Morgunblaðið - 02.02.1994, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 02.02.1994, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994 Nýliðun og stærð þorskstofnsins eftir Guðrúnu Marteinsdóttur Því hefur verið haldið fram að lítil fylgni sé á milli stofnstærðar og nýliðunar í þorskstofninn. Ein- staka aðilar, þar á meðal Kristinn Pétursson (sjá t.d. Morgunbl. grein 20. jan. 1994) hafa jafnvel talið að nýliðun sé í öfugu hlutfalli við stofn- stærð. Kristinn hefur bent á, máli sínu til stuðnings, að klak hafi oft heppnast vel þó svo að stofninn væri í lágmarki (sbr. árin 1973, 1983 og 1984). Þessi túlkun á sam- spili stofnstærðar og nýliðunar er byggð á misskilningi. Slíkur ‘mis- skilningur, ef hann er tekinn trúan- legur, getur reynst fiskveiðiþjóð sem okkur hættulegur. í þessari grein verður leitast við að skýra á hvern hátt nýliðun í þorskstofninn tengist stærð hans.. Rannsóknir á samspili stofnstærðar ^ og nýliðunar hafa leitt í ljós að stærð árganga er ekki í beinu sam- bandi við stærð stofnsins á þeim tíma sem klak á sér stað. Stærð árganganna tengist hins vegar ald- urssamsetningu hrygningarstofns- ins og hiutfallslegum fjölda þeirra einstaklinga sem eru til staðar í hverjum aldurshóp á þeim tíma sem klak á sér stað. Eins og lesendur munu sjá þá aukast líkurnar á að fá góða nýliðun þegar hrygningar- stofninn er samsettúr úr mörgum aldurshópum og fjöldi einstaklinga ~*í elstu aldurshópunum er hlutfalls- lega hár. Slík aukning í elstu aldurs- hópunum kemur hins vegar ekki fram nema að stofninn sé yfir ákveðinni lágmarksstærð. Aldurssamsetning hrygningarstofnsins Til þess að skilja í hveiju sam- bandið á milli stofnstærðar og nýlið- unar felst þá verðum við að byija á að skoða þær breytingar sem hafa átt sér stað í aldurssamsetn- ingu hrygningarstofnsins. Þegar lit- ið er á aldurssamsetningu hrygn- ingarstofnsins eins og hún var hér áður fyrr (sjá t.d. árin 1955-1958 á mynd 1) þá sjáum við að stofninn 'var yfirleitt mjög fjölbreytilegur, þ.e.a.s. margir sterkir árgangar voru til staðar í stofninum hveiju sinni og þessir sterku árgangar ndðu oft háum aldri áður en þeir hurfu úr stofninum. Á síðari árum er aldursdreifingin mun þrengri. í flestum tilfellum er aðeins einn sterkur árgangur til staðar hveiju sinni og oft er búið að veiða megn- ið af honum þegar hann hefur náð 7-8 ára aldri. Það er sérstaklega áhugavert að líta á nýliðunina út frá þessum breytileika. Til þess að það sé hægt verðum við að meta fjölbreytileika stofnsins á hveiju ári þannig að hægt sé að skoða tölu- legt samband á milli nýliðunar og þess breytileika sem einkennir ár- gangaskipan hrygningarstofnsins. Þetta er hægt að gera með því að reikna út eins konar breytileika- stuðul (H). Þessi stuðull er óháður stærð stofnsins hveiju sinni. Stærð stuðulsins fer hins vegar eftir því hversu margir árgangar eru fyrir hendi í stofninum hveiju sinni og hvernig fjöldi fiska dreifist á ár- gangana. Stuðullinn er stærstur þegar margir sterkir árgangar eru fyrir hendi en minnkar eftir því sem aldursdreifingin þrengist og ijöldi sterkra árganga minnkar. Þannig er breytileikinn t.d. mjög mikill árið 1955 (H = 0,88, sjá mynd 1) en með minnsta móti árið 1991 (H = 0,66). Breytileiki í aldurssamsetningu hrygningarstofns og nýliðun Mynd 2 sýnir líkurnar á að fá góða nýliðun þegar breytileiki í ald- urssamsetningu er annað hvort mikill eða lítill. Það er ljóst að ef breytileiki er fyrir neðan meðallag (<0,76) þá eru mjög litlar líkur á að nýliðun verði fyrir ofan meðallag (>205 milljónir þriggja ára fiska). Af þeim 18 árum sem einkennast af litlum breytileika, þ.e. þröngri aldursdreifíngu, þá er nýliðun góð í aðeins þremur tilvikum, eða 16% tilfella. Hinsvegar ef breytileikinn er fyrir ofan meðallag þá getum við átt von á að fá góða nýliðun í 60% tilfella en einnig lélega nýliðun í 40% tilfella. Stærð hrygningarstofns, breytileiki í aldurssamsetningu og nýliðun Ef við lítum á 3. mynd sjáum við að breytileikinn virðist sveiflast í öfugu hlutfalli við stærð hrygning- arstofnsins. Þegar hrygningar- stofninn er hlutfallslega stór eins og t.d. á árunum 1969-1971 og 1979-1981 þá er breytileikinn hlut- fallslega lágur. Ástæðurnar fyrir þessu liggja í því að breytileiki í Dr. Guðrún Marteinsdóttir „Slíkur misskilningur, ef hann er tekinn trúan- legur, getur reynst fiskveiðiþjóð sem okkur hættulegur.“ stofninum hveiju sinni er háður því hversu margir aldurshópar eru fyrir hendi. Breytileikinn eykst því þegar sterkir árgangar vaxa upp í gegn- um stofninn og ná hlutfallslega háum aldri (t.d. 10-12 ára aldri) samfara auknum fjölda aldurshópa í stofninum. Stærð hrygningar- stofnsins er hinsvegar mest þegar fiskarnir í þessum sterku árgöngum eru ennþá aðeins 6-8 ára gamlir, þ.e. á þeim árum sem að þeir eru ennþá til staðar í miklum fjölda í stofninum. Hár breytileiki í aldurs- samsetningu hrygningarstofnsins tengist því ekki stærð stofnsins á hveijum tilteknum tíma heldur frekar stærð stofnsins nokkrum árum fyrr, þ.e. þegar þeir fiskar sem mynda eldri árgangana eru aðeins 6-8 ára gamlir og eru enn til staðar í miklum fjölda. Þetta skýrist best með því að fylgja sterku árgöngunum upp í gegnum stofninn. Ef við lítum á árganginn frá 1964, þá sjáum við að þegar hann hefur náð 6 ára aldri, árið 1970, þá hefur stærð stofnsins stækkað (einstaklingamir úr 1964 1955 H = 0.88 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 80 60 40 20 0 1988 H = 0.68 1956 1989 1957 1990 1958 1991 H = 0.66 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 I. mynd. Aldurssamsetning hrygningarstofnsins á árunum 1955-1958 og 1988-1991. Súlurnar sýna fjölda fiska (millj.) í hveijum aldurshópi. Breytileikastuðull (H) er gefinn fyrir hvert ár. Breytileikastuðull 2. mynd. Sambandið á milli árgangaskipanar hrygningarstofnsins og nýliðunar á árunum 1955-1992. Línurnar skipta gögnunum í 4 hópa sem afmarkast af meðalnýliðun (lárétt) og meðalbreytileika (lóðrétt). Breytileikastuðull 1.0 65 60 65 70 76 80 85 90 Ár Stærð hrygningarstofnsins (Þús. tonn) Nýliðun í þorskstofninum (Millj. 3 ára fiska) 500, Árgangar 3. mynd. Breytileiki í árgangaskipan, stærð hrygningarstofns og nýliðun þorskstofnsins á árunum 1955-1992. árganginum hafa aukið við sig í þunga og eru ennþá til staðar í miklum fjölda í stofninum). Breyti- leikinn er hinsvegar lítill þar sem aldursdreifingin einkennist aðallega af mörgum 6 ára fiskum en færri fiskum íyngri og eldri aldurshópun- um. Það er ekki fyrr en þessir físk- ar ná 9-10 ára aldri, á árunum 1973-1974, sem breytileikinn vex að nokkru marki. Samfara auknum breytileika vaxa líkurnar á að fá góða nýliðun og árið 1973 verður til stærsti árgangurinn á þessu tímabili. Stærð stofnsins hefur hins- vegar minnkað þar sem megnið af 1964 árganginum hefur verið veitt. Á þennan hátt sveiflast stærð stofnsins og breytileiki í árganga- skipan stofnsins sitt á hvað. Þar sem líkurnar á að fá góða nýliðun aukast þegar margir ald- urshópar eru fyrir hendi í stofninum hveiju sinni, þá er ljóst að ein af forsendunum fyrir því að fá góða nýliðun felst ekki í því að stofninn sé stór á þeim tíma sem klak á sér stað, heldur að stofninn hafi verið stór nokkrum árum áður, þ.e. á þeim árum þegar sterku árgangarn- ir voru aðeins 6-8 ára gamlir. Enn- fremur er nauðsynlegt að þessir árgangar hafi fengið að vaxa upp í gegnum stofninn og ná tiltölulega háum aldri (í það minnsta 10-11 ára aldri) þannig að sá breytileiki sem felst í auknum Qölda aldurs- hópa náist. Friðanir á hrygningarslóð þegar hrygning er í hámarki gegna m.a. þeim tilgangi að minnka sókn í elsta hluta hrygningarstofnsins. Þessi friðun má þó ekki verða til þess að sókn í yngri hluta stofnsins aukist. Sú hætta sem blasir við okkur í dag er augljós ef við lítum á stofnstærð- arsveiflurnar sem myndast þegar sterku árgangarnir ganga upp í gegnum stofninn (3. mynd). Vegna aukins veiðiálags þá eru topparnir sem koma fram við 6-7 ára aldur þeirra fiska sem mynda sterku ár- gangana alltaf að verða minni og minni. Að sama skapi þá eru það alltaf færri og færri fiskar sem ná 10 ára aldri. Sterku árgangamir frá 1983 og 1984 eru nú að vaxa upp í gegnum stofninn og hafa þeir nú náð 10 og 11 ára aldri. Sú aukning sem á sér stað í fjölda 10 ára fiska og eldri mun leiða til aukins breytileika í stofninum og þar með auka líkurn- ar á að fá betri nýliðun en verið hefur. Það er þó áhyggjuefni að fyöldí fiska í þessum elsta hluta stofnsins er ekki eins mikill og hann var t.d. á árunum 1983-1984 þeg- ar 1973 árgangurinn hafði náð sambærilegum aldri. Líkurnar á að fá jafn sterka árganga eins og á árunum 1973, 1983 og 1984 eru því ekki eins góðar en þær útiloka hinsvegar ekki möguleikann á að fá nægilega mikla nýliðun til þess að hægt verði að byggja stofninn upp aftur. Höfundur er doktor í fiskvistfræði ogstarfará Hafrannsóknastofnun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.