Morgunblaðið - 02.02.1994, Síða 37

Morgunblaðið - 02.02.1994, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994 37 STJÖRNUSPÁ eftir Frattces Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Viðræður um fjármál bera góðan árangur. Þú þarft að sýna taugaspenntum vini nærgætni. Varastu óhóflega eyðslu. Naut (20. apríl - 20. maí) Farðu gætilega í fjármálum og vertu ekki með of mörg járn í eldinum. Ástvinir eiga góðar stundir með gömlum vinum. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þér miðar vel áfram í vinn- unni árdegis en einhverjir erfiðleikar geta komið upp í samskiptum við starfsfélaga síðdegis. Krabbi (21. júní - 22. júlí) H|0 Góð skemmtun stendur þér til boða í dag. Gættu þess samt að ganga ekki of langt þótt þú viljir gera þér glaðan dag. (23. júlí - 22. ágúst) Þú lætur þér ekki allt fyrir btjósti brenna en eitthvað getur komið þér úr jafn- vægi. Reyndu að forðast fjöl- skyldueijur. Meyja (23. ágúst - 22. septeinber) Félagar vinna vel að sameig- inlegum hagsmunum í dag þótt smá vandamál geti kom- ið upp. Láttu ekki óþreyju draga úr afköstunum. Vog (23. sept. - 22. október) Þú fagnar góðu gengi í vinn- unni í dag og fjárhagurinn fer batnandi. Þú ættir samt ekki að taka neina áhættu í peningamálum. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þér tekst að leysa vanda barns í dag. Sýndu aðgát í vinnunni svo ekkert fari úr- skeiðis. Ættingi er eitthvað önugur. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) m Dugnaður þinn skilar góðum árangri árdegis, en þegar á daginn líður hefur þú til- hneigingu til að taka lífinu með ró. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ágreiningur getur komið upp varðandi peninga. Hik- aðu ekki við að láta álit þitt í ljós. Kvöldið verður skemmtilegt. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Láttu ekki gera of miklar kröfur til þín þótt þér hafi gengið vel að leysa vandamál í vinnunni. Láttu skynsemina ráða. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Reyndu að komast hjá deil- um við þröngsýna starfsfé- laga í dag. Hafðu skynsem- ina að leiðarljósi við undir- búning ferðalags. Stjörnuspána á aó lesa sem dœgradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staöreynda. DÝRAGLENS GRETTIR TOMMI OG JENNI FERDINAND Eigum við að lesa meira úr „Baskervillehundinum“ í Allt í laei, éir er tilbúinn... kvöld? BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson Lightner-dobl á slemmum er sagn- venja sem reyndir keppnisspilarar vildu ekki vera án. En útspilsdoblin eru ekki með öllu hættulaus. Hér er líflegt dæmi um það úr danskri tví- menningskeppni: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♦ 83 ♦ 653 ♦ ÁKG84 ♦ 532 Vestur Austur ♦ KG10652 ♦ D974 ♦ KG1084 ¥92 ♦ 65 ♦ 97 ♦ - ♦ D9864 Suður ♦ Á ♦ ÁD7 ♦ D1032 ♦ ÁKG107 Vestur Norður Austur Suður - Pass Pass 1 lauf 2 lauf* 2 tíglar Pass 3 hjörtu,< Pass 4 tíglar Pass 4 grönd Pass 5 työrtu Pass 7 tíglar Dobl Pass Pass 7 grönd Allir pass * hálitir ** cinspil eða eyða í hjaiia!! Um leið og norður sýndi tígullit, ákvað suður að keyra í slemmu, jafn-„ vel alslemmu. En það gat verið óþægi- legt að fá út hjarta í gegnum ÁDx og hugmynd suðurs með „splinter"- stökkinu í þijú hjörtu var einmitt sú að fæla frá hjartaútspili. Hann spurði síðan um lykilspil, fékk upp tvö (þ.e. ÁK i trompi) og lét það vaða f sjö á þeirri forsendu að svíningin fyrir lauf- drottningu væri líkleg til að heppn- ast. Vestur staðfesti það mat strax með Lightner-dobli! Suður hafði auð- vitað enga hugmynd um hvort hann ætti nóg af slögum í grandsiemmu, en það var alla vega tilraunarinnar virði að breyta sjö grönd frekar en sætta sig við einn niður í sjö tíglum. Besta útspil vesturs er vafalítið tíg- ull, en hann trúði sögnum suðurs og kom út með hjartagosa(!?) Hann bjóst við að suður ætti einspil í hjarta og ætlaði að skera á sambandið í litnum strax í byijun. Suður fékk því ódýran slag á hjartadrottningu. Hann fór síð- an inn í borð á tígul, lét út lauftvist- inn og djúpsvínaði sjöunni þegar aust- ur lét fjarkann duga. Þrettán slagir. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Þessi staða kom upp á alþjóð- legu móti í Gausdal í Noregi í ársbyijun í viðureign tveggja norskra alþjóðlegra meistara. Rune Djurshuus (2.460) hafði hvítt og átti leik en stórmeistara- efni Norðmanna Jonathan Tisd- all (2.465) var með svart. Hann lék síðast 26. — Bb7 — a8. 27. Hxh5+! - gxh5, 28. Hgl - Hg8, 29. Bh6! og Tisdall gafst upp, því eftir 29. - Kxh6, 30. Dg5+ — Kh7, 31. Dg6+ verður hann mát. Djurhuus sigraði á mótinu, hlaut 6 vinninga, en þurfti hálfum meira til að hreppa áfanga að stórmeistaratitli. Röð annarra:' 2. Igor Ivanov, Bandaríkjunum 5>/2 v. 3.-4. Éinar Gausel og Csom, Ungveijalandi 6 v. 5.-8. Ernst, Svíþjóð, King, Englandi, Tisdall og Bjarke Kristensen, Danmörku 4 h 'h v. 9. Berge Öst- enstad 3'/2 v. 10. Ivar Bern 2 v. f kjölfar þessa móts var haldið opið mót í Gausdal þar sem Þröst-^ ur Þórhallsson náði góðum árangrf og varð í 3.-4. sæti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.