarfulltrúi, hefur ekki áður tekið þátt í prófkjöri. Við ákvörðun um framboðslista fyrir síðustu borg- arstjórnarkosningar var honum stillt upp í 10. sætið og náði hann kosn- ingu. Hann var ekki meðal 15 efstu í prófkjörinu nú. „Ég tel að skýringin sé sú að ég tók að mér erfið verkefni og var í fararbroddi við umdeildar ákvarðanir flokksins," sagði Sveinn Andri og vís- aði til breytingar á rekstrarfyrir^ komulagi Strætisvagna Reykjavíkur, þar sem hann var formaður. „Ekki gafst nægur tími til að fá reynslu á þessa breytingu og ekki var haldið uppi nægum andsvörum við því íjöl- miðlafári sem þyrlað var upp vegna þessa máls. Ég er að gjalda fyrir það, taka út fyrir þetta mál sem sjálf- stæðismenn hafa greinilega ekki með- tekið. Reynslan verður að skera úr um hvort þessar breytingar voru skynsamlegar," sagði Sveinn Andri, en sagðist sjálfur vera sannfærður um að svo væri. Sveinn Andri sagði að úrslit próf- kjörsins væri tímabundið baksiag hjá sér. „Ég ætla aftur inn í borgarmál- in. Ég hef þá trú að störf mín verði metin að verðleikum þegar verkin sanna sig,“ sagði hann. Hann sagði gott að Markús Örn Antonsson borgarstjóri hefði fengið nokkuð örugga kosningu og eins væri ánægjulegt að sjá yfirburði Árna Sigfússonar í öðru sætinu, enda biði listans erfitt verkefni í vor. REYKJAVIK Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins Atkvæði Alls Hlut- 1. 1.-2. 1.-3. 1.-4. 1.-5. 1.-6. 1.-7. 1.-8. 1.-9. 1.—10. 1.—11. 1.-12. fall % 1. Markús Örn Antonsson 6.329 7.452 88,3 2. Árni Sigfússon 762 3.401 6.721 79,6 3. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 563 1.813 2.890 6.066 71,9 4. Inga Jóna Þórðardóttir 106 1.433 2.423 2.992 5.681 67,3 5. Hilmar Guðlaugsson 44 171 438 2.130 2.680 5.308 62,9 6. Gunnar Jóhann Birgisson 60 302 712 1.964 2.623 3.147 5.249 62,2 7. Guðrún Zoega 42 266 1.462 1.978 2.529 2.981 3.500 5.109 60,5 8. Jóna Gróa Sigurðardóttir 13 147 986 1.386 1.876 2.365 2.859 3.367 4.853 57,5 9. Þorbergur Aðalsteinsson 36 102 243 442 741 2.066 2.571 .3.028 3.532 4.556 54,0 10. Ólafur F. Magnússon 47 172 361 826 1.307 1.846 2.396 2.946 3.442 3.890 4.379 51,9 11. Páll Gíslason 73 593 960 1.233 1.630 1.961 2.367 2.797 “''8.245 3.732 3.978 4.177 49,5 12. Anna K. Jónsdóttii' 38 225 558 838 1.332 1.724 2.158 2.649 3.112 3.535 3.779 4.000 47,4 13. Júlíus Hafstein 68 804 1.242 1.510 1.819 2.080 2.410 2.723 3.033 3.305 3.462 3.595 42,6 14. Helga Jóhannsdóttir 8 37 122 242 454 711 1.351 1.788 2.225 2.713 3.021 3.294 39.0 15. Björgólfur Guðmundsson 77 205 409 597 1.165 1.502 1.874 2.243 2.590 2.909 3.106 3.264 38,7 Röð annarra frambjóðenda: 16. Amal Rún Qase. 17. Katrín Gunnarsdóttir. 18. Sveinn Andri Sveinsson. 19. Sigurjón Á. Fjeldsted. 20. Sigríður Sigurðardóttir. 21. Þórhallur Jósepsson. 22. Axel Eiríksson. 23. Haraldur Blöndal. 24. Einar G. Guðjónsson. 25. Þorleif- ur Hinrik Fjeldsted. Tíu efstu með bmdandi kosningu TÍU efstu frambjóðendurnir í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík hlutu bindandi kosningu á lista flokksins við borgarstjórnar- kosningarnar í vor. Til þess þurftu þeir að fá helming gildra atkvæða í prófkjörinu. Markús Orn Antonsson borgarsljóri hlaut flest atkvæði í prófkjörinu, 7.452 talsins, sem er 88,3% af gildum atkvæðum. Hann fékk 6.329 atkvæði i fyrsta sætið, eða 75%. Árni Sigfússon fékk 762 atkvæði í fyrsta sæti og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fékk 563 atkvæði i það sæti, en aðrir mun minna. Á kjörskrá þegar kjörfundur hófst var 13.771 flokksbundinn sjálfstæðismaður og á meðan kjör- fundur stóð bættust á kjörskrá 797 Reykvíkingar sem undirrituðu inntökubeiðni í Sjálfstæðisflokk- inn, þannig að við lok kjörfundar voru 14.568 á kjörskrá. Alls greiddu atkvæði 8.845, eða 60,7% þeirra sem á kjörskrá voru. Gild atkvæði voru 8.440, en auð og ógild alls 405. Sjálfstæðisflokkurinn gefur upplýsingar um röð og atkvæði 15 efstu þátttakendanna en ekki þeirra tíu sem neðar urðu. Endurnýjun Fjórir borgarfulltrúar flokksins, Anna K. Jóns- dóttir, Júlíus Hafstein, Páll Gíslason og Sveinn Andri Sveinsson, féllu niður fyrir tíu efstu sætin. Er því útlit fyrir töiuverða endurnýjun í röðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins því þar að auki gáfu þrír borgarfulltrúar ekki kost á sér til endurkjörs, en það eru Davíð Oddsson, Magnús L. Sveinsson og Katrín Fjeldsted.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.